Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Blaðsíða 14

Útvarpsblaðið - 15.04.1951, Blaðsíða 14
r--------------------------------------------------------------------------------------> Útgáfan „KVÖLDVAKA" Útgáfan „Kvöldvaka“ hefur látið fjölrita sex leikþætti eftir Jón Snara; gamanþætti, sem eru einkar heppileg viðfangsefni fyrir fámennari fé- lög og leikhópa. Þættirnir verða sendir í póstkröfu hvert á land, sem óskað er; verðið er kr. 300,00 — leikleyfisgjald innifalið. Sendið pantanir sem fyrst, þar sem upplagið er takmarkað. Útgáfan „Kvöldvaka" P. O. 1033 - Reijkjavík Og að síðustu þetta • •.. Ekki þætti mér óviðeigandi, þótt hlustendur væru á hverju kvöldi af ríkisútvarpsins hálfu kvaddir með laglegu vögguljóði, sungnu af hljómþýðri, taugaróandi kvenmannsrödd. Þýkist ég viss um, að þá yrði forráðamönnum dagskrárinn- ar margt fyrirgefið,— meira að segja ekki með öllu útilokað, að einn og einn hlustandi hugsaði hlýtt til þeirra, er hann væri að festa svefninn, en þá eru hugsanir manna máttug- astar að dulfróðra manna sögn. Gæti þetta því orðið til þess, að þeir svæfu sjálfir værar og nytu sælli drauma, en það gæti svo aftur orðið til þess, að þeir vöknuðu glaðari og hvíldari að morgni og tækist þá betur með þeim samvinna dagsins. Set ég hér að lokum eitt lítið vögguljóð, sem ef til vill mætti nota í því skyni. Hlustandi hvíl þú í ró. Hvílir nú Baldur og có. Þagnaður Pétur vor P. Páll hygg ég nýfloginn sé dúrs og moll draumlanda til, drífandi slátt sinn og spil. Hjörvar sér snýr upp í horn. Hrýtur nú Vilhjálmur Þorn. Hlustandi, hvíl þú í ró. Hefurðu ei senn fengið nóg? Jazzöskur, truflanir, tal, tónleika og söngvaragal. Höfuðverk hljóma og máls, hlustarverk . . . nú ertu frjáls. Hlustandi, — hrjót þú í ró, í H-moll, — með Þórarni og có. 14 ÚTVARPSBLAÐH)

x

Útvarpsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpsblaðið
https://timarit.is/publication/726

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.