Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Blaðsíða 14
*
*
Ragnhciður Guðmundsclóttir Herdís Ásgeirsdóttir Magnea Sigfúsdóttir
jStúlbrnar/ sem (esa veðurfréttírnnr
FYRIR alllöngu fengum við bréf frá
loftskeytamanni staðsett „á sjónum“. Þar
segir m. a.:
Eina ósk hef ég fram að færa. Hún
er sú að þér birtið mynd í blaðinu af
stúlkunni, sem hefur „Ijúfustu" röddina
af þeim, sem nú heyrast í útvarpinu. Ef
þér hafið ekki tilfinningu fyrir fallegri
kvenrödd og vitið ekki hver stúlkan er
— já, þá vantar yður nokkuð. En stúlkan
sem ég hlusta alltaf á, l>æði vegna þess
að ég er svo lirifinn af henni (rödd henn-
ar) og einnig vegna þess að það er m.
a. atvinna mín, er ein af þeim sem les
veðurfregnirnar frá veðurstofunni. Nú
eru fleiri stúlkur en hún sem ,,les veðr-
ið“, en sú sem ég hlusta á las t. d. veður-
fregnirnar kl. 18.25 þ. 9. marz s. I. Ég
bið yður að fara nú á stúfana og birta
mynd af henni, og skilið beztu kveðju
til hennar frá loftskeytamanni á sjónum.
★
Við fórum strax á stúfana og þó hefur
bið orðið á bænheyrslunni. Það er ekki
alltaf vandalaust að fá mynd af ungri
stúlku til birtingar. Stúlkurnar sem lesa
veðurfréttirnar eru þrjár — nú um tíma
raunar fjórar. — Ég vildi ekki biðja um
mynd af aðeins einni þeirra og verður
„loftskeytamaður“ að afsaka það. Hann
verður því sjálfur að gera sér í hugar-
lund hvor þeirra það er sem „ljúfasta hef-
ur röddina".
Þær eru allar ungar, ein þeirra er gift,
önnur trúlofuð, þriðja laus og liðug. Ef
einhver skyldi vilja heimsækja þær að
störfum vara ég við því að arka ekki
upp í Veðurstofu í Sjómannaskólanum
eins og ég gerði á dögunum. Þær halda
sig nefnilega í flugturninum úti á Reykja-
víkurflugvelli, ásamt mörgum ungum
veðurfræðingum er þar starfa. Þar er allt-
af ein þeirra á vakt, stundum tvær. Þær
taka við viðurskeytum utan af landi, hafa
samband við veðurvitringa Keflavíkur-
flugvallar og gera jafnvel veðurathugan-
ir ásamt veðurfræðingunum, en aðalstarf
þeirra er þó að semja veðurfréttirnar,
14 útvarpstíðindi