Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Blaðsíða 18

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.05.1952, Blaðsíða 18
GÓÐAR BÆKUR vilja allir íslendingar eignast, í hvaða stöðu og stétt sem þeir eru. Bókmenntafélagið Mál og menning er samtök áhugafólks um útgáfu á úrvals bókum. Nú er nýr áfangi hafinn í sögu félagsins: lóhannes úr Kötlum Snorri Hjartarson ★ FRJStjST BÓKSVÆL * Til viðbótar a. m. k. þrem íélagsbókum (Tímaritinu, skáldsögunni Þrælunum eítir Hans Kirk og Ljóðmæl- um Sveinbjarnar Egilssonar) geíur Mál og menning út 1952 á forlagi Heimskringlu eftirtaldar níu bækur þar sem menn geta valið um hverjar þrjár eða sex eða tekið bækurnar allar: 1. Dagbók í Höín 1848, eítir Gísla Brynjúlísson. 2. Saga þín er saga vor, eitir Gunnar Benediktsson. 3. SóleyjarkvæSi, nýr ljóSail. eítir Jóhannes úr Kötlum. 4. Kristallinn í hylnum, ný ljóS eitir GuSm. BöSvarss. 5. Ný kvæSi, ettir Snorra Hjartgrson. 6. Undir Skuggabjörgum, sögur eítir Kristján Bender. 7. Klarkton, skáldsaga eitir Howard Fast. 8. Plágan, skáldsaga eitir Albert Camus. 9. JörS í Aíriku, minningar eitir Karen Blixen. Kjörin fyrir félagsmenn (og nýja menn sem ganga í félagið) eru þessi: a. Fyrir 75 krónur félagsb. (minnst 3 með Tímarit.). b. Fyrir 200 — félagsb. og 3 bæk. að auki e. vali. c. Fyrir 300 — félagsb. og 6 bæk. að auki e. vali d. Fyrir 400 - félagsb. og 9 bækur að auki, og greiði menn minnst 50 kr. um leið og þeir ger- ast áskrifendur. Dagbók GÍSLA BRYNJÚLFSSONAR á enga hliðstæðu í íslenzkum bókmenntum. Hún er öviðjafnanleg heim- ild um líf íslendinga í Höfn í það mund sem hún er rituð. Ritgerðasafn GUNNARS BENEDIKTSSONAR er saga íslands frá vordögum 1940 til jafnlengdar 1949, og gefur yfirsýn um viðburði þessara ára, er bókin rituð af alkunnri stílsnilld þessa höfundar þar sem fer saman ljós hugsun, rökfesta, alvöruþungi og hressileg kímni. Sóleyjarkvæði JÓHANNESAR ÚR KÖTLUM, er sam- felldur ljóðafloklcur um nútíðarörlög íslendinga með sögulegum efnisþræði. Hér kveður við nýjan streng í hörpu þessa vinsæla skálds og mun þessi bók koma mörgum á óvart. Ljóð GUÐMUNDAR BÖÐVARSSONAR eiga bæði feg- urð og líf úr huga skáldsins og náttúrunni umhverfis hann, bera í sér víðsýni og fegurðarþrá, frjómagn og lyngilm úr jörðu. Menn eiga góðs að vænta þar sem er næsta ljóðabók skáldsins. Með Kvæðum 1944 skipaði SNORRI HJARTARSON sér sess meðal fremstu listaskálda þjóðarinnar með ljóðum, sem eiga sér eilíft gildi í bókmenntum. Ljóð hans eru persónulega tengd íslandi, þrungin fagn- andi ást á landinu. Þau eiga sér fegurð, sem nær á mönnum því sterkari tökum, sem þeir kynnast þeim betur. Fyrra smásagnasafn KRISTJÁNS BENDER, Liiendur og dauSir lýsti efnilegu skáldi, fékk góðar undir- tektir og er uppseld. Nýju sögurnar sýna þó miklu þroskaðri höfund er segir skemmtilega frá, er hug- kvæmur, djarfur og kíminn. ÞÝDDU SKÁLDSÖGURNAR tvær eru eftir snjallo nútímahöfunda, bandarískan og franskan og JörS i Aíríku er sannar frásagnir eftir danska barónessu- Sendið umboðsmanni Máls og menningar í yðar byggðarlagi áskrift fyrir 17. júní n. k. eða snúið yður beint til Bókav. Máls og menningar, Laugavegi 19, Reykjavík. Pósthólf 392. Gunnar Benediktsson Guðmundur Böðvar3son 18 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.