Prentarinn - 01.08.1910, Side 1
PRENTARAFÉLAGIÐ
1897-1910
(stutt yfirlit).
Arið 1904 er mjög eftirtektavert timabil
í starfsemi prentarafjelagsins, og verður því
ckki komist hjá, að geta þess allítarlega,
vegna áranna sem í hönd fara.
Á aðalfundi 21. fehr. eru kosnir í stjórn
þess Guðjón Einarsson form., Guðm. Pór-
steinsson ritari og Einar Hermannsson féh.
Félagsmenn eru um 20 í ársbyrjun, en 6
bætast við á árinu. Fjárhagurinn er þröngur,
cnda gengið til þurðar næstliðin tvö ár.
Hlutavclta erhaldin síðari hluta ársins til
ágóða fyrir sjúkrasjóðinn; gefur hún af sér
700 krónur í ágóða.
Fegar eftir aðalfund tekur félagið að
vekja upp samningstnálið og hreyfa þvi fyrir
alvöru; skrifa prentsmiðjueigendum og leita
hófanna um samvinnu. Og 1. mai eru bornar
upp i félaginu tillögur til samnings, er sam-
þyktar eru í einu hljóði. Eru þær síðan
lagðar fyrir prentsmiðjueigendur. En svörin
eru fá og smá. Einn þeirra þykist að vísu
vera meðmæltur tillögunum, en á svörum
hinna, ef svör geta kallast, er hreint ekkert
að græða, því þau snúast um atriði, er félag-
inu eða tillögum þess koma ekkert við; auk
þess eru þau munnleg. Við þetta situr í bili.
En á fundi 22. júní verða miklar umræður
um þessi »svör — eða svaraleysi«, eins og
komist er að orði i fundarbókinni. Lýkur
þeim þann veg, að skorað er á stjórnina, að
skrifa prentsmiðjueigendum brjef, sem undir-
ritað sé af öllum félagsmönnum, og skora
þar á þá, að senda skrifleg svör og skýr
upp á sainningstillögurnar frá 1 maí; — þetta
var gert þá þegar. En svo liðu samt tímar,
að ekkert kom svarið.
f*á gramdist félagsmönnum.
Voru þeir nú annars vegar í miklum
vafa um, livað gera skyldi — en liins vegar
orðnir stórleiðir á þófi þessu og skriffinsku-
vastri, er mál þetta liafði í för með sér; sáu
líka, að við svo búið hrökk hvorki né stökk.
Fóru svo leikar, að félagsmenn hölluðust
nokkurnveginn einhuga að þvi, að leggja
niður vinnu hjá prentsmiðjueigendum. Sú
hugmynd félck líka byr undir báða vængi
við það, að nokkrir Prentarafélagsmenn
höfðu i kyrþey bundið það fastmælum, að
setja prentsmiðju á stofn, til þess, ef verða
mætti, að bæta kjör sín og lyfta stéttinni.
Að vísu er stofnun þessi félaginu óvið-
komandi, en því er samt ekki að leyna, að
hún skapar þá ósjálfráðu von lijá öllum
þorra félagsmanna, að aðstaða félagsins
gagnvart prentsmiðjueigendunum hljóti að
breytast til batnaðar, og færa það nær sam-
vinnutakmarkinu.
Á fundi 24. sept., kemur fram tillaga á
þá leið, að Prenlarafélagið íslenzka biður
prentarafélögin á Englandi, Pýzkalandi, Dan-
mörku, Sviþjóð og Noregi að auglýsa bann
gegn þvi, að meðlimir þeirra fari til íslands
til að vinna þar. Ástæðan fyrir því sé sú,
að innan skamms hugsi félagið til að leggja
niður vinnu til þess að fá framgengt kröfum
sinum, — og að bannið vari þangað til
félagið liafi tilkynt aflýsingu. — Var lillaga
þessi samþj'kt i einu liljóði.
Nokkru síðar fær félagið brjef frá for-
manni »Dansk Tyjiograf Forbund«, þar sem
hann gefur félaginu bendingar í samninga-