Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Blaðsíða 5

Útvarpstíðindi - 23.07.1945, Blaðsíða 5
ÚTVARPSTIÐINDI 149 \ Sigurður Einarsson, skrifstofustjóri: Alexander Kielland — OG ÚTVARPSSAGAN: „IÓNSMESSUHÁTIÐ í sumar varð það að ráði, að ég læsi útvarpssöguna. Og þegar ég fór að velta því fyrir mér, hvar niður skyldi bera um sögu, varð það ofan á, að taka sögu eftir norska skáldið Alex- ander Lauge Kielland. Og sagan, sem nú var lesin, er Sankt Hans Fest — Jónsmessuhátíð. Kielland er, eins og flestir vita, eitt af gullaldarskáldunum norsku, þessum glæsilega hópi sem varp kynlegum snillibjarma á bókmenntir Norðmanna á síðari hluta aldarinnar, sem leið, og átti drýgstan þáttinn í að kippa þess- ari fámennu þjóð, sem laut erlendu ríki, inn í vitund alls hins menntaða heims, sem hámenntaðri atorkuþjóð. Vart mun það nú verða metið hve drjúgan þátt þessi glæsilega skálda- kynslóð átti í því, að úrslitin í frelsis- baráttu Norðmanna hlutu að verða slík sem þau urðu árið 1905. Þeir höfðu inn á við alið þjóð sfna upp með hvatningu sinni og gagnrýni til þess að verða þeim vanda vaxin að vera sjálfstæð og fullvalda þjóð. Og út á við höfðu þeir borið andlegan hróður Noregs svo glæsilega, að heim- urinn yar búinn að dæma Norðmönn- um sigur í sjálfstæðisbaráttu þeirra, áður en til sjálfra úrslita átakanna kom. í þessari fylkingu átti Kielland einn beittasta pennan, næmustu rétt- lætiskenndina, og þá íþrótt stílsnilli, frásagnargáfu og fyndni, sem ber af flestum öðrum. Ættbogi Kiellands er upprunninn í Sóknadal í Stavangursandi í Noregi, og Stavangur er baksviðið fyrir flest- ar skáldsögur Kiellands. Ættfaðirinn Jacob Jansen Kielland stofnaði verzl- unarhús í Stavangri árið 1751 og stóð það, og einatt með miklum blóma, þangað til 1863, eða þangað til Kiel- land var 14 ára gamall. Afi hans Gabriel Kielland var einn af glæsileg- ustu og umsvifamestu kaupsýslumönn- um og skipaútgerðarmönnum Noregs á sinni tíð. Þetta verzlunarhús er fyr- irmynd Kiellands að Verzlunarhúsinu Garman og Garman og Worce, og Gabriel Kielland, afinn, fyrirmynd hans að gámla konsúlnum í Skipper Worse. Og það má óhætt ganga út frá því, að hvar sem við hittum ein- hvern Garman í ritum Kiellands, þá er hann að skrifa um frændur sína, draga upp myndir af skaphöfn þeirra, örlögum og persónu. Alexander Kielland fæddist árið 1849. Hann varð stúdent árið 1869, átján ára gamall. Hann lagði stund á lögfræði og tók embættispróf í lögum árið 1871. Hann var maður fluggáfað-

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.