Prentarinn - 01.01.1937, Qupperneq 3
PRENTARINN
35
PRENTARANS í það. Þó er rétt að geta þess,
til að sýna, hvað blaðið telur góða og vonda
sanininga fyrir verkalýðinn, að það býsnast
yfir ágætri frainmistöðu járnsmiða og þeirra
dugnaði, þótt ekki hafi þeir haft upp úr þeim
nema kr. 1.51 á viku, og fengið festan i sanin-
ing kaffitíma, sem þeir voru húnir að hafa
samningslaust um langt skeið. Annars er
tímakaup járnsmiða nú kr. 1.82 og enginn er
þar á föstum vikulaunum. Beri menn þetta
saman við þá samninga, sem prentarar náðu,
geta þeir dæmt heilindi þessa hlaðs i mál-
flutningi. Ekki má heldur gleyma fordæm-
inu, sem minnst er á í sambandi við nemana,
og rétt að bera saman kjör prentnema og
þeirra, sem læra i járniðnaðinum.
Það er heldur engin furða, að blaðinu þótti
freistandi að bera saman árangur bátasmiða
og prentara og að það er harðánægt yfir því,
að bátasmiðum skuli leyft að leggja niður
vinnu tvo daga á ári á sinn kostnað, og að
það fyllist úlfúð i garð prentara fyrir þá
frammistöðu, að þeir fengu hálfan dag, með
fullu kaupi, í viðbót við sina fridaga!
En eins og sjá má af tilvitnunum blaðsins,
er hér reynt að gera lítið úr Hinu íslenzka
prentarafélagi, jiví að þó að talað sé um
„forystumenn félagsins" og skuldin eigi að
skella á þeim, ]iá hlýtur HÍP sjálft að taka
þetta til sín, þar sem núverandi stjórn þess
er kosin af stórkostlegum meiri hluta allra
félagsmanna og þeir hafa samþykkt gerðir
hennar á mjög ótvíræðan hátt með atkvæða-
greiðslum.
Er auðséð af öllu, að árásin var gerð af
pólitískum ástæðum vegna þess, að andstæð-
ingar blaðsins fjölluðu um samningana.
En það er illt, ef prentárar hjálpa til þess
að Hinu ísl. prentarafélagi sé niðrað opin-
berlega til stjórnmálalegs framdráttar.
PRENTAltAR UTAN REYKJAVÍKUR!
Sendið hlaðinu stuttar greinar eða fréttir
um mál, sem við koma iðninni eða stéttinni.
Reynum að láta PRENTARANN tengja sam-
an, betur en verið hefur, félaga um land allt!
— Heimilisfang blaðsins: PRENTARINN,
Alþýðuhús Reykjavikur.
f VALDIMAR HERSIR
LÁTINN
Valdimar Hersir var fæddur 24. des. 1891
í Reykjavik. Foreldrar hans voru Brynjólfur
Ögmundsson og Sigríður Freysteinsdóttir.
Föðurættin var borgfirsk, en móðurættin úr
Árnesþingi. Möðir hans var dóttir Freysteins
bónda á Hjalla í Ölfusi, Einarssonar á Þverá.
Valdimar ólst upp i Reykjavik með for-
eldrum sinum og tók að nema prentiðn. I
Félagsprentsmiðjunni var hann til hausts 1915,
en veturinn 1915—10 las liann undir gagn-
fræðapróf. Sumarið 191(5 fór hann í síldar-
vinnu, en sigldi um haustið til Danmerkur.
Þar dvaldi liann þó stutta hrið, og hélt suð-
ur til Þýzkalands og vann að prentverki i
rúmt hálft annað ár. Þennan tima var hann
i Frankfurt, Leipzig og Dresden. Síðan fór
hann aftur til Kaupmannahafnar, en hvarf
þaðan fljótt og kom heim á miðju suniri 1918.
Vann hann ])á í fsafoldarprentsmiðju um
skeið, en réðst austur á Seyðisfjörð og starf-
aði i prentsmiðju þar i tvö ár. Þá kom hann
aftur til Reykjavikur og vann eitthvað í ísa-
foldarprentsmiðju. Síðan réðst hann til Vest-
mannaeyja og vann þar í prentsmiðju og var
um tíma jafnframt ritstjóri Skeggja. 1927
kom hann aftur til Reykjavikur og fekkst