Kristilegt stúdentablað - 01.12.1936, Síða 7
KIIISTILEGT STÚDENTABLAÐ
Guðs og- þeir vegsömuðtu Guð. En mennirnir í heild
•— þeir breyttust ekki. Peir héldu sínu gamla eðli:
Því var ekki rúm fyrir hann í g'istihúsinu; (ann-
ars hefði mátt vænta þess, að það hefði verið
byggð höll,). Þessvegna var hann missklinn, ofsótt-
ur og' hataður alla æfi; því var reistur krossinn
á Golgata. Jata -— og kross, það var allt það, sem
mennirnir höfðu aflögu handa Guði, þsgar hann
var á meðal þeirra. Og með köl,du blóði líflétu þeir
sinn einasta, frelsara.
★
Já, þannig voru mennirnir þá. Og' aðeins eitt er
afsökuai þeirra: að Guð kom fram í mynd lítil-
fjörlegs þjóns, og hann, tók á sig tötra vora og
afsalaði sér hverri dýrö.
En nú — 1900 árum síðar, eftir að tötrarnir,
sem hann bar vor vagna, eru dýrlegir orðnir og
hann er stiginn upp til himins aftur til. þess að
taka, við fyrri dýrð sinni og veldi, sem hann hefir
einnig opinberað mönnunum allair þessar aldir —
nú er auðvitað rúm fyrir Jesúm. Pá kom hann
svo óvænt, og það var svo étrúlegt, aö hann væri
kominn og ])að í þessari mynd. En á þessum jól-
um höfum vér haft meira en 1900 ára undir-
búningstíma, til þess að taka á móti honum, og'
hann hefur sent þjóna sína sem votta og hann
hefir sýnt það í þeim og með þeim, að honum er
gefið al.lt vald á himni og jörðu. — Þá er honum
vel tekið nú, menn keppast im að taka honum
sem þeim konungi, sem hann er. — Já, og nú
lætur hanin sér ekki nægja jötu, nú vill hann fá
höli til íbúðar. Hann hefuir ekki krafizt hinna
geysistóru kirkjumustera, sem mennirnir hafa
byggt. Nei, það eru önnur musteri, sem hann vill
fá — og- hann kemur ekki, fái hann ekki þau
musteri, En mennirnir vilja, ekki gefa honum
þau. Hver eru þá þau musteri. Mannshjörtun, ves-
öl, syndug fjandsamleg Guði! Pað eitt biöur hann
um, Hann biður ekki um hrein hjörtu •— því að
hann veit, að þau getur enginn gefið honum.
Heldur aðeins þau éhreinu. —
Og svo kemur endirinn á þessari merkilegu
sögu: Þetta vilja mennimir sízt af öllu gefa hon-
um, aðeins ekki hjarta sitt. Stór musteri úr steini
með gulli og gimsteinum innanstokks — þau get-
ur hann fengið, en þá má hann ekki krefjast
meira. Og þeir bíða ekki svars: Þeir byg'gja must-
erin í æðisgangi, til þess að friða óróleg hjörtu
sín„ Satan hlær — en Jesús frá Nazaret fer
Bjarne Hareide, cand theol:
Er kristindómurinn ofurefli?
Bjarne Hareide.
Það er Björnson, sem hefur komið fram með
þessa spurningu. Og hann hefur svarað henni
játandi. I bók sinni með þessu nafni reynir hann
að sýna, fram á hvernig kristindómurinn hlýtur
að verða ofureflj, þegar maöur tekur hann alvar-
lega„ Sá maður, sem fer eftir fyllstu kröfum krist-
indómsins, hlýtur að ofreyna, sig á því.
Séra Sang er lýst sem óvenjulega vel kristn-
um manni — fullrkomlega andlegum manni. Að
minnsta kosti hélt Björnson sjálfur að sér hefði
tekist að lýsa fyrirmynd trúaðra manna. Séra.
Sang hafði meira að segja lækningarnáðargáfu.
Hann bað oft fyrir sjúkum mönnum, og þeir urðu
albata., En kona hans va;r sjúk af ólæknandi sjúk-i
dómi. Þar komu bænir ha,ns ekki að neinu gagni.
Hún var veik og hélt áfram að vera það.
fram hjá. •— Það hefir verið sagt, að ótrúlegasta,
saga í heimi sé jólafrásagan. Og þó jafnframt sú
undursamlegasta.
Það eru margir, sem hafa gefið Jesú það must-
eri, sem hann bað um, og hann hefir umskapað
hið vesæla, óhreina hreysi, sem menn gátu gefið
honum, og gjört það að bústaði Guðs, svo undur-
samlegum. Það var sárt, meðan verið var að rífa
— en hvílík dýrð eftir á.
Valgeir Skagfjörð
cand. theol.
7