Stundin - 01.04.1941, Blaðsíða 16
þekkt fyrirbrigði. Fastlauna-
stéttum landsins hefir éf til vill
gengið einna lakast, og um
bændurna má segja, að afkoma
þeirra sé í nokkurri óvissu. Ég
ætla ekki að fjölyrða meira um
þetta. Það er öllum kunnugt, að
afkoma manna er yfirleitt til
muna betri, en við höfum átt að
venjast undanfarið.
* * *
Mér virðist, að langsamlega
flestir líti á þá tíma, sem við
lifum á, sem einstaka upp-
gangstíma, þar sem allir græða:
þjóðarheildin, ríkið og einstak-
lingarnir. En samtímis gera
menn sér þó aðrar hugmyndir,
sem tæplega virðast geta sam-
rýmst þessum. Það er stöðugt
oftar og oftar, sem maður heyr-
ir orðið ,,pappírspund“ viðhaft
í samræðum manna. Almennt
virðast menn vera farnir að
gera ráð fyrir því, að ,,pundið“,
sem til skamms tíma var talið
einhver öruggasta peningamynt
heimsins, muni eiga þá einu
framtíð fyrir sér að falla og
falla, unz það verður verðlaust
með öllu. Hvort þessi skoðun
er á rökum reist eða ekki, er
ekki á mínu færi að dæma um,
en þar sem hún er orðin eins
almenn hér á landi og raun ber
vitni um, finnst mér full ástæða
til að reyna að gera sér grein
fyrir, hvaða áhrif það kynni að
hafa á hagsmuni okkar, ef hún
reyndist rétt. Ef til vill hugsa
sumir sem svo: Ég hefi fengið
minn gróða í íslenzkum krón-
ur, og ég held þeim, hvað sem
verður um pundið. Og hvað
viðvíkur hagsmunum okkar við
útlönd, getum við verið ánægð
með það, að stríðsárin jafni
skuldir okkar við þau, þó að
inneignir okkar verði einskis-
virði. Við gætum líka vissulega
verið ánægð með þennan ár-
angur á þeim tímum, sem aðr-
ar þjóðir missa ekki einungis
stórkostlegt fjármagn, heldur
einnig mannslíf og menningar-
leg verðmæti gersamlega í súg-
inn. En því miður er ég hrædd-
ur um, að hér sé nokkuð fljót-
færnisleg ályktun dregin, og
skulum við því reyna að gera
okkur ofurlitla hugmynd um
það ástand, sem skapazt hjá
okkur, éf örlög pundsins verða
eins og fyrr getur.
* * +
Við skulum þá hugsa okkur,
að þeir tímar séu komnir, að
styrjöldinni sé lokið, og við
skulum líta yfir efnahagsreikn-
inginn. Ekki efnahagsreikning
ríkisins eða einstaklingsins,
heldur þjóðarinnar sem heildar.
Viðskipti okkar við Bretland
hafa jafnað sig. Við höfum tap-
að inneignum okkar, en þurf-
um hins vegar ekki að borga
skuldirnar. Þótt inneignirnar
hafi kannske verið nokkrum
tugum eða hundruðum milljóna
meiri en skuldirnar, sakar það
okkur ekki miðað við tímann
fyrir stríð. Við höfum þar bætt
hag okkar til muna. En það er
þó rétt að hafa hugfast, að við
höfum tekið lán og safnað
skuldum víðar en í Englandi,
og allar slíkar skuldir standa
áfram í fullu gildi og hafa ef
til vill vaxið sem svarar rent-
um og renturentum meðan
stríðið stóð. Auk þess höfum
við safnað skuldum í Banda-
rikjunum, og hvað þær kunna
að vera orðnar háar, er ekki
gott að segja. Þegar þessi reikn-
ingur verður gerður upp, eru
litlar líkur til, að stríðsgróðinn
verði skráður með stórum töl-
um, ef um nokkurn verður að
ræða. En þegar litið er á eign-
ir okkar í landinu sjálfu, verð-
ur myndin öllu óglæsilegri.
Skipastóllinn okkar hefir
minnkað. Ægir hefir tekið skatt
sinn, eins og hann er vanur, en
auk þess höfum við misst skip
af styrjaldarorsökum. En við
höfum ekkert fengið í staðinn.
Gömlu skipin hafa fúnað og
ryðgað, en fengið lítið sem ekk-
ert viðhald. Um verksmiðjur og
önnur atvinnutæki er svipaða
sögu að segja. Allt hefir gengið
saman og hrörnað, en ekkert
nýtt komið í staðinn. Vinnu-
aflið hefir verið notað að miklu
leyti í þágu setuliðsins, en hvað
á að taka við? íbúum landsins
hefir fjölgað um nokkuð á ann-
að þúsund á hverju ári, meðan
á stríðinu stóð, en við höfum
ekki einu sinni getað reist ný
ibúðarhús yfir þetta fólk. Við
höfum orðið að þrengja meir
og meir að okkur í gömlu hús-
unum okkar, sem stöðugt
hrörna, eins og öll mannanna
verk. Svona mætti lengi telja.
Þegar á allt er litið, kemur í
ljós, að allur okkar stríðsgróði
er ímyndun ein, en i staðinn
kemur gífurlegt tap, auk stór-
um verri möguleika til sæmi-
legrar afkomu í framtíðinni'
Nú mundi kannske einhver
vilja benda á þá staðreynd, að
við höfum eignazt nokkra tugi
,,milljónera“ á stríðsárunum.
Hvaðan hefir þeirra auður
komið? Ekki hefir hann komið
erlendis frá. Ekki hafa þeir
tekið hann af okkur samlönd-
um þeirra, sem lítið eða ekk-
ert áttum fyrir. Hefir þessi
auður þá skapazt af engu? Til
þess að gera sér grein fyrir
þessu, er bezt að athuga fyrst
hag ríkissjóðs, en hann ber
fulla ábyrgð á Landsbankan-
um. Allur útgerðargróði og allir
þeir peningar, sem brezka setu-
liðið hefir greitt hér fyrir vörur
og vinnu, hafa verið greiddir í
pundum, sem Landsbankinn
hefir yfirfært. Eða með öðrum
orðum: Landsbankinn hefir
greitt allar þessar gífurlegu
upphæðir út í íslenzkum krón-
um, en þær hafa hins vegar
verið skráðar sem innstæða hjá
honum í pundum í Englandi.
Að vísu hgfa útgerðarmenn nú
upp á síðkastið verið neyddir
18
8TUNDIN