Ísland - 13.12.1929, Page 1
ISLAND
BLAÐ FRJÁLSLYNDRA MANNA
3. árg.
Föstudaginn 13.
desember 1929.
45.
tbl.
»Vér verðum að fara
i landvinninga eins og
feður vorir*
M. L. Yde.
»Hvad indad tabes,
skal udad vindesa.
(Einkunnarorð danskrar
stórveldisstefnu).
I.
Tvö íslenzk blöð hafa mót-
mælt þvi af móðt miklum, að
í'iendingum geti stafað hætta
af jafnréttisákvæðum sambands-
laganna. Annað þeirra hefir sér-
staklega vitnað til þess, að
Danir hafi ekki neytt þess réttar,
er sambandslögin veita þeim,
og engar líkur séu til að þeir
muni neyla hans. Hitt blaðið
hefir kallað það lygi, að Danir
hafi haft íslaud f huga, er þeir
bafa verið að bollaleggja um
danska stórútgerð í norðurhöf-
um.
Nú hefir Yde-nefndin svo
kallaða lokið störfum. Hún
leggur til. að komið sé á danskri
stórútgerð í norðlægum höfum.
Er þvf rétt að ræða hér dáhtið
stórútgeiðarfyrirætlanir Dana f
i sambandi við stórveldisdrauma
þeirra.
Hér verður fljótt yfir sögu
farið, enda er annars ekki kost-
ur i stuttri blaðagrein.
t*ess er þá fyrst að geta, að
Drnir hafa rætt um það nokk-
urum sinnum, að þeir þurfi að
hagnýta sér jafniéttisaðstöðu
sína eftir samband>lö^unum
betur en verið hefir. Á árinu
1926 kom fram tillaga f dönsk-
um blöðum, er fór f þá átt, að
danskir úiflytjendur legðu leiðir
sinar til lslands, en ekki annara
landa. bessari tillögu var talið
það sérstakle'ga til gildis, að ef
Dmir flyttust til íslands, þyrftu
þeir hvorki að glata tungu sinni
né þjóðerni. í sambandi við
þessa tillögu kom fram önnur
tillaga, þess efnis að Danir legðu
járnbraut yfir Suðurlandsundir-
lendið. Feir ætluðu vitaskuld
að eiga brautina. En í-lendingar
áttu þrátt fyrir það að kaupa
hana dýru verði. Danir áttu að
fá nægilegt iandrými fyrir þegna
sfna fram með brautinni. ís-
lenzkir menntamenn í Kaup-
mannahöfn tóku tillögur þessar
þeim tökum, að þeim hefir
verið litið á lofti haldið síðan.
Hans Nielsen þjóðþingmaður
skrifaði grein i danska blaðið
»Politiken« í febrúarmánuði
1927. Hann kallar það hneyksli,
að danskir hagsmunir skuli
ekki hafa fært sér f nyt fossa-
afhð islenzka. Og hann tekur
það fram, að þetta sé ekki ein-
göngu hagsmunamál. Ef danskt
fjármagn og dönsk framtaks-
semi notfærði sér auðlindir ís-
lands, mundi það hafa þýðingu,
er ekki yrði metin til fjar. Pað
er auðskilið við hvað maðurinn á.
Oi Dmir hafa fært sér i nyt
jafnréttisákvæði sambandslag-
anna. Þeir hafa flutzt inn f
landið og tekið sér hér bólfestu.
Og ef miðað er við fólksfjölda
Dana og íslendinga, eru 14
sinnum fleiri Dinir á íslandi
en íslendingar i Danmörku.
II.
Um margra ára skeið bafa
Danir verið að ráðgera að koma
sér upp stórútgerð i roiðurhöf-
um. Og jafnan hefir það fylgt
með í ráöagerðum þessum, að
Danir notfærðu sér fiskiveiða-
möguleikana við lsland.
Pegar Maríus L. Yde ræðis-
maður hatði gefið út bók sína:
»Et stort Havliskeri. Et större
Danmark* kom þó fj’rst veru-
legur skriður á þetta mál. Og
það vakti ekki eingöngu fyrir
honum að auka fiskiframleiðslu
Dana. Hann hafði enn þá stærra
mál á prjónunum. Hann vildi
stækka Danmörk. Hann vildi
eignast danskar nýlendur. Hann
vildi gera Danmörku að þvf,
sem hún einu sinni var: stór-
veldi f noiðuihöfum. Og hann
harmar það, að lsland skuli
hafa losnað undan dönsku
krúnunni.
Pessi bæklingur Yde vakti
mjög mikla eftirtekt í Dm-
mörku. Flest blöðin minntust á
hann og lofuðu hann á hvert
reipi. Stúdentafundur var hald-
inn til að ræða um þessi efni.
Félagið »Dansk Arbebedje« vildi
þegar heljast handa á undir-
búningi málsins. Stofnfundur í
hinu væntanlega félagi var
kallaður saman. Málið komst
inn á ríkisþingið og hafði þar
ákveðið fylgi ýmissa rnanna.
Styrks var beiðzt af rikinu o. fl.
Á stúdentafundinum, sem hald-
inn var um mál þetta, sagði
Halfdan Henrikssen, núverandi
fulltrúi hægri-manna f ráðgjafar-
nefndinni: »Vér höfum sam-
bandslög við ísland, er gera oss
mögulegt að nota hafið. Oið
þessi eru höfð eftir honum í
ýmsum blöðum.m. a. »Politiken«.
Um líkt leyti, eða i april 1927,
sagði H. Söiberg í einu dönsku
blaði: »Dönsk stórútgerð er ekki
komin á fót fyrr en sjómenn
vorir fara á eigin skipum til
veiðistöðva við ísland og Græn-
landa.
»Dinmörk getur gert það sem
Cuxhaven getur, (m. a. að þvf
er snertir fiskiveiðar við ísland )
. . . Vér höfum veiðistöðvar
(þ. e. stöðvar í landi) f nO'ður-
höfum: Island og Grænlanda.
(Ebbe Munck i Politiken, 4. apr. 1927).
Politiken 10. jan. 1927: *Tog-
arar vorir geta farið til íslands
og Færeyja. Danir standa betur
að vigi á lslandi en aðrar þjóðir,
af þvi að þeir geta lagt fiskinn
á land«.
»Berlioske Tidende« i júll:
»Næstum allar norðlægar þjóðir
stunda veiðar f norðurhöfum,
sem vér Danir erum vanir að
kalla heimahöfin«.
Pegar slyrkbeiðnin var til
umræðu i Ríkisþinginu, sagði
socialistinn Sundbo m. a.:»Stór-
útgerðin verður að leita til
veiðistöðva við Færeyjar, ísland
og Giænland«. Annar þingmaður,
Fraenkel að nafni, sagði einnig
við sama tækifæri: »Félagið á
að fiska í noiðurhöfum, við
Færeyjar, Giænland og sam-
bandsriki vort, ísland.
Yde og fylgismenn hans gerðu
ráð fyrir að stofna félag með
10—15 togurum. Félagið átti að
ráða yfir 10 miljónum króna.
R kið átti að leggja fram 4 miljón-
ir, en hinu átti að safna með
sölu hlutabréfa i félaginu.
Af þvi, sein sagf hefir verið
hér á undan, er augljóst, að
Dinir ætluðu að stunda fiski-
veiðar við strendur í>lands og
notfæra sér réttindi þau, er
sambandslögin veita þeim hér
á landi. Togararnir áttu vitaskuld
ekki að veiða í landhelgi, en
önnur skip, sem létt hafa til
þess, áttu vitanlega að veiða
hér upp við landsleina. Fiskinn
ætluðu þeir að leggja a land og
verka hann bér og keppa á
sfðan við Islendinga um fisksölu
á heimsmarkaðinum.
En það var ekki að eins auk-
in framleiðsla á fiski, sem vakti
fyrir forkólfum þessa máls. Peir
ætluðu i nýjar landvinningafeiðir.
Peir ætluðu að gera Danmörk
að stórveldi 1 norðurhöfum. Og
þeir ætluðu að bræða Dani og
íslendinga saman í einn hræri-
graut.
1 »Politiken« 8. febr. 1927
harmar Yde það sáran, hve
Danmörk sé litil. í andmælum
til dansks manns, sem mælti
frekar á móti þvf, að stofnað
væri til danskrar stórútgerðar
að svo stöddu, sagði hann m.
a., að maður þessi helði átt að
skilja það, að hann hefði gjarnan
viljað, að lslendingar væru með
í þessum félagsskap. ^Enda væri
það í samræmi við skoðun sfna
á hinu sögulega sambandi fs-
lands og Danmerkur.
Stúdentablaðið »Den akade-
miske Borger« lét mikið til sfn
taka í þessu máli. Par birtist
hver greinin á fætur annari um
danska stórveldið ogsamhræðslu
íslendinga og Dana. Ýmsir aðrir
Danir tóku undir með blaðinu
Og kyrjuðu sama sönginn. Yde
skrifaði blaði þessu biéf ogsegir
þar, að það sé mjög þýðingar-
tnikið fyrir framgang stórútgerð-
ardraumanna, að ungir menn
beiti sér fyrir nýjum dönskum
land vinningum. Og þ»ð væri
synd að segja, að blaðið hafi
ekki gert það. Pessi klausa biit-
ist þar meðal annars: ntslund,
Firreyjar, Grænland — enginn
angurbliðu fornaldarblœr má
kasta rýrð á þessi nöfn i með-
vitund okkar. Pau verða að tákna
danska framlið, framtið Dan-
merlcur hinnar meiritt. De M> cka-
del skrifaði grein i Berl. Tidende
1926. Hann leggur áheizlu á, að
Danmðrk þuifi að eiga nýlend-
ur og eignast nýlendur. Hann
harmar það, að danski faninn
sjáist sjaldan meðal þýzkra og
enskra togara, sem veiðar stunda
við ísland og Færeyjar. Einnig
getur hann þess, að pf flytja
þurfi fólk úr landi, muni það
tæplega fá friðland i Grænlandi.
En það er hægt að lesa það á
milli linanna, að hann vill beina
útflytjandastraumnum til lslands.
Pað á að vera nokkurs konar
bakhjall ef annað bref.zt.
Carl Talbitzer segir í Berl.
Tidende: »fiök Danmerkur við
Allantshafið, með tilliti til fiski-
veiða með stöðvum á Færeyj-
um, lslandi og Grænlandi, benda
ótvírætt í þá átt að takast inegi
að skapa danska stórútgeið«.
Pað er Ijóst, að stórútgei ðar-
fyrirætlanir Dana hafa að miklu
leyti verið bunduar við Island
fram á árið 1928. Og þeir hafa
haft tvennt tyrir augum: að
græða á fiskveiðum og tengja
í'land föstum böndum við Dan-
mörku. — lsland, Færeyjar og
Grænland áttu að veiða vei-
stöðvar Dana.
Og ritstjóri »Jafnaöarmanns-
ins« segir það lygi, að Dmir
hugsi til fiskiveiða við í-dand.
Hann vitnar i dönsk blöð þess-
um lygaáburði til sönnunar.
Hann segir, að pldrei sé minnzt
á það i dönskum blöðnm, að
þeir ætli hingað til fiskiveiða.
Er maðurinn vfsvitandi að
reyna að svæfa fslendmga i
þessum málum, svo að Danir
hafi nægan tíma til að koma
sér hér fyrir i ró og næði, eða
mælir hann af þekkingarleysi
og fáfiæði? Menn veiða að
vænta þess, að síðari tilgátan
sé réttari. En hví leyfir hann
sér að belgja sig upp og segja
það lygi, sem kæruleysi íeða
eitthvað enn þá verra hamlar
honum frá að vita? Hann hefði
átt að tala með meiri gætni. En
nú hefir hann orðið sér til svo
mikillar skammar, að hann
gleymir þvl vonandi ekki i
bráðina.
III.
Þessar stórutgerðar- fyrirætl-
anir komust ekki i framkvæmd
á átinu 1928. Vinstrimannastjórn-
in, sem þá sat við völd, vildi
ekki veita 4 miljónir úr rikis-
sjóði til þessara framkvæmda.
Stjórninni þótti málið ekki nógu
vel undiibúið.
Pegar socialistastjórnin var
komin á laggirnar, skipuði Stau-
ning forrætisráðherra einhverja
atvinnubótanefnd. Og var Yde
ræðismaður gerður að formanni
hennar. Pað var vitanlegt, að
nefnd þessi mundi sérstaklega
bollaleggja um fiskiveiðamálin,
og þó einkum og séríalagi stór-
útgerðina. Nefndín hefir nú skil-
að áliti sinu. — Hún kvað
leggja til, að stofnað verði Iána-
félag fyrir fiskiútgerð og fiski-
veiðabanki. Enn fremur að send-
ir veiði fiskifulltiúar til Pýzka-
lands, Englands og Færeyja.
Yde segir, að nefndin hafi ekki
athugað möguleika fyrir atvinnu-
rekst'i Dana á fslandi, þar eð
hún telji verkefnin næg annars
staðar. Stauning kveð.st ekki
vilja leggja því lið, að danskur
atvinnurekstur komist »inn á
svið samband-þ|óðar vorrar*.
Eru nú orðin stefnuhvörf i
Dmmöiku viðvlkjandi málum
þessum? Ef svo er, hafa þeir
læit af reynslunni. Árvekni fs-
lendinga í sjálfstæðismálunum,
helir þá sannað þeim, að ekki
væri heppilegt að grlpa til þeirra
ráða, sem talað hefir verið um.
En jafnvel þótt þessir tveir
fyrrnefndu menn séu þeirrar
skoðunar, að Danir eigi ekki að
feta upp á stórútgerð hér við
land, þa er lítið á »þeim skoð-
unum« að byggja. Peir geta ekki
raðið þvf, hvað danskir sjómenn
og útgerðarmenn kunna að gera.
Peir leita vitaskuld á þau mið,
sem þeir telja bezt. Grunnin í
kringum fsland eru einhver bextu
flskimið heimsins. Við Færeyj-
ar eru minni fiskiveiðar en hér.
Og það er algerlega ósannað,
að fiskisældin við Giænland sé
slik, sem O'ð er á gert. Ef Dan-
ir koma sér upp stórum fiski-
flota, þurfa fslendtngar vissulega
að vera á verði. Hvað halda
menn að Danir gerðu, ef fiski-
veiðar þeirra við Færeyjar og
Grænland brygðust? Er hugsan-
legt að þeir mundu þá leggja
flotanum upp eða fara með hann
af þeim slóðum, er þeir ætla að