Árdís - 01.01.1953, Blaðsíða 20
18
ÁRDIS
Það tók mikið þrek að slíta sig burt frá ástvinum sínum og
leggja út í heiminn einar síns liðs til að afla sér og sínum viður-
væris. Þær unnu sér aðdáun margra fyrir það, hve vel þær stóðust
eldraun þá, er þær urðu að ganga í gegnum á fyrstu árum landnáms-
tímabilsins í þessari álfu, og það, hversu ásetningur þessara ungu,
óreyndu íslenzku stúlkna var sterkur í því að vinna heilhuga að
framgangi fjölskyldu sinnar, þótt þær færu sjálfar margs á mis.
Þetta var lífsstefna sú, er þær viku ekki hársbreidd frá alla sína
lífstíð.
Rósa giftist Jóni Thoralcius Sigfússyni Einarssyni prests í
Saurbæ. Kom til Canada 1886. Settust þau fyrst að í grend við
Churchbridge, Saskatchewan, fluttu síðar til Kristnes, þar sem
Jón gegndi póstmeistarastörfum í mörg ár og var þar til heimilis
til dauðadags.
Halldóra giftist Kristjáni Helgasyni frá Vatnsenda í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafirði, dugnaðar- og atorkumanni. Þau bjuggu í mörg ár
í grend við Foam Lake, Sask. Á heimili þeirra var jafnan mjög
gestkvæmt. Fjöldi afkomenda þeirra búa umhverfis Foam Lake,
Saskatchewan.
Þórunn giftist Tómasi Þórðarsyni Paulson frá Hólum í Öxnadal.
Hann starfrækti verzlun í Winnipeg (Osborne & Corydon), var
síðar umboðsmaður stjórnarinnar, er landnám Vatnabyggðarinnar
hófst.
Aðalbjörg giftist Sigurði Sigurðssyni frá Egilsstöðum í Vopna-
firði, stórbónda við Foam Lake, Sask.
Rósa var til heimilis í Winnipeg, þá er myndin af fyrsta kven-
félagi íslenzkra kvenna var tekin og lifði lengst þeirra, er þar voru
myndaðar. (Sjá Árdís 1946, bls. 45).
Starf þessara landnámskvenna var víðtækara og meira en að
kljást við frumbýlingserfiðleikana og veita heimilum sínum forystu.
Þær voru líka stoð og stytta í velferðarmálum sveitafélaga sinna.
Gestrisni, hjálpsemi og góðvild á heimilum þessara Stóradals-systra
var viðbrugðið. Þær tóku róttækan þátt í kristilegu menningarlífi
bygðar sinnar og létu sér ant um hag og heilsu meðbræðra sinna.
Stóradals-systurnar eru nú allar dánar, en minningar um þær
lifa í hjörtum þeirra, er áttu því láni að fagna að kynnast þeim og
njóta hinnar höfðinglegu gestrisni á heimilum þeirra.
J. J. B.