Árdís - 01.01.1953, Blaðsíða 28
26
ÁRDÍ S
Friðrikka Thorolfson
F. 27. marz 1879 — D. 26. febrúar 1953
Með henni er gengin grafarveg
góð og glæsileg kona, öllum hug-
þekk er kynntust henni, og skipaði
auk þess sérstöðu í sögu og félags-
lífi íslendinga í Winnipeg. For-
eldrar hennar voru þau Friðrik
Sigurbjörnsson frá Sjávarlandi í
Þistilfirði og Sigríður Jónsdóttir frá
Geiteyjarströnd við Mývatn. Voru
þau fyrstu íslenzku hjónin, sem
stofnuðu heimili í Winnipeg; voru
gefin saman af fyrsta íslenzka
prestinum (séra Páli Þorlákssyni),
sem heimsótti landa sína á þessum
slóðum, og börn þeirra, Frank
Walter og Friðrikka, voru fyrstu
börnin, fædd af íslenzkum foreldr-
um í þessari höfuðborg íslendinga
vestan hafs. Þegar hún var þriggja ára gömul misti hún föður sinn, en
ólst upp með móður sinni, og síðar stjúpföður, Sigurði Davíðssyni,
málarameistara. Á fyrstu uppvaxtarárum Friðrikku var litið smáum
augum á hina íslenzku innflytjendur og afspringi þeirra. Nú er alt
þetta breytt, og það fyrir löngu orðið heiðursnafn að vera íslend-
ingur í Canada. En almenningsálitið breytist aldrei í skjótri svipan.
Öflin, sem hér voru að verki, voru bjartsýni, skapfesta, kjarkur og
manndómur íslenzku brautryðjendanna. Friðrikka átti þessa eigin-
leika í ríkum mæli; þeir báru hana fram til sigurs, og hjálpuðu til
að sigrast á fordómum og fákænsku þeirra er fyrir voru í landinu,
er íslendinga bar hér fyrst að garði. Friðrikka hlaut nokkra menntun
í bóklegum fræðum á gamla Central skólanum hér í borginni, og
síðan lærði hún sauma, og stundaði þá iðn í mörg ár. 21. sept. 1903
giftist hún Halldóri Þórólfssyni, Jónssonar frá Hörðubóli í Dala-
sýslu, og Halldóru Halldórsdóttur, konu hans, (f. 26. okt. 1879).