Árdís - 01.01.1953, Side 32
30
ÁRDÍ S
Elín Ögmundsdóttir Scheving
Fædd 4. janúar 1838 — Dáin 25. nóvember 1932
Hún var fædd að Bíldsfelli í
Grafningi í Árnessýslu 4. janúar
1838. Foreldrar hennar voru þau
Ögmundur Jónsson bóndi á Bílds-
felli og kona hans Elín Þorláks-
dóttir frá Flugu í Skaftafellssýslu.
Hún óx upp hjá foreldrum sínum,
unz að hún í blóma aldurs síns
gekk að eiga séra Lárus Scheving
Hallgrímsson kennara, fyrst við
Bessastaðaskóla og síðar í Reykja-
vík. Elín fluttist með manni sínum
út í Selvog, þar sem séra Lárus
var þjónandi prestur, og bjuggu
þau lengst af á Vogsósum. Eftir
átta ára sambúð misti Elín mann sinn og fluttist hún þá með börn
sín fjögur að Stakkavík í sömu sveit, þar sem hún bjó um tíma,
eða unz hún flutti alfarin til Reykjavíkur.
Börn þeirra séra Lárusar og Elínar voru: Elín Kristín, dó 15
ára heima á íslandi; ög mundur, lagðist í siglingar ungur og fréttist
síðast til hans frá Suður-Ameríku; Valgerður, giftist Gísla Gísla-
syni búfræðingi frá Bitru í Flóa, sem tók upp föðurnafn konu
sinnar — Schevings-nafnið; og Lára, sem giftist Ásmundi Freemann
verzlunarmanni og er hún sú eina, sem á lífi er af börnum Elínar,
svo menn viti.
Vestur um haf kom Elín ásamt dóttur sinni Láru árið 1887 með
Jóni bróður sínum — fór með honum til Þingvallanýlendunnar og
veitti búi hans þar forstöðu í 4 ár, eða þar til hann lét af búskap.
Elín var frábærlega glæsileg, vel gefin og örugg kona til allra
úrræða.
Á íslandi ól hún upp hóp barna með prýði einsömul, því elzta
barn þeirra hjóna var sjö ára þegar faðirinn dó.
Hér í Ameríku gekk hún í gegnum þrjú frumbýlingstímabil