Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 6

Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 MORGUNBLAÐIÐ www.icehotels.is YFIRMATREISLUMAUR ÓSKAST Umsóknarfrestur er til 20. janúar nk. HÓTEL KLAUSTUR óskar eftir yfirmatrei›slumanni til starfa. Um er a› ræ›a framtí›arstarf á veitingahúsi sem rúmar 150 manns í sæti og er róma› fyrir fjölbreyttan mat og vanda›a fljónustu. Hótel Klaustur er sta›sett á einum af fegurstu stö›um Evrópu í grennd vi› náttúruperlur á bor› vi› Skaftafell og Vatnajökul flar sem sveitarómantíkin blómstrar, vinaleg florpsstemmning ríkir og náttúran skartar sínu fegursta. Starfsreynsla, fljónustulund og brennandi áhugi eru me›al fleirra kosta sem vi› leitum eftir. Allar nánari uppl‡singar veitir Karl Rafnsson í síma 861 1306 e›a í netfanginu: klaustur@icehotels.is ledig Stilling C IC E R O th Ringerike sykehus HF ligger på Hønefoss i Norge, ca 1 time å kjøre fra Oslo. Sykehuset gir et allsidig behandlingstilbud innen somatikk og psykiatri til om lag 75 000 innbyggere i Øvre Buskerud. Vi har en visjon om å være et ledende sykehus, og vektlegger pasientfokus og kontinuerlig utvikling av nye ideer og metoder for medisinsk behandling, organisering og ledelse. Klinikken har moderne nybygg (2004) med enerom til alle inneliggende pasienter. Er du engasjert og dyktig sykepleier som søker nye utfordringer? Vil du arbeide i nye lokaler i et trivelig arbeidsmiljø? Ledige stillinger som sykepleier i Norge Medisinsk/kirurgisk klinikk har ledige helgevikariater og faste deltids/ heltidsstillinger for sykepleiere, i vikarpool eller på tun. For fullstendig utlysning og nærmere informasjon om Ringerike sykehus HF, se http://www.ringerike-sykehus.no Spørsmål kan rettes til fagsjef sykepleie Hilde Bråten på sykehusets telefon 0047 32 11 60 00. Søknad med CV sendes på e-post til personal@ringerike-sykehus.no snarest. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „ÞAÐ versta sem fólk getur gert er að einangra sig,“ segir Guðný Harð- ardóttir framkvæmdastjóri ráðning- arþjónustunnar STRÁ MRI þegar hún er spurð hvað fólk eigi að gera þegar það missir vinnuna. „Það get- ur vissulega verið erfitt að fá upp- sögn í starfi og má segja að í sumum tilvikum hefjist ákveðið sorg- arferli, sem fólk þarf að fá tíma til að vinna úr. Þegar líður á ferlið aukast mönnum burðir til að halda áfram þar sem frá var horfið. Í upphafi getur ýmislegt hjálpað sem ekki krefst endilegra peningalegra útlátra s.s. að taka til hendinni heima fyrir, hlusta á fallega tónlist, hjúfra sig að ástvinum og stunda góða hreyfingu eins og göngu- túra og sund.“ Með rétta viðhorfið Jákvætt viðhorf segir Guðný að geti skipt öllu máli. „Með jákvæðu hugarfari er fólk líklegra til að sjá tækifærin sem bjóðast og grípa þau. Það er erfiður skellur fyrir alla að fá uppsögn en aldrei er neitt svo nei- kvætt að ekki fylgi því eitthvað já- kvætt sem vinna má með,“ segir hún. Guðný nefnir að starfsmenn sem orð- ið hafa fyrir barðinu á fjölda- uppsögnum eigi að vinna saman í stuðningshópum og reyna að hvetja hver annað til dáða, sem og vinna að því að finna sameiginlegar lausnir. „Það er líka ágætt að varast að týnast í þeirri neikvæðu umfjöllun sem finna má víða í samfélaginu, því það kann að auka á svartsýnina ef menn eru veikir fyrir.“ Milli starfa -ekki atvinnulaus Sem dæmi um rétt hugarfar nefnir Guðný að hún ráðleggi fólki að líta ekki á sjálft sig sem „atvinnulaust“: „Það er betra að tala um að vera „milli starfa“ og ég ráðlegg fólki að kynna sig fremur þannig. Það felst í því breyting á hugarfari að hugsa ekki um sjálfan sig sem atvinnu- lausan heldur vera milli starfa eða í leit að starfi.“ Með rétta hugarfarið að vopni þarf svo að taka atvinnuleitina föstum tök- um og ráðlegt að líta á atvinnuleitina sem fullt starf sem sinna þarf alveg jafn vel og jafnskipulega og öðrum störfum. Guðný bætir við að það geri flestum gott að halda þannig áfram sínum daglegu venjum: „Sumum hættir til að snúa sólarhringnum við og rót kemst á daglega iðju. Það kemur ekki aðeins niður á ein- staklingnum sjálfum heldur líka hans nánasta umhverfi, samskiptum við maka og uppeldi barna.“ Skráning og viðtal hjá ráðning- arstofu eins og STRÁ MRI er með fyrstu skrefum sem huga ætti að en góðar ráðningarskrifstofur aðstoða m.a. við gerð starfsferilskrár og greina eftir fremsta megni styrkleika og bakland umsækjanda. Traust laun frekar en há Guðný ráðleggur þeim sem nú eru í atvinnuleit að gera ekki óraunsæjar kröfur um laun bjóðist þeim nýtt starf. „Ef þú hefur stofnað til skulda er það ekki vinnuveitandans að leysa úr þeim. Vinnuveitendur eru þvert á móti að reyna að hagræða svo að sem flest störf geti verið til fyrir hópinn,“ segir hún. „Þegar að starfsviðtali kemur getur verið brýnna að huga frekar að því hvort starfið sjálft henti, hvort starfsumhverfið sé traust og starfsandinn góður, og að launin séu auðvitað örugg.“ Á sömu nótum ráðleggur Guðný þeim sem býðst sitt fyrra starf á lægra kaupi að hugsa vel sinn gang áður en tilboðinu er hafnað. „Ég heyrði t.d. af bifreiðaumboði sem um daginn þurfti að segja upp fastráðn- um sölumanni með 3 mánaða upp- sagnarfresti eins og vera ber. Starfs- maðurinn kom á móti með tillögu að því að vera í hálfu starfi á hálfum launum í 6 mánuði, frekar en fullu starfi í þrjá, og jafnvel mögulegt að vinnuveitandinn geti boðið hlutastarf til lengri tíma,“ útskýrir Guðný. „Þetta getur skipt miklu máli enda munar okkur um það andlega að hafa eitthvað að starfa við og stunda vinnu reglulega.“ Mörg verkefni bíða Í atvinnuleysi er líka hægt að grípa tækifærið og koma hlutum í verk sem setið hafa á hakanum og styrkja tengslin innan fjölskyldunnar. Bara það að taka til í geymslunni getur breytt miklu: „Það er afrek að taka til í geymslunni eða bílskúrnum, og gef- ur okkur þessa tilfinningu að við höf- um gert eitthvað sem máli skiptir. Svo skemmir ekki fyrir að kannski koma í ljós munir sem ekki er þörf fyrir lengur en koma má í verð eða í hendur vinar eða ættingja sem þarf á þeim að halda,“ útskýrir Guðný. „Það er líka kjörið að taka þátt í sjálfboða- starfi, þó þar séu engin laun í boði. Að hjálpa þeim sem minna mega sín skil- ar sér ekki síst í andlegum ávinn- ingi.“ Síðast en ekki síst nefnir Guðný þann möguleika að nýta tímann milli starfa til að stunda skemmra eða lengra nám. „Í gegnum Vinnu- málastofnun standa t.d. til boða ýmis námskeið sem auka bæði þekkingu og færni.“ Öguð vinnubrögð Að tileinka sér skipulag og aga á milli starfa segir Guðný eitt af lyk- ilatriðunum til að koma sem best út úr því ástandi sem nú ríkir: „Hvern dag getur maður t.d. skammtað sér eina klukkustund til að setjast við tölvuna og skoða hvar starfskraftar manns geta nýst. Svo er ekki verra ef tvær fyrirvinnur eru á heimilinu að sá sem heima situr læri á þvottavél- ina eða eldavélina og láti ljós sitt skína.“ Hvað er hægt að gera „milli starfa“? Jákvæðni og bjart- sýni skiptir sköpum þegar fólk missir vinnuna, en það get- ur líka hjálpað til að taka til í geymslunni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hlutverk Meðal þess sem gera má milli starfa er að taka þátt í sjálf- boðaliðastarfi enda er gefandi að hafa hlutverki að gegna og hjálpa bágstöddum. Á myndinni flokka sjálf- boðaliðar Rauða krossins fatnað.  Tileinkaðu þér jákvætt hugarfar. Þannig kemurðu betur auga á tækifærin  Leitaðu þér að stuðningi og styrk hjá fjölskyldu og vinum  Stundaðu holla hreyfingu, hlustaðu á góða tónlist og reyndu að hafa sama vanagang á lífinu og áður  Líttu á atvinnuleitina sem þitt aðalstarf sem sinna þarf skipulega og samviskusamlega  Það getur verið betra að sætta sig við lægri laun en vera atvinnulaus til lengri tíma  Tilvalið er að koma ýmsum uppsöfnuðum verkefnum á heim- ilinu í verk, s.s. taka til í geymsl- unni. Árangurinn að loknu góðu starfi er gefandi.  Þátttaka í hvers konar sjálf- boðastarfi er líka mjög gefandi Góð ráð eftir uppsögn: Guðný Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.