Morgunblaðið - 07.01.2009, Blaðsíða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2009
KNATTSPYRNA
England
Deildabikar, undanúrslit, fyrri leikur:
Tottenham – Burnley...............................4:1
Michael Dawson 47., Jamie O’Hara 52.,
Roman Pavlyuchenko 65., Michael Duff 67.
(sjálfsmark) – Martin Paterson 15.
Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjun-
arliiðinu en fór meiddur af velli í fyrri hálf-
leik.
2. deild:
Crewe – Bristol R.............................. frestað
Peterborough – MK Dons ................ frestað
Stockport –Cheltenham ................... frestað
Spánn
Bikarkeppnin, 16 liða úrslit, fyrri leikur:
Atlético Madrid – Barcelona...................1:3
Tomas Ujfalusi 69. – Lionel Messi 12., 58.
(víti), 80. Rautt spjald: Johnny Heitinga
(Atletico) 57.
Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leik-
mannahópi Barcelona.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
San Antonio – Miami.............................91:84
Sacramento – New Jersey....................90:98
Toronto – Milwaukee ..........................97:107
Indiana – Denver...............................115:135
Golden State – Utah Jazz .................114:119
Staðan í Austurdeild:
Boston 35 29 6 82,9%
Cleveland 33 27 6 81,8%
Orlando 34 26 8 76,5%
Atlanta 33 22 11 66,7%
Detroit 32 21 11 65,6%
Miami 33 18 15 54,5%
New Jersey 35 17 18 48,6%
Milwaukee 36 17 19 45,7%
Chicago 34 14 20 41,2%
New York 32 13 19 40,6%
Toronto 35 14 21 40,0%
Philadelphia 33 13 20 39,4%
Charlotte 34 12 22 35,3%
Indiana 34 13 21 35,3%
Washington 32 7 25 21,9%
Staðan í Vesturdeild:
L.A. Lakers 32 27 5 84,4%
San Antonio 34 23 11 67,6%
New Orleans 30 20 10 66,7%
Denver 36 24 12 66,7%
Phoenix 31 19 12 61,3%
Dallas 33 20 13 60,6%
Houston 35 21 14 60,0%
Portland 34 20 14 58,8%
Utah 35 20 15 57,1%
Memphis 34 11 23 32,4%
Golden State 36 10 26 27,8%
L.A. Clippers 33 8 25 24,2%
Minnesota 33 8 25 24,2%
Sacramento 35 8 27 22,9%
Oklahoma City 34 4 30 11,8%
HANDKNATTLEIKUR
Holmqvist-mótið í Svíþjóð
A-riðill:
Svíþjóð – Túnis ..................................... 35:27
Staðan:
Svíþjóð 2 2 0 0 74:45 4
Túnis 2 1 0 1 59:60 2
Kúveit 2 0 0 2 43:71 0
B-riðill:
Ísland – Egyptaland............................. 29:17
Staðan:
Svíþjóð II 2 2 0 0 69:59 4
Ísland 2 1 0 1 57:52 2
Egyptaland 2 0 0 2 48:63 0
KEILA
1. deild kvenna:
ÍR-BK – KFR-Valkyrjur....................... 1:19
ÍR-TT – KFA-ÍA .................................... 16:4
KFR-Afturgöngurnar – KFK-GK........ 18:2
KFR-Skutlurnar – ÍR-KK .................... 18:2
Staðan:
KFR-Valkyrjur eru með 203,0 stig, ÍR-TT
með 193,0, KFR-Afturgöngurnar 161,5,
KFR-Skutlurnar 143,5, KFK-GK 86,0,
KFA-ÍA 69,5, ÍR-BK 65,5 og ÍR-KK 38,0
stig.
í kvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Iceland Express:
Grindavík: Grindavík – Keflavík..........19.15
DHL-höllin: KR – Snæfell....................19.15
Vodafonehöllin: Valur – Hamar ...........19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, N1-deildin:
Mýrin: Stjarnan – Grótta......................19.30
Kristrún er búsett í Mosfellsbæ og
hóf hún körfuboltaferilinn hjá Aftur-
eldingu. „Starfið í Mosfellsbæ logn-
aðist því miður út af og ég fór í ÍR
og lék þar í tvö ár. Ég valdi síðan
Hauka þar sem ég taldi að ég gæti
náð meiri framförum sem leikmaður
í því liði. Ég sé ekki eftir því. Mér
líður vel í Haukaliðinu og það er allt
að smella saman núna. Ég fæ mikla
hjálp frá liðsfélögunum og þjálfarinn
hefur trú á mér. Það tók smá tíma að
aðlagast því að leika án Helenu
Sverrisdóttur. Hún hafði dregið
vagninn lengi en við þurftum að axla
meiri ábyrgð eftir að hún fór til
Bandaríkjana og ég held að við
spjörum okkur vel án hennar.“
„Við höfum átt við vandamál að
stríða í vetur. Æfingahópurinn er
frekar fámennur og það eru ýmsar
skýringar á því. Meiðsli eru stærsta
vandamálið og það hefur oft komið
fyrir að við erum 6 á æfingu. Og
Yngvi (Gunnlaugsson) þjálfari okkar
hefur m.a. þurft að æfa ansi oft með
okkur og fylla í skarðið. Hann er
ekki í neinu sérstöku formi þrátt fyr-
ir það,“ sagði Kristrún í léttum tón.
Skemmtilegar æfingar
„Yngva tekst samt sem áður að
hafa æfingarnar skemmtilegar þrátt
fyrir fámennið sem er oft. Ungu
stelpurnar sem eru að koma upp í
mfl. hafa staðið sig frábærlega og ég
kvíði engu um framhaldið þrátt fyrir
að æfingahópurinn sé ekki fjölmenn-
ur.“ Kristrún tók sér frí frá líf-
fræðináminu við Háskóla Íslands í
vetur og hefur hún einbeitt sér að
körfuboltanum í staðinn. „Það var of
mikið álag sem fylgdi því að vera
með 100% einbeitingu á báðum stöð-
um í einu. Ég valdi því að hvíla mig á
náminu og leggja alla orkuna í körfu-
boltann. Það hefur skilað fínum ár-
angri.“
Útlöndin heilla
Kristrún hefur látið sig dreyma
um að komast að hjá liði í Evrópu og
fá tækifæri til þess að læra nýtt
tungumál og kynnast nýrri menn-
ingu. „Vissulega hef ég hugsað um
þann möguleika en ég hef ekki tekið
það skref. Kannski kemur að því og
ég verð að bíða og sjá hvort eitthvað
verður úr því. Ég er ekkert að
stressa mig á slíkum hlutum. Ef það
kemur upp þá skoða ég það,“ sagði
Kristrún. Landsliðskonan hugsaði sig
aðeins um þegar hún var beðin um
lýsa sjálfri sér sem leikmanni.
„Mér finnst gaman að skjóta og
hlaupa upp völlinn í hraðaupp-
hlaupum. Ætli það sé ekki minn leik-
stíll. Ef ég þarf að láta í mér heyra
og rífa í keppnistreyjuna hjá mót-
herjanum í vörninni til þess að við
sigrum þá geri ég það.“
„Öll orkan
fer í körfu-
boltann“
Morgunblaðið/Ómar
Öflug Kristrún Sigurjónsdóttir hefur leikið mjög vel með Haukum í vetur og
skorar hér í leik gegn KR. Haukar eru á toppi úrvalsdeildarinnar.
KRISTRÚN Sigurjónsdóttir úr Haukum
var í gær valin besti leikmaður fyrri
hluta Iceland Express-deildarinnar í
körfuknattleik. Skotbakvörðurinn úr
Mosfellsbæ ekur tæplega 50 km á
hverjum degi til þess að koma sér á
æfingu á Ásvöllum í Hafnarfirði en hún
sér ekki eftir einni sekúndu sem fer í
að koma sér á æfingar og í leiki. Hauk-
ar eru í efsta sæti deildarinnar eftir 11
leiki með 10 sigra og Kristrún hefur
skorað 21,4 stig að meðaltali í leik.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Kristrún hvíldi sig á líffræðináminu til
þess að geta æft meira og leikið betur
Keyrir 50 km á dag vegna æfinga
Í HNOTSKURN
»Kristrún Sigurjónsdóttir er23 ára gömul og er skotbak-
vörður í liði Hauka sem er á
toppi úrvalsdeildar kvenna.
» Í vetur hefur hún gert 21,5stig að meðaltali í leik, tekið
5,5 fráköst og átt 3,9 stoðsend-
ingar að meðaltali í leik.
»Kristrún er uppalin í Aftur-eldingu, lék með ÍR í tvö ár
en kom til liðs við Hauka 2004
og leikur nú sitt fimmta tímabil
með liðinu.
RYAN Giggs, einn af gulldrengjum sir Alex
Fergusons, knattspyrnustjóra Manchester United,
hefur gefið það í skyn að hann kunni að leggja
knattspyrnuskóna á hilluna eftir tímabilið.
Giggs er 35 ára gamall og er samningsbundinn
Englands- og Evrópumeisturunum til loka leiktíð-
arinnar en Giggs hefur undanfarin ár gert eins
árs samning í senn.
„Ég held áfram að spila svo lengi sem ég hef
gaman af því, er heill heilsu og knattspyrnustjór-
inn vill mig. Ef eitthvað af þessu þrennu hverfur
mun ég íhuga að hætta og það gæti orðið í lok
þessa tímabils,“ sagði Giggs í blaðaviðtali í gær.
Glæstur ferill
Giggs á glæsilegan feril að baki með Manchest-
er United en Walesverjinn hefur unnið til 28 gull-
verðlaunapeninga með Man-
chester-liðinu, þar hefur hann
orðið Evrópumeistari í tvígang,
orðið enskur meistari tíu sinn-
um og á fjóra bikarmeist-
aratitla með liðinu.
Giggs, sem lék 64 landsleiki
fyrir Wales, sló í fyrra leikja-
met sir Bobbys Charltons þegar
hann kom inn á sem varamaður
í úrslitaleiknum gegn Chelsea í
Meistaradeildinni síðastliðið vor
en Giggs hefur nú leikið 781 leik fyrir félagið.
Lengur að jafna mig
„Samningur minn rennur út í maí og eftir það
sé ég til. Ég hef ekkert rætt málin við United. Ég
er jafnvel á mig kominn og áður en eini mun-
urinn er að ég er lengur að jafna mig á milli
leikja,“ sagði Giggs, sem skoraði fyrsta markið í
sigrinum á Wigan í lokaumferðinni í ensku úr-
valsdeildinni á síðustu leiktíð þegar United inn-
siglaði meistaratitilinn og hann skoraði í víta-
spyrnukeppninni gegn Chelsea í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar.
„Í dag gleðja sigrarnir og titlarnir mig meira
en þegar ég var ungur vegna þess að ég veit að
það gætu orðið þeir síðustu,“ sagði Giggs sem er
eini leikmaður liðsins sem hefur unnið enska
meistaratitilinn 10 sinnum, eini leikmaðurinn sem
hefur skorað fyrir liðið 12 tímabil í röð í Meist-
aradeild Evrópu og sá eini sem hefur skorað fyrir
liðið á hverju tímabili í ensku úrvalsdeildinni frá
því hún var stofnuð. gummih@mbl.is
Gulldrengurinn Giggs íhugar að hætta í vor
Ryan
Giggs
DANSKA handknattleiksliðið GOG, sem þeir Ásgeir Örn
Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson leika með, á í
nokkrum fjárhagserfiðleikum um þessar mundir, að sögn
Fyens Stifttidende í gær. Illa hefur gengið að greiða reikn-
inga. Meginástæðan mun vera að nokkrir styrktaðilar félags-
ins hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart GOG.
Er talað um að félagið eigi útstandandi kröfur upp á 75 millj-
ónir íslenskra króna. Arne Buch, framkvæmdastjóri GOG,
staðfestir í samtali við Fyens Stifttidende að peningar skili
sér seinna en áður frá samstarfsaðilum og þar af leiðandi
glími félagið við fjárhagsvanda.
Talið er framundan sé niðurskurður á kvennaliði GOG en
karlaliðið muni sleppa, a.m.k. að sinni. Áformað er að blása til sóknar með karla-
liðið frá og með næstu leiktíð þegar Guðmundur Þ. Guðmundsson tekur við
þjálfun þess. Hermt er félagið hafi í hyggju að styrkja liðið með nýjum leik-
mönnum þegar Guðmundur tekur við. Hvort eitthvað verði dregið úr þeim
áformum miðað við núverandi stöðu fylgir ekki sögunni. iben@mbl.is
GOG er í fjárhagsvanda
Snorri Steinn
Guðjónsson
GUÐMUNDUR Steinarsson, fyrirliði Keflvíkinga og besti
og markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu
2008, er staddur í Liechtenstein þar sem hann á í viðræðum
við FC Vaduz, sem leikur í svissnesku úrvalsdeildinni. Hann
kom til Vaduz í gær og ræddi við þjálfarann, hinn gam-
alkunna fyrrverandi landsliðsmann Þjóðverja, Pierre Litt-
barski, og skoðar aðstæður í dag. „Ég er með samnings-
tilboð í höndunum sem ég tek með mér heim og skoða vel
með fjölskyldunni. Það kemur til greina að semja út þetta
tímabil, eða þá til hálfs annars árs, ef mér líst á staðinn og
félagið,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið í gær.
FC Vaduz er frá höfuðstað Liechtenstein en hefur um
árabil leikið í svissnesku deildakeppninni og vann 1. deildina á síðasta tíma-
bili. Liðið er sem stendur næstneðst af tíu liðum en aðeins botnliðið fellur
beint. Lið Vaduz, sem leikur heimaleikina á Rheinpark, þjóðarleikvangi
furstadæmisins, er að meirihluta skipað svissneskum leikmönnum, auk lands-
liðsmanna frá Liechtenstein og nokkurra Brasilíumanna. vs@mbl.is
Guðmundur til FC Vaduz?
Guðmundur
Steinarsson
TOTTENHAM lagði Burnley í enska
deildarbikarnum í gær, 4:1, í fyrri leik
liðanna á White Hart Lane í Lund-
únum. Burnley komst yfir á 15. mín-
útu með marki Martin Paterson.
Leikurinn snerist þó við í seinni hálf-
leiknum, ekki síst við innkomu Jamie
ÓHara, sem lagði upp tvö mörk og
skoraði eitt. Þeir Michael Dawson og
Roman Pavluchenko skoruðu hin
mörk Tottenham, auk þess sem
Michael Duff gerði sjálfsmark.
Stórsigur hjá
Tottenham