Morgunblaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 9
9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
EFTIR hádegi 20. janúar var fólk byrjað að
safnast saman fyrir framan Alþingishúsið á
Austurvelli með potta og prik. Smám saman
fjölgaði í hópnum. Klukkan 13.30, þegar þing
var sett eftir hlé, ætlaði allt um koll að keyra.
Mótmælendur framkölluðu mikinn hávaða
með því að slá á potta sína og hrópa: „Van-
hæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn!“ Þrýst-
ingur vegna mótmælanna skilaði sér vel í rað-
ir þingmanna, sérstaklega Vinstri grænna
(VG) og Samfylkingar. Eftir nokkra stund
var svo komið að sumir þingmanna VG töldu
sig betur komna meðal mótmælendanna
sjálfra en innan veggja þinghússins. Meðal
mótmælenda mátti einnig sjá virka þátttak-
endur í starfi Samfylkingarinnar. Þar á meðal
Helgu Völu Helgadóttur, stjórnarmann í
Samfylkingarfélaginu í Reykjavík, sem jafn-
framt er systir Skúla Helgasonar, fram-
kvæmdastjóra flokksins og eins nánasta sam-
starfsmanns Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur.
Ljóst var að mótmælin höfðu mikil áhrif á
flokksstarf beggja flokkanna á vinstri vængn-
um. VG fékk byr í seglin, en Samfylkingin
var í „bullandi vörn“ eins og einn þingmanna
flokksins orðaði það. Hún var komin upp að
vegg.
Mótmælin mögnuðust eftir því sem leið á
daginn. Eldar voru kveiktir og rúður brotnar
í þinghúsinu. Góð ráð voru dýr fyrir Samfylk-
inguna.
Spennan magnast
Þótt upp úr hafi soðið vegna mótmælanna
höfðu miklar umræður átt sér stað milli
stjórnarflokkanna skömmu fyrir áramót um
hvernig mögulegt væri að efla traust á
stjórninni og aðgerðum hennar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var undirbún-
ingur umfangsmikilla breytinga á lokastigi
skömmu fyrir jól. Þá átti að gera breytingar
á ríkisstjórninni, breyta lögum um Seðla-
banka Íslands og Fjármálaeftirlitið og koma
á skýrum siðareglum fyrir þingmenn og op-
inbera starfsmenn ásamt fleiri atriðum. Listi
yfir um tuttugu atriði var tilbúinn. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, átti að verða fjármálaráðherra, Þor-
gerður Katrín utanríkisráðherra og tveir nýir
áttu að setjast í ráðherrastól ásamt frekari
hrókeringum. Áður en vinnan kláraðist, sem
stóð til að kynna á gamlársdag, óskaði Ingi-
björg Sólrún eftir því við Geir H. Haarde að
lokavinnu við þessar breytingar yrði frestað.
Vógu þar þyngst veikindi hennar en hún var
á leið í læknismeðferð vegna heilaæxlis á
þessum tíma.
Eftir að frestun þessarar lokavinnu varð
ljós, og jólahátíðin búin, fór „spennan að
magnast upp“ eins og einn viðmælenda komst
að orði. Innan Sjálfstæðisflokksins var þess
beðið að vinnu við breytingar á ríkisstjórn og
stjórnkerfinu gætu gengið í gegn. Það var
háð því að Ingibjörg Sólrún gæti leitt þá
vinnu fyrir hönd Samfylkingarinnar. Vaxandi
óánægja var hins vegar innan Samfylking-
arinnar með stjórnarsamstarfið. Töldu al-
mennir flokksmenn að of hægt gengi að gera
breytingar, grípa til aðgerða og efla traust á
meðal almennings. Innan forystunnar í
flokknum voru einnig uppi þau viðhorf að
Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki tilbúinn að
koma nægilega til móts við Samfylkinguna.
En „límið“ í samstarfinu var öðru fremur
traust samband Geirs H. Haarde og Ingi-
bjargar Sólrúnar.
Látið til skarar skríða
Að kvöldi 20. janúar var ljóst að mótmælin
á Austurvelli voru þegar orðin söguleg. Mót-
mælendur, í þúsundatali, hrópuðu „vanhæf
ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn“ inn í nóttina.
Daginn eftir héldu hörð mótmæli áfram. Eld-
ar voru kveiktir, rúður voru brotnar og lög-
reglumenn börðust við mótmælendur. Þetta
hélt áfram daginn eftir, en þann dag héldu
framsóknarmenn blaðamannafund með nýjan
formann, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, í
broddi fylkingar þar sem flokkurinn bauðst
til að verja ríkisstjórn VG og Samfylkingar
vantrausti. Á fundi Reykjavíkurfélags Sam-
fylkingarinnar, sem fram fór fimmtudaginn
22. janúar, kom fram eindreginn vilji hjá
flokksfólki til að slíta ríkisstjórnarsamstarf-
inu og ganga sem fyrst til kosninga. Ályktun
þess efnis var samþykkt og fór þá strax orðið
„búsáhaldabyltingin“ að festast við aðgerðir
mótmælenda.
Á þessum tíma var bakland Samfylking-
arinnar búið að missa þolinmæðina gagnvart
stjórnarsamstarfi við sjálfstæðismenn. Þeir
hins vegar biðu og vonuðu að Ingibjörg Sól-
rún sneri heim og tækist að halda samstarf-
inu áfram. Frá sjónarhorni sjálfstæðismanna
var samstarfið vonlaust ef Ingibjörgu Sólrúnu
tækist ekki að sætta sitt fólk. Föstudaginn
23. janúar las Geir H. Haarde upp yfirlýsingu
og greindi frá því að hann hefði greinst með
illkynja æxli í vélinda, og hygðist ekki halda
áfram sem formaður flokksins. Þjóðin öll var
slegin.
Sjálfstæðismönnum stillt upp við vegg
Helgina 23.-25. janúar ræddu formenn
stjórnarflokkanna, Ingibjörg Sólrún og Geir,
saman og freistuðu þess að bjarga stjórninni.
Bakland forystunnar í Samfylkingunni vildi
breytingar og með þau skilaboð héldu Ingi-
björg og Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra til fundar við Geir. Sunnudag-
inn 25. janúar hittust formennirnir ásamt
forystumönnum flokkanna í tvígang á heimili
Geirs. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
greindu forystumenn Samfylkingarinnar frá
því á fyrri fundinum að vilji væri til þess hjá
stjórn Samfylkingarinnar að flokkurinn fengi
forsætisráðuneytið. Því var neitað. Seinna um
daginn höfðu þessi skilaboð frá stjórn Sam-
fylkingarinnar breyst í kröfur. Geir neitaði
því staðfastlega að Samfylkingin fengi for-
sætisráðuneytið. Þannig fóru flokkarnir inn í
nýja þingviku.
Nýtt upphaf í skjóli Framsóknar
Strax í upphafi nýrrar viku var ljóst að
bakland VG og Samfylkingarinnar var byrjað
að ræða saman um möguleika á vinstristjórn í
skjóli Framsóknarflokksins. Tilboð þess efnis
lá fyrir og grundvöllur til ráðs og skrafs
traustur. Eftir fundi þingflokka stjórn-
arflokkanna, og fund Ingibjargar Sólrúnar og
Geirs, var ljóst að samstarfið gat ekki haldið
áfram. Geir óskaði eftir slitum og umboði til
þess að mynda þjóðstjórn. Ekki reyndist
grundvöllur fyrir því, þar sem VG og Sam-
fylkingin voru þá þegar byrjuð að ræða sam-
an um mögulegt samstarf.
Baklandið kallaði á breytingar
Morgunblaðið/hag
Eldar loguðu Mótmælin við Alþingishúsið stigmögnuðust dag
frá degi. Bál var kveikt á Austurvelli.
Morgunblaðið/Kristinn
Búið Geir H. Haarde ræðir við fréttamenn eftir að ljóst varð að
ríkisstjórnarsamstarfið gæti ekki haldið áfram.
Aðstæður til myndunar nýrrar stjórnar spruttu upp úr megnri óánægju baklands Samfylking-
arinnar með samstarf við Sjálfstæðisflokkinn Sjálfstæðismenn vildu ekki gefa eftir verkstjórnina
Morgunblaðið/Golli
Viðræður Eftir að ljóst varð að ekki var hægt að mynda þjóð-
stjórn freistuðu VG og Samfylkingin þess að mynda stjórn.
Á SLAGINU klukkan 13 í gær kom Jóhanna Sigurðardóttir til Bessastaða
og tók við umboði til stjórnarmyndunar frá Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands. Klukkustund fyrr hafði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað-
ur Samfylkingarinnar, gengið á fund forseta og skilað af sér sama umboði.
Morgunblaðið/Ómar
Jóhanna tók við umboði
Nokkurt hik kom í viðræður VG og Samfylk-
ingarinnar á fimmtudag og föstudag í síð-
ustu viku. Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu urðu framsóknarmenn fyrir
vonbrigðum með drög að stjórnarsáttamála
sem þingflokkur framsóknarmanna fékk í
hendurnar á fimmtudaginn. Forystumenn
VG og Samfylkingarinnar höfðu þá þegar
byrjað að skipuleggja blaðamannafund sem
fara átti fram við styttuna af Jóni Sigurðs-
syni á Austurvelli. Táknrænt fyrir mótmælin
sem fóru fram og hreyfðu við fylkingum
beggja flokka. Framsóknarmenn voru ekki
tilbúnir að kynna samstarf strax þar sem
flokksmenn höfðu ekki farið yfir drögin og
metið hvort flokkurinn gæti treyst sér til
þess að verja stjórnina falli á forsendum
sáttmála sem tæki mið af drögunum. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins var nokk-
ur órói meðal fylgismanna VG og Samfylk-
ingarinnar eftir að ljóst var að
framsóknarmenn voru ekki tilbúnir að kynna
samstarfið strax. Héldu einhverjir jafnvel að
framsóknarmenn væru að hætta við. Eftir
viðræður Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein-
gríms J. Sigfússonar var hins vegar ljóst á
laugardagsmorgun að Framsóknarflokk-
urinn myndi verja stjórnina falli. Sigmundur
Davíð sagði þó að fara þyrfti betur í gegnum
það hvernig ætti að útfæra tillögur í efna-
hagsmálum.
Framsóknarmenn hikuðu við að verja ríkisstjórnina
„ÞAÐ er ánægjulegt að búið sé að
eyða óvissu um stjórn landsins,“ seg-
ir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, um
myndun nýrrar minnihlutastjórnar
Samfylkingar og vinstri grænna.
Hann vonar að ríkisstjórninni takist
að standa undir þeim væntingum
sem til hennar eru gerðar og eru for-
senda þess að Framsóknarflokkur-
inn veitti henni vernd gegn van-
trausti á alþingi. Sigmundur mun í
staðinn funda vikulega með fulltrú-
um ríkisstjórnarinnar og fara yfir
þau mál sem til stendur að koma í
gegnum þingið. „Forsendur varnar
gegn vanatrausti eru þær að farið
verði í markvissar aðgerðir til að að-
stoða skuldsett heimili og til að koma
íslensku atvinnulífi aftur af stað. Þær
aðgerðir sem við teljum að geti náð
þessum markmiðum munu vissulega
fá brautargengi af okkar hálfu og
þær verða meðal annars ræddar á
þessum vikulegu fundum.“
Miðstjórn Framsóknarflokks
lýsir yfir stuðningi
Miðstjórnarfundur Framsóknar-
flokksins, sem var haldinn í gær, lýsti
yfir mikilli ánægju með framgöngu
forystu sinnar og þingflokks í stjórn-
armyndunarviðræðunum. Á fundin-
um var einnig lýst yfir eindregnum
stuðningi við þá afstöðu þingflokks-
ins að verja minnihlutastjórnina van-
trausti fram að alþingiskosningum í
lok apríl. Á fundinum kom einnig
fram ánægja með að ráðist yrði í að-
gerðir til að koma til móts við skuld-
sett heimili, bæta rekstrarskilyrði at-
vinnulífsins og að komið yrði á
stjórnlagaþingi. thordur@mbl.is
Óvissunni hefur verið eytt
Framsókn vonast
til að stjórnin standi
undir væntingum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægður Sigmundur ásamt Siv
Friðleifsdóttur þingmanni.