Morgunblaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009 ✝ Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar elsku móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSBJARGAR GUÐGEIRSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks að Roðasölum 1 fyrir alúð og umhyggju. Hildisif Björgvinsdóttir, Sigurður Ólafsson, Kjartan Björgvinsson, Björgvin Sigurðarson, Daníel Sigurðarson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar og frænku, BERGLJÓTAR EDDU ALEXANDERSDÓTTUR hjúkrunarfræðings, Lautasmára 10, áður Grettisgötu 26. Ólafur Alexandersson, Guðmundur Kristjánsson, Helga Zoega. Vegna mistaka féll niður hluti þessarar greinar í blaðinu sl. laugardag. Greinin er því birt aftur og biðst Morgunblaðið Björn Eyjólfur Auðunsson ✝ Björn EyjólfurAuðunsson fædd- ist í Reykjavík 4. mars 1955. Hann lést á líknardeild Land- spítala 21. janúar síð- astliðinn og var jarð- sunginn frá Fríkirkjunni í Reykja- vík 30. janúar. velvirðingar á mistök- unum. Vinur minn og frændi, Björn Eyjólf- ur Auðunsson, er fall- inn í valinn. Hans er sárt saknað. „Böddi“ eins og hann oftast var kallaður meðal fjöl- skyldu og vina hafði allt til að bera sem prýða má einn mann. Fallegur, góður og greindur, hreinn og beinn og vildi hverjum manni vel. Hafði í sér „mennskuna“, eins og stundum er sagt um þá menn sem búa yfir þeim mætti að sjá hið góða í lífinu og tilverunni og kjósa ljós í stað myrkurs og hafa skilning á því að við erum ekki öll eins. Hann vildi gera heiminn að betri stað og orðræða hans var iðulega sú að bæta í stað þess að rífa niður. Hann vildi réttlæti í stað óréttlætis, sættir í stað ósættis. Eins og stundum vill verða í lífinu kynntist ég þessum frænda mínum og vini alltof seint og missti hann alltof snemma en meðan hans naut við var allt eins og það átti að vera, aðeins gott. Um meira er ekki hægt að biðja. Það er einnig gott að vita af því að til eru menn eins og sá sem við kveðjum. Kveðja er reyndar ekki rétta orðið því sá sem kvaddur er mun alltaf verða hjá okkur. Jón Ársæll Þórðarson. ✝ Sigurður Mar-elsson fæddist í Reykjavík 5. nóv- ember 1931. Hann lést á Vífilsstöðum 16. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Marel Sigurðs- son frá Stokkseyri, f. 14.10. 1891, d. 26.5. 1946, og Eyrún Ei- ríksdóttir úr Reykja- vík, f. 25.7. 1903, d. 10.5. 1962. Systkini Sigurðar voru Eirík- ur, f. 1924, d. 1994, Soffía, f. 1927, d. 1994, Guðrún, f. 1930, d. 1979 (sonur Sigurður Már Hilmarsson), Már, f. 1944, d. 2001, og eftirlifandi systir er Sigurbjörg, f. 1937. Sigurður lauk kennaraprófi frá Kennaraskólanum 1952, var kennari undir Eyjafjöllum í einn vetur, síðan í Grindavík í fjögur ár. Kennari í Breiðagerð- isskóla frá 1957-1995. Á sumrin 1950-1964 vann hann við póst- störf og síðan flokks- stjórn í Vinnuskóla Reykjavíkur 1965- 1980. Sigurður var mikill Valsmaður og starfaði fyrir Knatt- spyrnufélagið Val að margs konar málum í gegnum tíð- ina. Sigurður var til heimilis á Víf- ilsstöðum frá miðju ári 2004. Sigurður verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val Enn fækkar gömlu félögunum að Hlíðarenda. Nú er Sigurður Marels- son eða Siggi Mar, eins og allir Vals- menn þekktu hann, látinn. Siggi Mar er samofinn minningum fullorðinna Valsmanna af Hlíðarenda, sérstak- lega á 7. áratugnum og er undirrit- aður í þeim hópi. Siggi Mar var að Hlíðarenda mörg- um stundum á þessum árum og sinnti félagsþörf yngri Valsmanna með samkomum, sem haldnir voru í gamla „Fjósinu“. Þar sýndi hann fótbolta- myndir og skrípamyndir á forláta kvikmyndasýningarvél, sem oftar en ekki sleit filmuna, en Siggi Mar redd- aði alltaf málum með bros á vör. Þarna sáum við strákarnir Puskas taka Englendinga í nefið, Pele slá í gegn á HM í Svíþjóð 1958 og fleiri gullmola á milli þess sem Andrés Önd og Mikki Mús léttu okkur lund. Þess- ar stundir eru ógleymanlegar okkur Valsdrengjunum, sem þeirra nutu. Sigurður glímdi við Bakkus, eins og margir af hans kynslóð, en hélt ávallt reisn í störfum sínum. Ef hann var að blóta Bakkus ferðaðist hann gjarnan um með gamla, snjáða, brúna skjalatösku, sem geymdi nauðsynleg gögn. Hann tók stundum þátt í keppnisferðum mfl. karla í knatt- spyrnu á árum áður og þá var „Ég kyssti hana kossinn einn“ sungið há- stöfum í rútunni á leiðinni í bæinn al- veg upp í tíu kossa undir öruggri söngstjórn Sigga Mar. Sigurður var kennari við Breiða- gerðisskóla allan sinn starfsaldur eða í 38 ár. Eftir starfslok fór heilsu Sigurðar að hraka og dvaldi hann við góða umönnun að Vífilsstöðum síðustu ár- in, en alltaf var hugurinn hjá Val og að Hlíðarenda. Minnisstæð er sam- verustund með Sigurði að Vífilsstöð- um í tilefni 75 ára afmælis hans, sem nokkrir eldri Valsmenn stóðu að af ræktarsemi og virðingu við Sigga Mar. Við Valsmenn vottum aðstandend- um Sigurðar samúð okkar. Minning Sigga Mar mun ávallt lifa með okkur að Hlíðarenda. Grímur Sæmundsen, formaður. Mánudaginn 18. janúar sl. barst mér í útvarpi andlátsfregn góðs vinar og skólabróður, Sigurðar Marelsson- ar kennara, sem látist hafði á sjúkra- húsi í Reykjavík. Við vorum bekkjar- félagar í gamla Kennaraskólanum við Laufásveg. Sigurður var, eftir því sem ég best veit, fæddur og uppalinn í Reykjavík. Foreldrar hans voru Mar- el Sigurðsson verkamaður og kona hans, Eyrún Eiríksdóttir. Sigurður lauk landsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1948 og kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands vorið 1952. Gerðist hann kennari í Eyjafjallasveit og í Grindavík árin 1952-1957. Upp frá því kenndi hann til starfsloka við Breiðagerðisskólann í Reykjavík. Sigurði var margt til lista lagt. Ungur að árum tók hann þátt í íþróttastarfi hjá Knattspyrnufélaginu Val í Reykjavík. Hann var ein meg- inuppistaðan í handboltaliði bekkjar- ins okkar í Kennaraskólanum árin 1949-52. Hann var liðtækur skákmað- ur og spilaði bridge í frístundum, tók þátt í kórstarfi og söng í kvartett á vegum skólans. Hann var vel hag- mæltur og lét fjúka í kviðlingum, ef svo bar undir. Hann var bókmennta- maður og átti til að vitna í Tómas Guðmundsson, Stein Steinarr og fleiri skáld. Hópurinn sem útskrifað- ist úr Kennaraskóla Íslands vorið 1952 dreifðist víðs vegar um landið og það fór því svo að oft var vík milli vina. Sigurður kvæntist ekki en átti lengst af heimili á Njarðargötunni, þar sem foreldrar hans og systkini höfðu búið. Fyrir nokkrum árum hafði heilsu Sigurðar hrakað svo, að hann þurfti að dveljast á sjúkrahús- um. Síðustu árin dvaldist hann á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar virtist mér honum líða eins vel og kostur var á. Þar var hann hjá góðu fólki. Við gömlu skólabræðurnir gripum stund- um símann, töluðum saman og rædd- um um gamla daga. Sigurður var hlé- drægur og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Mér er það mikils virði að hafa átt hann að félaga og vini á skólaárum og síðar. Ég og kona mín vottum ætt- ingjum hans innilega samúð okkar. Ingimar Sveinsson. Þeim fækkar óðum kennurum, sem fyrir voru í Breiðagerðisskóla í Reykjavík, er ég hóf þar störf á frum- býlingsárum hans 1958. Einn af þeim var Sigurður Marelsson sem ég mundi eftir úr Austurbæjarskólanum af því að hann var bróðir bekkjarsyst- ur minnar, Gunnu Mar. Okkur Sig- urði varð strax vel til vina og aldrei bar þar skugga á þá áratugi er við unnum saman. Mjög oft kenndum við í sömu árgöngum sem stundum fóru yfir 200 nemendur. Sigurður fékk oft erfiða bekki sem hann hafði góð tök á. Margir af þeim krökkum hafa komist vel til manns og er það sérlega ánægjulegt fyrir okkur gömlu kenn- arana þegar við heyrum góðar fréttir af börnunum okkar og við Siggi vor- um bæði með því marki brennd að við eignuðumst sjálf engin börn. Fyrstu áratugina var Hjörtur Kristmundsson skólastjóri og voru þeir Sigurður miklir mátar. Ég varð snemma á bíl og urðu þeir oftast sam- ferða mér heim ásamt Aðalheiði syst- ur minni enda bjuggum við öll á sömu torfunni, þ.e. í gamla Austurbænum. Ég hefði ekki með nokkru móti viljað missa af þessum félagsskap, af því að þeir félagarnir voru mjög hressir en mergjað tungutak Hjartar og hnyttni bar af í samræðum okkar. Hugsa ég oft um þessa gömlu góðu daga þegar kreppurnar komu og fóru og æðru- leysið var meira en nú til dags. Er leið á ævina þjökuðu veikindi Sigurð og var hann orðinn illa farinn er hann lét af störfum á tíunda áratugnum. Var sjónarsviptir að þessum sérstæða persónuleika er hann hvarf úr kenn- araliðinu eftir farsælt ævistarf. Ár- lega hittumst við allir gömlu kennar- arnir í Breiðagerðisskóla og eigum þar góðar stundir. Síðustu árin voru Sigurði erfið og gat hann ekki lengur komið. Hann var kominn í hjólastól og á Vífilsstaði. Þar hittumst við oft og rifjuðum upp gamlar minningar og pexuðum um pólitík eins og í gamla daga.Nú við brottför hans munu margir gamlir nemendur hans og samstarfsfólk minnast hans með hlý- hug og óska honum velfarnaðar á ókunnum stigum tilverunnar. Ætt- ingjum hans votta ég samúð mína er ég kveð þennan góða dreng. Hrefna Sigvaldadóttir. Sigurður Marelsson  Fleiri minningargreinar um Sig- urð Marelsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elísabet Guð-jónsdóttir fædd- ist í Reykjavík 28. janúar 1922. Hún lést að heimili sínu Sóltúni 2 í Reykjavík 21. janúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Guðjón Elías Jónsson bankastjóri á Ísafirði, f. 20.2. 1895, d. 11.2. 1980, og Kristjana Solveig Sigurðardóttir hús- móðir, f. 2.9. 1900, d. 27.11. 1965. Fóst- urfaðir hennar var Jón Árnason. Systkini Elísabetar sammæðra, Hjördís Jónsdóttir, f. 1932, d. 2006, og Haukur Jónsson, f. 1934, d. 1970, samfeðra Baldur, f. 1929, d. 2003, Jóhanna, f. 1940, Skúli, f. 1942, og Friðrik, f. 1945. Fóst- ursystir Elísabetar var Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir, f. 1935, d. 2008. Elísabet giftist 17. desember 1943 Baldri Kristjánssyni píanó- leikara, f. 21.10. 1922, d. 4.3. 1984. Börn þeirra og afkom- endur: 1) Kristján S. bygg- ingaverkfræðingur í Reykjavík, f. 31.3. 1948. Börn hans eru: a) Ás- dís skrifstofumaður, f. 1969, móð- ir hennar Helga Sigurðardóttir. Börn Ásdísar og Jóngeirs And- ersen eru: Markús, f. 2000, og Lilja Sól, f. 2003; b) Baldur tölv- unarfræðingur, f. 1978, er við framhaldsnám í Hollandi, kvænt- ur Jórunni Írisi Sindradóttur; c) Björn grunnskólakennari og tón- listarmaður, f. 1980, d) Valgerður Stella háskólanemi, f. 1985, í sambúð með Erni Eyjólfssyni; og e) Elísabet Anna, f. 1988, nem- andi. 2) Elsa bankastarfsmaður, f. 27.10. 1949, gift Kristjáni Guð- mundssyni húsaamíðameistara. Börn hennar: a) Guðrún Lísa snyrtifræðingur, f. 1969, búsett í Englandi, börn hennar Elva Dögg, f. 1991, Drífa, f. 1993, og Hans Kristján, f. 1996; b) Sólrún starfsþróun- arstjóri, f. 1973. Í sambúð með Snæv- ari Ívarssyni, börn þeirra Ásta Rós, f. 1991, fósturdóttir, Daníel, f. 1995, og Viktoría Elsa, f. 2000; og c) Kristján Heiðar bygginga- fræðingur í Reykja- vík, f. 1979, í sam- búð með Birgittu Lindu Björnsdóttur. 3) Guðjón læknir, f. 10.9. 1951, kvæntur Bryndísi Guðjónsdóttur hjúkr- unarfræðingi. Börn Guðjóns: a) Hjálmar BS viðskiptalögfræð- ingur, f. 1976, í meistaranámi í lögfræði; b) Elías, f. 1983, BS lög- fræðingur, í meistaranámi í lög- fræði; c) Ólafur Friðrik nemi í rafeindavirkjun í Tækniskóla Ís- lands, f. 1983, fóstursonur, í sam- búð með Saröndu Dyla; d) Bald- vin Fannar, f. 2000; og e) Jóhanna Vigdís, f. 2001. 4) Birgir Bragi, f. 24.4. 1959, íbúi í sambýl- inu Skagaseli 9. Elísabet lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Hún ólst upp á Akureyri og á Flateyri en flutti til Reykjavíkur fyrir tvítugt þegar hún hóf bú- skap með Baldri eiginmanni sín- um. Þau bjuggu á nokkrum stöð- um í Reykjavík en síðast bjó Elísabet í Sóltúni 2. Hún vann lengst af auk þess að sinna heim- ili og börnum við verslunarstörf og ræstingar en síðast á Þjóð- minjasafninu. Hún hafði alla tíð áhuga á tónlist, dansi, hann- yrðum, leikhúsi, bóklestri en fyrst og fremst kom fjölskyldan, börnin og barnabörnin. Útför Elísabetar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku mamma, þá er komið að kveðjustund og minningarnar streyma fram í hugann. En ég á samt erfitt með að koma þeim niður á blað svo ég sendi hér þessi ljóð, sem mér finnst falleg um leið og ég hugsa til þín. Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu móður þinnar, sem mildast átti hjartað og þyngstu störfin vann og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku sinnar og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann. Þú veizt, að gömul kona var ung og fögur forðum, og fátækasta ekkjan gaf drottni sínum mest. Ó, sýndu henni vinsemd í verki og í orðum. Sú virðing sæmir henni og móður þinni bezt. Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður, að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír, og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður og vaxa inn í himin – þar sem kærleikurinn býr. (Davíð Stefánsson.) Öllu lokið, mamma. Slokknað ævi þinnar ljós. Hjúfrar sig að barmi þínum hvít og friðsæl rós. Lémagna sú hönd, er þerrði ljúfast vota kinn. – Drjúpi hljótt og rótt mín tár við dánarbeðinn þinn. Blessuð sé hver tíð, er leið á braut í fylgd með þér, vongleðin og ástúð þín, sem vakti yfir mér. – Bið eg þess af hjarta nú á bljúgri kveðjustund, að bænir þínar leiði þig sem barn á guðs þíns fund. (Kristinn Reyr.) Nú veit ég að allar þrautir eru farnar og þér líður vel. Guð geymi þig, mamma mín. Þín dóttir Elsa. Elísabet Guðjónsdóttir  Fleiri minningargreinar um El- ísabetu Guðjónsdóttur bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.