Morgunblaðið - 02.02.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2009
BASARINN
ALLTAF ALLT Á KREPPUVERÐI!
FLESTAR VÖRUR KOSTA 100-500 kr.!
GERIÐ GÓÐ KAUP
Nýjar vörur nær daglega
Notaðar vörur: bækur, föt, húsbúnaður, skrautmunir, gardínur, dúkar, lampar, töskur, hárskraut,
vídeóspólur, leikföng, spil og fleira. Nýjar vörur: kristilegar bækur, geisladiskar, málverk, ilmolíur,
silkibindi, sjöl, treflar, silfurkrossar, hálsfestar og handunnir englar frá Keníu.
Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin í heimsókn!
Nytjamarkaður Kristniboðssambandsins
Grensásvegi 7, 2. hæð
Opið virka daga frá 12-17 og fyrsta laugardag í mánuði kl. 11-14.
Á sama tíma er tekið á móti vörum ef einhver vill gefa. Sími 533 4900.
Allur ágóði rennur til starfs Kristniboðssambandsins
m.a. í Eþíópíu og Keníu.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
VAKI er með ráðandi markaðs-
stöðu á sínu sviði á flestum mark-
aðssvæðum heimsins. Þrátt fyrir
efnahagslægð er framtíð fyrirtæk-
isins björt, að mati Benedikts
Hálfdanarsonar markaðsstjóra.
Fyrirtækið hefur verið að bæta
við fólki og vinnur nú að þróun
tækninýjunga sem settar verða á
markað þegar efnahagur heims-
byggðarinnar réttir aftur úr kútn-
um.
Vaki var stofnaður í júní 1986
og er því á 23. starfsári. Upphafið
var smíði fiskiteljara sem notaður
var til að telja seiði sem seld voru
til fiskeldisfyrirtækja, ekki síst í
Noregi. Vöruþróun hefur síðan
verið aðal fyrirtækisins. Í höf-
uðstöðvum Vaka, þar sem
vöruþróun og markaðssókn eru til
húsa, starfa 14 manns. Megnið af
framleiðslu fyrirtækisins er smíð-
að hér á landi og annast und-
irverktakar smíði tækjabúnaðar-
ins. Sú smíði skapar hér meira en
20 ársstörf.
Megnið fer til útflutnings
Helstu framleiðsluvörur Vaka
eru talningar- og stærðarmælibún-
aður fyrir fiskeldisfyrirtæki. Um
85% framleiðslunnar tengjast fisk-
eldi og um 15% tengjast vöktun
villtra fiska með svonefndum Ár-
vökum. Megnið af framleiðslunni
fer til útlanda og skilar útflutning-
urinn um 96% af veltu fyrirtæk-
isins. Heildarvelta er áætluð um
700 milljónir króna á þessu ári og
hefur hún vaxið jafnt og þétt und-
anfarin ár. Stærstu viðskiptalönd-
in eru Noregur, Skotland, Kanada
og Chile. Vaki á dótturfyrirtæki í
Chile þar sem eru sex starfsmenn
og framleiða þeir hluta af vörum
fyrirtækisins fyrir þann markað.
Vaki er með umboðsmenn og þjón-
ustu í meira en tuttugu löndum og
hefur selt búnað til meira en
fjörutíu þjóðlanda.
Tæknin frá Vaka gerir fiskeld-
isfyrirtækjum kleift að mæla líf-
massa í eldiskvíum og fylgjast
þannig með vexti fiskanna. Hvort
vöxturinn er í takt við fóðrun og
hitastig og hvenær fiskurinn nær
heppilegri sláturstærð. Vaki var
fyrsta fyrirtækið í heiminum sem
tókst að þróa búnað til að mæla
stærð fiska neðan vatnsyfirborðs.
Með þessari tækni er hægt að
telja fiskana með 98% nákvæmni.
Tæknileg vöktun fiskgengdar
Árvakarnir eru ætlaðir til nota í
straumvötnum og eru notaðir til
að vakta fiskgengd úti í nátt-
úrunni. Þeir hafa verið í örri þró-
un og eru nú sú vara Vaka sem
helst er keypt hér á landi. Árvak-
ar hafa einnig mikið verið seldir
til viðskiptavina Vaka á vest-
urströnd Bandaríkjanna, til Kan-
ada, Bretlandseyja, Svíþjóðar,
Noregs, Þýskalands, Spánar, Pól-
lands, Tékklands og víðar. Bene-
dikt segir að Árvakinn byggist á
sömu tækni og þróuð hefur verið
fyrir fiskeldið. Hann er ekki síst
notaður í útlöndum til að fylgjast
með endurheimtu úr seiðaslepp-
ingum í ár. Hér fylgjast Árvakar
með fiskgengd í mörgum ám þar
sem stundaðar eru stangaveiðar.
Benedikt sagði að Veiði-
málastofnun hefði átt hugmyndina
sem leiddi til þróunar Árvakans.
Stofnunin leitaði til Vaka upp úr
1990 og spurði hvort ekki væri
hægt að nota tækni fyrirtækisins
til að telja fisk og stærðarmæla
fisk í ám.
„Við byrjuðum í Elliðaánum þar
sem fyrstu svoleiðis græjurnar
voru settar upp. Síðan höfum við
verið í mjög nánu sambandi við
Veiðimálastofnun um áframhald-
andi þróun á þessum búnaði. Nú
eru svona tæki komin í einar 35 ár
hér á Íslandi. Svo höfum við flutt
hátt í 200 tæki til útlanda,“ sagði
Benedikt.
Upplýsingar fari á netið
Árvakinn byggist á innrauðu
ljósi. Þegar fiskur syndir í gegn-
um tækið myndast skuggamynd af
útlínum fisksins. Fiskarnir synda
mishratt og geta virst langir eða
stuttir eftir sundhraða. Því er
miðað við hæð bolsins þegar stærð
fisksins er metin. Þegar fiskur
kemur í tækið kviknar á myndavél
og ljósi og eru ýmist teknar fimm
ljósmyndir eða kvikmynd af hverj-
um fiski.
Unnið er að þróun veflausnar
fyrir Árvakann sem á að vera
tilbúin í vor. Með henni verða
upplýsingar úr tækinu sendar
sjálfvirkt inn á vefsíðu. Hingað til
hafa gögn úr Árvökum verið
geymd í stjórntölvunni. Hægt hef-
ur verið að sækja þau ýmist í
gegnum þráðlaust símamótald eða
með því að lesa upplýsingar beint
úr tölvunni.
Með veflausninni opnast sá
möguleiki fyrir t.d. stangaveiði-
félög að setja inn á vefsíðu sína
nákvæmar upplýsingar um hve
margir laxar eru gengnir í tiltekna
á, hvert hlutfallið er á milli smá-
laxa og stórlaxa og hvernig göng-
ur hafa verið dag fyrir dag og
klukkustund fyrir klukkustund.
Bjartsýn á framhaldið
„Við erum leiðandi fyrirtæki á
okkar sviði og erum yfirleitt með
80-90% markaðshlutdeild. Við höf-
um alltaf verið fyrstir með nýj-
ungar á okkar sviði og erum lang-
stærstir á öllum mörkuðum nema í
Noregi,“ sagði Benedikt. Í Noregi
er fyrirtæki sem er keppinautur á
sviði talningartækni og annað á
sviði stærðarmælinga. Þar er Vaki
með um 50% markaðshlutdeild.
„Við leggjum áherslu á áfram-
haldandi vöruþróun og ætlum við
að vera tilbúnir með nýjungar sem
hægt verður að setja á markað
þegar léttir til í efnahagslífinu.
Við erum bjartsýnir, þrátt fyrir
ástandið, og ætlum frekar að bæta
í en draga úr starfseminni,“ sagði
Benedikt.
Velgengni ríkir hjá Vaka
Vaki er fram-
sækið þekking-
arfyrirtæki og í
forystu á sínu
sviði á heimsvísu
Morgunblaðið/Heiddi
Stjórnstöð Benedikt Hálfdanarson markaðsstjóri með nýja útfærslu stjórn-
stöðvar Árvaka sem búið er að selja til Þýskalands. Þessi stöð sendir upplýs-
ingarnar frá sér um örbylgjuloftnet.
Ljósmynd/Vaki
Árvaki Hér má sjá hvernig Árvaka er komið fyrir í laxastiga í Hítará. Fisk-
arnir synda í gegnum tækið sem telur þá og mælir stærð þeirra.
ÁRVAKANUM er komið fyrir í laxastigum eða þar sem hægt er að beina
umferð fiskanna í gegnum tækið.
Nýjustu útfærslur Árvaka telja fiska sem fara í gegnum tækið, mæla
stærð þeirra og taka myndir, ljósmyndir eða kvikmyndir af hverjum fiski.
Einnig er hægt að búa tækið nema sem les af örmerkjum (PIT tags)
merktra fiska og getur það því fylgst með ferð tiltekinna einstaklinga úr
fiskaríkinu. Þannig búnaður er t.d. kominn í Tungulæk.
Af myndunum má greina tegundir og kyn fiska. Einnig t.d. hvort lax-
arnir eru grálúsugir og nýgengnir úr sjó. Þá sést hvort fiskur er ugga-
klipptur eða hvort um eldisfisk er að ræða sem sloppið hefur úr eldiskvíum.
Mynd/Vaki
Norðurá Hér má sjá upplýsingar úr Árvaka um sumargöngu fiska í
Norðurá dag fyrir dag. Blái liturinn í súlunum sýnir litla fiska, sá rauði
miðlungsstóra og sá guli stóra fiska. Bláa línuritið sýnir hitastig árinnar.
Árvakur Árvaki