Morgunblaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 32
32 Sjóslys
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2009
Eftir Hermann Guðjónsson
Um nýliðin áramót gátu Íslend-
ingar glatt sig við það að árið 2008
urðu engin banaslys á sjómönnum
á íslenskum skip-
um, hvorki hér
við land né á
fjarlægum slóð-
um. Slíkri gæfu
var sannarlega
ekki að fagna um
þetta leyti árs
1959. Þá hurfu
42 sjómenn af
tveimur skipum í
hafið á skömm-
um tíma. Tog-
arinn Júlí frá Hafnarfirði sökk í af-
takaveðri á Nýfundnalandsmiðum í
febrúarbyrjun og að morgni hins
18. febrúar fórst vitaskipið Her-
móður undan Reykjanesi. Um borð
voru 12 sjómenn og drukknuðu
þeir allir. Sá elsti var 65 ára, sá
yngsti einungis 16 ára. Fimm kon-
ur misstu eiginmenn sína og 17
börn sáu föður sinn ekki framar.
Höggið var þungt, skarðið stórt.
Hermóður
Vitaskipið Hermóður var annað
skipið í eigu Vitamálaskrifstof-
unnar sem bar heiti sendiboða ás-
anna – hins hvata sonar Óðins –
sem frá er sagt í Snorra Eddu.
Skipið var smíðað í Stokkhólmi eft-
ir fyrirsögn starfsmanna Vita-
málaskrifstofunnar og var fullbúið
haustið 1947.
Skrokkur Hermóðs var úr stáli,
sérstyrktur til siglinga í ís. Skipið
var ekki ýkja stórt, einungis 33,7 m
að lengd og 7 m að breidd, talið 208
brúttótonn að þeirra tíðar mæl-
ingareglum og bar um 150 tonn.
Meginverkefni Hermóðs voru
flutningar vegna vitaþjónustunnar.
Ferðir með gashylki í vitana voru
árvissar og flutningur á matvælum,
kolum, áburði og öðrum nauðsynj-
um til vitavarða einnig. Auk vita-
þjónustunnar og tilfallandi verk-
efna við flutninga fyrir
Landssímann var Hermóður not-
aður til landhelgisgæslu að vetr-
arlagi þegar minnst þörf var fyrir
hann á öðrum vettvangi. Hann var
þá leigður Landhelgisgæslunni
með allri áhöfn um tveggja til
þriggja mánaða skeið og sinnti
gjarnan eftirlits- og björg-
unarstörfum við Vestmannaeyjar
framan af vertíð.
Síðasta siglingin
Hinn 17. febrúar 1959 lá Her-
móður í Vestmannaeyjahöfn. Eins
og oft áður hafði skipið gegnt hlut-
verki varðskips á Eyjamiðum und-
anfarið og nú var tímabært að
halda heim til Reykjavíkur eftir
tveggja vikna úthald. Veður var all-
sæmilegt síðdegis þegar Hermóður
sigldi frá Eyjum en fór versnandi
og um kvöldið var komið hávaðarok
af suðvestri.
Storminum fylgdi mikið hafrót.
Flutningaskipið Vatnajökull komst
nauðulega gegnum Reykjanesröst-
ina fyrri hluta nætur. Hermóður
var nokkuð á eftir honum. Hann
var undan Reykjanesi þegar samtöl
fóru á milli skipanna um fjög-
urleytið um nóttina. Þá amaði ekk-
ert að tólfmenningunum um borð
en röddin í talstöð Vatnajökuls var
síðasta lífsmarkið sem barst frá
vitaskipinu Hermóði.
Búist var við Hermóði til hafnar
í Reykjavík að morgni 18. febrúar.
Hann kom ekki og leit hófst. Um
hádegisbilið sáu leitarmenn fyrstu
vísbendingarnar um að vitaskipið
væri ekki lengur ofansjávar þegar
brak úr því tók að reka á fjörur í
Höfnum. Lestarhlerar og brotinn
björgunarbátur Hermóðs gáfu til
kynna að ólíklegt væri að nokkur
vitaskipsmanna hefði komist lífs af.
Þegar daginn eftir slysið þótti
ljóst að Hermóður hefði sokkið
skyndilega án þess að skipverjar
ættu sér neina von um björgun og
þeir voru allir taldir af. Alþingi
felldi niður reglulega fundi sína og
hélt þess í stað stuttan minning-
arfund í samúðar- og virðing-
arskyni við hina látnu sjómenn og
aðstandendur þeirra.
Björgunarsveitir hættu leit þeg-
ar vonir um að skipverjar fyndust á
lífi voru kulnaðar. Liðsmenn Land-
helgisgæslunnar notuðu þó hvert
tækifæri til að svipast um eftir vís-
bendingum um hvarf Hermóðs og
urðu þess brátt áskynja af olíudreif
á sjónum undan Höfnum að þar
myndi flak skipsins að finna. Ým-
islegt brak úr skipinu rak á fjörur
á Reykjanesi dagana eftir slysið en
líkum sjómannanna skilaði hafið
ekki.
Vitamálaskrifstofan og Land-
helgisgæslan höfðu forgöngu um að
haldin var fjölsótt minningarathöfn
um Hermóðsmenn í Dómkirkjunni
í Reykjavík hinn 7. mars 1959. Á
sjómannadaginn árið 1996 var vígt
í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík
minningarmark um drukknaða sjó-
menn sem ekki hafa fundist og því
ekki verið unnt að jarðsetja lík
þeirra. Þetta minningarmark heitir
Minningaöldur sjómannadagsins og
á það eru letruð nöfn horfinna sjó-
manna. Ættingi eins mannanna
sem fórust með Hermóði átti frum-
kvæði að því við Sjómannadagsráð
að minningamarkið var sett upp og
við vígslu þess voru nöfn allra Her-
móðsmanna skráð á Minningaöldur
sjómannadagsins.
Hermóðsslysið er stærsta áfall
sem hefur hent íslensku vitaþjón-
ustuna fyrr og síðar. Sjómennirnir
tólf urðu ekki grátnir úr helju frek-
ar en Baldur hinn góði sem æsir
sendu Hermóð hinn hvata að sækja
úr greipum dauðans. Þeir fylla
flokk hinna fjölmörgu íslensku sjó-
manna sem hafa týnt lífi við störf
sín og minning þeirra verðskuldar
virðingu.
Undanfarið höfum við borið gæfu
til að vinna svo að málum að sjó-
slysum hefur snarfækkað. Til þess
þurfti ötult og markvisst starf
margra aðila að slysavörnum og ör-
yggismálum sjómanna. Miklu
skiptir að haldið verði einarðlega
áfram á þeirri braut.
Hinsta sigling Hermóðs
Hermóður Tólf sjómenn fórust með vitaskipinu Hermóði að morgni 18. febrúar árið 1959.
Kveðja Minningarathöfn var haldin í Dómkirkjunni laugardaginn 6. mars árið 1959.
Höfundur er siglingamálastjóri.
Hermann
Guðjónsson
Fréttir
í tölvupósti
Haustið 2009 hefst nýtt þverfaglegt meistaranám skipulagt af
viðskiptafræðideild og lagadeild Háskóla Íslands.
Námið hentar mjög vel fyrir alla útskrifaða lögfræðinga og viðskipta-
fræðinga sem vilja styrkja þekkingu og auka sérhæfingu á þessu sviði.
Skipulag námsins, sem er 90 einingar, er sem hér segir:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið BA prófi frá lagadeild Háskóla Íslands
eða BS prófi eða BA prófi frá viðskiptafræðideild háskólans eða öðru
háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi í sambærilegum
greinum.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2009.
Sjá nánar á vidskipti.hi.is og lagadeild.hi.is
Meistaranám í skattarétti
og reikningsskilum
www.vidskipti.hi.isVIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
www.lagadeild.hi.isLAGADEILD
Haust 2009
Íslenskur
skattaréttur -
almennur hluti
Íslenskur
skattaréttur -
sérstakur hluti
Ársreikningagerð A
Endurskoðun
Vor 2010
Alþjóðlegur
skattaréttur -
almennur hluti
Alþjóðlegur
skattaréttur -
sérstakur hluti
Ársreikningagerð B
Haust 2010
Stjórnsýslu-
endurskoðun
Félagaréttur I
Ritgerð
Vor 2011
Samstæðu-
reikningsskil
Félagaréttur II
Greining
ársreikninga
Ritgerð