Morgunblaðið - 23.02.2009, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.02.2009, Blaðsíða 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2009 Veigar PállGunnarsson lék sinn fyrsta leik í byrj- unarliði Nancy í frönsku 1. deild- inni í knatt- spyrnu á laug- ardag þegar lið hans mátti sætta sig við ósigur heima gegn Lyon, 2:0. Veigar Páll lék sem framherji í leiknum og var skipt af leikvelli á 67. mínútu leiksins.    Valskonur í körfuboltanum hafafengið til liðs við sig banda- rískan leikmann, Melissu Miti- diero að nafni. Lék hún sinn fyrsta leik í gær þegar Valur sigr- aði Snæfell, 103:71 og var Miti- diero stigahæst í Valsliðinu með 24 stig. Þar af gerði hún 5 þriggja stiga körfur, en hún á að þykja af- bragðs þriggja stiga skytta.    Bandarískikörfuknatt- leiksþjálfarinn Don Nelson vann sinn 1.300. leik í NBA- körfuboltanum þegar hann stýrði liði sínu Golden State Warriors til sigurs gegn Okla- homa Thunder, 120:113, í miklum stigaleik. Nelson sem er 68 ára gamall er annar sigursælasti þjálf- arinn í NBA frá upphafi, 32 leikj- um á eftir Lenny Wilkins.    Boston Celticsvann í gær- kvöld sigur á Phoenix Suns í NBA-körfu- knattleiknum, 128:108, á úti- velli. Var Rajon Rondo stiga- hæstur í liði Boston með 32 stig og ekki langt á eftir honum kom Ray Allen með 31 stig. Paul Pierce gerði svo 26 stig. Hjá Phoenix var Jason Rich- ardson með 21 stig.    A-lið KR varði titil sinn í 1.deild kvenna á flokkakeppni BTÍ sem fram fór um helgina í borðtennis. Lið KR skipuðu þær Guðrún G. Björnsdóttir og Fríður Rún Sigurðardóttir. Þá hafnaði D- lið Víkings í 1. sæti í 2. deild karla. Fólk sport@mbl.is LIÐ Skautafélags Akureyrar og Bjarnarins mættust í karla- og kvennaflokki í Egilshöllinni um helgina. Í kvennaflokki voru tveir leikir, Björninn vann þann fyrri á föstudagskvöldið, 5:3, en á laug- ardagskvöldið sigraði SA 3:2, þar sem Sarah Smiley skoraði öll mörk norðanliðsins, en hún er spilandi þjálfari hjá SA. Mörk Bjarnarins gerðu Guðríður Hjartardóttir og Hanna Rut Heim- isdóttir. Þegar tveir leikir eru eftir hefur SA sex stiga forystu á Björn- inn og ekki öll nótt úti enn fyrir Björninn, sem þarf að vinna báða leikina til að ná Akureyrarliðinu. Karlalið SA sigraði Í karlaleiknum í fyrrakvöld sigr- uðu norðanmenn, 5:3, í opnum og skemmtilegum leik. Ingvar Þór Jónsson gerði tvö mörk fyrir SA, en þeir Josh Gribben, Stefán Hrafns- son og Orri Blöndal gerðu sitt mark- ið hver. Mörk Bjarnarins gerðu Kol- beinn Sveinbjarnarson, tvö talsins, og Brynjar Bergmann eitt. SA er því efst í deildinni með 42 stig, Skauta- félag Reykjavíkur er næst með 29 stig og Björninn neðstur með 10 stig. SA er því með heimaleikjarétt- inn þegar einvígið gegn SR um Ís- landsmeistaratitilinn hefst en þrem- ur leikjum er nú ólokið í sjálfri deildakeppninni. trausti@mbl.is Morgunblaðið/Golli Svellkaldir Frá viðureign karlaliða Bjarnarins og SA í fyrrakvöld þar sem Akureyringar höfðu betur, 5:3. Þrenna þjálfarans og SA í góðri stöðu  SA-konur þurfa einn sigur enn  Karlalið SA lagði Björninn LOGI Geirsson skoraði sjö mörk, þar af fjögur úr vítaköstum þegar Lemgo lagði Rhein-Neckar Lö- wen sannfærandi að velli í þýsku 1. deildinni í hand- bolta um helgina, 34:28. Vignir Svavarsson komst ekki á blað hjá Lemgo en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen. Þá skoraði Jaliesky Garcia tvö mörk fyrir Göppingen sem vann 25:20-sigur á Wetzlar í sömu deild. Lemgo er átta stigum á eftir topp- liði Kiel þegar 21 umferð er lokið af 34 og hefur Lemgo 33 stig í 2. sæti. Aðeins tveimur stigum á eftir Lemgo kemur svo lið Hamburgar með 31 stig en á leik til góða. Lið Guðjóns Vals, Rhein-Neckar Löwen hefur 26 stig í 6. sæti en á þó einnig leik til góða. Árangur liðsins í vetur hefur þótt undir væntingum. Menn binda þó vonir við að það breytist með tilkomu Ólafs Stef- ánssonar í sumar auk þess að þá mun hinn sigursæli fyrrverandi þjálfari Kielar, Noka Serdarusci, taka við þjálfun liðsins. thorkell@mbl.is Guðjón og Logi með sjö mörk hvor Logi Geirsson PORTÚGALSKI knattspyrnumað- urinn Jordao Diogo er vænt- anlegur til lands- ins á þriðjudag, en hann spilaði í 11 leikjum KR á síðasta sumri, þar til bólgur í hjarta- vöðva hans urðu til þess að hann missti af þremur síðustu leikjum liðsins. „Diogo er leikmaður KR og mun spila með okkur í sumar,“ stað- festi Rúnar Kristinsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KR. Diogo er 23 ára og fékk að reyna sig hjá KR síðasta vor eftir að hafa komið til landsins á eigin vegum. Hann gæti spilað æfingaleik gegn Blikum á miðvikudag, en KR þarf að bæta varnarleik sinn, ef horft er til taps- ins gegn Stjörnunni í Lengjubik- arnum um helgina. trausti@mbl.is Diogo vænt- anlegur til KR-inga á ný Jordao Diogo BÆÐI Fram og KR, sem enduðu í 3. og 4. sæti Íslandsmótsins í knattspyrnu í fyrra, máttu sætta sig við ósigra á fyrstu leikhelginni í deildabikar karla. Fram tapaði fyrir Grindavík, 0:2, í gærkvöld og KR-ingar biðu lægri hlut fyrir ný- liðum Stjörnunnar á laugardaginn, 2:3. Stjörnumenn léku KR-inga grátt á fyrstu 35 mínútunum og komust þá í 3:0 þar sem Halldór Orri Björnsson skoraði tvívegis. KR- ingar löguðu stöðuna í 3:2 skömmu fyrir leikslok en komust ekki lengra. Grindavík vann góðan sigur á Fram í Egilshöllinni í gærkvöld, 2:0, með mörkum Sveinbjörns Jón- assonar, en það voru hans fyrstu mörk fyrir Grindavík. Þessi mark- heppni Seyðfirðingur kom frá Fjarðabyggð fyrir þessa leiktíð og byrjar vel. Jónas Grani Garðarsson, markakóngur Íslandsmótsins 2007, fór líka vel af stað með nýju liði en hann skoraði eitt marka Fjölnis sem lagði Aftur- eldingu, 4:1. Gunnar Guðmunds- son skoraði tvívegis úr víta- spyrnum. Keflvíkingar lentu í basli Keflvíkingar, silfurlið Íslands- mótsins í fyrra, lentu 0:2 undir gegn ÍR-ingum, meisturum 2. deildar á síðasta ári. Þeir náðu þó að knýja fram sigur, 3:2, þar sem Hörður Sveinsson skoraði tvíveg- is og Guðjón Árni Antoníusarson gerði sigurmarkið rétt fyrir leiks- lok. Valsmenn sóttu Þórsara heim í gær og liðin mættust í Boganum, en þar máttu heimamenn teljast heppnir að sleppa með aðeins 1:0- tap, því Valsmenn réðu lögum og lofum í leiknum. Helgi Sigurðsson skoraði hins vegar eina mark liðs- ins á 37. mínútu og þar við sat. Leikmenn Njarðvíkur, eina lið 2. deildar sem leikur í A-deild keppn- innar, héldu hins vegar hreinu gegn úrvalsdeildarliði Fylkis. Njarðvíkingar þóttu skeinuhættir í leiknum, en Fylkismenn réðu þó ferðinni. Leikurinn var þó marka- laus, Njarðvíkingar fagna eflaust góðu stigi, en fáir bjuggust líklega við slíkri frammistöðu frá þeim. Leiknir R. vann Víking R., 1:0, í gærkvöld með marki Helga P. Jó- hannssonar. Þróttarar lögðu Eyja- menn, 3:1, á laugardaginn eftir að Viðar Örn Kjartansson hafði kom- ið ÍBV yfir. HK vann Selfoss, 2:1, og Hauk- ar og Víkingur Ó. gerðu jafntefli, 2:2.  Öll úrslit og markaskorara leikjanna er að finna á bls. 6. Morgunblaðið/Golli Tvö mörk Sveinbjörn Jónasson, til vinstri, gerði bæði mörk Grindvíkinga gegn Fram og á hér í höggi við Jón Guðna Fjóluson í leiknum í gærkvöld. Fram og KR lágu bæði  Sveinbjörn skoraði tvívegis  Halldór með tvö gegn KR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.