Morgunblaðið - 23.02.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 23.02.2009, Síða 8
8 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2009 Heimir ÖrnÁrnason og Ingvar Árnason tóku út leikbann í liði Vals í leiknum gegn Haukum á Ásvöllum. Þá gat Sigfús Sigurðs- son ekki leikið með Valsmönnum þar sem hann er tognaður aftan í læri. Óvíst er hvort hann verður bú- inn að ná sér fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Gróttu sem fram fer um næstu helgi. Haukarnir léku án Gísla Jóns Þórissonar sem er á sjúkralistanum.    Gísli Kristjánsson skoraði 4 mörkfyrir lið sitt, Nordsjælland sem vann sigur á Viborg, 28:21 í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Nor- dsjælland er í 7. sæti af 14 liðum í deildinni og á góða möguleika á að komast í átta liða úrslitin um danska meistaratitilinn. Liðið er fjórum stig- um á undan Fredericia sem er í ní- unda sætinu.    Rut Jónsdóttir skoraði 2 mörkfyrir lið sitt, Tvis Holstebro, sem gjörsigraði Brabrand, 35:21 í 1. deild kvenna í Danmörku. Lið Rutar er í efsta sæti deildarinnar með 38 stig.    Systir hennar, Auður Jónsdóttir,var markahæst í sínu liði, Ring- köbing, með 6 mörk þegar það bar sigurorð á Nordköbenhavn, 25:22 í dönsku 1. deildinni, þeirri næstefstu. Hefur liðið 26 stig í 6. sæti deild- arinnar.    Þórir Ólafssonvar í stóru hlutverki hjá N- Lübbecke og var markahæstur með 7 mörk þegar lið hans lagði Wil- helmshavener að velli, 26:23, í norð- urriðli þýsku 2. deildarinnar í handknattleik á laugardaginn. N- Lübbecke er efst með 40 stig af 42 mögulegum og stefnir hraðbyri á efstu deildina á ný. Hamm er í öðru sæti með 36 stig og Burgdorf er í þriðja sætinu með 33 stig.    Burgdorf vann líka á laugardag-inn, lagði Altenholz á útivelli, 29:25, og er því enn með í baráttunni um að fara upp. Liðin í öðru sæti riðl- anna komast í umspil. Hannes Jón Jónsson skoraði 4 mörk fyrir Burg- dorf og Heiðmar Felixson 3 en það var fyrrverandi KA-maðurinn And- rius Stelmokas sem var markahæst- ur í liði þeirra með 9 mörk. Heiðmar hefur sem kunnugt er þegar samið við N-Lübbecke og fer til liðsins í sumar. Fólk sport@mbl.is Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is SEGJA má að tapið gegn erkifjend- unum í FH í byrjun nóvember hafi verið ákveðinn vendipunktur hjá leikmönnum Hauka. Eftir þann leik settust þeir niður ásamt þjálfurum þar sem málin voru krufin til mergj- ar og frá ósigrinum í Kaplakrika hafa Haukarnir unnið átta leiki í röð í deildinni og greinilega náð vopnum sínum. Leikur toppliðanna á Ásvöllum reyndist ekki sá spennuleikur sem flestir reiknuðu með að yrði. Hauk- arnir voru einfaldlega sterkari á flestum sviðum og uppskáru afar sannfærandi sigur. Eftir jafnar fyrstu tíu mínútur leiksins náðu meistararnir undirtökunum sem þeir létu ekki af hendi. Öflugur varnarleikur, þar sem Eyjamenn- irnir Gunnar Berg Viktorsson, Arn- ar Pétursson og Kári Kristján Kristjánsson mynduðu hálfgerðan Heimaklett, og jöfn og góð mark- varsla Birkis Ívars Guðmundssonar lögðu öðru fremur grunninn að sigri Haukanna. Valsmenn áttu engin svör við sterkri vörn heimamanna. Leikur þeirra var ómarkviss og óag- aður en Haukarnir léku af festu og ákveðni. Haukarnir sigu hægt og bítandi fram úr og voru búnir að tryggja sér sigur löngu áður en leik- tíminn var búinn. Sigurbergur Sveinsson, Kári Kristjánsson og Birkir Ívar voru fremstir á meðal jafningja í sterku liði Hauka en Fannar Þór Frið- geirsson lék best í stemningslausu liði Vals. „Við erum á fínu róli og höfum svo sannarlega tekið okkur á frá því fyrr á tímabilinu. Þá voru miklar sveiflur í leik okkar og við áttum erfitt með að einbeita okkur í deildinni á milli Evrópuleikjanna. Við náðum að rétta okkur af fyrir jólin og notuðum janúar til að æfa mjög vel og það hefur svo sannarlega skilað sér. Efsta sætið er okkar og verður það,“ sagði Haukamaðurinn Einar Örn Jónsson við Morgunblaðið. „Haukarnir voru bara betri á öll- um sviðum. Ég var sáttur að vera ekki nema tveimur mörkum undir í hálfleik en ég vonaðist eftir því að við myndum taka okkur á í þeim seinni. Því miður gerðist það ekki. Sóknarleikurinn gekk engan veginn og þessi leikur var mjög svipaður og þegar við mættum þeim hér fyrir mánuði. Haukarnir voru bara grimmari í þessum hálfgerða úr- slitaleik og það verður erfitt fyrir önnur lið að ná þeim úr þessu,“ sagði Óskar B. Óskarsson, þjálfari Vals. Haukar stigu stórt skref í átt að sigri í deildinni ÍSLANDSMEISTARAR Hauka stigu stórt skref í átt að deildarmeist- aratitlinum eftir öruggan og sann- gjarnan sigur á Val, 25:22, í toppslag N1-deildar karla í handknattleik en systraliðin áttust við á Ásvöllum. Sig- urinn var öruggari en lokatölur gefa til kynna því Valsmenn skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins. Með sigrinum náðu Haukar eins stigs forskoti á Val í efsta sætinu og eiga leik til góða gegn botnliði Víkings. Morgunblaðið/hag Sterkur Sigurbergur Sveinsson ógnar marki Valsara einu sinni sem oftar en hann skoraði sjö mörk í leiknum.  Unnu toppslaginn gegn Valsmönnum, 25:22.  Áttundi sigur Haukanna í röð DAGUR Sigurðsson, landsliðsþjálfari Aust- urríkismanna og verðandi þjálfari þýska liðsins Füchse Berlin, lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í 13 ár þegar hann kom inn á í liði Vals þegar um 13 mínútur voru eftir af leik Hauka og Vals. ,,Ég hefði viljað vera í betra formi en ég hef nánast ekkert hreyft mig. Þar sem það vantaði menn í hópinn átti ég að sitja á bekknum en það var skandall hjá leikmönnum Vals að ég skyldi vera sendur inn á. Það voru gríð- arleg vonbrigði að sjá til liðsins og sumir leikmenn gerðu ekkert annað en að skokka með. Menn spiluðu afar illa í sókn og vörn, markvarslan lítil og liðið kar- akterlaust. Ef liðið spilar svona á móti Gróttu í bikarúrslita- leiknum vinnur Grótta,“ sagði Dagur við Morgunblaðið en sóknarleikur liðsins skánaði til muna þegar þessi fyrrverandi leikstjórnandi og fyrirliði íslenska landsliðsins kom inn á. gummih@mbl.is Fyrsti leikur Dags á Íslandsmóti í 13 ár Dagur Sigurðsson „ÞAÐ er mikill heiður fyrir mig að hafa fengið að stjórna Degi Sigurðssyni og Ólafi Stefánssyni. Þetta eru tveir af mínum bestu félögum. Það er gott að Dagur endar sinn feril í Valsbún- ingnum,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari bikarmeistara Vals, við Morgunblaðið en Óskar, sem er einnig aðstoðarþjálf- ari íslenska landsliðsins, ákvað að skella gamla reynslubolt- anum Degi Sigurðssyni inná í toppslagnum gegn Haukum á Ás- völlum á laugardaginn. Dagur kom inná þegar 13 mínútur voru eftir en Valsmenn voru þá undir, 22:16, og töpuðu leiknum með þriggja marka mun, 25:22. Spurður hvort Dagur ætti eftir að koma meira við sögu á tímabilinu sagði Óskar: „Mér fannst gott fyrir strákana að hafa hann með okkur. Hann hefur staðið sig vel á æfingunum og hann kann þessa hluti. Við tjöldum okkar besta liði hverju sinni og aldurinn er afstæður í þessum bransa ef menn eru í formi. Nú verðum við bara að taka okkur saman og koma okkur í góð- an gír fyrir stærsta leik ársins sem er bikarúrslitaleikurinn,“ sagði Óskar Bjarni en Valur og Grótta bítast um bikarinn um næstu helgi. gummih@mbl.is Mikill heiður að fá að stjórna Degi og Ólafi SIGURBERGUR Sveinsson, stórskytta Haukanna, átti frábæran leik gegn Vals- mönnum þegar toppliðin áttust við á Ásvöll- um. Sigurbergur skoraði sjö mörk með þrumufleygum og það er næsta víst að hann kemur til með að yfirgefa meistaraliðið úr Hafnarfirði í sumar og reyna fyrir sér í at- vinnumennsku enda efni í frábæran hand- boltamann. „Þetta var góður sigur hjá okkur og framhald af því sem við höfum gert eftir áramótin. Við tókum okkur saman hug- arfarslega og vélin er bara komin í gang hjá okkur. Við verðum ekki stöðvaðir úr þessu,“ sagði Sigurbergur. Spurður út í atvinnskumennskuna sagði hann sposkur á svip: „Ég hef sett stefnuna á að fara út og það eru þreifingar í gangi bæði í Þýskalandi og Danmörku. Ég er í viðræðum við félög en ég get ekki gefið upp hver þau eru á þessu stigi,“ sagði ,,gorm- urinn“ Sigurbergur. gummih@mbl.is Sigurbergur á leið í atvinnumennskuna Sigurbergur Sveinsson Haukar – Valur 25:22 Ásvellir, úrvalsdeild karla í handknattleik, N1-deildin, sunnudag 22. febrúar 2009. Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 5:5, 9:7, 13:9, 14:12, 18:13, 22:16, 25:19, 25:22. Mörk Hauka: Kári Kristján Kristjánsson 8, Sigurbergur Sveinsson 7/1, Freyr Brynj- arsson 4, Andri Stefan 2, Einar Örn Jóns- son 2, Elías Már Halldórsson 2. Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 18 (þar af 5 til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Vals: Fannar Þór Friðgeirsson 8, Sigurður Eggertsson 5, Arnór Þór Gunn- arsson 5/4, Hjalti Gylfason 2, Elvar Frið- riksson 1, Hjalti Þór Pálmason 1. Varin skot: Ólafur H. Gíslason 9 (þar af 2 til mótherja), Ingvar Guðmundsson 1. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Jóhannsson, stóðu sig prýðilega. Áhorfendur: Um 600.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.