Morgunblaðið - 02.03.2009, Síða 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2009
„ÞAÐ var algjör draumur
að fá að taka þátt í þessu
með strákunum,“ sagði
Dagur Sigurðsson, fyrrver-
andi fyrirliði íslenska lands-
liðsins í handknattleik, sem
lék með Valsliðinu síðustu
mínúturnar í leiknum við
Gróttu. Dagur skoraði tvö
mörk og sýndi að hann hef-
ur engu gleymt. „Það var
ekkert annað að gera en
skjóta á markið, annars hefði ég verið með
strákana á bakinu í allt kvöld,“ sagði Dagur.
Sextán ár eru liðin frá því að Dagur lék síðast
í úrslitaleik bikarkeppninnar hér á landi og þá
var hann einnig í sigurliði Vals. Þremur árum
síðar hélt hann til Þýskalands, þaðan til Japans
og loks var hann þjálfari og leikmaður Bregenz
í Austurríki, hvar hann varð bikarmeistari oftar
en einu sinni.
Draumur að fá
að vera með
Dagur
Sigurðsson
„VIÐ byrjuðum á að rúlla yfir þá, hleyptum
þeim síðan inn í leikinn en gerðum síðan út
um leikinn þegar á leið síðari hálfleik. Eigum
við ekki að segja að þessar sveiflur hafi verið
fyrir handboltann, hleypa aðeins spennu í
leikinn,“ sagði Ólafur Haukur Gíslason fyr-
irliði og markvörður Vals eftir að hann hafði
tekið við bikarnum.
„Þetta gekk upp í dag en við gerðum okkur
leikinn of erfiðan. Við áttum að vera búnir að
gera út um leikinn miklu fyrr en raun varð á.
Munurinn fór niður í tvö mörk,“ sagði Ólafur.
„Fyrirfram vorum við staðráðnir í að sýna
leikmönnum Gróttu strax frá byrjun að þeir
gætu ekki unnið okkur. En við hleyptum
þeim inn í leikinn um tíma. Þegar öllu er á
botninn hvolft er sjö marka munur svipaður
munur og við mátti búast. Grótta er með
svipað lið og Víkingur og Stjarnan í N1-
deildinni,“ sagði Ólafur Haukur Gíslaon, fyr-
irliði Vals.
Sveiflurnar voru
fyrir handboltann
„ÉG er ekkert viss um að þessi góða byrjun
okkar í leiknum hafi endilega verið svo góð því
eftir hana fórum við að slaka á og Gróttumenn
náðu aðeins að anda niður um hálsmálið á okk-
ur um tíma,“ sagði hinn trausti leikmaður
Vals, Heimir Örn Árnason sem skoraði fimm
mörk í úrslitaleiknum og var einnig að vanda
fastur fyrir í vörninni.
„Við vorum algjörlega á hælunum í byrjun
síðari hálfleiks. Mér fannst Gróttu-liðið standa
sig bara mjög vel. En ég er fyrst og fremst
ánægður með þennan sigur okkar. Mér fannst
hann aldrei vera í alvarlegri hættu þrátt fyrir
allt.
Það er bara frábært að vinna titil og hann
gefur okkur vonandi tóninn fyrir það sem
koma skal. Nú get ég varla beðið eftir að úr-
slitakeppnin á Íslandsmótinu hefjist,“ sagði
Heimir sem einu sinni áður hefur leikið til úr-
slita í bikarkeppninni. Hann var þó ekki í röð-
um Valsmanna fyrir ári síðan þegar þeir unnu.
Sigurinn var
aldrei í hættu
„ÞAÐ sem ég óttaðist mest
fyrirfram gerðist; við lent-
um langt undir,“ sagði
Ágúst Jóhannsson, þjálfari
Gróttu, eftir að hann hafði
tekið við silfurverðlaun-
unum.
„En þrátt fyrir slæma
byrjun þá létu menn ekki
hugfallast og náðu að vinna
sig hægt og bítandi inn í
leikinn. Það þurfti ekki svo
margt að falla með okkur í síðari hálfleik til
þess að gera leikinn jafnari,“ sagði Ágúst sem
viðurkenndi að reynsluleysi hefði orðið sínum
mönnum að falli. „Ég er með stóran hóp af
ungum mönnum sem hafa verið í neðstu sæt-
um 1. deildar. Nú erum við í toppnum á þeirri
deild og skyndilega komnir í úrslit bikarsins.
Það er því ekkert óeðlilegt að spennustigið
hafi verið nokkuð hátt hjá þeim.“
Spennustigið var
nokkuð hátt
Ágúst
Jóhannsson
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Upphafsmínútur leiksins sem Óskar
vitnar til voru fyrstu 11 mínúturnar
þar sem Valsmenn skoruðu sex
mörk án þess að leikmenn Gróttu
næðu að komast í ham. Hafi einhver
vonað að um jafnan leik gæti orðið
að ræða, ellegar að menn fengju að
upplifa viðlíka ævintýri og í úrslita-
leik karla í körfuknattleik á dög-
unum, þá runnu þær vonir út í sand-
inn strax í upphafi.
Gróttuleikmönnum til hróss skal
það sagt að þeir gáfust aldrei upp
þótt staðan væri vonlítil og ljóst að
við ofurefli væri að etja frá byrjun.
Þeir reyndu hvað þeir gátu og lán-
aðist að minnka muninn niður í tvö
mörk snemma í síðari hálfleik. Þá
komu þrír brottrekstrar á fimm mín-
útna kafla. Við það skildi leiðir á ný
og Valsmenn unnu afar öruggan og
sannfærandi sigur.
Eins og fyrirfram var búist við var
mikill getumunur á liðunum auk
þess sem Valsmenn hafa yfir fjöl-
mennari hópi góðra leikmanna að
ráða. Grótta er með sjö nokkuð
þokkkalega leikmenn en síðan vart
söguna meir. Efnilegir leikmenn eru
í hópnum, s.s. Finnur Ingi Stef-
ánsson, Þórir Jökull Finnbogason og
Þorleifur Árni Björnsson. Hinn
reyndi markvörður Gróttu, Hlynur
Morthens, lék þó stærsta hlutverkið
í liðinu. Hann varði afar vel og forð-
aði liði sínu frá stærra tapi.
Um leið og leikmönnum Gróttu er
hrósað fyrir að gefast aldrei upp í
vonlausri stöðu er rétt að vekja at-
hygli á frábærum stuðningi sem liðið
fékk frá sínum þúsund stuðnings-
mönnum sem mættu í höllina blá-
klæddir til þess að skemmta sér.
Þeir voru frábærir og studdu sitt lið
með ráðum, dáð og jákvæðni frá
fyrstu mínútu og til hinnar síðustu. Í
leikslok hylltu þeir leikmenn Gróttu
eins og þeir hefðu unnið bikarinn.
Þarna voru stuðningsmenn Gróttu
svo sannarlega frábær fyrirmynd;
menn mættu í Höllina til þess að
styðja sitt lið og tóku það súra með
því sæta.
„Við vissum að við þurftum að ná
upp hörkuvörn, markvörslu og
hraðaupphlaupum til þess að vinna
leikinn. Það tókst okkur í upphafi
leiksins. Við bárum virðingu fyrir
leikmönnum Gróttu og ég er mjög
ánægður með hvernig strákarnir
komu inn í leikinn,“ sagði Óskar
Bjarni.
„Við byrjuðum síðari hálfleikinn
illa og hleyptum Gróttumönnum að-
eins inn í leikinn. En við rákum af
okkur slyðruorðið og náðum forskoti
á ný,“ sagði Óskar, þjálfari Vals.
Morgunblaðið/Ómar
Bikarmeistarar Valur náði að verja bikarmeistaratitilinn í Eimskipsbikarkeppni karla í handknattleik. Sigur liðsins gegn Gróttu var öruggur, 31:24, og var fögnuður Valsmanna mikill í leikslok.
Valsmenn gáfu strax tóninn
Aldrei nein spenna í úrslitaleik karla Gróttumenn reyndu hvað þeir gátu en munurinn á liðunum
var of mikill Stuðningsmenn Gróttu gáfust aldrei upp og stálu senunni frá stuðningsmönnum Vals
„FYRSTU mínútur leiksins voru mesta
gleðiefni fyrir okkur Valsmenn í þess-
um leik,“ sagði Óskar Bjarni Ósk-
arsson, eftir að hann stýrði liði Vals til
sigurs í bikarkeppninni í handknattleik
karla annað árið í röð á laugardaginn.
Þá vann liðið Gróttu, 31:24, í Laug-
ardalshöll, eftir að hafa verið fimm
mörkum yfir í hálfleik, 14:9.
Valur – Grótta 31:24
Úúrslitaleikur bikarkeppni HSÍ, Eimskips-
bikar í karlaflokki, laugard. 28. feb. 2009.
Gangur leiksins: 6:0, 6:1, 9:2, 13:5, 14:9,
14:12, 15:13, 20:14, 24:19, 27:21, 31:24.
Mörk Vals: Sigurður Eggertsson 7, Heimir
Örn Árnason 5, Arnór Gunnarsson 4, Orri
Freyr Gíslason 4, Baldvin Þorsteinsson 3,
Hjalti Þór Pálmason 2, Dagur Sigurðsson
2, Elvar Friðriksson 2, Sigfús Páll Sigfús-
son 1, Gunnar Harðarson 1. Ólafur H.
Gíslason varði 12/1 skot, (þar af 5 til móth.).
Mörk Gróttu: Arnar Freyr Theodórsson 7,
Finnur Ingi Stefánsson 7/5, Atli Rúnar
Steinþórsson 4, Þórir Jökull Finnbogason
3, Þorleifur Árni Björnsson 2, Davíð Örn
Hlöðversson 1. Hlynur Morthens varði 15/1
skot (þar af 3 til mótherja).
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elí-
asson, ekkert sérstakir.
Áhorfendur: 1.700.
„ÞA
ma
pre
sem
okk
Stj
Lau
„
ur á
tím
leg
full
me
fyr
fyr
um
mu
me
bik
„
le
Efti
thor
„Va
skil
var
gæ
me
Bes
S
G
KVE
ferð
var
kna
lið F
og s
skip
Stja
En s
Stjö
key