Morgunblaðið - 02.04.2009, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.04.2009, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009 íþróttir Ósigur Skotar lögðu Íslendinga að velli á Hampden Park, 2:1, og standa mjög vel að vígi í baráttunni um sæti í umspilinu fyrir HM. Möguleikar Íslands nánast úr sögunni. 2-3 Íþróttir mbl.is Eftir Skúla Unnar Sveinsson í Glasgow skuli@mbl.is „Ég sá boltann nokkrum sinnum inni þarna í lokin. Ég var meira að segja byrjaður að fagna þegar Pálmi skaut í stöngina þarna í fyrra mark- inu, en sem betur fer var Indriði vel á verði og náði að skora. Síðan fékk ég færi þarna síðar og svo annað. Þetta gengur auðvitað ekki, maður verður að nýta færin sem maður fær,“ sagði Hermann. Áttu varla hættulegt skot Hann sagðist ánægður með leik liðsins í heildina. „Það kom okkur ekkert á óvart í þessum leik. Við reiknuðum með mikilli pressu í upp- hafi leiks og fyrstu 20 mínúturnar var pressan gríðarleg og þeir fengu fullt af hornspyrnum og aukaspyrn- um og voru miklu meira með bolt- ann. En engu að síður áttu þeir varla hættulegt skot að marki þannig að mér fannst við leika vel og verjast vel eins og við lögðum upp með. Við komumst síðan aðeins meira inn í leikinn og alltaf þegar við náð- um að senda boltann á milli okkar nokkrum sinnum gekk ágætlega að opna hjá þeim. Þetta spilaðist því nokkuð svipað því sem planið var og eins og maður þorði að vona,“ sagði Hermann. Hefðum getað stolið þessu Hann sagði ekkert til að skamm- ast sín fyrir í sambandi við þennan leik. „Það er ekkert að skammast sín fyrir hér, við fengum færi í leiknum og ég er sammála því að allir áttu fínan leik. Við vorum að spila við gott skoskt fótboltalið og ef við horf- um á liðin tvö voru þeir taldir sig- urstranglegri, en við ýttum þeim alla leið og hefðum alveg getað stolið þessu. Við urðum okkur því ekki til skammar hérna og menn eru bara hundfúlir. Ég veit eiginlega ekki hvers vegna þetta er svona, við spil- um ágætlega, sköpum okkur færi en töpum samt.“ Spurður hvort ekki stæði þá bara til að breyta þessu, lenda með þeim í riðli á nýjan leik og vinna þá. „Æii, ég veit það ekki. Ég veit ekki hvort ég nenni því,“ sagði fyrirliðinn og var allt annað en ánægður með að fá ekkert út úr leiknum. Hitti hann allt of vel „Þetta var ógeðslega svekkjandi, ég var búinn að sjá boltann inni þarna í restina eins og flestir aðrir. Ég ætlaði að setja hann ofarlega í markið, yfir varnarmennina og þetta var frábært færi. Það er ekki oft sem maður segir það, en ég hitti boltann allt of vel, eins furðulega og það nú hljómar. Ég hefði getað jafnað þarna í lokin og tryggt okkur stig, en því miður tókst það ekki. Þetta var tómt klúður hjá mér, en ekkert hægt að gera í því eftir á,“ sagði Pálmi Rafn Pálmason, sem fékk gullið færi til að tryggja jafntefli á lokamín- útunni. »2-3 Langar mest að fara í fýlu Morgunblaðið/Kristinn Meistarar Haukakonur fagna með Íslandsbikarinn í körfuknattleik eftir sigur á KR í oddaleik í gærkvöld. »4 „ÉG veit ekki hvað við höfum gert þessum knattspyrnuguðum, þetta virðist alltaf vera svona á móti Skot- unum. Mig langar mest til að fara heim í fýlu, þetta var svo svekkjandi,“ sagði Hermann Hreiðarsson fyrirliði íslenska knattspyrnuliðsins eftir 2:1 tap fyrir Skotum á Hampden Park í Glasgow í gærkvöldi. „Þetta er orðið hálfþreytandi á móti Skotum,“ sagði fyrirliðinn.  Hermann Hreiðarsson orðinn þreyttur á knattspyrnuguðunum DEILDARMEISTARAR HK í blaki kvenna fengu svo sannarlega kröftuga mót- spyrnu frá „spútnikliði“ Þróttar úr Nes- kaupstað þegar fyrsti leikurinn í úr- slitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn fór fram í Digranesi í Kópavogi í gærkvöldi. HK var í þremur hrinum gegn einni og ljóst að allt stefnir í hörkuleik á milli liðanna eystra á föstudag þegar þau mætast öðru sinni. HK vann fyrstu hrinuna í gær, 26:24, þar sem vart mátti á milli sjá. Heimaliðið hafði tögl og hagldir í annarri hrinu og vann með tíu stiga mun, 25:15. Ungt lið Þróttar kom af krafti til baka í þriðju hrinu og vann með sex stiga mun, 25:19. Í fjórðu hrinu voru leikmenn HK sterkari. Þeir unnu með átta stiga mun, 25:17. Í úrslitum þarf að vinna tvo leiki og því getur HK tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á Norðfirði á föstudagskvöldið. Í kvöld hefst rimma deildarmeistara Þróttar úr Reykjavík og Íslandsmeistara Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki. Leikurinn fer fram í Íþrótta- húsi HÍ við Háteigsveg og verður flautað til leiks klukkan 20. Í karlaflokki þarf einnig að vinna tvo leiki til þess að verða meistari. HK lenti í kröppum dansi gegn Þrótti í Digranesi Morgunblaðið/Golli Barátta Frá viðureign HK og Þrótt- ar N. í Digranesinu í gærkvöld. ÞÝSKA meistaraliðið Kiel vann í gær sinn fertugasta sigur á leiktíðinni undir stjórn Alfreðs Gíslasonar þeg- ar það lagði Göppingen, 38:30, á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Kiel hefur leikið 44 leiki á keppnistímabilinu undir stjórn Alfreðs í fimm mótum og var þetta fertugasti sigurinn, þar af sá 25. í þýsku 1. deildinni. Tveir leikir hafa tapast, báðir fyrir Ciudad Real og tvær viðureignir hafa endað með jafntefli. Kiel hefur yfirburðastöðu í efsta sæti þýsku 1. deild- arinnar, hefur nú 51 stig að loknum 26 leikjum. Liðið hefur 14 stiga forskot á HSV Hamburg. Aðeins þrjú lið geta komið í veg fyrir að Kiel verði þýskur meistari enn eitt árið. Það eru Hamburg, Lemgo og Rhein-Neckar Löwen. Þau verða helst að vinna alla sína leiki sem eftir eru og Kiel má þá aðeins vinna einn leik af átta til að svo megi verða. iben@mbl.is Fertugasti sigur Alfreðs á leiktíðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.