Morgunblaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009
Róbert Gunnarsson og félagar íGummersbach unnu stórsigur á
Wetzlar, 35:24, á útivelli í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gærkvöldi.
Róbert skoraði sex mörk fyrir Gum-
mersbach sem er í 9. sæti með 30 stig
að loknum 25 leikjum.
Djurgården,liðið sem
Guðbjörg Gunn-
arsdóttir og Guð-
rún Sóley Gunn-
arsdóttir
landsliðskonur í
knattspyrnu leika
með, vann nýliða
Stattena, 7:0, á
útivelli í fyrstu umferð sænsku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu í gær.
Guðbjörg og Guðrún Sóley voru í
byrjunarliði Djurgården og léku leik-
inn til enda.
Kristianstad, liðið sem ElísabetGunnarsdóttir fyrrverandi
þjálfari Vals, stýrir og þrjár íslensk-
ar knattspyrnukonur leika með, fór
illa af stað í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær. Liðið tapaði fyrir
nýliðum Piteå, 3:0, á heimavelli nýlið-
anna.
Erla Steina Arnardóttir, Guðný
Björk Óðinsdóttir og Hólmfríður
Magnúsdóttir voru allar í byrj-
unarliði Kristianstad í leiknum og
tóku þátt í honum til enda.
Kristinn Björgúlfsson skoraði tvömarka Runar þegar liðið vann
Haslum HK, 39:29, í lokaumferð
norsku úrvalsdeildarinnar í hand-
knattleik í gærkvöldi. Runar hafnaði
í fjórða sæti með 30 stig, var átta
stigum á eftir Fyllingen sem varð
norskur meistari. Runar leikur við
Bodö í 8 liða úrslitum deildarkeppn-
innar og fer fyrsti leikurinn fram í
Bodö.
Sigurður Ari Stefánsson skoraðifimm mörk og þótti vera bestur í
liði Elverum þegar það lagði Dramm-
en, 32:25, í lokaumferð norsku úr-
valsdeildarinnar. Elverum, sem hafn-
aði í 5. sæti, leikur við Haslum í 8 liða
úrslitakeppni sem hefst 19. apríl. El-
verum á heimaleik í fyrstu umferð.
Jaliesky Garcia Padron skoraðiekki fyrir Göppingen þegar liðið
tapaði á heimavelli fyrir Kiel, 38:30, á
heimavelli í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik í gær.
John Terrytryggði Eng-
lendingum sigur,
2:1, á Úkraínu í
undankeppni
heimsmeist-
aramótsins í
knattspyrnu í
gærkvöldi þegar
þjóðirnar mættust
á Wembley. Peter Crouch skoraði
fyrra mark Englendinga.
Ólafur Stefánsson skoraði sexmörk, þar af tvö úr vítakasti
þegar Ciudad Real vann Pilotes Po-
sada, 37:29, á heimavelli í spænsku 1.
deildinni í handknattleik í gærkvöldi.
Ciudad Real er því áfram í efsta sæti
deildarinnar með 38 stig eftir 22
leiki.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Skúla Unnar Sveinsson í Glasgow
skuli@mbl.is
„Við vissum svo sem að Skotar yrðu meira með bolt-
ann, sérstaklega í upphafi leiks. Við lögðum upp með
að verjast vel fyrstu 20 til 25 mínúturnar og koma
okkur síðan inn í leikinn og mér fannst það ganga
ágætlega eftir. Við vörðumst vel eins og við höfum
gert í flestum leikjum.
Fyrri hálfleikurinn var að mestu barátta um stöð-
ur á vellinum. Við vissum að Skotar kæmu með
marga menn fram og því var ætlunin að nýta það
með hraða fram á við. Þetta batt bakverðina okkar
dálítið niður og þeir máttu helst ekki fara fram og
taka þátt í sókninni, því þá voru þeir skildir eftir. Við
ætluðum að gera þetta öðruvísi, fara í gegnum miðj-
una og vængmennina. Þetta gekk ágætlega nokkrum
sinnum, oftar í seinni hálfleik en í þeim fyrri. Við þró-
um þetta því bara áfram,“ sagði Ólafur.
Færa Eið Smára aftar
Spurður hvort Eiður Smári Guðjohnsen hefði mátt
færa sig aftar á völlinn fyrr í leiknum sagði Ólafur
það vel geta verið rétt. „Leikurinn breyttist við þetta
en við verðum að hafa í huga að Skotar voru fallnir
aðeins til baka.
Hins vegar höfum við hugsað það mikið í nokkurn
tíma hvort við getum nýtt krafta Eiðs Smára meira í
spilinu með því að færa hann aðeins aftar á völlinn –
án þess þó að gera hann að einhverjum dýrvitlausum
varnarmanni. Það er hlutur sem við höfum hugsað og
kannski á það eftir að gerast,“ sagði Ólafur.
Hann sagðist hafa séð boltann í netinu undir lokin
þegar íslenska liðið fékk þrjú færi í sömu sókninni.
„Ég sá boltann inni í öðru skotinu og alveg viss um að
hann væri inni þegar Pálmi Rafn tók sitt skot, en það
var víst ekki og það var mjög svekkjandi og gríð-
arlega fúlt að ná ekki stigi hérna. Ég held að Skotar
hafi andað léttar en við þegar flautað var til leiksloka.
Það sést líka á því hvernig þeir reyndu að tefja allan
síðari hálfleikinn við hverju þeir bjuggust af okkur
eftir hlé. Þeir voru mjög fegnir þegar flautað var til
leiksloka,“ sagði Ólafur.
Svekkjandi að fá ekkert út úr leiknum
„Við vorum búnir að búa okkur lengi undir þennan
leik og því er það gríðarlega svekkjandi að tapa,“
sagði Gunnleifur Gunnleifsson markvörður eftir tap-
ið í gær.
„Þó að ég hafi verið hinum megin á vellinum þá sá
ég boltann í netinu þarna í síðustu sókninni. Sam-
staðan í liðinu er mjög mikil og við stefndum allir að
þessu markmiði, að ná öðru sætinu, en það tókst
ekki.
Mér fannst við eiga skilið að setja annað mark á þá
í kvöld og ná í eitt stig, það var alls ekki sanngjarnt
að fá ekkert út úr þessu. Mér fannst varnarleikurinn
hjá okkur fínn og leikmenn þéttir þannig að það var
mjög svekkjandi að fá mark á okkur úr föstu leik-
atriði, sem átti auðvitað aldrei að vera horn, það sáu
það allir á vellinum,“ sagði Gunnleifur.
Heppnin ekki með okkur
„Við erum flestir sjálfsagt svekktir yfir að tapa
þessu. Ef við hefðum haft aðeins meiri heppni með
okkur hefðum við sett annað mark, það er ekki
spurning. En heppnin var ekki með okkur og við
fengum á okkur tvö mörk og það er of mikið og sér-
lega leiðinlegt að fá á okkur mark eftir hornspyrnu
því við erum að æfa að koma í veg fyrir slíkt,“ sagði
Kristján Örn Sigurðsson varnarmaður eftir leikinn.
Ánægður þrátt
fyrir tapið
Reuters
Skallað Harður slagur í vítateig Skota.
Ólafur á margan hátt sáttur við leik liðsins, en hefði
þó viljað sigur Sá boltann í markinu undir lokin
„ÉG er ánægður með leik strákanna, ég verð að segja
það þó svo við höfum tapað leiknum. Úrslitin voru að
sjálfsögðu ekki góð fyrir okkur og það gefur lítið að
vera sáttur við liðið sitt og svo tapar það. Það hljóm-
ar einkennilega og á sjálfsagt ekki að vera þannig,“
sagði Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu, eftir tapið á Hampden Park í gær.
Í HNOTSKURN
»Ísland á eftir að leika þrjá leiki í riðl-inum. Gegn Hollandi á heimavelli og
Makedóníu á útivelli í júní, og gegn Noregi á
Laugardalsvellinum í september.
»Til að eiga von um að ná öðru sætinu íriðlinum þarf íslenska liðið helst að vinna
alla þrjá leikina.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson í Glasgow
skuli@mbl.is
Spurður hvort sá leikkafli hefði mátt
koma fyrr sagði hann það eflaust
rétt. „En leikurinn spilast bara þann-
ig og það er ekkert hægt að segja á
einhverjum tímapunkti: Jæja, nú för-
um við að spila.
Þetta þróaðist
bara þannig og ég
ákvað að fara að-
eins aftar til að fá
boltann meira í
lappirnar og mér
fannst við skapa
meira eftir að ég
fór að fá boltann á
okkar vallarhelm-
ingi. Það kom
meiri ró á okkur þegar við vorum
með boltann og miðað við færin sem
við fengum þá hefði þetta getað farið
mun betur en það gerði,“ sagði Eiður
Smári.
Hann sagði fyrri hálfleikinn ekki
neitt æðislegan, hvorki hjá Íslandi né
Skotum. „Þeir gerðu markið svo sem
ágætlega en við sýndum styrk með
því að koma grimmir til síðari hálf-
leiks og ná að jafna og við komumst
virkilega vel inn í leikinn.
Hvorki bognuðum
né brotnuðum
Við áttum í rauninni alveg mögu-
leika á að vinna þennan leik og því
erum við svekktir eftir leikinn. Ég
held að fólk hafi séð að Skotarnir
héngu á þunnum þræði í lokin, þeir
fengu eina skyndisókn en annars lág-
um við á þeim meira og minna síð-
asta stundarfjórðunginn,“ sagði Eið-
ur Smári.
Hann sagði Skotana með fínt lið.
„Við eigum stundum erfitt með að
taka á okkur þessa pressu en ég held
samt að við höfum hvorki bognað né
brotnað undan henni í kvöld. Við spil-
uðum fínan leik því það má ekki
gleyma því að við vorum að spila á
móti Skotum á erfiðum útivelli og við
stóðum svo sannarlega í þeim og ég
held að allir geti verið sammála um
að við stóðum alveg í þeim – og rúm-
lega það.
Mér finnst við vera á réttri leið.
Ungir leikmenn sem voru að byrja
hér inni á í dag léku frábærlega og
við sköpuðum okkur fín færi þannig
að ég sé ekki annað en að þetta sé á
fínni leið,“ sagði Eiður Smári.
Við áttum meira skilið
Eiður Smári Guðjohnsen telur að þróunin hjá landsliðinu sé á réttri leið
„ÞAÐ var svekkjandi að fá á sig mark
úr engu, einhverju sem byrjaði sem út-
spark og þeir fengu síðan horspyrnu
sem átti ekki að vera, en svona er
þetta. Miðað við spilamennskuna síð-
ustu 20 til 25 mínúturnar fannst mér
við eiga meira skilið en ekki neitt,“
sagði Eiður Smári Guðjohnsen eftir
tapið í Glasgow í gærkvöldi.
Eiður Smári
Guðjohnsen
EINS og við var að búast reyndust
leikmenn Makedóníu ekki vera
Hollendingum erfið hindrun þegar
þjóðirnar áttust við í Skopje í gær-
kvöldi. Þjóðirnar eru í sama riðli
og Íslendingar. Hollendingar fóru
með öruggan sigur af hólmi, 4:0.
Dirk Kuyt opnaði markareikning
Hollendinga með marki á 16. mín-
útu. Hann gerði annað mark á 41.
mínútu en áður en til þess kom
hafði Klaas Jan Huntelaar skorað. Hafi sigur Hollend-
inga ekki verið innsiglaður þegar í hálfleik sá Rafael
van der Vaart um að gera endanlega út af við vonir
heimamanna í Skopje á 88. mínútu með laglegu
marki. iben@mbl.is
Öruggt í Skopje
Dirk Kuyt
í kvöld
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Framvöllur: Fram – ÍR............................... 18
Egilshöll: Leiknir R. – Stjarnan................. 21
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Egilshöll: Valur – KR .................................. 19
Ásvellir: Haukar – Þróttur R...................... 19
BLAK
Fyrsti úrslitaleikur karla:
Kennaraháskóli: Þróttur R. – Stjarnan..... 20
„ÉG er afskaplega ánægður.
Við börðumst fyrir sigrinum
allan tímann og tel að í
heildina hafi þetta verið
verðskulduð stig. Nokkrir
okkar leikmanna stóðu sig
frábærlega og þessi sigur
heldur öllum möguleikum
galopnum fyrir okkur,“
sagði George Burley lands-
liðsþjálfari Skota í knatt-
spyrnu við fréttamenn eftir
sigurinn á Íslendingum í gærkvöld, 2:1, á
Hampden Park.
Burley bandaði frá sér spurningum um fyr-
irliðann Barry Ferguson sem hann setti út úr
liðinu vegna agabrots. „Ég valdi liðið og þurfti
að huga að ýmsu. En það sem skiptir öllu máli
eru stigin þrjú. Búið mál. Við þurftum að glíma
við ýmislegt og þegar maður tekur stórar
ákvarðanir er hausinn að veði ef þær ganga
ekki upp. En í kvöld heppnaðist allt, leik-
aðferðin, leikmennirnir, allt saman. Ég varð að
vera djarfur, varkárni var ekki valkostur, og
þetta small allt saman,“ sagði Burley.
Hann var spurður hvort hann ætti eftir að
velja Barry Ferguson aftur í sitt lið. „Já, ég
hef ekkert á móti honum,“ var svarið.
Ross McCormack sagði að það hefði verið
draumi líkast að skora gegn Íslandi. „Þetta var
stórkostlegt, í fyrsta leik í byrjunarliði á
Hampden,“ sagði kantmaðurinn efnilegi.
Heldur öllu galopnu fyrir okkur
George
Burley