Morgunblaðið - 02.04.2009, Side 4

Morgunblaðið - 02.04.2009, Side 4
Haukar – KR 69:64 Ásvellir, úrslit Íslandsmóts kvenna, odda- leikur, miðvikudaginn 1. apríl 2009. Gangur leiksins: 3:0, 5:2, 5:6, 14:12, 19:14, 22:14, 22:20, 26:23, 30:30, 35:35, 40:37, 44:39, 48:41, 48:44, 52:53, 59:53, 63:57, 66:59, 66:64, 69:64. Stig Hauka: Slavica Dimovska 27, Monika Knight 15, Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Ragna Brynjarsdóttir 6, Telma Fjalars- dóttir 4, Guðbjörg Sverrisdóttir 4, Sara Pálmadóttir 2. Fráköst: 24 í vörn – 12 í sókn. Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 18, Hildur Sigurðardóttir 16, Sigrún Ámunda- dóttir 13, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7, Guðrún Ámundadóttir 4, Guðrún Sigurð- ardóttir 2, Helga Einarsdóttir 2, Heiðrún Kristmundsdóttir 2. Fráköst: 25 í vörn – 16 í sókn. Villur: Haukar 21 – KR 21. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Sig- mundur Már Herbertsson. Dæmdu erfiðan leik vel. Áhorfendur: Tæplega 1.000 og mikil stemning.  Haukar sigruðu 3:2 samtals. 4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2009 Eftir Kristján Jónsson sport@mbl.is Ekki minnist undirritaður þess að hafa séð jafnskemmtilega úrslita- rimmu um Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki. Baráttan og dramatík- in allsráðandi, margir áhorfendur og fjöldi frábærra leikmanna. Íslenskar körfuboltakonur sækja greinilega hratt fram og má augljóslega greina framfarir hjá bestu liðunum á hverju einasta ári. Þetta getur varla annað en skilað sér í sterku A-landsliði inn- an fárra ára. Haukar urðu meistarar árið 2007 en hafa síðan misst mjög sterka leik- menn. Þar ber helst að nefna Helenu Sverrisdóttur en auk hennar má nefna Pálínu Gunnlaugsdóttur, Unni Töru Jónsdóttur, Guðrúnu og Sig- rúnu Ámundadætur sem hafa skilað sínu hjá KR í vetur og rúmlega það. Með þessum rökum má halda því fram að Yngvi Gunnlaugsson, þjálf- ari Hauka, hafi unnið kraftaverk með því að endurheimta titilinn fyrir Hauka aðeins tveimur árum síðar: ,,Í þessu liði eru bara fjórar úr meistaraliðinu 2007. Þetta er auðvit- að ótrúlegt. Sérstaklega með hlið- sjón af því að við erum með svo ungt lið. En við fáum frábæran persónu- leika í Slavicu Dimovsku og erum með Kristrúnu Sigurjónsdóttur sem er frábær leiðtogi. Dimovska hefur verið meidd síðan við spiluðum við KR í síðustu umferð deildarkeppn- innar og Kristrún hefur verið meidd alla úrslitakeppnina. Þetta eru bara töffarar,“ sagði herforingi Hauka, Yngvi Gunnlaugsson, þegar nið- urstaðan lá fyrir. Í þann mund fékk hann kalt steypibað frá leikmönnum sínum að bandarískum sið. Munaði engu að undirritaður yrði þar fórn- arlamb aðstæðna – kom sér þá vel að vera snöggur í hreyfingum! „Vann einn leik í fyrra“ Það er ekki að undra að Yngvi minnist á Dimovsku því hún var sá leikmaður sem gerði gæfumuninn í síðari hálfleik. Skoraði mikilvæga þriggja stiga körfu þegar tæp mín- úta var eftir og kom Haukum í 66:59. Auk þess hitti hún báðum víta- skotum sínum þegar 18 sekúndur lifðu af leiknum og kom Haukum í 68:64. Þetta voru eiginlega sig- urkörfur leiksins og alls skoraði Di- movska 27 stig í leiknum en hún er landsliðsmaður Makedóníu: „Þetta var einfaldlega frábært fyrir hana. Hún vann einn leik með Fjölni í fyrra en stóð sig frábærlega. Við ákváðum að gefa henni tækifæri og hún hefur heldur betur sýnt úr hverju hún er gerð,“ sagði Yngvi um leikstjórnanda sinn. Auk hennar skilaði Monika Knight 15 stigum fyrir Hauka og Ragna Margrét Brynjarsdóttir átti mjög góðan leik. Fékk Ragna þar uppreisn æru eftir að hafa verið vísað út úr húsi fyrir óíþróttamannslega framkomu í fyrstu orrustu liðanna. Frábært tímabil hjá KR KR-konur gátu ekki á heilum sér tekið þegar úrslitin voru ráðin. Þær geta hins vegar huggað sig við að þær hafa átt frábært tímabil. Urðu bikarmeistarar og gerðu heiðarlega atlögu að stóra titlinum. Mikið afrek að ná slíkum árangri án erlends leik- manns. Þær geta því borið höfuðið hátt ásamt þjálfara sínum Jóhannesi Árnasyni. KR er með lið í höndunum sem að öllu óbreyttu mun berjast um titlana á næstu árum. Margrét Kara Sturludóttir og Sigrún Ámundadótt- ir voru drjúgar að þessu sinni en Hildur Sigurðardóttir og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir hafa farið á kostum í úrslitakeppninni. En breiddin og liðsheildin eru kannski sterkasta vopn bikarmeistaranna. Morgunblaðið/Kristinn Sigurflækja Þær Helena Brynja Hólm og Guðbjörg Sverrisdóttur úr Haukum flæktu verðlaunapeningunum sínum saman en létu það að sjálfsögðu ekki spilla sigurgleðinni. ,,Þetta eru bara töffarar“ FIMM leikja stríði milli deildarmeist- ara Hauka og bikarmeistara KR, um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknatt- leik kvenna, lauk á Ásvöllum í Hafn- arfirði í gærkvöldi. Haukakonur yf- irgáfu vígvöllinn sigurreifar eftir sigur í fimmtu orrustunni, 69:64, en KR-konur stóðu eftir óhuggandi að lokinni geysilegri baráttu.  Yngvi Gunnlaugsson bjó til nýtt lið hjá Haukum sem endurheimtu Íslandsmeistaratitilinn „ÉG er rosalega ánægð og hamingjusöm. Þetta er fyrsti alvörutitillinn minn í meist- araflokki og ég er himinlifandi með þetta allt saman,“ sagði Slavica Dimovska, leikmaður Hauka, eftir sigurinn í gær. Slavica var kosin verðmætasti leikmaður seríunnar, en hún gerði 27 stig í leiknum í gær, var stigahæst í sínu liði og átti að öðrum ólöstuðum stærstan þátt í sigrinum. „Ég tileinka verðlaunin liðinu mínu, því það var liðsheildin sem skóp þenn- an sigur. Mín frammistaða endurspeglaði einfaldlega baráttu, samheldni og sigurvilja liðsins í kvöld. Þetta var ansi nálægt í lokin og á tímabili hefðum við getað hent sigrinum frá okkur, en við höfðum einfaldlega meiri sigurvilja,“ sagði Slavica. Samningur hennar var aðeins til eins árs og því óvíst hvort hún spili með Haukum á næstu leiktíð. „Það kemur allt í ljós. Ég fer heim til Makedóníu í sumar, en ég væri alveg til í að koma aftur í Haukana, enda er þetta besta liðið á Íslandi!“ trausti@mbl.is „Liðsheildin skóp þennan sigur“ Slavica Dimovska „ÞETTA var spennandi og skemmtilegur leikur. Það er þó ekki heppni sem ræður úrslitum í svona leik, heldur framkvæmd á smáatriðum og við einfaldlega náðum ekki að stoppa Slavicu í dag. Hún var alveg frábær og hitti nánast alltaf þegar hún skaut á körfuna. Það gerði Haukana að betra liðinu í dag,“ sagði Jóhannes Árnason, þjálfari KR, eftir tapið í gær. Hann sagði að leikskipulagið hefði því miður ekki gengið upp að þessu sinni. „Við lögðum auðvitað upp með að stöðva Slavicu. Við erum með frábæra varnarmenn og Guðrún Gróa hefur staðið sig vel í að dekka Slavicu í þessari úrslitarimmu. Því mið- ur náði hún ekki að stöðva hana í dag, enda eflaust orðin þreytt eftir þessa erfiðu seríu. En Slavica á heiður skilinn fyrir sína frammistöðu. Við vorum undir lungann úr leiknum sem er allt- af erfitt, við náðum aldrei almennilegu áhlaupi á þær og því fór sem fór,“ sagði Jóhannes, sem segir skilið við þjálfun í bili. „Ég er að opna lögmannsstofu og hef því engan tíma í þetta. Þetta hefur gefið mér heilmikið og verið æðislegur tími, en nú tekur nýr kafli við í mínu lífi og hjá KR-liðinu, sem vonandi byggir á okkar góða árangri.“ trausti@mbl.is „Við náðum ekki að stoppa Slavicu“ „ÞETTA var alvöru. Frábær leikur, líkt og rimman öll, og ég vil þakka KR fyrir frábæra úrslitaseríu. Þær hefðu alveg eins getað tekið þetta, en sem betur fer endaði titillinn okkar megin í kvöld,“ sagði Ragna Margrét Brynj- arsdóttir framherji Hauka eftir sigurinn í gær. Hún þakkar liðsheildinni, og Slavicu sig- urinn. „Auðvitað er það ekkert leyndarmál að við erum með frábæran leikstjórnanda, hana Slavicu, sem virkilega lét taka til sín í kvöld. Hún tók leikinn einfaldlega yfir, og gerði út um þetta. Kannski ekki upp á eigin spýtur, enda var liðsheildin frábær hjá okkur; við erum með frábæra leikmenn sem allir geta stigið upp þegar mest á reynir, og þeir gerðu það svo sannarlega,“ sagði Ragna Margrét, sem sjálf barð- ist eins og ljón í teignum og reif niður níu fráköst, auk þess að skora sex stig. „Ég er þokkalega sátt við minn leik. Ég hef nú al- veg gert betur, get svosem viðurkennt það, en ég skilaði mínu og það er það sem skiptir máli.“ trausti@mbl.is „Vil þakka KR fyrir frábæra úrslitaseríu“ Ragna Margrét Brynjarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.