Morgunblaðið - 27.04.2009, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2009
mikið úrval af sófum og sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
tilboðsvika
10-50% afsláttur af völdum vörum
Patti Húsgögn
Kosningar 2009
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ERFIÐASTA verkefnið í stjórn-
armyndunarviðræðum Samfylking-
arinnar og Vinstri grænna verður
að semja um Evrópumálin. Jó-
hanna Sigurðardóttir, forsætisráð-
herra og formaður Samfylking-
arinnar, segir að flokkarnir muni á
endanum ná samningum um Evr-
ópumál. Brýnasta verkefnið fram-
undan sé að koma á þjóðarsátt við
aðila vinnumarkaðarins og sveit-
arfélög um endurreisn efnahagslífs-
ins. Jóhanna átti fund með Stein-
grími J. Sigfússyni, formanni VG,
um kaffileytið í gær. Á fundinum
voru einnig varaformenn flokk-
anna.
Mörg brýn viðfangsefni
Var eitthvað fleira rætt en af-
staða flokkanna í Evrópumálinu?
Var eitthvað rætt um hugsanlega
lausn? Já, en auðvitað get ég ekki
rætt um það sem fór fram á óform-
legum fundi. Ýmislegt var rætt en
það varð engin niðurstaða. Það
liggur fyrir. Hvað viljið þið að VG
fallist á að gera í þessu máli? Þegar
maður er í viðræðum og vill ná nið-
urstöðu sem er ásættanleg fyrir
báða aðila þá ræðir maður ekki um
þær viðræður fyrst í fjölmiðlum.
Steingrímur J. Sigfússon sagði í
umræðum foringja stjórn-
málaflokkanna í RÚV í gærkvöldi
að umræða um ESB væri leidd af
elítum. Drógu orð hans um ESB í
þættinum ekkert úr bjartsýni þinni
á að ykkur tækist að semja? Nei.
Það vita allir að það er fólk úr öll-
um stéttum og flokkum sem hefur
áhuga á að Ísland gerist aðili að
Evrópusambandinu. Og í mínum
huga er aðild eitt brýnasta verkefni
okkar til að tryggja hér stöðugleika
til frambúðar. Auðvitað taka aðild-
arviðræðurnar tíma og sömuleiðis
tekur tíma að taka upp evru. En
það er mjög brýnt að við gefum
þann vegvísi, bæði hér innanlands
og ekki síst út í alþjóðasamfélagið,
hvaða framtíðarsýn og áætlun við
höfum til að tryggja hér stöð-
ugleika til frambúðar. Ekki bara
fyrir atvinnulífið, heldur fyrir
heimilin í landinu. Og það er bjarg-
föst sannfæring og trú okkar sam-
fylkingarmanna að þetta sé leiðin.
En eins og formaður Vinstri hreyf-
ingarinnar – græns framboðs sagði
þá þarf auðvitað að takast á við af-
ar brýn viðfangsefni á næstu dög-
um, ekki síst til að reisa við efna-
hagslífið. Og það er það sem við
erum að takast á við núna. Eru ein-
hver önnur mál sem þið beinlínis
deilið um? Ég sé engin stór ljón á
veginum. Brýnasta verkefnið fram-
undan er að koma á þjóðarsátt um
hvernig við endurreisum efnahags-
lífið og tryggjum hag heimila og
fyrirtækja. Við þurfum þjóðarsátt
aðila vinnumarkaðarins og sveitar-
félaganna í landinu um hvernig við
tökumst á við vandann. Við verðum
að leysa þetta allt saman.
Ef það tekst ekki að semja um
Evrópumál við VG, hvað þá? Er
samstarfið úr sögunni, ríkisstjórnin
sprungin? Ég svara ekki „ef-
spurningum“ af því að ég er stað-
ráðin í því að leysa þetta mál með
Vinstri grænum þannig að hér
verði áfram stjórn jafnaðarmanna
og félagshyggjufólks. Það er það
sem þjóðin þarf á að halda til að
komast út úr þessum hremmingum.
Tónninn kemur ekki á óvart
Kemur tónninn í VG í þessu máli
eitthvað á óvart? Nei, það var vitað
fyrir kosningarnar að það væru
mismunandi áherslur í þessu máli.
Nú er viðfangsefnið að finna sam-
eiginlega lausn.
Ýmsir hafa nefnt að hugsanlega
sé meirihluti á Alþingi fyrir ESB-
aðild, þ.e. með samstarfi Samfylk-
ingar, Framsóknarflokksins og
Borgarahreyfingarinnar. Kemur
slíkt til greina? Það kemur ekkert
annað til greina en að leysa það
viðfangsefni sem við erum að vinna
að núna, það er að segja að rík-
isstjórnin haldi áfram. Ég er af ein-
lægni í þessum viðræðum og ég tel
að Vinstri grænir séu það líka. Við
erum staðráðin í að leysa þetta
saman. Á meðan tölum við ekki við
aðra flokka. Úrslitin sýna að fólk
kallar eftir áframhaldandi sam-
starfi þessara flokka og við verðum
að svara því kalli.
ESB-málið er eina stóra ljónið á veginum
Morgunblaðið/Ómar
Fagnað Jóhönnu Sigurðardóttur var ákaft fagnað þegar hún kom á kosningavöku Samfylkingarinnar á laug-
ardagskvöld. Margrét S. Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar flokksins, t.h.
Jóhanna Sigurðardóttir segir að
Samfylking og VG muni ná saman
Koma verður á þjóðarsátt aðila
vinnumarkaðarins og sveitarfélaga
STEFNUMÁL
» Samfylkingin vill óska eft-ir aðildarviðræðum að Evr-
ópusambandinu án tafar.
» Allar aflaheimildir í núver-andi fiskveiðistjórn-
unarkerfi verða innkallaðar
eins fljótt og auðið er og að
hámarki á 20 árum.
» Stuðla að auknum hlutkvenna í stjórnum og ráð-
um. Fyrirtækjum á markaði
verði gefið ráðrúm til þess að
rétta hlut kvenna en þeim
kosti haldið opnum að setja
um það lög fyrir lok næsta
kjörtímabils.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞETTA ERU auðvitað söguleg
kosningaúrslit sem marka kaflaskil í
íslenskum stjórnmálum. Þar ber
fyrst að nefna þetta algera hrun
Sjálfstæðisflokksins og nýfrjáls-
hyggjunnar. Í öðru lagi þá stað-
reynd að til samans eru Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn í umtalsverðum
minnihluta, flokkar sem lengst af
hafa annað hvort saman eða með
öðrum flokkum getað ráðið ferðinni
í stjórnmálum,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, um úrslit kosninganna.
„Á hina hliðina má nefna þá stað-
reynd að þetta er fyrsta vinstri
stjórnin sem fær hreinan meiri-
hluta. Það er alveg nýtt í sögunni.
Í þriðja lagi vil ég nefna að þetta
er sérstaklega ánægjuleg stjórn
vegna þess framgangs sem jafnrétt-
isbaráttan fær. Þarna rjúfa konur
glerþakið og vel það og er kynja-
hlutfallið því komið nokkurn veginn
í það horf sem best gerist á Norður-
löndum. Hvað okkar útkomu varðar
er þetta annar stórsigurinn í röð á
innan við á tveimur árum og í annað
skiptið í röð sem við erum stærstu
sigurvegararnir í kosningum og er-
um að auka okkar atkvæðafjölda um
54 prósent.“
Vinstri grænum að þakka
Að mati Steingríms er það öðrum
þræði VG að þakka að stjórnin skuli bæta við sig fimm þingmönnum.
„Það er fyrst og fremst þessi stóri
sigur sem býr til hið nýja landslag.“
– Þrátt fyrir það fenguð þið tals-
vert minni stuðning en skoðana-
kannanir höfðu bent til á síðustu
vikum. Hvaða áhrif höfðu ummæli
Kolbrúnar Halldórsdóttur um
Drekasvæðið annars vegar og af-
staða Vinstri grænna til Evrópumál-
anna hins vegar?
„Ég vil nú fyrir það fyrsta segja
að við erum ekkert í því að sigra í
skoðanakönnunum heldur að sigra í
kosningum og erum orðin seig í því
eins og sést á þessu. Við erum búin
að nær því þrefalda okkar flokk frá
2003 og það þýðir ekkert að reyna
að snúa stórsigri niður í ósigur með
því að tala um einhverja toppa í
skoðanakönnunum. Hvað þessi mál
varðar er alltaf erfitt að meta hvað
einstök mál vigta. Það er þá yfirleitt
í báðar áttir en auðvitað verður fólk
alltaf órólegt þegar ummæli eru
blásin út eins og um Drekasvæðið.
Ætli ég verði ekki að segja að þetta
hafi örugglega ekki hjálpað neitt.“
Útblásin Evrópuumræða
Steingrímur víkur því næst að
hinni „útblásnu Evrópuumræðu“
sem hafi „heltekið fjölmiðlana“ á
síðustu dögum kosningabarátt-
unnar.
„Varðandi ESB-umræðuna er
miklu erfiðara að meta það enda
held ég að það virki í báðar áttir.
Mjög mikið af okkar stuðningsfólki
vildi fullvissu um að við stæðum á
okkar stefnu í Evrópumálum um
leið og við höfum alltaf sagt að við
erum tilbúin til að ræða farveginn
og að það sé þjóðin sem ráði.
Hvort fleiri hefðu kosið okkur ef
við hefðum haft þetta opnara er
önnur saga en við erum ekki flokkur
sem villir á sér heimildir.“
Spurður hvenær sé að vænta að-
gerða til að stoppa upp í fjárlaga-
gatið segir Steingrímur ljóst að sú
vinna verði sett í forgang á allra
næstu vikum.
„Ég hef áður gefið það út að
þungi vinnunnar við að útfæra okk-
ar áherslur varðandi fjárlagaárið
2010 muni lenda núna á maí og
fyrrihluta júnímánaðar. Það er
gríðarleg törn framundan í því að
leggja línur og útfæra tæknilega
þær leiðir sem hægt er að fara þar í
eftir atvikum tekjuöflun eða sparn-
aði. Sú vinna verður að fá mikinn
forgang á næstu sex, sjö vikum eða
svo,“ segir Steingrímur.
Hvað Evrópumálin áhrærir vill
Steingrímur aðeins láta það uppi að
Vinstri græn muni setjast niður með
Samfylkingunni á næstunni. Hann
vilji hins vegar ekki gefa upp neinar
tímasetningar, „allra síst í þessu
máli“.
Úrslitin marka kaflaskil í stjórnmálum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á sigurstundu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, ávarp-
ar sitt fólk á kosningavöku flokksins á Akureyri seint á laugardagskvöldið.
Formaður VG segir flokkinn vera
stærsta sigurvegara þingkosninganna
Vill ekki gefa upp tímasetningar um
hvenær lending náist í Evrópumálum
STEFNUMÁL
» Vinstrihreyfingin – græntframboð vill byggja upp
lýðræðislegt og réttlátt þjóð-
skipulag grundvallað á virkri
þátttöku almennings.
» Hreyfingin hafnar alræðimarkaðshyggjunnar og vill
varðveita sjálfstæði þjóð-
arinnar og forræði yfir eigin
auðlindum.
» Hreyfingin gagnrýnirmeintan lýðræðishalla
Evrópusambandsins og hvern-
ig of mikið sé horft til hags-
muna stórfyrirtækja innan
þess.
» Hreyfingin kveðst aðóbreyttu andvíg aðild að
Evrópusambandinu, en er
tilbúin að skoða málið í sam-
vinnu við Samfylkinguna.