Morgunblaðið - 27.04.2009, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. APRÍL 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD víða
um heim gerðu í gær ráðstafanir til
þess að hefta útbreiðslu nýs afbrigð-
is af svínaflensuveiru sem talið er að
hafi kostað allt að 81 mann lífið í
Mexíkó. A.m.k. tuttugu manns hafa
greinst með veiruna í Bandaríkjun-
um og stjórn landsins lýsti yfir
hættuástandi vegna útbreiðslu veir-
unnar. Yfirvöld í Kanada staðfestu í
gær að sex manns hefðu fengið
svínaflensuveiruna þar í landi. Grun-
ur leikur á að hún hafi breiðst út til
fleiri landa, m.a. Frakklands, Spán-
ar, Ísraels og Nýja-Sjálands.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hvatti yfirvöld í ríkjum
heims til að vera á varðbergi og
fylgjast grannt með því hvort upp
kæmu óvenjuleg veikindi sem líktust
inflúensu. „Það er augljóslega mögu-
leiki á því að veiran valdi heimsfar-
aldri,“ sagði Margaret Chan, fram-
kvæmdastjóri WHO. Talsmaður
stofnunarinnar sagði að veiran kynni
að stökkbreytast í hættulegra af-
brigði.
Yfir 1.300 manns hafa fengið
læknismeðferð vegna flensuein-
kenna í Mexíkó og margir íbúanna
nota andlitshlífar til að forðast smit.
Skólum hefur verið lokað í höfuð-
borginni og nálægum byggðarlögum
og fjöldasamkomur hafa verið bann-
aðar í að minnsta kosti tíu daga.
Lyf hafa reynst vel
Felipe Calderon, forseti Mexíkó,
gaf út tilskipun þar sem hann veitti
yfirvöldum víðtæka heimild til var-
úðarráðstafana, m.a. til að setja
menn í sóttkví ef grunur leikur á að
þeir hafi smitast af sjúkdómnum.
Talsmaður WHO sagði að svo virt-
ist sem nýja svínaflensuafbrigðið
smitaðist milli manna. Talið er að
það smitist á sama hátt og venjuleg
flensa – með snertingu, hósta og
hnerra. Einkennin eru einnig svipuð
og þegar fólk fær venjulega flensu,
meðal annars sótthiti, þreyta, lyst-
arleysi, hósti og hálssærindi.
Stærsta hættan er sú að svína-
flensuveiran blandist veiru, sem
smitast milli manna, og stökkbreyt-
ist í nýtt og enn skæðara veiruaf-
brigði sem geti valdið heimsfaraldri.
Fregnir herma þó að lyfin tamiflu og
relenza hafi reynst vel gegn svína-
flensuafbrigðinu í Mexíkó.
Reuters
Smithætta Lögreglumaður með
andlitshlíf í Mexíkóborg.
Óttast að mannskæð
svínaflensa breiðist út
Stjórnvöld í Bandaríkjunum lýsa yfir hættuástandi
Í HNOTSKURN
» Átta námsmenn frá NewYork hafa greinst með
svínaflensuafbrigðið, sjö menn
í Kaliforníu, tveir í Texas,
tveir í Kansas og einn í Ohio.
» Stjórnvöld í Rússlandibönnuðu í gær innflutning
á kjöti frá Mexíkó, nokkrum
sambandsríkjum Bandaríkj-
anna og níu löndum Róm-
önsku Ameríku vegna svína-
flensunnar.
STJÓRN Srí Lanka hafnaði í gær
tilboði Tamíl-tígranna, uppreisnar-
manna úr röðum Tamíla, og krafðist
þess að þeir gæfust upp þegar í stað.
Tamíl-tígrarnir höfðu um þriðjung
eyjunnar á valdi sínu á árinu 2006 en
eru nú innikróaðir á um tólf ferkíló-
metra strandsvæði á norðaustan-
verðri eyjunni.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna telja að allt að 50.000 óbreyttir
borgarar séu innlyksa á átakasvæð-
inu en stjórnarher Srí Lanka segir
að þeir séu aðeins um 15.000. John
Holmes, aðstoðarframkvæmdastjóri
SÞ, ræddi í gær við embættismenn á
Srí Lanka og hvatti til þess að hlé
yrði gert á árásunum og starfsmönn-
um hjálparstofnana yrði leyft að fara
á átakasvæðið. Hann vill einnig að
hjálparstofnanir fái aðgang að flótta-
mannabúðum sem stjórnvöld hafa
komið upp fyrir Tamíla sem hafa flú-
ið heimkynni sín vegna átakanna.
Um 100.000 manns hafa flúið af
átakasvæðinu síðustu daga.
Erlend ríki hafa lagt fast að stjórn
Srí Lanka að gera hlé á árásunum.
Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Svíþjóðar hyggjast
ræða málið við stjórnvöld í Colombo
í dag. bogi@mbl.is
Tilboði tígra um
vopnahlé hafnað
Reynt að bjarga tugum þúsunda Tamíla
SUÐUR-KÓRESK kona dansar á lótusljóskeri á árlegri
ljóskerahátíð búddatrúarmanna í Seoul, höfuðborg
Suður-Kóreu, í gær. Tugir þúsunda manna tóku þátt í
hátíðinni sem stóð í þrjá daga og var liður í undirbún-
ingi hátíðarhalda 2. maí næstkomandi í tilefni af fæð-
ingu Búdda.
Reuters
Dansað á ljóskerahátíð í Seoul
AUÐUR þúsund ríkustu manna
Bretlands hefur minnkað um 155
milljarða punda á einu ári, ef
marka má lista sem Sunday Times
birtir árlega.
Blaðið áætlar að eignir auðkýf-
inganna hafi rýrnað úr 413 millj-
örðum punda í 258 milljarða. Er
það mesta eignarýrnun frá því að
listinn var birtur í fyrsta skipti fyr-
ir 21 ári.
Milljarðamæringum fækkaði úr
75 í 43 og 100 auðugustu mennirnir
töpuðu alls 92 milljörðum punda.
Aðeins þremur þeirra tókst að auka
eignir sínar.
Efstur á listanum er indverski
stáljöfurinn Lakshmi Mittal. Eignir
hans eru áætlaðar um 10,9 millj-
arðar punda og taldar hafa rýrnað
um 61%.
Eignir auð-
jöfra rýrna