Elding - 01.03.1934, Qupperneq 3
Hagsmunamál
sendisveina-
Það munu allir bæjarbúar vita,
að læg'st launaða stétt í Reykja-
vík eru sendisveinar, en til þessa
hefir lítið verið g’ert til að rétta
hag þeirra. Sendisveinar, sem al-
mennt eru yngstu vinnandi menn
í landinu, og- jafnfi’amt stunda
hlutfallslega erfiðustu vinnu með
lengstum vinnutíma, sem hér á
landi þekkist, liafa ennþá ekki
fyllilega skilið mátt samtakanna.
Samt sem áður voru sendisveinar
vel á veg komnir á síðastliðnu ári,
áður en kratamir sviku, með að
mynda sterk samtök, sem til sín
hefðu getað látið taka í hags-
munabaráttunni, en því miður
brugðust ung-kratarnir, þegar
mest á~i-eið, og síðan hafa sam-
tök sendisveina verið lemstruð
mjög og lítt starfhæf.
En nú fyrir sköminu birti af
degi að nýju fyrir hina launa-
kúguðu sendisveinastétt, þegar
sendisveinadeild Merkúrs hóf
starf sitt nú fyrir skömmu. Inn-
an deildarinnar eru þegar um 130
sendisveinar og daglega bætist í
hópinn. Þessir stéttvísu ungu
menn eru staðráðnir í því að bæta
kjör stéttar sinnar og þeim mun
takast að fá kröfum sínum fram-
gengt.
S. D. M. krefst launahækkunar
og stytting vinnutímans. Launa-
kúgun sendisveina þekkja allir.
Kaup þeirra er frá 35 kr. á mán-
uði upp í 100 kr., sem er það allra
hæsta, sem þeir geta vænzt að fá,
með áframhaldandi samtakaleysi.
S. D. M. krefst 100 kr. lágmarks-
byrjunarkaups fyrir sendisveina
eldri en 16 ára. Jafnframt krefst
S. D. M. 80 kr. lágmarksbyrjunar-
kaups fyrir sendisveina á aldrin-
um 14 til 16 ára, og að kaup-
mönnum verði bannað að hafa í
þjónustu sinni yngri drengi en 14
ára að aldri. S. D. M. krefst þess,
að laun sendisveina hækki um
20% eftir eins árs þjónustu hjá
atvinnurekandanum, og sendi-
sveinar njóti þriggja mánaða
uppsagnarfrests eins og aðrir
verzlunarmenn. S. D. M. krefst
stytting vinnutímans og eftir-
vinnukaups, minnst einnar k'rónu
fyrir hverja klukkustund eftir
lokunartíma.
Þessum kröfum mun S. D. M.
berjast fyrir, og fá þeim fram-
gegnt, þegar allir sendisveinar í
Reykjavík hafa fylkt sér undir
merki S. D. M.
Sendisveinar! Máttur samtak-
anna er stórkostlégur. Gangið í
S. D. M. og vinnið þar með að
íramgángi sjálfsagðra réttarbóta
yðar. S.
Lifgfræðileg aðstoð.
Sendisveinadeild Merkúr, sem er
eina stéttarfélag sendisveina í
Reykjavík, hefir fyrir atbeina
Gísla Sigurbjörnssonar komið því
svo fyrir, að framvegis geta
sendisveinar fengið ókeypis lög-
fræðilega aðstoð fyrir sig. Við
sendisveinar vitum, að oft er
riauðsynlegt fyrir okkur að fá
hjálp til að ná rétti okkar gagn-
vart atvinnurekendunum, en til
læssa hefir okkur tæplega verið
kleift fjárhagsins vegna að fá til
þess lögfræðilega aðstoð, sem oft-
ast er nauðsynleg, þegar 1 hart
fer, en nú er þessu kippt í lag,
og á Gísli í Ási þakkir skilið
fyrir.
Sendisveinar! Gangi ykkur illa
að fá kaup ykkar greitt eða séuð
]rið sviknir á nokkum hátt með
kaupgreiðslur, þá minnist þess,
aíð nú getið þið náð rétti ykkar
ókeypis með því að snúa ykkur
til skrifstofu S. D. M., Lækjar-
torgi 1, sími 4292.
mmmmmmmmammmmmmmmmrnmmm
I
Sendlsveinar?
látið gera við hjól ykkar >hjá
M. B U C H
Skólavörðustíg 5.
Vönduð og ódýr vinna. '
V aknandi
æska.
0
Allir stéttvísir sendisveinar
glöddust, þegar það barst eins og
eldur í sinu um allan bæinn, að
Sendisveinadeild Merkúr væri
tekin til starfa að nýju. Tugum
saman þyrptust sehdisveinar inn
í stéttarfélag sitt, S. D. M., sem
varð þegar stæltur og efldur fé-
lagsskapur yngstu verzlunannann-
anna í bæniun. Á einqm mánuði
hafa sendisveinar endurreist stétt-
arfélag sitt svo röggsamlega, að
það er nú styrkasta og samtaka-
bezta sendisveinafélag á öllu land-
inu. Enda mun brátt sjást, í bar-
áttunni fyrir hagsmunamálum
sendisveina, að upp er risið stétt-
arfélag til sóknar á báða bóga,
fyrir bættum kjörum sendisveina
og gegn svikráðum krata og kom-
múnista-sendisveinanna. — Þeir
sviku stéttarfélag sitt, keyptir til
þess af umboðsmönnum danska
gyðingaauðvaldsins, olíu-einokun-
arkarlinum o. fl. En stéttvísir
sendisveinar sáu við svikum
leiguþýjanna og hófu merki S. D.
M. á loft að nýju.
Djarfhug’a, drenglyndir og at-
orkusamir ungir sendisveinar
standa fremstir í broddi fylking-
ar eina stéttarfélags sendisveina,
S. D. M., og berjast með krafti,
djöi’fung og dugnaði vaknandi
æsku /fyrir hagsmunum og bætt-
um kjörmn stéttarinnar; berjast
fyrir kröfum, sem munu og skulu
ná fram að ganga, og berjast
jafnframt gegn stéttarsvikurum,
sem tóku þann kostinn, að fljóta
sofandi að feigðarósi í olíu Héð-
ins Valdimarssonar.
Stéttvísir sendisveinar! S. D.
M. er ykkar félag.
Gangið í S. D. M. Skrifstofan
opin allan daginn í Lækjartorgi 1,
herbergi nr. 11 (Gísli Sigur-
björnsson). Ef þið viljið stétt
ykkar vel og viljið vinna henni
gagn, þá gangið í S. D. M.
Atvinnulaus sendisveinn.