Morgunblaðið - 29.05.2009, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.05.2009, Qupperneq 4
Flottur Fiat 500C er afar flottur að sjá og verða tvö eintök af honum boðin upp í Cannes á næstunni. Ítalskir bílaframleiðendur virðast iðnir við að styrkja góð málefni þessa dagana. Fyrir skömmu birti bílablaðið fréttir af Ferrari bíl sem gefinn var til að styrkja fórnarlömb jarðskjálftans í Abruzzo. Nú er það Fiat sem gef- ur ekki síður forvitnilegan bíl, Fi- at 500C by Diesel, eins og hann er kallaður. Bíllinn er merkilegur ekki að- eins fyrir þær sakir að aðeins tvö eintök eru til heldur líka vegna þess að hann er afar spennandi, með rúllutopp og glæsilega lita- samsetningu en bíllinn er dísil- grænn á lit og er liturinn því vís- un í gallabuxnaframleiðandann sem á veg og vanda af hönnuninni. Gagnstætt því sem margir kynnu að halda er bíllinn þrátt fyrir allt ekki knúinn dísilvél held- ur 100 hestafla 1,4 lítra bensínvél sem í þessum knáa bíl dugar vel til að skemmta ökumanninum. Herlegheitin verða boðin upp á sextugustu og annarri kvik- myndahátíðinni í Cannes og mun andvirðið renna óskipt til eyðni- rannsókna en á uppboðinu munu verða feiknin öll af frægu fólki. Bill Clinton mun til að mynda verða veislustjóri en einnig munu Sharon Stone og Annie Lennox heiðra samkomuna með nærveru sinni og mun markmiðið vera að afla sjö milljón dollara til styrktar málefnisins. Ljóst er að til þess að það markmið náist verður að bjóða upp fleira en tvo Fiat 500 bíla nema einhver afar örlátur Fi- at-aðdáandi finnist. Sá myndi í það minnsta fá einstaklega vel heppn- aðan Fiat. Fiat fyrir gott málefni MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 4 Bílar Bílar RENAULT MEGANE ÁRG. '00 EK. 92 Þ. KM Bíll í toppstandi og í góðu viðhaldi. Sjálf- skiptur og heilsársdekk , CD frammi í og DVD fyrir farþega aftur í. Tilvalinn í sumar- fríið. Verð: 520 þ. Uppl. í síma 820 9227. Pallbíl eða jeppa Óska eftir að kaupa 4x4, pallbíl eða jeppa. Helst Ford 1974–1980, pallbíl með ”exten- tion cab” fordabila@yahoo.com MMC LANCER ÁRG. '98 EK. 164 ÞÚS. KM Er með Mitsubishi Lancer station 1600 '98 til sölu. Sjálfskiptur, nýskoðaður, nýbúinn að skipta um bremsuklossa og -diska að framan. Uppl. s. 866 6831. Verð 290.000 kr. BMW 525 DIESEL ÁRG. '02 BMW 525 Diesel til sölu. Tilboð 1250 þús. Áhv. ca. 900 þús. ísl. lán. Skoða skipti á mótorhjóli eða ódýrari bíl. Uppl. Tommi sími 697 9001. 1. júní, annan í hvítasunnu verður Baja endúró keppnin á SBKÍ brau- tinni í Gufunesi, Grafarvogi. Keppt er með fjarstýrða 1/5 HPI Baja bensínbíla og ekið í 2 tíma samfleytt. Skráning verður á staðnum. Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is Bílasmáauglýsingar augl@mbl.is Ökumenn BMW-bifreiða eru þeir verstu í umferðinni, samkvæmt niðurstöðum athugunar breskrar vef- síðu sem helguð er samanburði á bíla- tryggingum. Slæmur akstursmáti, hraðakstur, hættulegur framúr- akstur og óviðeigandi ögrun eru með- al þess sem þeim er borið á brýn. Alls náði rannsóknin til 1500 öku- manna og sögðu næstum tveir þriðju þeirra að bílstjórar BMW-bíla hegð- uðu sér verst í umferðinni. Þeir eru þó ekki einir um að fá á baukinn því samandreginn listi yfir bíltegundir „verstu“ ökumanna lítur út svo: BMW 59 prósent, Subaru 42 prósent, Porsche 39 prósent, Audi 30 prósent og Mercedes-Benz 27 prósent. Aldraðir bílstjórar óvinsælir Falli niðurstaðan í grýttan jarðveg hjá lesendum hugsa þeir ef til vill hlýtt til ökumanna sendibíla. Allir hinir 1.500 þátttakendur voru sam- mála um að þeir væru þeir allra verstu á vegunum. Ungir ökumenn eru ekki mikið bet- ur settir í augum aðspurðra, því 98 prósent sögðu þá lélega ökumenn. Níu af tíu sögðust ekki gefa mikið fyr- ir aldraða bílstjóra. Á óvart þykir svo koma, að rútu- og vöruflutningabíl- stjórar voru taldir öðrum betri á veg- um úti. Lagt af slæma ökusiði Tæpast þarf að taka fram, að fjórð- ungur þátttakenda í könnuninni sagð- ist telja sig „úrvals“ bílstjóra. Tveir þriðju gáfu sér einkunnina „góður“. Sérfræðingar segja að með krepp- unni og vaxandi rekstrarkostnaði hafi bílstjórar flestir hverjir lagt af slæma ökusiði. Þannig aka þrír fjórðu „grænni“ akstur með því að nota lægri mótor- snúningshraða. Meira en helmingur ökumanna segist hafa breytt aksturs- máta sínum til að lækka bensín- eyðslu. Þykir það vísbending um að kreppan og umhverfisvitund sé að stuðla að breyttri aksturshegðan. Mun það sömuleiðis hafa áhrif á hvers konar bíla menn myndu kaupa. Spurt var hvaða bíltegundir taldar væru „grænastar“. Niðurstaðan var þessi: Toyota 38 prósent, Honda 37 prósent, Volkswagen 23 prósent, Volvo 23 prósent og Citroën 19 pró- sent. agas@mbl.is Óvinsælir ökumenn Slæmur akstursmáti, hraðakstur og óviðeigandi ögr- un eru meðal þess sem ökumönnum BMW er borið á brýn. Ökumenn BMW þeir verstu í umferðinni Eftir Leó M. Jónsson leoemm@simnet.is Nissan 2.5 tdi Spurt: Ég er að velta fyrir mér Nissan Pathfinder sem bjóðast á hagstæðu verði nú um stundir. Þú talar mjög vel um þennan bíl í bíla- prófun á 2006 árgerðinni á vefsíð- unni þinni en nefnir líka galla í Nissan dísilvélum í svari í gagna- safninu varðandi Navara 2003. Eiga þær athugasemdir við um vél- arnar í 2006 og yngri Pathfinder? Svar: Þær eiga við um 2,5 lítra túrbódísilvélina (tdi) með forð- agrein (common rail) í stað olíu- verks. Gallinn var sá að brunageisli spíssa gat brennt gat á stimpilkolla – í versta tilfelli þannig að vélin brotnaði. Nissan endurbætti spíss- ana og var ætlast til að skipt væri um þá á ábyrgðartímanum til að girða fyrir skemmdir. Sértu að velta fyrir þér kaupum á notuðum Nissan jeppa/jepplingi/pallbíl með 2,5 lítra forðagreinar-dísilvélinni skaltu kynna þér, eins vel og þú getur, hvað hafi verið gert við vél- ina á ábyrgðartímanum. Sé sjáan- legur reykur í útblæstri er dísilvél ekki í lagi. Nissan Pathfinder er bæði lipur og þægilegur lúxusjeppi. Um þrifnað Eftirfarandi er samantekt margra fyrirspurna.  Þrífðu stýrishjól, gírhnúð, hand- föng geymsluhólfa og hurða og armhvílur með tusku vættri í volgu sápuvatni. Þér mun koma á óvart hve mikil óhreinindi (gerlar) geta verið á þessum snertihlutum.  Stamt gervileður eftir þrif, til dæmis á stýri, má gera eins og nýtt með yngingarefni fyrir plast, Son- of-a-gun og sambærileg efni.  Hundahári getur verið erfitt að ná úr tauáklæði eftir því hve mikið er af gervitrefjum í vefjarefninu (rafspenna). Sé strokið yfir sæti og klæðningu með einnota Latex- hönskum (fást í Bónus), vættum með rakri tusku, má skafa hunda- hárin saman og margfalda afköst með ryksugu.  Fitubletti (ís, kókómjólk, olía og fleira) í tauáklæði er auðvelt að uppræta með réttum efnum og að- ferðum. Reynið ekki að fjarlægja fitubletti með leysiefnum svo sem bensíni, hvítspíra eða þynni – með því móti stækkar bletturinn í stað þess að hverfa. Þess í stað skal nota sérstök lífræn niðurbrotsefni. Eitt þeirra er Undri blettahreinsir sem fæst víða, meðal annars í matvörubúðum.  Sætaáklæði og klæðningu er auðveldast að hreinsa með til þess gerðum lífrænum skúmefnum og svampi sem fást í sérverslunum og á bensínstöðvum. Nokkur fyrir- tæki, til dæmis Besta, leigja út sér- stakar teppahreinsivélar. Með rétt- um hreinsiefnum, sem þessi fyrirtæki selja, má hreinsa teppi og innréttingu bíls á tveimur klukku- stundum með ótrúlegum árangri.  Óhreint og innþornað leður get- ur farið illa vegna sólargeislunar, það getur upplitast og sprungur geta myndast í ysta laginu. Ekta leður og gervileður má oftast þrífa á auðveldan hátt með volgu sápu- vatni og tusku. Á ekta leður er síð- an borin leðurnæring fyrir bíla- áklæði. Það efni fæst á bensínstöðvum (Leather Cleaner & Conditioner). Með því mýkist leðr- ið, fær upphaflegan lit og gljáa, sprungur hverfa og yfirborðið óhreinkast síður.  Gerviefni í mælaborði, hlífum, miðjustokk og annars staðar í inn- réttingu vilja upplitast og missa upprunalega áferð og gljáa. Óhreinindi er auðvelt að fjarlægja með volgu sápuvatni. Að þrifum loknum er notaður sérstakur yng- ingarúði fyrir gerviefni (Cockpit Reconditioner) á flötinn. Það efni getur gert kraftaverk þannig að innrétting fái aftur upprunalega áferð og glæsileika (og lykt). Þetta sama efni má nota á hliðar dekkja til að skerpa svarta litinn og gljá- ann. Athugið að um öll ofantalin hreinsi- og yngingarefni gildir að nauðsyn- legt er að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum sem fylgja þeim. Röng notkun efnanna getur valdið skemmdum. Athugið að bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com. Eitt og annað um þrif innréttinga Hreinn bíll Með því að þrífa bíl með réttum efnum og tækjum er hægt að gera hann nánast eins og nýjan. Höfundur er vélatæknifræðingur Mbl.is/Bílar: Spurt og svarað nr. 140

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.