Nýtt kvennablað - 01.11.1941, Blaðsíða 7

Nýtt kvennablað - 01.11.1941, Blaðsíða 7
NÝTT IíVENNABLAÐ Elínborg Lárusdóttir: Brot--------------------------- Kofinn minn stendur á bakkanum austan- vert vió vatnið. Báðum niegili eru skógarrunn- ar svo liáir, að liægðarleikur væri að leynast þar. Að baki er brött brekka þakin þéttu kjarri. Það er aðeins faðmslengd frá kofanum niður að vatninu. Á daginn sit ég úti fyrir kofanum og liorfi vfir valnið. Þegar sól skín og logn er, sindrar á það, eins og það væri gert úr allavega litum perluni. Ef andvari er, gárast vatnið og bárurnar gjálfra upp við landsteinana. Uridirlendið með- fram vatninu er allt vaxið kjarri, og skógarbrisl- unuin miðar upp á við ár frá ári. Sjóndeildarbringurinn ei- takmarkaður af mishæðóttum fjallahring, sem myndar boga umhverfis sveitina. Þarna gæti eg unað mér það, sem eftir er lif- daga. Þar gæti mig dreymt um allt það, sem eg hefi þráð og vonað. Þar gætu draumar mínir ef lil vill orðið að stundarveruleika, því að á svona stað i hinu töfrandi umhverfi og hinni friðsælu kyrrð, sem ríkir hér hvarvetna, gæti allt Irið yndislegasta, er mennina dreymir um, hafa gerzt. Þegar eg þarfnast hvíldar, leita eg' friðar hér. Það, sem mennirnir hafa ekki getað veitt mér, mun einveran bæta mér upp — eða öllu heldur mun eg finna hér, það, sérii eg leita að. Snjórinn liggur þungt á kjarrbrekkunni fyr- ir ofan kofann og hauststormarnir eru hræði- lega grimmir og þyrma engu, sem verður á leið þeirra. Á hverjum velri dettur ínér i lmg, að snjórinn hafi sópað kofanum minum með sér alla leið út á vatnið eða stormarnir mulið lumn til grunna. En ávalt finn eg lumn aftur með sömu unnnerkjum. Það stendur lengst, sem hrumast er, hugsa eg |)á, því að kofinn minn er kynlega byggður. Ef gott er veður, lek eg bátinn og ræ út á valnið. Og þegar báturinn brunar eftir spegil- sléttu vatninu, þá hjala eg við fuglana, sem hafast þarna við. Þeir taka undir og smám- saman fara þeir að þyrpast að mér á vatninu, og virðast engu síður en eg hafa ánægju af fé- lagsskapnum. Eg er stundum að láta mér detta í hug, að takast mætti að kenna þeim málið. Og svo mikið er víst, að tryggir eru þeir mér, og marga ánægjustund hafa þeir veitt mér. Þegar haustar held eg heiin aftur i skarkal- 3 Islenzk lista- kona. Frú Kristín Jónsdóttir er fyrir löngu viður- kennd sem ein af okkar færustu listmálurum. Hún er norðlenzk, ættuð frá Arnarnesi við Eyjafjörð. Fór hún ung utan og stundaði nám við Lislaháskólanu i Kaupmannahöfn; mun hún vera fyrsta kona hérlend, sem lokið hefir þar námi í þeirri grein. Á listsýningunni, er fvrir skömmu síðan var haldin hér i Reykjavik, átli liún allmargar myndir, er vöktu almenna aðdáun og ánægju. Ef dæma má eftir málverkum þeim, er á sýn- ingunni voru, getur maður sagt að hún hafi valið sér blóm, sem sérgrein. Blóm í glugga, blóm á borði, blóm í garði. Þannig málar eng- inn riema sá, er elskar fegurð blómanna. Yfir landslagsmvndum hennar er heiðríkja og birta. Frú Kristín getur ánægð litið um öxl. Það er langur áfangi frá því að hún, ung sveitastúlka, leggur frá landi, með óljósa þrá æskunnar eftir fegurð og formi og trú á sjálfa sig, sem farar- eyri, þar lil lnin nú, þroskuð kona, skipar sæti meðal bezlu listamanna þjóðarinnar. ann, borgarglauminn og tildrið. En þótt lilýtt sé á arni og rúmgóð híbýlin, þrái eg þó allan veturinn kofann minn litla, vatnið, skóginn, fuglana og hina friðsælu kyrð. Leiðist mér lífið, leita eg til kofans í kjarr- brekkunni. Hvernig sem eg kem, hvort heldur glöð eða hrygg, mun eg vera þar velkomin og þar mun eg finna frið einverunnar. Þegar eg leggst til hvilu, nnmu bárurnar

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.