Nýtt kvennablað - 01.10.1949, Page 6

Nýtt kvennablað - 01.10.1949, Page 6
Myndin er tekin á 90 ára ajmœlinu. jr Það er mikill heiður íslenzka ættstofninum, er nrenn ná hundrað ára aklri. Þar eru styrkar rætur og mergur í kögglum. Eyfirðingar mega miklast af Margréti Einarsdóttur, hún var á fyrsta missiri, þegar Skaglirðingar gerðu heim- reið að Grími amtmanni á Möðruvöllum, og lif- ir enn í dag. Hún er ættuð úr Hörgárdal, fædd að Laugalandi á Þelamörk, 4. apríl 1849, dóttir Einars Ólafssonar, bónda og smiðs, og konu hans Sigríðar Ilalldórsdóttur frá Krossastöðum, sem er næsti bær við Laugaland. Einar Ólalsson var einn af smiðum Daníelsens á Skipalóni, ásamt sonum hans, er lærðu hjá Daníelsen, en börnin voru 3, synir tveir og Mar- grét. Einar iðkaði og mikið sund. Árið 1824 hjargaði hann stúlku úr Hörgá í vexti. Það þótti svo mikið afrek, að honum var boðið, hvort sem hann vildi heldur, björgunarorðu eða 40 ríkisdali rir ríkissjóði Dana. Hann kenndi báð- um sonum sínum sund. Og man Margrét eftir öllum feðgunum á sundi í Hörgá. Langaði hana til að læra sund, eins og bræðurna, en það vildi faðir hennar ekki, sagði að hún hefði svo mikið og þykkt hár, það myndi íþyngja henni. Nú er öldin önnur. Margrét var 18 árurn yngri en yngri bróðir hennar. Um vetur kenndi eldri bróðir hennar stálpuðum drengjum skrift, reikning o. 11., lang- aði Margréti mjög mikið til að vera í þeim hóp, og fór hún margar ferðir að stofuhurðinni, þar sem kennslan fór fram, stóð þar, en hafði ekki kjark til þess.að biðja um að fá að læra. Þar til einu sinni að bróðir liennar var einn í stofunni, þá áræddi hún að fara inn. Sat hann við borð, en hún staðnæmdist lyrir aftan hann, svo liann sæi ekki framan í liana. Þá brast þó kjarkinn til þess að biðja um að lá að lara í skólann, en hún stundi upp, hvort hann vildi gefa sér stafrof. Hann svaraði engu, en hélt áfram við það, sent hann var að gera, hún bíður nokkra stund, þang- að til hann tekur, þegjandi, blað og skrifar á það stafroíið, fyrst stóru stafina, og síðan þá litlu og réttir henni þegjandi. Eftir þessari forskrift lærði hún svo, og skrifaði seinna fyllilega eins góða hönd og hann. . Þetta sýnir hvað það þótti fjarri öllum sanni, að kvenfólk nyti nokkurrar menntunar. Því þó Margi'ét færi svona lijá sér, á þessari bónleið til bróður síns, var hún einurðargóð frá æsku,' og tápmikil í l>ezta lagi, þó hún væri aldrei stór vexti. Þegar hún var barn, gengu öll stúlkubörn, eft- ir 7 ára aldur, sem nokkurs máttu sín, með húfu, með silfurhólk og mislitum skúf, bláurn eða rauðum. En lienni leiddist húfan. Þegar hún var 13 ára kom fátækur telpukrakki að Lauga- landi, sem enga húfu átti. Ilað hún þá móður sína að leyfa sér að gefa henni lnifuna, og losnaði þannig við hana. Margrét var yfir tvítugt, þegar hún sá fyrst steinolíu, áður voru lýsislantpar og kertaljós. Saga hennar, ef skráð væri, yrði að nokkru leyti saga íslenzku þjóðarinnar. Hún hefur lif- að allar hinar miklu breytingar, á öllum sviðum þjóðlífsins. Föður sinn missti Margrét, er hún var 15 ára gömul, en dvaldist með móður sinni, unz hún missti hana 25 ára gömul. Hún giftist um þrít- ugsaldur, Gísla Pálssyni bónda á Grund í Svarf- aðardal, en missti hann eftir fjögurra og hálfs árs sambúð, frá tveim börnum þeirra, Sigríði og Aðalheiði. Bjó hún rúmt ár áfram á Grund, en leitaði svo á fornar slóðir, inn í Hörgárdal, með sínar litlu, greindu dætur og þar ólust þær upp, sú yngi'i alltaf með móður sinni, þangað til Margrét fluttist 1905 til Fáskrúðsfjarðar til stjúp- sonar síns, Páls Gíslasonar, og var þar til 1911, 4 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.