Morgunblaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.07.2009, Blaðsíða 36
36 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 2009 Sudoku Frumstig 6 9 4 1 2 6 1 2 4 9 7 3 2 3 8 1 9 7 4 5 2 5 7 6 8 5 8 1 7 8 9 5 3 4 6 4 2 5 7 9 9 8 7 3 4 1 2 6 8 4 3 6 5 1 7 6 8 5 1 7 2 4 2 3 7 2 4 3 8 5 6 3 1 4 5 6 8 7 9 2 3 3 2 8 5 9 4 7 6 1 7 9 6 3 2 1 5 8 4 9 1 2 8 3 6 4 5 7 6 5 7 1 4 2 8 3 9 8 3 4 9 7 5 6 1 2 4 7 1 2 6 8 3 9 5 2 8 9 7 5 3 1 4 6 5 6 3 4 1 9 2 7 8 6 3 5 1 4 9 7 8 2 1 8 2 3 7 6 9 4 5 9 4 7 2 5 8 3 1 6 4 2 9 6 3 1 5 7 8 8 5 6 7 2 4 1 9 3 3 7 1 8 9 5 2 6 4 2 9 3 4 8 7 6 5 1 5 1 4 9 6 2 8 3 7 7 6 8 5 1 3 4 2 9 2 5 7 3 9 4 1 8 6 8 4 1 2 7 6 9 3 5 6 3 9 1 5 8 7 2 4 3 1 2 8 4 7 5 6 9 4 7 5 6 3 9 8 1 2 9 6 8 5 1 2 3 4 7 7 9 6 4 8 1 2 5 3 1 2 3 7 6 5 4 9 8 5 8 4 9 2 3 6 7 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 18. júlí, 199. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.) Víkverji hefur að undanförnu átt ídeilum við spúsu sína. Snúast deilurnar um mikilvægan skraut- mun, sem honum áskotnaðist í æsku, en spúsan hefur litlar mætur á. Hlut- urinn er enda norskur að uppruna, jólanissi úr plasti gjörður, íklæddur bláum jakka og gulum buxum, svart- skæddur með rauða skotthúfu og hvítt skegg. Hann situr og les upp úr þykkri bók. Hann er um það bil þrjá- tíu og fimm sentimetrar á hæð. x x x Upphaflega vildi Víkverji stillaþessum skrautmun upp á jól- unum, við arinhilluna, eins og hann hafði gert í æsku. Spúsan gerðist við þetta ókát og varð því meiri ógleði hennar er meir leið á jólin. Jólaniss- inn var því tekinn niður. En nú eru ekki jól. Nú er sumar. Nú er tími garðálfanna. Víkverji hefur því að undanförnu verið afar rökfastur og staðfastur í því að jólanissinn sé eftir allt saman ekki jólanissi, heldur garðálfur. x x x Nú vill svo til að garður Víkverjaer sérstaklega smágerður. Hann samanstendur af einu stein- hlöðnu blómabeði úti í horni í porti á bak við hús. Þar er einn runni og á að giska þrjú blóm. Fyrst um sinn mátti garðálfurinn una sér þar vel, en þeg- ar spúsan sá hann rak hún upp harmakvein og hóf herferðina gegn honum að nýju. Víkverji stendur enn fastur við sitt og hugar að garðálf- inum í hvert skipti sem hann á þar leið hjá, en sá litli hefur þá stundum verið færður á bak við runnann, svo rétt aðeins glittir í skotthúfuna. x x x Víkverja er þó farið að leiðast þóf-ið. Hann veltir því fyrir sér hvort koma megi garðálfinum fyrir uppi á þaki, til að hræða burt starra, ekki ósvipað plastuglum sem algeng- ar eru á þökum bæjarins. Máltækið „sá vægir sem vitið hefur meira“ á nefnilega alls ekki við í þessu tilfelli. Þar sem margsannað er að spúsa Víkverja hefur meira vit en hann sér hann ekki ástæðu til að vægja í þessu máli. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 prettvís, 8 um síðir, 9 moðreykur, 10 miður sín, 11 fiskar, 13 ákveð, 15 hárknippis, 18 frásögnin, 21 glöð, 22 rifja hey, 23 kjánar, 24 sjálfhælinn. Lóðrétt | 2 gestagangur, 3 viðurkennir, 4 lengd- areining, 5 dysjar, 6 fjall, 7 klukkan, 12 umfram, 14 fáláta, 15 eldur, 16 kerling, 17 háð, 18 vísa, 19 borguðu, 20 líffæri. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 busla, 4 súlda, 7 kenna, 8 tukta, 9 rit, 11 róar, 13 hrun, 14 ógnar, 15 hofs, 17 æfur, 20 fró, 22 ískur, 23 lesti, 24 arður, 25 narti. Lóðrétt: 1 búkur, 2 sunna, 3 afar, 4 sótt, 5 lýkur, 6 ak- arn, 10 iðnir, 12 rós, 13 hræ, 15 hníga, 16 fíkið, 18 fýsir, 19 reipi, 20 frír, 21 ólán. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. Rxc6 bxc6 7. Bd3 d5 8. O-O Rf6 9. De2 Be7 10. b3 O-O 11. Bb2 c5 12. Had1 Bb7 13. exd5 exd5 14. Ra4 Dc7 15. Hfe1 Re4 Staðan kom upp í landskeppni Frakklands og Armeníu í atskák sem lauk fyrir skömmu í París í Frakklandi. Armenski stórmeistarinn Vladimir Akopjan (2696) hafði hvítt gegn Joel Lautier (2658). 16. Bxe4! dxe4 17. Dg4! g6 18. Hd7 Dc8 19. Rb6 Dc6 20. Rd5! og svartur gafst upp enda liðstap óumflýjanlegt, t.d. eftir 20…Bd8 21. Hxd8. Armenar fengu 19½ vinning af 32 mögulegum en Frakkar fengu 12½ vinning. Hvítur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fyrsti slagurinn. Norður ♠D76 ♥Á7 ♦G1097 ♣ÁDG10 Vestur Austur ♠G832 ♠ÁK1054 ♥98642 ♥KG10 ♦5 ♦43 ♣864 ♣532 Suður ♠9 ♥D53 ♦ÁKD862 ♣K97 Suður spilar 6♦. Spilinu var lokið með sigri sagnhafa og augu austurs og vesturs mættust í leitandi spurn – höfðu þeir gert eitt- hvað af sér í vörninni? Þá skyndilega sá vestur ljósið: „Fyrsti slagurinn, makker. Þú verður að láta tíuna.“ Austur vakti á 1♠, suður sagði 2♦ og vestur hindraði í 3♠. Norður þóttist sjá stuttan spaða hjá makker og stökk í 6♦. Smár spaði út, lítið úr blindum og … kóngur frá austri. Hann ætlaði ekki að gefa sagnhafa á blankan gosa. Al- vara málsins kom í ljós síðar. Sagnhafi byggði upp þriggja spila endastöðu, þar sem blindur átti út með ♠D7 og stakan ♥Á, en suður var með ♥D5 og eitt tromp. Austur hafði þá þegar orðið að velja milli illra kosta. „Ef þú lætur ♠10 geturðu spilað ♠Á í öðrum slag og eyðilagt þvingunina,“ hélt vestur áfram. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er farsælla að segja hug sinn en að byrgja hlutina inni. Reyndu að hrista það af þér. Notfærðu þér þetta aðeins til góðra verka því annars verður þessi gáfa frá þér tekin. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér finnst lágdeyða í lífinu eftir mikil átök og læti undanfarið. Hikaðu ekki við að biðja fólk sem þú treystir að hlusta á þína hlið á málunum og gefa þér góð ráð. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Tvíburinn er einstakur hugsuður. Vertu sátt/ur við sjálfa/n þig, gakktu glað- ur/glöð fram á veginn. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þér hættir til fljótfærni í dag. Þú ert ekki sátt/ur við það hvernig einhverju er skipt. Taktu þér auðveld verk fyrir hendur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú getur átt góðan dag í vinnunni. Stundum er besta ráðið að gera ekki neitt og búa sig undir næsta dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ættir ekki að taka veigamiklar ákvarðanir þegar þú ert illa fyrirkölluð/ kallaður. Hins vegar verður þú að leggja talsvert á þig til þess að ná markmiði þínu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert að brjótast í þeim málum sem þér finnast þér ofvaxin. Rétta manneskjan er sú sem tekur starfið og lætur allt í söl- urnar. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Mundu að þú getur ekki tekið öll vandamál fjölskyldunnar á þínar herðar því það er einfaldlega ekki á þínu valdi. Vertu samþykk/ur sjálfum þér – og skál- aðu! (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Greindu þig frá almúganum með því að koma með yfirlýsingu sem sker sig úr. Reyndu frekar að kynna þér málin sjálf/ur og kveða upp dóm á þínum eigin forsendum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Fólk vill falla þér í geð, eiga við- skipti við þig, vingast við þig. Vertu á varð- bergi gagnvart þeim sem tala of mikið og jafnvel enn meira á varðbergi gagnvart þeim sem gefa þér loforð. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú grípur til aðgerða, sérstaklega þau sem kosta fjárútlát. Hjálpsemi vermir hjarta- ræturnar og leiðir til vellíðunar. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Sólin skín beint á móti fiskunum þessa dagana. Passaðu þig að láta fólk ekki nota þig. Refsaðu ekki sjálfum/sjálfri þér heldur gefðu þér nýtt tækifæri. Stjörnuspá 18. júlí 1918 Samningar voru undirritaðir um frumvarp til sambands- laga. Frumvarpið var sam- þykkt í þjóðaratkvæða- greiðslu þremur mánuðum síðar með rúmlega 90% at- kvæða og lögin tóku gildi 1. desember. Með þeim var end- urreist sjálfstætt og fullvalda ríki á Íslandi en í konungs- sambandi við Danmörku. 18. júlí 1931 Framkvæmdir hófust við verkamannabústaðina við Hringbraut, Bræðraborg- arstíg og Ásvallagötu í Reykjavík. Alls voru íbúðirnar 54 og var flutt inn í flestar þeirra í maí 1932. 18. júlí 1963 Stórbruni varð í verksmiðju Ísaga við Rauðarárstíg í Reykjavík. Miklar spreng- ingar urðu þegar eldur komst í gashylki. Nálæg hús voru rýmd og rúður sprungu í mörg hundruð metra fjarlægð frá þessu „logandi víti,“ eins og blöðin nefndu það. 18. júlí 1999 Stórhlaup varð í Jökulsá á Sól- heimasandi og sigketill mynd- aðist í Mýrdalsjökli. Þetta voru mestu umbrot í jöklinum í 44 ár. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Ingveldur Ásmunds- dóttir, Vest- urgötu 80, Akranesi, verður 90 ára sunnu- daginn 19. júlí. Hún verður með opið hús frá kl. 15 á heimili sínu með heitt á könnuni. Verið velkomin. 90 ára „ÉG verð með lummulegasta boð á landinu,“ segir Herdís Egilsdóttir, kennari og höfundur barna- bókanna um Siggu og skessuna. Herdís verður með athyglisverða uppákomu í tilefni af 75 ára af- mæli sínu því í stórum helli við smábátahöfnina í Reykjanesbæ hefur góðvinkona hennar fundið sér heimili. „Reyknesingar gerðu skessunni gríð- arstórt heimili sem vígt var á Ljósanótt í haust. Í hellinum situr hún, fimm metra há og ruggar í stól og deplar augunum sæl,“ segir Herdís. „Ég er mikil ævintýrakona og finnst hellirinn skemmti- leg umgjörð fyrir samkomu og staðurinn er und- urfagur. Við höfum þrammað saman í 45 ár og því liggur beint við að hún haldi upp á afmælið með mér.“ Hellir skessunnar verður opnaður kl. 10 í dag fyrir gesti og gangandi og tekur Herdís á móti öllum sem vilja koma, en skessan mun baka ævintýralegar lummur milli kl. 15-17. „Siður skessunar í bókunum er að bjóða gestum sínum alltaf upp á lummur,“ segir Herdís sem vinnur nú að annarri bók um skessuna góðu. Herdís Egilsdóttir kennari er 75 ára Lummulegt boð í helli Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Reykjavík Íris Lilja fædd- ist 3. maí kl. 00.09. Hún vó 3.905 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Elín Eir Jóhannesdóttir og Brynjar Örn Áskelsson. Kanada Erika Kristjana fæddist 24. janúar kl. 12.30. Hún vó 4100 g og var cm löng. Foreldrar hennar eru Shelley The- resa Doane og Hjálmar Guðni Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.