Nýtt kvennablað - 01.12.1961, Blaðsíða 3

Nýtt kvennablað - 01.12.1961, Blaðsíða 3
NÝTT KVENNABLAD 8. tbl. dcsember 1961. 22. árgangur. •Jóliii koma o Hver er sá okkar á meðal, að liann hafi ekki eitt sinn spurt með mikilli eftirvæntingu: „Hvenær koma jólin?“ Á þetta auðvitað við um fyrstu hernsku, meðan fjarlægðir tíma og rúms eiga ennþá ekki glöggt af- niarkað svið í skynheimi barnsins. Og svörin voru auðvitað mismunandi hagstæð fyrir spyrjanda. — Stundum gátu blessuð jólin sýnzt óralangt burtu fyrir bráðlátum harnshuganum, en stundum gátu þau líka verið rétt á næstu grösum. Og þá var nú gaman að 1 ifa og vera ungur og óreyndur. En eitt er þó víst að alltaf koma blessuð jólin á sínum tíma, það þurfti enginn að efast um, ef hann annars fékk að lifa j)á stund. — Einmitt þegar skammdegið grúfði yfir með öllum sínum drunga og áhyggjum um langan og ef til vildi strangan vetur, komu þau með sitt himneska, milda, lífgandi Ijós á mínútunni klukkan sex, 24. desember. Þeim var allt öðruvísi farið en sumrinu íslenzka, sem svo oft lét bíða sín, þótt almanakið hefði þegar tilkynnt komu 'þess. En jólin komu heldur engum að óvörum. Allt skyldi Vera fágað og prýtt, eflir j)ví sem orðið varð, til þess að fagna sem bezt þessari ljóssins og lífsins hátíð, sem flutti þeim fátæku og smáu þann fagnaðarboðskap, að sjálfur skapari alheimsins, Faðir og verndari alls J)ess, sem lifir og hrærist, hefði á þessari heilögu nóttu fyrir svo mörgum öldum og árum opnað himin sinnar gullnu dýrðar, sent hrjáðu mannkyni son sinn til þess að endurleysa það frá synd og villu og lýst bless- un sinni og friði yfir mönnunum, sem sýndust þó æfinlega eiga í erjum og illdeilum sín á milli. Var þetta ekki of gott til þess að vera satt? Nei, fyrir Guði er enginn hlutur of stór eða of smár, öllu heldur hann jafnt í sinni forsjónarliendi. Þetta vissi fátæka og fáfróða fólkið í sveitum og bæjum þessa lands. Þess vegna mátti helzt engin lifandi vera fara á mis við blessun jólahaldsins. Hvert mannsbarn þurfti * * helzt að geta fengið sitt eigið kerti, til þess að fara ekki á mis við birtuna himnesku, sem forðum ljómaði í kring um hirðana á Hetlehemsvöllum. Mennirnir, sem svo oft áður voru harðir og miskunnarlausir í um- gengni sinni við smælingjana, urðu nú bljúgir og mild- ir og reyndu eftir mætti að miðla þeim, er veikari var, því sem j>eir máttu, jafnvel bæði í orði og verki. Það mun hafa verið algengt að þeir, sem ríkari voru miðl- uðu kertum til hinna fátækari barna, svo að þau gætu einnig horft á sitt jólaljós. Þá mátti heldur enginn vera svangur. Helzt varð hangikjötið að flóa út af hvers manns diski. Dugðu víst engir diskar til að hemja allt það, sem skammtað var á betri bæjum á aðfangadagskveld. Gat þá fólk líka búið að sínu um alllangan tíma og stytti þetta ekki svo litið böl skammdegisins. Þá hafði líka marg- ur hálf-nakinn kroppur fengið hlýja og góða flík til þess að búa að í hörkum og hreti útmánaðanna. Jafnvel skepnurnar voru ekki látnar fara á mis við þann kærleiksyl, sem jólabarnið hafði veitt inn í mann- leg hjörtu. Hús gripanna voru hreinsuð og þrifin eftir j)ví sem verða mátti. Líka var fremur seilzt eftir betri tuggunni úr heystálinu. — Þar sem sjálfur endurlausn- ari heimsins hafði hlolið gisting í gripajötu, þá fyrstu nótt, sem hann dvaldi sýnilegur í mannheimi, þá var það ekki nema sanngjarnt, að húsdýrunum væri sýnd sú mannúð og miskunn, sem höfundur lífsins hafði ætlazt til af skynigæddum mannverum. Nú koma jólin ekki lengur yfir land vort svo kalt og dimmt sem það áður var. Það er að segja, að kuldi og myrkur hefur nú verið yfirunnið að mestu í híbýlum manna. Og Guði sé lof fyrir það! Kerti litla barnsins hefur nú ekki framar svo göfugu hlutverki að gegna, sem það hafði á dögum grútar- lampanna og lítilfjörlegra olíulampa,, því að hvít- skúruð baðstofan varð sem æfintýrahöll, þegar hvert barn hafði sett sitt kerti á sinn rúmstólpa. Ylur og birta kærleikans ljómaði þá á margri annars hrjúfri NÝTT KVENNABLAÐ 1

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.