Morgunblaðið - 14.08.2009, Síða 1
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
íþróttir
Áreiti Það er rosalega mikið áreiti á kvennalandsliðið þessa dagana og því nóg að gera segir
landsliðsþjálfarinn í knattspyrnu, Sigurður Ragnar Eyjólfsson 4
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Undirbúningur Íslenska landsliðið hóf í gær undirbúning fyrir leikinn gegn Serbum í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun.
Hér fylgist Guðni Kjartansson aðstoðarþjálfari spenntur með gangi mála á æfingunni og Þóra B. Helgadóttir er við öllu búin.
JÓHANN Birnir
Guðmundsson
knattspyrnumað-
ur úr Keflavík er
tvíkinnbeinsbrot-
inn og hann leik-
ur því ekki með
Suðurnesjaliðinu
næstu vikurnar.
Jóhann fékk
þungt högg á
andlitið í leikn-
um gegn Breiðabliki um síðustu
helgi með fyrrgreindum afleið-
ingum.
„Þetta uppgötvaðist þegar ég
fór með dóttur mína til læknis í
gær. Stefáni Eggertssyni (faðir
Ólafs Stefánssonar) fannst ég eitt-
hvað undarlegur í framan. Hann
sendi mig þegar í stað í mynda-
töku og þá kom í ljós að ég er
brotinn. Ég fer í aðgerð á morgun
(í dag) en ég stefni á að ná bik-
arúrslitaleiknum í haust,“ sagði
Jóhann við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. gummih@mbl.is
Jóhann Birnir
Guðmundsson
HEIMIR Guðjónsson, þjálfari Ís-
landsmeistara FH í knattspyrnu,
hefur gert nýjan samning við Hafn-
arfjarðarliðið og er nú samnings-
bundinn því út tímabilið 2011.
,,Mér hefur liðið virkilega vel hjá
FH þessi ár sem ég verið hjá liðinu
og það er jákvætt fyrir mig að þeir
menn sem ráða ríkjum hjá félaginu
eru ánægðir með það sem ég er að
gera og vonandi líka þeir frábæru
stuðningsmenn sem við eigum.
Stefnan er að halda áfram á sömu
braut. Liðinu hefur vegnað vel og við
erum hvergi nærri hættir,“ sagði
Heimir við Morgunblaðið í gær og
bætti við; ,,Ég er örugglega einn
auðveldasti samningsmaður sem um
getur í íslenskri knattspyrnu.“
Heimir gerði FH-inga að Íslands-
meisturum í fyrra á sínu fyrsta ári í
þjálfarastarfinu en eftir að hafa verið
aðstoðarmaður Ólafs Jóhannessonar
og þar áður leikmaður og fyrirliði
liðsins tók hann við þjálfun liðsins
eftir tímabilið 2007. FH er á góðri
leið með að verja Íslandsmeistaratit-
ilinn undir stjórn Heimis en liðið hef-
ur 10 stiga forskot á toppnum. ,,Þótt
forskotið sé gott þá megum við
hvergi slaka á. KR er á mikilli sigl-
ingu og því verðum við að vera á tán-
um og einbeittir.“ gummih@mbl.is
,,Líður vel hjá FH“
Heimir Guðjónsson verður áfram í Krikanum næstu árin
Þjálfari meistaranna samdi við FH-inga út tímabilið 2011
BJARNI Ólafur
Eiríksson lands-
liðsmaður í
knattspyrnu og
leikmaður Vals
hélt til Noregs í
gær þar sem
hann verður til
skoðunar hjá
norska úrvals-
deildarliðinu
Vålerenga, sem
er í 9. sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Bjarni Ólafur, sem er 27 ára og
hefur spilað alla leiki Valsmanna í
Pepsi-deildinni í sumar, er samn-
ingsbundinn Hlíðarendaliðinu fram
í nóvember 2011. Hann á að baki 15
leiki með íslenska A-landsliðinu og
var í landsliðshópnum sem gerði 1:1
jafntefli við Slóvaka í fyrrakvöld en
varnarmaðurinn hávaxni sat á
bekknum allan tímann.
gummih@mbl.is
Vålerenga
skoðar Bjarna
Bjarni Ólafur
Eiríksson
Dóra Stefánsdóttir er leikmaður íslenska kvenna-
landsliðsins sem tekur þátt í úrslitakeppni EM í
Finnlandi.
Dóra er 24 ára og leikur sem tengiliður með
landsliðinu en hefur ýmist leikið sem tengiliður
eða bakvörður með liði sínu Malmö í sænsku úr-
valsdeildinni.
Dóra hefur leikið 43 A-landsleiki fyrir Íslands
hönd og skorað í þeim þrjú mörk. Hún var fasta-
maður á miðjunni í leikjum liðsins í undankeppni EM en missti af einum leik
vegna leikbanns og öðrum vegna meiðsla.
Dóra lék með Val þegar hún var hér á Íslandi en samdi svo við Malmö í byrj-
un árs 2006.
Hún hefur leikið 64 leiki í efstu deild á Íslandi og skorað 22 mörk og í
sænsku úrvalsdeildinni hefur hún leikið 64 leiki og skorað 10 mörk.
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í FINNLANDI ER EFTIR 10 DAGA
HÚN FER
Á EM DÓRA STEFÁNSDÓTTIR
Jóhann kinn-
beinsbrotinn