Morgunblaðið - 14.08.2009, Page 2
Tiger Woods ermeð forystu
eftir fyrsta keppn-
isdag á 91. PGA-
meist-
aramótinu
í golfi
sem
hófst í Minnesota í
gær. Woods, sem stefn-
ir á að vinna sitt 71. risa-
mót, lék fyrsta hringinn á 67
höggum eða fimm höggum undir
pari vallarins. Írinn Predraig Harr-
ington fylgir fast á eftir en hann lék á
68 höggum en Harrington á titil að
verja.
Íslenska U21 árs landslið karla íhandknattleik burstaði Norð-
menn, 34:24, í umspili um sæti
13-16 á HM í Egyptlandi í gær.
Íslendingar gerðu út um leikinn í
fyrri hálfleik en staðan í leikhléi
var, 20:11. Ólafur Gústafsson
var markahæstur í íslenska
liðinu með 6 mörk, Oddur
Grétarsson, Rúnar Kára-
son og Ásbjörn Friðriksson
skoruðu 5 mörk hver, Ólaf-
ur Bjarki Ragnarsson og
Guðmundur Árni Ólafsson
4, Anton Rúnarsson 3 og þeir
Bjarni Aron Þórðarson og
Hjálmar Þór Arnarson 1 mark
hver.
David Bentley,leikmaður
enska úrvalsdeild-
arliðsins Totten-
ham, hefur beðið fé-
lagið afsökunar á
hegðan sinni en leik
maðurinn var hand-
tekinn í gær fyrir
ölvunarakstur eftir
að hann ók Porche bifreið sinni á
ljósastaur. Bentley var látinn laus
gegn tryggingu en mál hans verður
tekið fyrir í dómstólum í lok mánaðar-
ins. Bentley hefur ekki verið hátt
skrifaður hjá stuðningsmönnum Tott-
enham enda hefur hann lítið getað síð-
an hann kom til Lundúnaliðsins frá
Blackburn.
Bandaríski landsliðsmaðurinn ClintDempsey framlengdi í gær samn-
ing sinn við enska úrvalsdeildarliðið
Fulham og er hann nú samningsbund-
inn Lundúnaliðinu til ársins 2013.
Demspey skoraði 7 mörk fyrir Fulham
á síðustu leiktíð.
Hannes Jón Jónsson skoraði 2mörk fyrir Hannover Burgdorf
þegar liðið sigraði Wisla Plock, 32:21,
á Sparkassen-mótinu í handknattleik.
Ólafur Stefánsson hafði hægt umsig og skoraði aðeins 1 mark fyrir
Rhein-Neckar Löwen þegar liðið sigr-
aði Wetzlar á þessu sama móti, 36:25.
Uwe Gensheimer fór mikinn í liði
Rhein-Neckar Löwen og skoraði 16
mörk.
Fólk sport@mbl.is
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Knattspyrna
1. deild karla:
KA – Afturelding......................................2:1
David Disztl 41., 55. (víti) - Albert Ásvalds-
son 37.
Víkingur R. – Leiknir R...........................1:2
Marteinn Briem 78. - Ólafur Hrannar
Kristjánsson 74., 89.
Víkingur Ó. – Selfoss ...............................1:6
Brynjar Gauti Guðjónsson - Sævar Þór
Gíslason 2, Hjörtur Júlíus Hjartarson
(víti), Arelíus Marteinsson, Stefán Ragnar
Gunnlaugsson, sjálfsmark.
ÍA – Haukar...............................................0:1
Úlfar Hrafn Pálsson 4.
Staðan:
Selfoss 16 11 2 3 34:18 35
Haukar 16 9 4 3 31:18 31
KA 16 7 5 4 23:15 26
HK 15 8 2 5 27:21 26
Leiknir R. 16 6 6 4 22:20 24
Fjarðabyggð 15 7 2 6 25:25 23
Víkingur R. 16 6 3 7 27:24 21
Þór 15 7 0 8 21:22 21
ÍR 15 6 1 8 27:34 19
ÍA 16 4 5 7 20:23 17
Afturelding 16 3 5 8 17:26 14
Víkingur Ó 16 2 1 13 16:44 7
1. deild kvenna:
HK/Víkingur – Selfoss..............................2:0
Fjarðab./Leiknir – Höttur........................0:3
Staðan:
HK/Víkingur 10 9 0 1 30:12 27
Þróttur R 9 6 1 2 35:10 19
Selfoss 10 5 3 2 23:13 18
Sindri 9 4 1 4 13:19 13
Höttur 10 2 1 7 14:26 7
Fjarðab./Leikn. 10 0 0 10 3:38 0
Enski deildabikarinn:
Dregið var í aðra umferð í gær og lentu eft-
irtalin lið saman, úrvalsdeildarliðin eru
feitletruð, en þau koma nú inn í keppnina
nema þau sem eru í Evrópukeppninni.
WBA - Rotherham
Norwich - Sunderland
Tranmere - Bolton
QPR - Accrington
Bristol City - Carlisle
Leyton Orient - Stoke
Port Vale - Sheffield Wednesday
Hull - Southend
Leeds - Watford
Cardiff - Bristol Rovers
Portsmouth - Hereford
Crystal Palace - Manchester City
Wolves - Swindon
Gillingham - Blackburn
Blackpool - Wigan
Southampton - Birmingham
Preston - Leicester
Newcastle - Huddersfield
West Ham - Millwall
Hartlepool - Burnley
Nottingham Forest - Middlesbrough
Reading - Barnsley
Swansea - Scunthorpe
Doncaster - Tottenham
Peterborough - Ipswich
í kvöld
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Kópavogsvöllur: HK – Þór ...................18.30
ÍR-völlur: ÍR – Fjarðabyggð................19.00
2. deild karla:
Njarðtaksvöllurinn.: Njarðvík – Víðir.19.00
3. deild karla:
Bessastaðav.: KFK – Skallagrímur.....19.00
Búðagrund: Leiknir F. – Einherji .......19.00
Boginn: Draupnir – Huginn .................20.00
MÓTENEFND KSÍ mun í dag
eða í síðasta lagi á morgun ákveða
hvort hún verður við beiðni Grind-
víkinga um að fá leik liðsins gegn
ÍBV sem fram á að fara á sunnu-
dagskvöldið frestað um óákveðinn
tíma. Skæður inflúensufaraldur
hefur leikið leikmenn liðsins grátt
og í gær voru 10 leikmenn komnir
með inflúensueinkenni. Fljótlega
beindist grunur manna að því að
um svokallaða svínaflensu gæti
verið að ræða og í gær fékkst það staðfest af lækni að
Óli Stefán Flóventsson er með svínaflensu en nið-
urstaðna úr fleiri sýnum sem tekin voru af leik-
mönnum er að vænta í dag. ,,Ég hef nú lent í ýmsu
sem þjálfari og leikmaður en þetta er alveg ný
reynsla. Loksins þegar liðið var að komast á skrið þá
gerist þetta,“ sagði Lúkas Kostic, þjálfari Grindvík-
inga, í samtali við Morgunblaðið í gær. Í bréfi sem
Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur, sendi til mótanefndar KSÍ segir meðal
annars: ,,Óski KSÍ eftir læknisvottorðum er það sjálf-
sagt mál en það gæti tekið einhvern tíma að safna
þeim saman því flestir leikmennirnir eru rúmliggj-
andi. Rétt er að taka fram að okkur er nauðugur einn
kostur að biðja um þessa frestun. Hún er alls ekki í
okkar þágu því við missum einn af okkar lyk-
ilmönnum, Boga Rafn Einarsson, í nám til Bandaríkj-
anna eftir helgi. Ástandið er einfaldlega þannig að
það er ekki forsvaranlegt að spila leikinn á sunnudag-
inn við þessar aðstæður.“ gummih@mbl.is
Svínaflensa í herbúðum Grindvíkinga
Óli Stefán
Flóventsson
Eftir Guðmund Hilmarsson
og Stefán Stefánsson
Það var blaðburðardrengurinn Úlfar
Hrafn Pálsson sem tryggði Hauk-
unum sigurinn þegar hann skoraði
eina mark leiksins strax á 4. mínútu.
Haukur er tvítugur að aldri og lætur
sig ekki muna um að bera út Morg-
unblaðið á hverjum morgni.
„Þetta var ótrúlega sætur sigur og
það er góður gangur á okkur þessa
dagana,“ sagði Andri Marteinsson,
þjálfari Hauka, við Morgunblaðið, eft-
ir sigurinn á ÍA. Spurður hvort leiðin
lægi upp í efstu deild sagði Andri: „Við
settum okkur markmið eftir fyrri um-
ferðina og það var að ná sæti í Pepsi-
deildinni. Það hefur ekkert breyst og
ég tel okkur alveg hafa burði til þess
að ná þessu markmiði. Við erum ekk-
ert síðri en öll liðin í deildinni og nú er
það bara undir drengjunum komið
hvort við förum upp eða ekki. Sigurinn
á Skagamönnum var mikill baráttu-
sigur og hann gefur okkur byr undir
báða vængi,“ sagði Andri.
Skipulag Leiknis gekk upp
„Svakalega er gaman að koma hing-
að í Víkina og taka þrjú stig, það er
ekki oft sem það gerist og draumurinn
að skora tvö mörk. Það er ekkert
skemmtilegra en að geta tryggt liðinu
sínu sigur enda gerir maður hvað sem
er fyrir klúbbinn,“ sagði Ólafur
Hrannar Kristjánsson, sem skoraði
bæði mörk Leiknis í 2:1-sigri í Víkinni
í gærkvöldi. Með sigrinum stukku
Breiðhyltingar upp í 4. sæti deild-
arinnar en Fossvogsbúar verða að
sætta sig við það sjöunda.
Leiknir fékk fyrsta færi leiksins en
hálftími leið áður en Víkingar fóru að
feta sig nær marki Leiknis og skapa
sér færi. Þau voru hins vegar fæst
hættuleg því vörn Leiknis barðist vel.
Á 61. mínútu fékk Víkingurinn Grétar
Ali Khan sitt annað gula spjald og var
vikið af velli en það virtist vekja Vík-
inga, sem sóttu af meiri krafti enda
fóru þeir loks að vanda sóknarleikinn.
Leiknismenn hins vegar sættu færis
og Ólafur Hrannar skoraði á 74. mín-
útu eftir snarpa sókn. Marteinn Briem
jafnaði fjórum mínútum síðar en hann
kom inn á sjö mínútum áður. Víkingar
héldu áfram að sækja en fóru svo út í
að halda fengnum hlut og það kann
sjaldnast góðri lukku að stýra enda
sóttu Leiknismenn stíft þar til Ólafur
Hrannar skoraði aftur. Það gekk því
allt upp samkvæmt markahróknum.
„Við komum skipulagðir til leiks, vor-
um þéttir fyrir og héldum Víkingum
vel frá okkur svo þeir komust ekki í
mörg færi, en svo sóttum við hratt og
Víkingar voru í basli með það. Við
bara gerðum það sem við þurftum að
gera,“ hélt Ólafur Hrannar áfram,
ánægður með gengi liðsins. „Við sett-
um okkur ekki markmið fyrir mótið,
ætluðum bara að mæta í það, sem
gekk ekki vel fyrstu leikina. Svo tók-
um við gott spjall og ákváðum að taka
einn leik fyrir í einu, sem hefur gefist
vel. Við höfum bara tapað einum af ell-
efu síðustu, sem segir sitthvað um
hvað þetta lið getur gert.“
Leifur S. Garðarsson, þjálfari Vík-
inga, var eðlilega ekki sáttur. „Við vor-
um betri ellefu og líka tíu en þeir skor-
uðu fleiri mörk. Við ætluðum að vera
þéttir í vörninni og sækja svo en ég
ætla ekki að falla í þá gryfju að segja
að við séum miklu betra lið því Leiknir
vann. Við vorum með boltann 85% af
leiknum en við verðum að nýta færin
til að vinna leik, þetta gengur út á að
skora fleiri mörk en hinir og vera vak-
andi í varnarleiknum. Við gáfum mörk
og gerðum ekki út um færin okkar,“
sagði Leifur eftir leikinn.
Morgunblaðið/Ómar
Barátta Það var hart tekist á í leik Víkings og Leiknis í Víkinni í gær þar sem Leiknir hafði betur.
HAUKAR eru á góðri siglingu í 1. deild-
inni en Hafnarfjarðarliðið vann mikinn
baráttusigur á Skagamönnum á Akra-
nesvelli í gærkvöldi. 1:0 urðu lokatöl-
urnar og Haukarnir eru í góðum málum
í 2. sæti deildarinnar, fimm stigum á
undan KA-mönnum, en Selfyssingar
tróna á toppi deildarinnar.
Haukarnir stefna
á Pepsi-deildina
Haukar lögðu ÍA á útivelli Leiknir R. fagnaði sigri í Víkinni
HANDKNATTLEIKSMAÐURINN Hjalti
Pálmason er á leið til nýliða Gróttu samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Hjalti hefur und-
anfarin ár leikið með Val og er einn leikreynd-
asti leikmaður liðsins en þar áður lék hann með
Víkingum.
Ekki hefur verið formlega gengið frá fé-
lagsskiptum Hjalta úr Val í Gróttu en fátt mun
vera til fyrirstöðu í þeim efnum eftir því sem
heimildir herma. Hjalti mun gera tveggja ára
samning við Seltirninga.
Lið Gróttu komst upp í N1-deild karla, úrvals-
deild, í vor eftir að hafa unnið 1. deildina nokkuð
örugglega. Halldór Ingólfsson var ráðinn þjálfari
liðsins í vor eftir að fráfarandi þjálfari, Ágúst Jó-
hannsson, flutti til Noregs.
Hjalti er á leið til ný
ENSKA 2.
deildar liðið
Hartlepool
hefur mikinn
áhuga á að fá
Ármann
Smára Björns-
son til liðs við
sig frá Brann í
Noregi. Samn-
ingur Ár-
manns við
Brann rennur út í haust en hann
hefur ekki fengið ýkja mörg
tækifæri með liðinu á þessari
leiktíð.
„Ég veit lítið um þessi mál. Það
eru einhverjar þreifingar í gangi
og maður hefur heyrt utan að sér
að enskt lið hafi verið með fyrir-
spurnir en það hefur enginn talað
við mig ennþá, hvorki frá Brann
né Hartlepool,“ sagði Ármann
Smári við Morgunblaðið í gær.
Spurður hvort hann væri tilbú-
inn að halda kyrru fyrir hjá
Brann sagði Ármann: „Ég er ekki
ánægður með hversu lítið ég fæ
að spila og auðvitað horfi ég á
það. Ég er hins vegar opinn fyrir
öllu.“ gummih@mbl.is
Ármann til
Hartlepool?
Ármann Smári
Björnsson