Morgunblaðið - 14.08.2009, Side 3
-
k-
-
-
m
r
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
LANDSLIÐSMAÐURINN Emil
Hallfreðsson heldur í dag til Barns-
ley og að öllu óbreyttu mun hann
skrifa undir samning við enska 1.
deildarliðið.
Emil kom til London í gær og
hann heldur með umboðsmanni sín-
um til Barnsley í dag þar sem hann
gengst undir læknisskoðun og í
framhaldinu mun hann svo rita
nafn sitt undir samning. Um láns-
samning er að ræða en Emil, sem
stóð sig vel með íslenska landslið-
inu gegn Slóvökum í fyrrakvöld, er
samningsbundinn ítalska liðinu
Reggina sem féll úr A-deildinni í
vor. Ákvæði
verða í samn-
ingnum að
Barnsley geti
gert samning til
frambúðar við
Emil standi hann
undir væntingum
með liðinu.
,,Ég geri ekki
ráð fyrir öðru en
að þetta klárist á morgun (í dag).
Það eru allar líkur á því. Ég veit
ekki hvort ég spila með Barnsley á
laugardaginn en auðvitað yrði gam-
an ef það gengi upp. Samningurinn
á milli mín og Barnsley er nánast
klár svo í raun er það bara lækn-
isskoðunin sem er eftir,“ sagði Em-
Emil að ganga frá
samningi við Barnsley
Emil Hallfreðsson
fengið gefins
horn. Í horninu
virtist sem
brotið
hefði
verið á
Sandor Matus
þannig að hann náði
ekki í boltann. Knötturinn féll
hins vegar á tærnar á Alberti Ás-
valdssyni sem potaði honum í autt
markið. KA jafnaði um hæl þegar
David Disztl var fyrstur á boltann
eftir hornspyrnu sem kom niðri á
nærstöng. Í seinni hálfleiknum
voru heimamenn mun sterkari en
sköpuðu lítið af færum. Það var
svo vítið fræga sem dæmt var á
56. mínútu sem gerði gæfumuninn
og KA náði þremur stigum í hús.
Haukur Heiðar Hauksson, hinn
þindarlausi sóknarbakvörður KA,
var sáttur með niðurstöðuna og
ákveðinn í að halda áfram á sig-
urbraut. „Þetta var baráttuleikur
og góður sigur hjá okkur. Við er-
um búnir að vera í basli í síðustu
leikjum en sýndum karakter með
því að sigra Fjarðabyggð fyrir
austan með vængbrotið lið og er-
um nú komnir aftur í rétta gírinn.
Næsti leikur við Hauka er mjög
mikilvægur og þar ætlum við að
taka þrjú stig og ekkert annað.“
Spurður um vítaspyrnudóminn
sagði Haukur Heiðar: „Ég var
ekki búinn að sjá umræðuna á
netinu um þetta en vissi bara að
það var langt síðan síðasta víti
var dæmt. Ég hef ekki
hugmynd um hvort
umræðan hefur
haft nokkur áhrif
á dómarann eða að
hann hefur vitað af henni. Ég
efast nú um það en hins vegar eig-
um við að vera búnir að fá einhver
víti í sumar svo við áttum nú alveg
innistæðu fyrir þessu.“ Með það
kvaddi Haukur sæll með afrakstur
kvöldsins.
Selfoss skellti
Víkingum í Ólafsvík
Topplið Selfyssinga skellti lán-
lausum Víkingum á Ólafsvík, 6:1,
og fátt getur komið í veg fyrir að
Víkingarnir kveðji 1. deildina í
haust. Heimamenn náðu forystu
eftir 8 mínútna leik þegar Brynjar
Gauti Guðjónsson skoraði en Sel-
fyssingar létu þetta ekkert á sig
fá. Sævar Þór Gíslason skoraði
tvívegis fyrir Selfyssinga, Hjörtur
Júlíus Hjartarson, Arelíus Mar-
teinsson og Stefán Ragnar Gunn-
laugsson gerðu sitt markið hver
og Dalibor Nedic varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark.
Öflugur Dean
Martin er leik-
maður og þjálfari
KA-liðsins í knatt-
spyrnu sem vann
baráttusigur gegn
Aftureldingu á
heimavelli í gær.
David Ditszl tryggði KA-mönnum sigur sem
ekki höfðu fengið vítaspyrnu í 47 leikjum í röð
KA lagði Aftur-
eldingu 2:1 í 1. deild karla í
knattspyrnu á Akureyri þar sem
þau undur og stórmerki urðu að KA-
menn fengu dæmda vítaspyrnu.
Loks fékk KA
vítaspyrnu
Eftir Einar Sigtryggson
sport@mbl.is
Úr vítaspyrnunni skoraði David
Disztl og var það sigurmark leiks-
ins. Fyrir leikinn var Gunnar
Níelsson, hinn landsfrægi stuðn-
ingsmaður KA, búinn að fletta í
sögubókunum og finna út að KA
hafði hvorki fengið vítaspyrnu í
deild né bikar í heil tvö ár. Leik-
irnir voru orðnir 47 en eftir 4.289
mínútna vítaþurrð flautaði Þór-
oddur Hjaltalín vítaspyrnu
þegar boltinn hrökk í hönd-
ina á varnarmanni Aftureld-
ingar. Vissulega nokkuð
harkalegt en KA-menn
voru lítið að velta því
fyrir sér.
Annars var leikurinn
fremur tíðindalítill,
jafnræði lengstum í
fyrri hálfleik en und-
ir lok hans fór að
draga til tíðinda.
Gestirnir skoruðu
fyrst eftir að hafa
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
Ján Mucha,markvörður
Slóvaka í knatt-
spyrnu, stóð í
markinu í fyrri
hálfleik í fyrra-
kvöld þegar Ís-
land og Slóvakía
gerðu 1:1 jafn-
tefli í vin-
áttulandsleik. Markvörðurinn á
bróður sem leikur hér á landi, en sá
heitir Matús Mucha og leikur með
Árborg í 3. deildinni. Matús, líkt og
bróðir hans, stendur á milli stang-
anna hjá sínu liði.
Egill Jónasson mun leika meðNjarðvíkingum í körfunni í
vetur en hann var við nám í Dan-
mörku í fyrravetur og gat lítið leik-
ið þar vegna meiðsla. Egill, sem er
mjög hávaxinn miðherji, er uppal-
inn hjá Njarðvíkingum.
Hamarsmenn í Hveragerði hafagengið frá samningi við
Andre Dabney um að hann leiki
með liðinu í körfuboltanum í vetur.
Dabney er lítill og snöggur leik-
stjórnandi og lék hann í Argentínu
í vetur en var áður í Blookfield-
skólanum í NCAA II deildinni og
var þar með 24,6 stig að meðaltali í
leik og gaf 3,6 stoðsendingar að
meðaltali.
Manuel Neu-er, mark-
vörður Schalke í
Þýskalandi, er
nú undir smásjá
Sir Alex Fergu-
son, stjóra Man-
chester Unted.
Neuer þykir eitt
mesta efni Þjóð-
verja og er Bayern München einnig
sagt áhugasamt um leikmanninn.
Ekkert tilboð hefur þó enn borist í
markvörðinn hávaxna, sem er mik-
ill aðdáandi Jens Lehman, fyrrver-
andi markvarðar Schalke.
Brasilíumaðurinn Romario, semlagði skóna á hilluna árið 2007,
þá 41 árs, hefur tekið upp takkas-
kóna að nýju. Hann hyggst leika
einn eða tvo leiki með América í
heimalandi sínu, en það var helsta
ósk föður hans heitins að sonur
sinn léki með þessu uppáhaldsliði
sínu.
Argent-ínumað-
urinn Ossie
Ardiles, sem
lengi lék með
Tottenham
Hotspurs á ní-
unda áratugn-
um, segist nú
glaður vilja
taka við stjórnartaumum New-
castle, en hann stýrði liðinu árið
1991-92, áður en Kevin Keegan tók
við. Ardiles sagði þó að eflaust
gengi það ekki eftir, en hann stýrði
síðast liði Cerro Portano í Para-
gvæ.
Michael Mancienne, varn-armaður Chelsea, hefur verið
lánaður til Wolves og mun hann
leika með nýliðunum í ensku úr-
valsdeildinni á komandi leiktíð.
Mancienne er U21 landsliði Eng-
lands og hann ekki er alveg
ókunnugur Úlfunum því hann var í
láni hjá liðinu í tvo mánuði á síð-
ustu leiktíð og stóð sig afar vel.
Portsmouth, lið HermannsHreiðarssonar, hefur náð
samningnum við ítalska liðið Genúa
um að fá belgíska landsliðsmanninn
Anthony Vanden Borre að láni.
Leikmaðurinn er 21 árs gamall og
getur bæði spilað sem bakvörður
og miðjumaður
Fólk sport@mbl.is
Auk Hjalta gengu Gísli Guðmundsson og Jón
Karl Björnsson m.a. til liðs við Gróttu fyrr í
sumar. iben@mbl.is
ýliða Gróttu
Vistaskipti Hjalti Pálmason er á leið í Gróttu
DAVID Beckham, einn frægasti knattspyrnu-
maður veraldar, segist nokkuð viss um að hann
snúi aftur til Evrópu þegar samningur hans hjá
LA Galaxy í Bandaríkjunum rennur út um ára-
mótin. Kemur AC Milan þar sterklega til greina,
þar sem hann var á láni á síðasta keppn-
istímabili.
Fabio Capello, landsliðseinvaldur Englendinga,
sagði að ef Beckham vildi eiga víst sæti í liði
sínu yrði hann að spila í Evrópu, enda mestu
gæðin þar að finna.
Útilokar ekki að fara aftur til Englands
„Nú einbeiti ég mér að tímabilinu með Galaxy.
Þegar því lýkur, eftir nokkra mánuði, mun ég
gera áætlanir. En það er nokkuð sem ég vissi
fyrir. Ég er 95-99% viss um að
það gangi eftir. Það er ákvörð-
un sem ég þarf að taka í sam-
ráði við félagið. Fer ég aftur til
Englands? Ég veit það ekki,
maður veit aldrei. Ég naut tím-
ans hjá AC Milan, án þess að
vita hvort það gangi eftir að ég
fari þangað aftur, en þeir vilja
fá mig þangað á ný. AC Milan
er með eitt besta lið í heimi, en
ég hef enn nokkra mánuði til
að ákveða mig,“ sagði Beckham við fréttastofu
Sky en hann lék með Englendingum í Amst-
erdam í fyrrakvöld þegar Holland og England
skildu jöfn, 2:2. trausti@mbl.is
David Beckham aftur til AC Milan?
David
Beckham
il í samtali við Morgunblaðið í gær
en Barnsley tekur á móti Aroni
Einari Gunnarssyni og félögum
hans í Coventry í fyrsta heima-
leiknum í 1. deildinni á þessu tíma-
bili á morgun.
Simon Davey, knattspyrnustjóri
Barnsley, sagði í viðtölum við
enska fjölmiðla í gær að hann gerði
sér góðar vonir um að ganga frá
samningi við Emil í dag en hann
hefur lagt hart að forráðamönnum
félagsins að fá Emil til liðs við
Barnsley.
,,Við eigum enn eftir að fá leik-
heimild frá Knattspyrnusambandi
Íslands svo ég reikna ekki með því
að hann nái leiknum á móti Cov-
entry,“ sagði Davey.