Morgunblaðið - 14.08.2009, Page 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2009
GOLF og rugby, þar sem sjö leikmenn eru inná
í hvoru liði, verða líklegast nýjar greinar á Ól-
ympíuleikunum í Berlín 2016. Framkvæmda-
stjórn Alþjóða ólympíunefndarinnar samþykkti
þetta á fundi sínum í gær en fyrirvari er þó enn
á og endanleg niðurstaða verður tekin á fundi
nefndarinnar í Kaupmannahöfn í október.
Mjúkbolti, skvass, hafnabolti, karate og
hjólaskautar verða að bíða eitthvað eftir að
verða samþykkt á leikana, en sóst hefur verið
eftir því að þessar greinar verði á leikunum.
Golf var ólympíugrein fyrir margt löngu, en
síðast var leikið golf á Ólympíuleikum árið
1904.
Mikið hefur verið rætt um hvort bestu kylf-
ingar heims muni mæta á
leikana. Tiger Woods til-
kynnti í gær að hann myndi
mæta og Jacques Rogge,
forseti Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, segist ekki
óttast að bestu kylfingarnir
láti ekki sjá sig. „Þessu var
einnig haldið fram þegar
tennis og íshokkí voru nýjar
greinar en allir bestu tenn-
isspilarar heims mæta á Ól-
ympíuleika og ég er viss um að bestu kylfingar
heims munu mæta á leikana,“ sagði Rogge.
skuli@mbl.is
Golf og rugby á Ólympíuleika
Tiger Woods á
Ólympíuleika.
FIMM íslenskir kylfingar hófu leik á opna
finnska áhugamannamótinu í golfi í gær og
léku flestir með miklum ágætum.
Hlynur Geir Hjartarson úr GK lék manna
best, en hann lauk leik á 69 höggum eða
tveimur höggum undir pari vallarins og er í
4. til 11. sæti, en sá sem lék best er á fimm
höggum undir pari.
Alfreð Brynjar Kristinsson úr GR lék á pari
og er í 18. til 24. sæti og eru þeir báðir fyrir
ofan strik hvað varðar að komast áfram en
um 40 komast áfram á þriðja og síðasta hring
eftir morgundaginn. Ólafur Björn Loftsson
úr NK náði sér ekki á strik í gær og lék á fjór-
um höggum yfir pari og þarf að bæta sig til að
komast áfram á lokahring-
inn á laugardaginn. 93
kylfingar eru í karlaflokki
en hjá konunum eru 36
keppendur og verður þeim
fækkað í 18 eða því sem
næst eftir tvo daga.
Valdís Þóra Jónsdóttir
úr Leyni lék í gær á fjórum
höggum yfir pari vallarins
og er í 12. til 15. sæti en
Eygló Myrra Óskarsdóttir
úr Oddi lék á fimm höggum yfir pari og er í
16. til 20. sæti. Sú sem lék best í gær lék á
tveimur undir pari. skuli@mbl.is
Hlynur Geir meðal efstu manna
Hlynur Geir
Hjartarson
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
SIGURÐUR Ragnar lítur þó á
björtu hliðarnar á þessu öllu saman.
„Mikið áreiti er betra en ekkert, en
það hefur kannski verið akkiles-
arhællinn í kvennafótboltanum í
gegnum tíðina. Nú hins vegar
bregður svo við að allir fjölmiðlar
vilja tala við stelpurnar og kast-
ljósið er á þeim, ekki bara hérna
heima heldur frá mörgum erlendum
aðilum líka. Það er bara jákvætt að
fá alla þessa athygli en það getur
líka reynt á en við reynum að láta
þetta ekki trufla okkur. Við beinum
öllum beiðnum um viðtöl til Ómars
Smárasonar hjá KSÍ og hann skipu-
leggur þetta fyrir okkur,“ sagði Sig-
urður Ragnar.
Erna Steina tognaði
Hann sagði að ástandið á leik-
mannahópnum væri gott. „Ástandið
er fínt nema hvað Erna Steina
[Arnardóttir] tognaði á ökkla á æf-
ingu í gær og við vitum ekki ná-
kvæmlega ennþá hversu slæm togn-
unin er,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Hann neitaði því ekki að nokkur
spenningur væri kominn í hópinn.
„Jú, jú, það er aðeins farið að örla á
spenningi enda verður þetta hrein-
asta ævintýri fyrir stelpurnar og við
erum staðráðin í að láta þetta verða
rosalega skemmtilegt.
Við spilum við Serbíu á laug-
ardaginn og síðan erum við að
reyna að fá æfingaleik við eitthvert
lið hér heima á sunnudag eða mánu-
dag, fyrir þær stelpur sem spila
ekki í leiknum á laugardaginn. Við
förum síðan út föstudaginn 21.
ágúst og fyrsti leikur hjá okkur er
síðan mánudaginn 24. ágúst.
Spennandi að sjá myndina
Annars er aðalspenningurinn hjá
okkur í dag að sjá bíómyndina á for-
sýningu í kvöld,“ sagði Sigurður
Ragnar en í dag verður kvikmynd
um íslenska kvennalandsliðið frum-
sýnd. Myndina, sem heitir Stelp-
urnar okkar, unnu þær Þóra Tóm-
asdóttir og Hrafnhildur Gunnars-
dóttir og hafa þær fylgst með liðinu
síðustu tvö árin þannig að myndin
ætti að gefa góða mynd af leið liðs-
ins í úrslitakeppni EM.
„Þær hafa fylgt okkur í tvö ár
þannig að það er mikil spenna að
sjá hvernig þetta kemur út hjá
þeim,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Tekur áhættu með leiknum
Hann sagði vissulega dálítið
furðulegt að leika í undankeppni
HM svona stuttu áður en farið er í
lokakeppni EM. „Ég vildi fá leik á
þessum tíma og við ræddum við
flestallar þjóðir í Evrópu en það
vildi engin koma og leika við okkur
hér heima á þessum tíma. Það má
segja að við sláum tvær flugur í
einu höggi með því að fá þennan
leik núna, en það er áhætta sem ég
tek og vonast til að við fáum fullt af
áhorfendum og náum að sigra. Það
yrði mikil lyftistöng fyrir stelpurnar
ef það tækist hvort tveggja, en mað-
ur veit auðvitað aldrei hvernig þessi
fótbolti er. En ég held að ef þetta
tekst þá sé það flott veganesti á
EM. Þetta var planið og vonandi
gengur það upp hjá okkur,“ sagði
Sigurður Ragnar.
Áhætta að spila núna
Engin Evrópuþjóð vildi spila vináttuleik við íslensku stelpurnar „Yrði mikil
lyftistöng fyrir stelpurnar ef við næðum sigri og fengjum fullt af áhorfendum“
Morgunblaðið/Eggert
Fjör Margrét L. Viðarsdóttir, Rakel Logadóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir og Þóra B. Helgadóttir á æfingu í gær.
Í HNOTSKURN
»„Stelpurnar okkar“, kvik-mynd um kvennalands-
liðið, var forsýnd í gærkvöldi
og mætti kvennalandsliðið
auðvitað til að sjá afrakstur
tveggja ára vinnu.
»Sigurður Ragnar lands-liðsþjálfari segist vita lítið
um serbneska liðið, en þetta er
í þriðja sinn á þremur árum
sem þjóðirnar mætast. Ísland
vann 5:0 hér heima 2007 og 4:0
ytra 2008.
„Það er rosalega mikið áreiti á
kvennalandsliðið þessa dagana og
því nóg að gera,“ sagði Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, við Morg-
unblaðið í gær. Landsliðið mætir
Serbíu á Laugardalsvelli á laugardag-
inn og er það fyrsti leikur liðsins í
undankeppni HM. Síðan liggur leiðin
til Finnlands þar sem liðið tekur þátt
í lokakeppni Evrópumótsins.
Ásta Árna-dóttir,
landsliðskona í
knattspyrnu og
leikmaður Ty-
resö í Svíþjóð, er
meðal annars
þekkt fyrir löng
innköst sem hún
tekur með því að
fara í kraftstökk. Knattspyrnu-
samband Evrópu, UEFA, er búið að
setja inn á heimasíðu sína myndband
þar sem Ásta sýnir hvernig hún tek-
ur innköstin.
Á heimasíðu UEFA má einnig sjáviðtal við Margréti Láru Við-
arsdóttur þar sem hún ræðir um
EM í Finnlandi og segir þar meðal
annars: „Liðið, starfsfólk KSÍ og allt
landið bíða bara eftir mótinu í Finn-
landi. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir
Ísland, efnahagsmálin eru í lama-
sessi og því viljum við færa þjóðinni
eitthvað jákvætt og við vitum að við
höfum stuðning allra. Við erum mjög
spenntar.“
Fabio Canna-varo, fyr-
irliði heimsmeist-
ara Ítala í
knattspyrnu, sló
landsleikjamet
fyrir Ítalíu í
fyrrakvöld þegar
Ítalía og Sviss
gerðu markalaust
jafntefli í Basel. Cannavaro lék sinn
127. landsleik en fyrir leikinn deildi
hann metinu með goðsögninni Paolo
Maldini. ,,Það er mikill heiður að
spila í þessari skyrtu og það einu
sinni og það er draumur allra frá því
á unga aldri að spila fyrir sína þjóð,“
sagði Cannavaro við fréttamenn eft-
ir leikinn.
Hvít-RússinnAliaksandr
Hleb sem er kom-
inn til þýska liðs-
ins Stuttgart í
láni frá Evrópu-
og Spánarmeist-
urum Barcelona
viðurkennir að
það hafi verið
mistök hjá sér að
yfirgefa Arsenal
síðastliðið sumar. ,,Að sjálfsögðu sé
ég eftir því að hafa farið frá Arsenal.
Ég spilaði í hverri viku með einu
mest spennandi liði í Evrópu, liði
sem var alltaf í hópi fjögurra efstu
liða í ensku úrvalsdeildinni og var í
Meistaradeildinni,“ sagði Hleb í við-
tali við sjónvarpsstöðina ESPN en
hann fékk fá tækifæri með Börsung-
um á síðustu leiktíð.
Nemanja Matic, ungur miðvall-arleikmaður frá Serbíu, geng-
ur í dag í raðir Chelsea frá MFK Ko-
sice, standist hann læknisskoðun.
Er kaupverðið sagt fimm milljónir
punda og gerir Matic fjögurra ára
samning við félagið. Þó er búist við
að Matic verði lánaður aftur til Ko-
sice út næstu leiktíð.
Fólk sport@mbl.is
Skotar sóttu Norðmenn heim til
Osló í undankeppni HM þar sem
þeir töpuðu, 4:0, en þjóðirnar leika í
sama riðli og Íslendingar.
,,HM-draumur Skota er í tætlum
eftir eina mestu niðurlægingu í sög-
unni,“ segir í umfjöllun Daily Mail.
,,Burley er undir miklum þrýstingi
og það skiljanlega því hann hefur
aðeins náð að
stýra liðinu til
sigurs í tveimur
leikjum af níu og
þeir sigrar komu
báðir gegn Ís-
landi,“ segir í
Daily Mail.
,,Burley varð
fyrir niðurlæg-
ingu í Osló,“ er
fyrirsögnin í The Scotsman en blað-
ið kallar eftir því að hinn 39 ára
gamli miðvörður, David Weir, verði
kallaður inn í tvo síðustu leiki Skota
í riðlinum.
,,Það voru ekki háar og langar
sendingar lærisveina Egils Olsen
sem braut skoska liðið niður heldur
langur armur laganna. Tvö gul
spjöld á tveimur mínútum sem
Gary Caldwell fékk var áfall sem
liðið réði ekki við,“ segir í Guardi-
an.
,,Svarti herinn sem í eru dygg-
ustu stuðningsmenn skoska lands-
liðsins voru æfir eftir leikinn og
þeir kröfðust að landsliðsþjálfarinn
George Burley yrði látinn taka pok-
ann sinn en ósigurinn í fyrrakvöld
er sá versti hjá Skotum í sex ár eða
frá því þeir töpuðu, 6:0, fyrir Hol-
lendingum.
Skotar, Makedóníumenn og
Norðmenn berjast um annað sætið
í riðlinum. Skotar og Makedóníu-
menn hafa 7 stig og Norðmenn 6 en
öll eiga liðin eftir tvo leiki. Skotar
eiga heimaleiki gegn Makedóníu og
Hollandi, Norðmenn mæta Íslandi
á útivelli og Makedóníu heima.
gummih@mbl.is
Vilja að Burley verði látinn víkja
Skotar hafa aðeins unnið tvo leiki undir stjórn Burley, báða gegn Íslandi
SKOSKA landsliðið og ekki síst lands-
liðsþjálfarinn George Burley fá harða
gagnrýni eftir skellinn gegn Norð-
mönnum í fyrrakvöld.
George Burley