Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
2 Fréttir
! "!
#$
$
%&
!'
($
()& *( *+ ,
( %'!$-
.*
'#$-
.*
!"
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björgvin Guðmundsson, frétta-
stjóri, bjorgvin@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími
5691110 Prentun Landsprent ehf.
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„ÞAÐ voru engar atkvæðagreiðslur
eða handauppréttingar um eitt né
neitt. Þetta var fyrst og fremst upp-
lýsingafundur fyrir kröfuhafa þar
sem við fórum meðal annars í gegn-
um söluna á Bakkavör til félags okk-
ar bræðra,“ segir Ágúst Guðmunds-
son. stjórnarmaður í Exista og
forstjóri Bakkavarar Group.
Umræddur fundur var haldinn í
London seinni part síðustu viku.
Þangað var boðið fulltrúum 37 er-
lendra fjármálastofnana sem standa
að sambankaláni til Exista. Auk
þeirra voru umboðsmenn innlendra
kröfuhafa eins og lífeyrissjóða.
Spurt um stuðning við tillögu
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins kom fram óformleg spurn-
ing á fundinum frá fulltrúa erlends
banka um hvort allir sem standa að
sambankaláninu væru búnir að sam-
þykkja tillögu stjórnar Exista um
áframhaldandi rekstur félagsins.
Stjórnendur Exista töluðu þannig.
Aðrir svöruðu nei og ítrekuðu að
ekkert væri formlega samþykkt.
Ágúst segir enga ákvörðun hafa
legið fyrir þessum fundi. Viðskiptin
með Bakkavör hefðu verið útskýrð
sem og staða félagsins almennt.
Einnig hefði verið farið yfir rekstur
dótturfélaga fyrstu átta mánuði
þessa árs. Þá hefði KPMG í London
kynnt kröfuhöfum hvert endur-
greiðsluhlutfall lána yrði miðað við
ákveðnar forsendur; ef félagið færi í
þrot eða farið yrði eftir tillögum
stjórnarinnar.
Spurður hvort undirritun skjals,
sem fulltrúar erlendu kröfuhafanna
skrifuðu undir til að fá aðgang að
upplýsingum um stöðu félagsins,
hefði verið túlkað sem stuðningsyfir-
lýsing við þeirra tillögur segir Ágúst
svo ekki vera. Þeir sem vildu fá að-
gang að gögnum um Exista hefðu
undirritað trúnaðaryfirlýsingu um
að miðla þeim gögnum ekki áfram.
Stuðningur við endurreisn
Exista enn ekki staðfestur
Bakkabræður funduðu með lánardrottnum Exista og útskýrðu Bakkavararviðskiptin
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnendur Ágúst Guðmundsson segir enga ákvörðun hafa átt að taka á
fundi með lánardrottnum Exista í London í síðustu viku.
Í HNOTSKURN
»Því hefur verið haldiðfram að 37 alþjóðlegir
bankar, sem standi að sam-
bankaláni Exista, styðji áætl-
un stjórnar Exista. Ekkert
samkomulag er þó undirritað.
»Meðal þessara alþjóðlegubanka eru Bayerische
Landesbank, Deutsche Bank,
RBS og Barclays.
»Stórir íslenskir lífeyris-sjóðir eins og Gildi og LSR
voru ekki tilbúnir að sam-
þykkja áætlunina.
»Exista á Skipti, VÍS, Lífís,og Lýsingu.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
KAUPMÁTTUR launa minnkaði um
0,5% í ágúst frá fyrra mánuði. Síð-
astliðna tólf mánuði hefur kaupmátt-
urinn minnkað um 7,8%, samkvæmt
tilkynningu frá Hagstofu Íslands.
Launavísitala Hagstofunnar
hækkaði um 0,02% milli júlí og ágúst
og hefur hækkað um 2,2% síðast-
liðna tólf mánuði. Á sama tímabili
hefur vísitala neysluverðs hins vegar
hækkað um 10,9% og kaupmátturinn
því minnkað.
Í byrjun þessa mánaðar birti Hag-
stofan upplýsingar um launabreyt-
ingar á öðrum fjórðungi þessa árs,
sundurgreint fyrir opinbera starfs-
menn, annars vegar, og starfsmenn
á almennum vinnumarkaði, hins veg-
ar. Í ljós kom að laun opinberra
starfsmanna hefðu hækkað um 9,5%
frá júní 2008 til júní 2009 en laun á al-
mennum vinnumarkaði hefðu hins
vegar aðeins hækkað um 1,2%. Sér-
fræðingur á Hagstofunni útskýrði
þennan mun í Morgunblaðinu þann-
ig, að áhrifa umsaminna hækkana
kjarasamninga gætti á mismunandi
tímum, sérstaklega þar sem opinber-
ir starfsmenn fylgdu frekar á eftir
starfsmönnum á almennum markaði.
Stefán Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri BHM, segir að auk
þessa hafi til að mynda styrkir til vís-
indasjóðs BHM-starfsfólks verið
færðir inn í launatöflu á síðasta ári,
auk þess sem kennarar hafi þá feng-
ið ákveðna leiðréttingu á launum.
„Hins vegar mælist ekki í tölum
Hagstofunnar öll sú lækkun sem
orðið hefur á yfirvinnu opinberra
starfsmanna,“ segir Stefán.
Kaupmáttur launa minnkar áfram
$$
! !
$$
/
# $%& '
(
" $( &'($
$)
"-
!$
* (
GRÍMUR Sigurðsson, skipta-
stjóri þrotabús Milestone, hefur lýst
eftir kröfulýsingum á hendur búinu.
Er gefinn tveggja mánaða frestur til
að skila þeim til skiptastjóra.
Segir í tilkynningu að skipta-
fundur til að fjalla um skrá með lýst-
um kröfum og ráðstöfun á eignum
og réttindum bús Milestone verði
haldinn hinn 21. desember 2009.
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði Milestone, félag þeirra
Karls og Steingríms Wernerssona,
gjaldþrota 18. september síðastlið-
inn. Skilanefnd Glitnis er stærsti
kröfuhafi með 44 milljarða króna
kröfu. gretar@mbl.is
Lýst eftir
kröfum á
Milestone
SKULDABRÉF gömlu bankanna,
sem þeir gáfu út á sínum tíma til að
fjármagna þá, hafa hækkað nokkuð
á markaði að undanförnu. Bréfin
féllu gríðarlega mikið í verði við
fall bankanna fyrir tæpu ári og
urðu nánast verðlaus.
Skuldabréf gamla Landsbankans
hafa hækkað úr um 1% af upp-
haflegu virði þeirra í um 5%. Frá
því í vor hafa bréf Kaupþings
hækkað úr um 7% í um 19% og bréf
Glitnis úr um 14% í um 23%, sam-
kvæmt upplýsingum frá Ómari Sig-
tryggssyni, framkvæmdastjóra
markaðsviðskipta hjá Saga Capital.
Fyrirtækið hefur miðlað mjög
miklu af skuldabréfum gömlu bank-
anna milli erlendra aðila og átt
stóran þátt í því að mynda markað
með skuldabréfin í Evrópu og
Bandaríkjunum.
„Að megninu til áttu evrópskir
bankar skuldabréf gömlu íslensku
bankanna fyrir hrunið síðastliðið
haust,“ segir Ómar. „Þessir aðilar
eru væntanlega að selja bréfin sín
og einhverjir fjárfestar telja að þeir
fái meira til baka úr endurheimtum
bankanna, sem skýrist þó líklega
ekki fyrr en eftir þrjú til fimm ár.“
Ómar segir að mest hafi orðið
vart við bandaríska sjóði, fjárfest-
ingar- eða vogunarsjóði eða sjóði
sem sérhæfa sig í að fjárfesta í
kröfum þrotabúa meðal kaupenda
skuldabréfanna. Hann segist ekki
geta fullyrt hver ástæðan er fyrir
því að þessi skuldabréf hafi verið að
hækka í verði en oft á tíðum hækki
þau samhliða hlutabréfamörk-
uðum. Varðandi bréf gamla Lands-
bankans megi hins vegar leiða líkur
að því að í því sambandi sé veðjað á
að neyðarlögin frá síðastliðnu
hausti standist ekki málsókn.
„Varðandi hækkun á skuldabréf-
um Kaupþings þá bendir það til
þess að fjárfestar, sem eru að
kaupa skuldabréf þeirra, geri ráð
fyrir að endurheimturnar verði
meiri en skilanefndin gerir ráð fyr-
ir,“ segir Ómar. gretar@mbl.is
Skuldabréf
bankanna
hækka
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
BRYNJA Halldórsdóttir, fyrrver-
andi stjórnarmaður í Kaupþingi
banka, hefur sagt sig úr stjórn Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna af ótil-
greindum ástæðum.
Viðbúið er að Lífeyrissjóður
verslunarmanna tapi háum fjár-
hæðum á falli Kaupþings og tengd-
um fyrirtækjum. Af þeirri ástæðu
vöknuðu spurningar um hæfi
Brynju til setu í stjórn lífeyrissjóðs-
ins. Samtök verslunar og þjónustu
skipuðu Brynju í stjórn lífeyris-
sjóðsins og sagði formaður samtak-
anna í fréttum RÚV hinn 8. sept-
ember sl. að Fjármálaeftirlitið
hefði ekkert við
skipan Brynju að
athuga.
Samkvæmt
upplýsingum frá
FME er hæfi
Brynju enn til at-
hugunar hjá
stofnuninni og í
hefðbundnu ferli,
en stofnunin úr-
skurðar um hæfi
stjórnarmanna í fjármálafyr-
irtækjum og lífeyrissjóðum.
Brynja Halldórsdóttir staðfesti
við Morgunblaðið í gær að hún væri
ekki lengur í stjórn lífeyrissjóðsins
en vildi ekki tjá sig um málið að
öðru leyti.
Brynja Halldórsdóttir
sagði sig úr stjórn LV
Brynja
Halldórsdóttir
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Einnota latex hanskar –
ópúðraðir. Verð: 690 kr.