Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 4 Fréttir Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is LEIÐTOGAR G20-ríkjanna svokölluðu munu á fundi sínum í Pittsburgh í Bandaríkjunum í dag og á morgun meðal annars ræða um hvenær heppilegast verður fyrir stjórnvöld að draga úr þeim umfangsmiklu aðgerðum sem þau hafa beitt að undanförnu til að örva efnahagslífið. Þá er viðbúið að bónusar til æðstu stjórnenda í bankakerfi heimsins verði ofarlega á dagskrá fundarins. Leiðtogar G20-ríkjanna komu síðast saman í London í aprílmánuði síðastliðnum. Síðan þá hefur víða mátt sjá árangur af aðgerðum stjórnvalda, sem hafa víða lækkað vexti niður í sögulegt lágmark og dælt gríðarlegum fjár- hæðum inn í efnahagslífið til að stuðla að því að snúa frá samdrætti yfir í hagvöxt. Þetta hefur skilað tilætluðum árangri í Kína, Bandaríkj- unum og í Evrópu. Ný vandamál blasa hins vegar við vegna að- gerða stjórnvalda til að örva efnahagslífið. Markmiðið með aðgerðunum hefur meðal ann- ars verið að örva eftirspurn í hagkerfinu og stuðla að auknum útlánum. Það hefur hins veg- ar leitt til mikils fjárlagahalla og aukið á ótta um að hætta sé á að verðbólga aukist. Í frétt á fréttavef bandaríska dagblaðsins Washington Post segir að hagfræðingar séu al- mennt þeirrar skoðunar að það sé mjög vanda- samt verk framundan í efnahagsstjórninni. Ef stjórnvöld dragi of snemma úr þeim aðgerðum sem þau hafi beitt til að örva efnahagslífið sé hætta á bakslagi og að þau umskipti sem víða hafa komið fram jafnvel stöðvist. Með því að bíða hins vegar of lengi með að draga úr að- gerðunum sé mikil hætta á því að verðbólgan fari á skrið með þeim verðhækkunum sem því fylgir. Þá geti sá árangur sem náðst hefur verið fyrir bí. Vandi að ákveða hvenær skal dregið úr aðgerðum Reuters Allir velkomnir Fundarstaður leiðtoga G20-ríkjanna er vel girtur af í Pitsburgh í Pensilvaníu í Banda- ríkjunum. Efnahagsmálin eru af eðlilegum ástæðum talin verða efst á dagskrá fundarins. Í HNOTSKURN » G20-hópurinn kom fyrst saman árið1999. Í honum eru fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar nítján helstu iðnríkja heimsins auk Evrópusambandsins. » Leiðtogar G20-ríkjanna hafa tvisvarsinnum fundað, í nóvember í fyrra og apríl á þessu ári. Þriðji fundur þeirra hefst í dag. HRUN Sovétríkjanna og einka- væðingin, sem Borís Jeltsín beitti sér fyrir, urðu til þess, að upp spruttu auðmenn, svokallaðir ólíg- arkar, menn, sem margir hverjir höfðu áður verið í lykilstöðum í gamla kerfinu. Þeir komust yfir ófá ríkisfyrirtæki í Rússlandi á spottprís og fyrr en varði voru þeir komnir á lista Forbes yfir ríkustu menn í heimi. Nú eru sumir þessara manna komnir á bak við lás og slá en miklu fleiri hafa flúið land með allt það fé, sem þeir komu höndum yfir. Fyrir- tækin sjálf eru hins vegar rústir ein- ar. Listinn yfir þessa „flóttamenn“ er langur. Einn af þeim er Sergei Pol- onsky, eigandi Mirax-samsteypunn- ar, sem nú er gjaldþrota. Um tíma fór hann með himinskautum í bruðli, óhófseyðslu og alls kyns uppátækj- um en þegar olíuverðið lækkaði og lánardrottnarnir, bankarnir, vildu fá eitthvað til baka, var draumurinn úti. Þá var kominn tími fyrir Pol- onsky til að forða sér en áður tókst honum að færa 440 millj. dollara frá fyrirtækinu inn á sína einkareikn- inga. Það gerði alveg út um fyrirtæk- ið. Jevgení Chicvarkin, stofnandi stærstu farsímaverslunarinnar í Rússlandi, flýði til Englands þegar til stóð að ákæra hann fyrir mannrán og fjárkúgun og það gerði líka Alex- ander Shífrín, fyrrum yfirmaður Eldorado-verslananna. Hann skuld- ar rússneskum yfirvöldum 13,2 millj- arða rúblna. Bretland er fyrirheitna landið Shalva Chígírínskí, sem átti hlut í stærsta byggingarfyrirtæki í Moskvu og Moskvu-olíufélaginu, er kominn til Bretlands, sem má kalla fyrirheitna landið í augum rúss- nesku ólígarkanna. Ástæðan er sú, að breskir dómstólar viðurkenna ekki ákvarðanir rússneskra dóm- stóla og hafna yfirleitt beiðni um framsal. Sagan um rússnesku ólígarkana minnir óneitanlega um margt á það, sem gerst hefur hér á landi. Sem dæmi um það má nefna Gennadí Mesherjakov, aðaleiganda Svyaz- bankans. Á aðeins tveimur árum komst hann í hóp 20 stærstu lána- stofnana í Rússlandi en þá lét Mes- herjakov sig hverfa. Ári síðar var bankinn gjaldþrota. Í ljós kom, að hann hafði lánað út stórfé án veða. Mesherjakov er nú í felum í Hol- landi. svs@mbl.is Rússnesku ólígarkarnir hafa flestir flúið land Forðuðu sér þegar bólan sprakk og hirtu reyturnar Í HNOTSKURN » Orðið ólígarkar yfir auð-menn var notað í Banda- ríkjunum á 19. öld og snemma á þeirri 20. og um þá menn, sem fóru sínu fram á svæðum sem armur laganna náði lítt til. » Í Rússlandi voru það hinirnýríku sjálfir, sem völdu sér þetta nafn. Mannrán og fjárkúgun Jevgení Chichvarkín er nú í Bretlandi. LÍKLEGT er talið að Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, verði skipaður í stjórn nýrrar evr- ópskrar fjármálastöðugleikastofn- unar, sem unnið er að því að koma á fót. Hann mun þá taka þar sæti við hlið Jean-Claude Trichet, banka- stjóra evrópska seðlabankans, sem fyrirhugað er að verði í for- svari stjórnar hinnar væntanlegu stofnunar. Hlutverk þessarar sameiginlegu stöðugleikastofnunar verður að fylgjast með og samræma reglur fyrir evróska fjármálakerfið, með það að markmiði að stuðla að því að koma í veg fyrir hrun á mark- aðinum í líkingu við það sem varð í fyrra. Viðurkenning á mikilvægi Í breskum fjölmiðlum segir að stjórnvöld og þeir sem tengjast fjármálalífinu þar í landi fagni væntanlegri skipun Kings í stjórn hinnar væntanlegu stofnunar. Það muni tryggja áfram leiðandi stöðu fjármálakerfisins í London á fjár- málamarkaðinum. Í frétt á fréttavef Financial Times segir að með skipun Kings felist viðurkenning ESB á því hlutverki sem Bretland hefur gegnt á fjármálamarkaði Evrópu og hve miklu máli markaðurinn skipti fyrir breskt efnahagslíf. gretar@mbl.is Staða London verði tryggð Mervyn King GRIKKLAND og Pól- land eru þau ríki innan Evrópusambandsins, sem fengu tiltölulega mestu framlögin, en Þýskaland er aftur það ríki, sem greiddi mest til sambands- ins. Fram kemur í nýrri skýrslu, að Grikkir hafi fengið 6,3 millarða evra, sem svarar til 2,7% af þjóðarframleiðslu, umfram það, sem þeir greiddu til sambandsins. Pól- verjar fengu 4,4 milljarða evra um- fram framlög eða 1,3% af þjóðarframleiðslu. Engir greiða meira en Þjóðverjar til ESB eða 8,8 milljarða evra umfram það, sem þeir fá frá sambandinu. Önnur ríki, sem greiða meira en þau fá, eru Austurríki, Bretland, Ítalía, Frakkland, Holland og Svíþjóð. Þau vilja líka öll, að fjárlögin verði skorin niður. Vilja Bretar og Svíar skera verulega niður framlög til landbúnaðar en þau eru nú 37% af fjárlögunum. svs@mbl.is Pólverjar og Grikkir fengu mest frá ESB Landbúnaður nýt- ur mestra styrkja. www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Stuðningshlífar fjölbreytt úrval

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.