Morgunblaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
íþróttir
Áratugur Hamar á sínu tíunda ári í efstu deild. Margir ungir strákar fá að reyna sig. Hamar
teflir fram ungu og óreyndu liði. Aðeins tveir leikmenn með fleiri en 100 leiki. 4
Íþróttir
mbl.is
ÞRÓTTUR og Fjölnir, liðin sem eru
fallin úr Pepsi-deild karla í knatt-
spyrnu, hafa notað flestu leikmenn-
ina í deildinni í sumar. Bæði hafa
þau notað 27 leikmenn í leikjunum
21 en lokaumferð deildarinnar fer
fram í dag.
Keflavík og Stjarnan hafa notað
25 leikmenn, Íslandsmeistarar FH
og Grindavík 24 hvort félag, Valur
og ÍBV 23 og KR, Fylkir, Breiðablik
og Fram hafa öll notað 22 leik-
menn. gummih@mbl.is
Fallliðin hafa
notað flestu
leikmennina
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Vonandi fæ ég að spila einhverjar mínútur á
móti KR-ingunum og ég geri þá fastlega ráð
fyrir að það verði þær síðustu sem ég spila
fyrir Val,“ sagði knattspyrnumaðurinn Arnar
Gunnlaugsson í samtali við Morgunblaðið í
gær. Valur tekur á móti KR í lokaumferð úr-
valsdeildarinnar á Hlíðarenda í dag klukkan
16.
Arnar hefur ekki verið með Hlíðarendalið-
inu í síðustu fimm leikjum vegna meiðsla aft-
an í læri en hann og Bjarki tvíburabróðir
hans gengu til liðs við Val um mitt sumar eft-
ir að slitnaði upp úr samstarfi þeirra og
Skagamanna.
„Ég hef ekki hugmynd um hvað tekur við
hjá okkur eftir tímabilið. Maður er búinn að
brenna sig ansi oft á því að segjast vera hætt-
ur en það verður að segjast eins og er að
þetta tímabil hefur ekki verið neinn dans rós-
um. Hlutirnir hafa ekki farið alveg eins og
handritið var skrifað í vor og ég held að ég
taki mér gott frí eftir þetta sumar og sjái svo
til hvort hungrið kemur aftur,“ sagði Arnar
en hann og Bjarki tóku við þjálfun ÍA-liðsins
um mitt sumar í fyrra af Guðjóni Þórðarsyni
en tókst ekki halda liðinu í deild þeirra bestu.
Undir þeirra stjórn gekk liðinu illa í 1.
deildinni í sumar og eftir fyrri umferð Ís-
landsmótsins þar sem Akurnesingar voru í
þriðja neðsta sæti deildarinnar var það sam-
eiginleg ákvörðun þeirra bræðra og stjórnar
ÍA að slíta samstarfinu.
Arnar hefur komið við sögu í fjórum leikj-
um Vals í sumar og Bjarki einum en samn-
ingar þeirra við liðið gilda út leiktíðina sem
lýkur í dag.
Arnar segir að ekki sé neitt í spilunum að
hann fari þjálfa aftur. „Fjórða stigið hjá KSÍ
verður í nóvember og það getur vel verið að
ég fari í það til að hafa það bakhöndinni en
eins og staðan er í dag er ég ekki að fara að
þjálfa.“
Ekki samkvæmt handritinu
Arnar reiknar með að kveðja Val í dag Vonast eftir einhverjum mínútum Ætlar að taka sér
gott frí og sjá hvort hungrið í fótboltann kemur aftur Tímabilið ekki verið dans á rósum
Hættur Arnar Gunnlaugsson, leikmaður Vals.
FORRÁÐAMENN knattspyrnu-
deildar Hauka áttu fund með KSÍ í
gær en sú staðreynd blasir við að
ef Haukarnir ætla að leika heima-
leiki sína í Pepsi-deild karla í
knattspyrnu á Ásvöllum á næsta
tímabili þarf að fara út í fram-
kvæmdir við gervigrasvöllinn, sem
var heimavöllur Haukaliðsins í
sumar. Annar möguleiki sem
Haukarnir líta til er að spila heima-
leiki sína í Kaplakrika, heimavelli
FH-inga.
,,Við funduðum með KSÍ og það
liggja fyrir drög að áætlun um
framkvæmdir á Haukasvæðinu sem
stefnt er á að hefja á næstu vikum.
Með þeim framkvæmdum upp-
fyllum við leyfiskerfi KSÍ. Hvort
við endum á að spila þar er svo
annað mál,“ sagði Jón Björn Skúla-
son, formaður knattspyrnudeildar
Hauka, við Morgunblaðið í gær.
Þær framkvæmdir sem Jón
Björn talar um er að við völlinn
þarf að koma upp aðstöðu þar sem
500 manns geta setið í sætum. ,,Það
verður byrjað á 500 sætum en það
liggja líka drög fyrir því að fjölga
þeim upp í 1.000,“ sagði Jón Björn.
gummih@mbl.is
Haukar í
Kaplakrika?
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
ANDRI Marteinsson verður áfram
við stjórnvölinn hjá Haukum. Samn-
ingur Andra rann út eftir tímabilið
en samningaviðræður milli hans og
Haukanna eru
langt komnar og
aðeins forms-
atriði að ganga
frá nýjum samn-
ingi.
Andri hefur
náð frábærum ár-
angri með Hafn-
arfjarðarliðið.
Hann tók við því
fyrir tveimur ár-
um þegar það var í 2. deild og fór
með það beint upp í 1. deild og á dög-
unum stýrði hann Haukunum upp í
Pepsi-deildina en Haukar hafa ekki
leikið í efstu deild síðan 1979.
,,Ég er ánægður að halda áfram
með liðið. Ég vil fylgja því verki eftir
sem er hafið. Þegar það hófst vorum
við í 2. deildinni. Fyrsta skrefið var
að fara upp úr henni, annað skrefið
að festa okkur í sessi í 1. deildinni og
þriðja var að fara upp í Pepsi-
deildina en það átti ekkert að taka
fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári sam-
kvæmt upprunalegri áætlun. Við er-
um því aðeins á undan áætlun sem
er gott en næsta skrefið hlýtur svo
að vera að festa okkur í sessi í deild
þeirra bestu,“ sagði Andri í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Andri segir liggja í augum uppi að
Haukarnir þurfi að styrkja liðið fyrir
baráttuna næsta sumar. ,,Ég reikna
fastlega með að halda þeim leik-
mönnum sem voru í sumar fyrir ut-
an Þórhall Dan en við þurfum að
bæta kjölfestu í okkar lið og fá leik-
menn með reynslu sem geta miðlað
til okkar spræku stráka sem við höf-
um,“ sagði Andri.
Andri
áfram með
Haukana
Andri
Marteinsson
TIGER Woods er efstur þegar keppni er hálfnuð á To-
ur-meistaramótinu á PGA-mótaröðinni í golfi. Banda-
ríkjamaðurinn er á 5 höggum undir pari en Írinn
Padraig Harrington og Sean O’Hair frá Bandaríkj-
unum koma þar næstir á 4 höggum undir pari. Sig-
urvegarinn fær 1,2 milljarða kr. í verðlaunafé en um er
að ræða lokamót úrslitakeppninnar þar sem 30 kylf-
ingar eru með keppnisrétt. Nánar á mbl.is.
Reuters
Kylfingar keppa um 1,2 milljarða kr.