Dagrenning - 01.08.1924, Qupperneq 3

Dagrenning - 01.08.1924, Qupperneq 3
DAGRENNINGr 3 sitja fyrir flutningi sínum. En látum hina skifta við alþýðu þeirra landa, er þeir hossa skipunum fyrir. Augun opin ! Enga vægð ! Rangárþing. (Minni). Strauma linda björtum bundið, björgum stutt og' grænni lilíð landnám Hæings ljósi undið litum fágar sumartíð. Styrkur Orms og Stórólfs ríkir stöðugt enn í góðri sveit, Gunnar, Njáll og greppar slíkir gerast fleiri en nokkur veit. U. Bergþóra á bæ iijá lýði, búi stýrir enn í dag, Hildigunnur, lirunda prýði, hefir enn hiö sama lag. Landnáms rekka rausn og hreysti runnin er í merg og bein, sá í lund mun lifa neisti, landnámstíð er yfir skein. Endurborin íturmenni alla vegu ríða á þiug, enn eg sama svipinn kenni sem í þjóðar dagrenning. Iturvaxinn vífa skari, vegleg þyrping liingað fer þenja á skeiði mjúka mari, mund að taumi leikur sér. íþrótt marga aftur þreyta ungir menn að fornum sið, þakkir fljóðin fögur veita, fræknum er þau brosa við. Enn má Saga setja á spjöldin sagnafjöld um Rangárþing, illrar skulu gleymsku gjöldin greidd í nýrri dagrenning. Bera skal nú hátt og hærra hyggni Njáls og orðasnilld, vinna skal nú stórt og stærra Stórólfs kynslóð orkufylld. Strauma linda björtum bundið, björgum stutt og grænni hlíð landnám Baugs skal björtum undiö bjarma frægðar ár og síð. Bjarni Jónsson frá Vogi. Bækur. íslenzk tunga í fomöld, eftir Alexander Jó- hannesson. Bókaverzlun Ársæls Árnasonar. — Reykjavík 1923—24, stórt 8 bl. brot, 406 bls. Dr. Alexander Jóhannesson hefir unnið gott og mikíð þrekvirki á fáum árum. Hann hefir fyrir fjórum árum gefið út „frumnorræna mál- fræði“, er segir frá hljóðum og beygingum tungu vorrar frá þriðju öld og fram undir landnáms- tíð. En nú bætir hann við í þessari bók, sögu og lýsing tungunnar fram á miðja fjórtándu öld og auk þess rakin sagan aftur til frumgermanskrar tungu og indogermanskrar. Síðar mun birtast hér í blaðinu ritdómur um bók þessa eftir kunn- áttumann í þessari grein, en hér verður þess að- eins minnst, að liún er út komin. En þótt ritstjóri þessa blaðs sé eigi lærður maður á íslenzka tungu, þá hefir hann þó svo mikla nasasjón af málfræði og ýmsum þeim tungum, sem hér er rakið til, að hann getur fullvissað menn um, að hér er mjög vandað til þessa verks, og að það fullnægir kröf- um málfræðinnar, þeim er frekastar eru gerðar nú á tímum. pað er og víst, að í bókum þessum liggur afarmikil vinna, og má heita dæmalaus dugnaður að lúka verkinu svo vel á svo skömm- um tíma, Má að því vísu ganga, að höf. verði vel launað. T Heimskringlu segir, að „Eyvindr orti drápu um alla Islendinga, en þeir launuðu svá, at hverr bóndi gaf honum skattpenning“. Bændur vorra tíma munu eigi meta þetta verk minna. en drápan var metin, og launa því betur, sem verk- ið er meira. Mun meðferð þingmanna vera upp- haf að þeim launum. peir rufu samninga á Dr. Alexandri og veittu ekkert fé til þess að launa honum kennslu hans í háskólanum næsta ár. Er ætlun þeirra vafalaust sú að gera hann að pró- fessor næsta ár með góðum launum, því að nú verður hlutverkum snúið svo, að þingið verður að biðja hann að vera kyrran, en eigi svo sem verið hefir, að stjórnin og nokkrir þingmenn vilji halda gerða samninga við hann. Eftir þetta verk munu honum opnar dyr víða í löndum til betri kjara, en hér hafa verið boðin bezt, og verð- ur þá eigi að því fundið, þótt vér ölum upp fræði- menn handa öðrum þjóðum, ef þing vort vill vinna það til skemmda háskóla vorum að bola burt sem flestum og sem beztum mönnum. Oldur, sögur eftir Benedikt porvaldsaon (Gröndal). Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar. Reykjavík, 1920, 8 bl. brot, 240 bls. Það hefir dregizt um skör fram að geta þess- arar bókar, og á hún þó vel skilið, að það sé gert. pað hefir jafnan látið íslendingum vel að segja sögur, og má heita þjóðareinkenni. Er það því segin saga, að þeir menn rita og beztar skáld- sögur, sem fylgja hinum forna frásagnarhætti

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/773

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.