Alþýðublaðið - 01.11.1919, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 01.11.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Frá 1. nóvember er Felix Guðraundsson, Suðurgötu 6, umsjónar- maður og gjaldkeri Goodtemplarahússins. Þeir, sem viðskifti hafa við það, eru beðnir að snúa sér til hans. Heima kl. 5—6 e. h. á virkum dögum. Sími 639. Húsnefndin. heldur fund sunnud. 2. nóvember kl. 6 e. m. í G.-T.-húsinu. Fundar- efni: Kaupgjald verkakvenna. Félagskonur beðnar að fjölmenna. Skorað er á þær verkakonur, sem hafa ekki enn gengið í félagið, að gera það á þessum fundi. Stjórnin. Fnllnaðarsamþykt friðar- samningsins. Bonar Law segir að fullnaðar- samþykt friðarsamninganna geti dregist fram í febrúar. Finme. Frá París er símað að Banda- ríkin neiti að ganga að uppá- stungu ítala til lausnar á Fiume- deilunni. Englendingar og Frakkar reyna aÖ koma á samkomulagi. Deilur í þýzha þinginu. Frá Berlín er símað að áköf deila hafi staðið í þýzka þinginu milli hermálaráðherrans, meiri- hlutajafnaðarmannsins Noske og keisarasinna (íhaldsmanna). Góður búskapur. Kaupmannahafnarbær hefur 2 miljóna króna tekjuafgang á árs- reikningi sínum, í stað áætlaðra 4 miljóna króna tekjuhalla. (Jafnaðarmenn eru búnir að vera í meiri hluta í nál. tvö ár, og þrír af fimm borgarstjórum Khafnar eru jafnaðarmenn.) Hungrið. Alþjóða Bandalagið gegn hung- ursneyðinni heldur fund [í Lon- don] á miðvikudag. Fimm þektir menn úr Miðríkjunum taka þátt í honum. Slysið hjá Sameinaða. Þess var getið í Alþýðublaðinu í fyrradag, að maðurnokkur, Páll Árnason, Hverfisgötu 64 hér í bænum hafi slasast á afgreiðslu Sameinaða. Vlðtal við móður hans. Vér gengum inn á Hverfisgötu í gær og mæltumst til að fá að fá að tala við Pál. Vér hittum móður hans, sem er myndarleg °g góðleg kona um sjötugt. Vér spurðum um líðan Páls. »Jú, hann er heldur skárri nú, ekki sé hægt að segja neitt ákveðið að svo stöddu; hnéskelin er laus og fóturinn allur brákað- ur um hnéð“. Konan sneri sér undan til að hylja nokkur tár, aem komu fram í augun. „Hvernig atvikaðist þetta?" „Þeir voru að vinna í afgreiðslu Sameinaða og þá féll ullarballi niður úr loftinu og lenti á Páli“. „Verður nokkrum umkent?“ „Engum sérstökum, nema þessu vanalega skeytingarleysi". „Á sonur yðar fyrir konu eða börnum að sjá?“ „Nei, hann býr hérna hjá okkur foreldrum sínum, en er að öðru leyti einhleypur". Vér kvöddum konuna og þökk- uðum henni upplýsingarnar. Páll er meðlimur í Dagsbrún og vinnur á eyrinni. Hefði hann verið fjölskyldumaður, hefði þetta sennilegast komið honum á sveit- ina, eins og flestum þeim, sem ekki hafa liggjandi fé í bönkum eða útgerð. + Sjálf8tjórn var stofnnð til þess að vinna á móti alþýð- unni. Með hverjnm eruþáþeir menn, sem Sjálfstjórn er að reyna að koma á þingi Di daginn og veginn. Alþýðublaðið kemur fyrst um sinn ekki út á sunnudögum. Eigendur kindanna sem dráp- ust í forinni við Brúarenda á Grímstaðaholti eru Árni Jónsson Grímsstöðum og Ágúst Eiríksson Bergstaðastræti 34. Botnskafa hafnarinnar sem verið hefir að grafa vestur við Örfiriseyjargranda í sumar, var látin grafa í þrjá daga við hinn fyrirhugaða hafnarbakka við Ing- ólfsgarð, til þess að reyna hvernig botninn væri þar. Fullnaðarreynsla fékst ekki, því vegna smástreymis var ekki hægt að grafa nógu djúpt, en reynt mun aftur núna í stórstreymið. Vélin er nú aftur að grafa vestan til á höfninni. Morgunblaðið segir þær fréttir að dálítið ólag hafi undanfarna daga verið á útburði þess. Þetta mun ekki hafa komið flatt upp á neinn. Þingmálafunður er haldinn í Hafnarfirði í kvöld kl. 7. €jtirhermur. Sumir alþýðumenn halda, að það sé sjálfsagt, að lasta hina ötulustu og ósérhlífnustu braut- ryðjendur alþýðustefnunnar liér í landi, bara af því, að yfirboðarar þeirra láta ekkert færi ónotað til þess að sverta þá. Þessum al- þýðumönnum er farið eins og skóladrengjunum, sem hlægja að því er kennarinn hæðist að vit- leysu sem einhver bekkjarbræðra þeirra hefir sagt. Þeir vita vel, að næst getur röðin komið að þeim, en þeir hlægja af því að kennar- inn lítur kankvís í kringum sig og brosir. Kvásir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.