Norðurland - 12.11.1976, Side 1
NORÐURLAND
Nýr kafli í útgáf u-
sögu sósíalista
1. tölublað
Föstudagur 12. nóv. 1976
1. árgangur
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins verður haldinn í hinu nýja, glæsilega húsi Þjóðviljans að Síðumúla 6.
Aðalfundur Alþýðubandatagsins á Akureyri
Varar við frumvarpi um
nýja vinnumáialöggjöf
Aðalfundur Alþýðubandalags
ins á Akureyri var lialdinn 9.
október í Alþýðuhúsinu. Fund
urinn var vel sóttur og gengu
nokkrir nýir félagar inn. Ný
stjórn félagsins var kosin og
skipa hana eftirtaldir félagar:
Formaður Steinar Þorsteins-
son, varaform. Hilmir Helga-
son, ritari Böðvar Guðmunds-
son, gjaldkeri Höskuldur Stef-
ánsson, og meðstjórnendur
þau Þóra Þorsteinsdóttir,
Katrín Jónsdóttir og Jóhann
Ólason.
Steinar Þorsteinsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins á \k.
Það má segja að vetrarstarf
félagsins hafi hafist með þess-
um aðalfundi og þó frekar
seint sé farið af stað, standa
vonir til að starfsemin verði
öflug.
Kosning fulltrúa á flokks-
ráðsfund, sem haldinn er nú
um þessa helgi í Reykjavík,
fór fram á félagsfundi, þriðju-
daginn 2. nóv. Kosnir voru
sex fulltrúar: Böðvar Guð-
mundsson, Helgi Guðmunds-
son, Hilmir Helgason, Kristján
Arason. Steinar Þorsteinsson
og Þóra Þorsteinsdóttir. Til
vara- voru kosnir Þröstur Ás-
mundsson, Jón Daníelsson og
Bragi Sigurgeirsson.
Á þessum félagsfundi var
mættur Arnmundur Bach-
mann og flutti hann ákaflega
fróðlegan fyrirlestur um það
frumvarp, sem Gunnar Thor-
oddsen hyggst leggja fram á
Hugmyndir iðnaðarráðuneyt
isins sem nú eru uppi eru að
hyggja varnargarð í botni dals
ins fyrir ofan stöðvarhúsið
í Leirbotnum og jafnframt að
gera rás fyrir hugsanlegt
hraunrennsli, sem lægi í áttina
að Bjarnarflagi, en þarmeð
væri í rauninni verið að veita
hrauninu á sveitina og, þótt
undarlegt megi teljast fyrir
iðnaðarráðuneytið, fyrst af
öllu á Kísiliðjuna.
Þessar ráðagerðir hafa vakið
mikla óánægju mývetninga og
var málið tekið fyrir á sameig
inlegum fundi sveitarstjórnar
og almannavarnarnefndar
sveitarinnar í þessari viku.
alþingi á næstunni um stéttar
félög og vinnudeilur. í lok
fundarins var samþykkt eftir-
farandi ályktun:
„Almennur félagsfundur í
Alþýðubandalaginu á Akur-
eyri, 2. nóv. 1976, skorar á öll
aðildarfélög ASÍ að standa
saman gegn tilraun núverandi
ríkisstjórnar til að skerða verk
Var þar samþykkt, að þessir
aðilar gætu ekki fallist á þessa
tilhögun nema það yrði þá
amk. byrjað á varnargörðum
nær til að verja byggðina.
Kom fram, að jafnvel þótt
gerðir yrðu garðar þeir norðan
og austan Reykjahlíðar, sem
talað hefur verið um, mundu
þeir aðeins bjarga Reykjahlíð
og umhverfi, en aðrir hlutar
sveitarinnar, svosem Vogarnir
yrðu eftir sem áður óvarðir.
Rétt er að geta þess, að sér-
fræðingar Raunvísindastofnun
arinnar eru einnig á þeirri
skoðun, að ofannefnd rás fyr-
ir hraunstrauminn mundi
auka á hættu fyrir sveitina.
fallsrétt frá því sem nú er með
„frumvarpi til laga um stétt-
arfélög og vinnudeilur“. Var-
ar fundurinn við frumvarpinu
í heild og telur, eins og mál-
um er nú háttað á alþingi, að
einungis órofa samstaða verka
lýðsstéttarinnar geti komið í
veg fyrir að það verði að lög-
um.“ S. Þ.
Þessar hugmyndir eru eins-
og draugur, sem sækir að okk-
ur aftur og aftur og varnirnar
við Kröflu virðast alltaf mið-
ast við lítið gos rétt við Leir-
hnjúk, þótt engin lifandi sála
treysti sér í rauninni að segja
fyrir um hvort gera eigi ráð
fyrir gosi né hvernig það
mundi þá hegða sér. — Erl.
75 rjúpur
yfir daginn
Rjúpnaveiði er nú í algleym-
ingi hér norðanlands og fer
misjöfnum sögum af aflanum.
Frá Húsavík fréttum við af
stærstu veiðinni til þessa:
Kristbjörn Árnason, skipstjóri
á aflaskipinu Sigurði, brá sér
á fjall og fékk 75 rjúpur yfir
daginn!
Með þessu blaði hefst nýr kafli
í útgáfusögu sósíalista á Norð
urlandi. Blaðið NORÐUR-
LAND hefur göngu sína og
kemur í stað Alþýðubanda-
lagsblaðsins.
Lengi hefur staðið til að
gera umtalsverðar breytingar
á blaðaútgáfu Alþýðubanda-
lagsins hér í kjördæminu.
Gefa blaði þess nýtt og þjálla
nafn, gera það fjölbreyttara
og betra útlits en hið gamla
var. í því skyni hefur verið
keypt offset-prentvél. Því mið
ur reyndist ekki fært að hefja
prentun í hinni nýju vél nú
þegar, þar sem enn er eftir að
afla viðbótartækja er þarf til
offsetprentunar.
Það sem ræður mestu að
einmitt núna er ráðist í um-
ræddar breytingar, er að nú í
haust gafst okkur kostur á að
ráða að blaðinu nýjan rit-
stjóra með mikla reynslu í
blaðamannsstarfi. Hinn nýi
ritstjóri, Vilborg Harðardótt-
ir, hefur um árabil verið blaða
maður á Þjóðviljanum og rit-
stýrði Sunnudagsblaði hans
fyrst eftir að það kom út í
breyttri mynd. Hún er 1. vara
maður Alþýðubandalagsins á
Alþingi, fyrir Reykjavík. Út-
gáfustjórn býður Vilborgu vel
komna til starfa og væntir
góðs og árangursríks sam-
starfs við hana.
Reynslan af starfi ritnefnd
ar við AB-blaðið hefur sann-
að okkur ágæti þess fyrir-
komulags. Við NORÐUR-
LAND mun verða starfandi
ritnefnd og sjá um stóran
hluta af efni blaðsins. í rit-
nefndinni eiga þessir sæti:
Helgi Guðmundsson, Þórir
Steingrímsson, Böðvar Guð-
mundsson, Soffía Guðmunds-
dóttir og Þröstur Ásmundsson.
Auk þess höfum við aflað okk
ur samstarfsmanna á ýmsum,
stöðum í kjördæminu og Ótt-
ar Einarsson í Kaupmanna-
höfn og Þráinn Bertelsson í
Stokkhólmi munu einnig
leggja okkur lið. Af þessu sést
að útgáfustjórn hefur þegar
fengið til starfa við blaðið all
stóran hóp fólks, sem að stað-
aldri mun skrifa í það. En
hvers konar blað verður þá
NORÐURLAND?
Við hugsum okkur að blaðið
verði öflugt kjördæmisblað og
flytji mikið af fréttum úr kjör
dæminu. I því mun verða
nokkuð af föstum liðum. Sum-
ir teknir í arf frá AB-blaðinu
eins og Pistill vikunnar. Við
munum leggja áherslu á víð-
tæka umfjöllun um ýmis þjóð
mál eftir því sem kostur er.
Norðurland verður ekki
fréttablað á landsmælikvarða,
nema að því leyti sem við vilj
um taka fréttir eða atburði til
umfjöllunar.
Von okkar er sú að þessi
breyting mælist vel fyrir hjá
lesendum, og að Norðurlandi
takist að verða öflugur mál-
svari alþýðustéttanna um
langa framtíð.
Útgáfustjórn.
Á að veita hrauni
á Mývatnssveit?
Deilt um byggingu og llegu varnargarða við Kröflu
Hugmyndir iðnaðarráðuneytisins og ráðamanna við Kröflu
um varnargarða ofan stöðvarhússins og rás fyrir hugsanlegan
hraunstraum í átt að Bjarnarflagi mundu leiða til þess, ef til
goss kæmi, að hraunrennslinu yrði í rauninni veitt á Mývatns-
sveit. Hafa sveitarstjórn og almannavarnarnefnd sveitarinnar
andmælt þessum ráðagerðum.