Norðurland - 12.11.1976, Qupperneq 7
DAGBÓk VIKUNIMAR ...
• Um helgina
Fræðslunefnd Alþýðubanda-
lagsins: Leshringur í fræði-
kenningu sósíalismans og sögu
hinnar faglegu og pólitísku
verkalýðshreyfingar hefst að
Eiðsvallagötu 18 á morgun,
laugardag, kl. 5 síðd.
Þingeyingafélagið: Aðalfund-
ur félagsins verður haldinn að
Hótel KEA sunnudaginn 14.
nóv. kl. 16.
Kvennadeild Styrktarfélags
vangefinna á Norðurlandi held
ur árlega skemmtun sína
sunnudaginn 14. nóv. kl. 20.30
í Sjálfstæðishúsinu. Miðasala
hefst kl. 19.
IOGT: Bingó á Hótel Varð-
borg í kvöld, föstudaginn 12.
nóv., kl. 8.30. Góðir vinningar,
þám. flugfar Akureyri-Reykja
vík-Akureyri. — Stjórnandi
Sveinn Kristjánsson.
Skógræktarfélag Tjarnargerð-
is heldur afmælisfund sinn
laugardaginn 13. nóv. kl. 20.30
að Byggðavegi 145.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á
Akureyri, hefur hlutaveltu í
Laxagötu 5 laugardaginn 13.
nóv. kl. 3 eh. Góðir munir.
Forsala númera hefst nokkru
fyrr en opnað er úr þrem bíl-
um á staðnum.
FVSA: Félagsfundur hjá Fé-
lagi verslunar- og skrifstofu-
fólks verður haldinn að
Brekkugötu 4 laugardaginn 13.
nóv. kl. 13.0. Fundarefni: Frv.
til laga um stéttarfélög og
vinnudeilur. Drög að stefnu-
skrá ASÍ.
• Sýningar
Málverkasýning Einars Helga-
sonar í Iðnskólanum kl. 8.30
föstudagskvöld. Opin laugar-
dag, sunnudag og mánudag kl.
10—24.
• Leikhús
Leikfélag Akureyrar sýnir
Karlinn í kassanum í kvöld,
föstudag, og sunnudag. Frum-
sýning á Sabínu nk. föstudag
19. nóv.
• Næsta vika
IOGT St. Brynja nr. 99 heldur
fund í Varðborg mánudaginn
15. nóv. Venjuleg fundarstörf.
Árni Valur Viggósson sér um
fundarefni.
Bridgefélag Akureyrar: Sveita
keppnin hefst þriðjudaginn 16.
nóv. kl. 20. Spilað verður í
Gefj unarsalnum.
Geðverndarfélagið: Skemmti-
kvöld með dansi í félagsheimil
inu Hvammi mánudaginn 15.
nóv.
Opið hús fyrir aldraða: mið-
vikudaginn 17. nóv. kl. 15 að
Hótel Varðborg. Veitingar og
íjölbreytt dagskrá.
• Börn söfnuðu fé
handa Elliheimilinu
Nýlega barst Elliheimili Ak-
ureyrar að gjöf kr. 2.000.00
frá börnunum Kristjönu og
Margréti Vilhelmsdætrum,
Þóru Ester og Hönnu Björk
Bragadætrum, Birni Þorgeirs-
syni og Sigríði og Sigrúnu
Valdemarsdætrum, en þessu
fé höfðu börnin safnað með
hlutaveltu. Stjórn E.H.A. fær
ir börnunum bestu þakkir fyr-
ir hugulsemina.
• Nýir bæklingar
Tryggingastof nunar -
innar
Tryggingastofnun ríkisins hef
ur sent frá sér nýja útgáfu af
upplýsingabæklingum um
bótarétt samkvæmt lögum um
almannatryggingar.
Hér er um að ræða endur-
prentun á eldri bæklingum
með þeim breytingum, sem
orðið hafa frá útgáfu þeirra,
en bæklingurinn um atvinnu-
leysisbætur í fæðingarorlofi
er nýr, þar sem lög um fæð-
ingarorlof tóku ekki gildi fyrr
en 1. janúar 1976.
Bæklingana má fá frá skrif
stofum Tryggingastofnunar-
innar, Laugavegi 114, Reykja
vík, og umboðsmönnum henn-
ar úti á landi, sem eru sýslu-
menn og bæjarfógetar, hver í
sínu umdæmi.
• Skipt á nöfnum og
númerum gatna
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
samþykkt nokkrar breytingar
á götuheitum og númerum
húsa í Glerárhverfi. Verður
götuheitið Steinholt lagt nið-
ur og gatan nefnd Lyngholt og
númer húsanna við þessar göt
ur breytast og verða sem hér
segir:
Lyngholt 12 verður nr. 1
Lyngholt 11 verður nr. 2
Lyngholt 10 verður nr. 3
Lyngholt 9 verður nr. 4
Lyngholt 8 verður nr. 5
Lyngholt 7 verður nr. 6
Lyngholt 6 verður nr. 7
Lyngholt 5 verður nr. 8
Lyngholt 4 verður nr. 9
Lyngholt 3 verður nr. 10
Lyngholt 2 verður nr. 11
Steinhohlt 1 verður Lyng-
holt 13
Steinholt 3 verður Lyng-
holt 15
Fagranes (Hörgárbraut 2)
verður Lyngholt 16
Steinholt 8 verður Lyng-
hohlt 26
Steinholt 12 verður Lyng-
holt 30.
AA-
SÍMI 2-23-73.
• Laugardagsmyndin
eftir Kuroswaa
Laugardagsmynd Borgarbíós
að þessu sinni er eftir jap-
anöka kvikmyndastjórann
Akira Kurosawa og nefnist
Saga júdókappa. Myndin er
gerð 1943 og segir frá Sugara
Sanshiro, nemanda í jiujitsu-
skóla. Hann heillast hinsvegar
að annarri sjálfsvarnaríþrótt,
júdó, og snýr sér að henni.
Brátt verður hann með fær-
ustu mönnum í þeirri grein,
en hættir til að misnota kunn
áttu sína.
Ekki er rétt að rekja hér
efni myndarinnar, en hún ætti
að vera við hæfi bæði þeirra
sem gaman hafa af vel leikn-
um, hörðum átökum og hinna
sem áhuga hafa á vönduðum
kvikmyndum, því Kurosawa
er óumdeilanlega einn af snill
ingum japanskrar kvikmynda
'listar.
Það er mjög ánægjuleg við
leitni Borgarbíós að koma til
móts við óskir kvikmynda-
unnenda á Akureyri með sýn-
ingu „laugardagsmyndanna",
sem venjulega eru þær sömu
og áður hafa verið „mánudags
myndir“ Háskólabíós. Sýning
artími laugardagsmyndanna
er kl. 5 síðd.
• Segja „þingflokka-
blöðin“ þegja þunnu
hljóði
Blaðinu hefur borist fréttatil-
kynning frá „Landhelgissam-
tökunum“, stofnuðum í sept.
sl., sem segjast vera „fjölda-
samtök fólks úr öllum vinn-
andi stéttum landsins“ — með
„ólíkar pólitískar skoðanir, en
á það sameiginlegt að vilja
vinna gegn allri rányrkju og
þá fyrst og fremst rányrkju á
íslenskum fiskimiðum".
Ekki er ljóst af fréttatil-
kynningunni hverjir standa
að þessum nýju samtökum né
hvort þau hafa leitað eða vilja
samstarf við þau samtök um
verndun landhelginnar sem
þegar eru starfandi og stofnuð
voru í fyrravetur af Lúðvíki
Jósepssyni, Pétri Guðjónssyni
og fleirum. En „blöð þing-
flokkanna“ eru sögð hafa
„þagað þunnu hljóði“ og öll
sett þar undir einn hatt. Upp-
lýsingar um hin nýju samtök
veitir Anna Jónsdóttir, Þóru-
felli 8, Reykjavík, í síma
73093.
Auglýsið i
Morður-
landi
Síminn er
2-18-75
Akureyrar
auglýsir eftir fólld til starfa við skóladagheimili,
sem taka mun til starfa í byrjun janúar 1977. Ósk-
að er eftir forstöðumanni/konu með uppeldis-
fræðilega menntim (fóstru, kennara) og starfs-
fólki m. a. við mötuneyti.
Nánari upplýsingar verða veittar á Félagsmála-
stofnun Akureyrar, Geislagötu 5, sími (96)21000.
Skriflegar umsóknir skulu hafa borist fyrir 25.
nóvember nk.
Aðstoð verður veitt við útvegun húsnæðis á Akur-
eyri, ef þörf er.
íjjjM&b Leikfélag Akureyrar Karlinn 1 kassanum LÍTIL ÍBÚÐ ÖSKAST eða gott herbergi með eldunarplássi. Uppl. í síma 2-18-75
Skopleikur eftir Arnold og Bach. Sýningar þessa viku: Föstudag. Sunnudag. Árbókin 1975
SABlNA í næstu viku. Helstu heimsfréttir er komin.
Miðasalan opin kl. 5—7 daginn fyrir hvem sýn- ingardag og kl. 5—8.30 sýningardaginn. Bókaverslunin EDDA
SlMI 1-10-73 Akureyri
Opið hús fyrir aldraða
verður á hverjum miðvikudegi frá 10. nóv. til og
með 15. des. kl. 15 að Hótel Varðborg.
Veitingar og fjölbreytt dagskrá, svo sem söngur,
upplestrar, leikir, föndur, kynnisferðir, kvik-
myndir, spilað, teflt og dansað.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
Félagsmálastofnun Akureyrar
F.V.S.A. F.V.S.A.
Félagsfundur
verður haldinn í Félagi verslunar og skrifstofu-
fólks að Brekkugötu 4 laugardaginn 13. nóvember
kl. 13.30.
Fundarefni:
Frumvarp til laga um stéttarfélög og vinnudeilur.
Drög að stefnuyfirlýsingu A.S.I.
Stjðrnin
SVEITAKEPPIMI
BRIDGEFÉLAGS AKUREYRAR
hefst þriðjudaginn 16. nóvember. — Tilkyxma
þarf þátttöku sem fyrst og helst fyrir sunnudags-
kvöld. — Stjðrnin.
NORÐURLAND — 7