Norðurland - 10.12.1976, Qupperneq 3

Norðurland - 10.12.1976, Qupperneq 3
Þingeyincfar: Sameignarfélag um elliheimilið Bygging dvalarheimilis aldr- aðra á Húsavík er hafin og hafa sveitarfélög í héraðinu 4. stærsta fyrirtækið KEA er fjórða stærsta fyrir- tæki landsins miðað við vinnu aflsnotkun samkvæmt skýrsl- um um slysatryggðar vinnu- vikur. Þetta kemur fram í skrá, sem gerð er af Guðmundi Magnússyni prófessor og birt- ist í Frjálsri verslun 8. tbl. þ. árs. Skráin nær yfir 50 stærstu atvinnurekendur 1975, en árið 1974 var KEA í 5. sæti. Sam- kvæmt skránni eru tíu stærstu fyrirtækin: 1. Póstur og sími, 2. SÍS, 3. Flugleiðir, 4. KEA (með úti- búum), 5. Eimskip, 6. íslenska álfélagið, 7. Landsbankinn (án útibúa), 8. Sláturfélag Suður- lands, 9. Energoprojekt við Sig öldu, 10. Mjólkursamsalan. stofnað sameignarfélag um byggingu og rekstur þess og skipað sérstaka bygginga- nefnd. Þetta kom fram ma. á aðal- fundi Styrktarfélags aldraðra í Þingeyjarsýslu, 4. des. Fé- lagið hefur beitt sér að undir búningi dvalarheimilisins og þegar lagt fram nokkurt fé til byggingarinnar, sem því hef- ur áskotnast með félagsgjöld- um og gjöfum, en auk þess stendur nú yfir sérstök fjár- öflun í sama skyni. Félagsmenn eru rúmlega 400 og stj'órn þess skipa nú Þuríður Hermannsdóttir, Húsavík, Óskar Sigtryggsson, Reykjahverfi, Elín Aradóttir, Reykjadal, Aðalbjörn Gunn- laugsson, Axarfirði, og Ingi- mundur Jónsson, Húsavík. í varastjórn eru sr. Björn H. Jónsson, Húsavík, Jóna Þórð- ardóttir, Laxamýri, og Björn Haraldsson, Kelduhverfi. — Gíróreikningur félagsins er nr. 21200. Togarinn beið í 3 daga Togarinn sem síðast landaði á Ólafsfirði mátti fyrst liggja 3 sólarhringa við Hrísey, þar- sem hann komst ekki inn í höfnina. Þetta er ekkert einsdæmi og eru ólafsfirðingar orðnir lang eygir eftir hafnarbótum með betra lægi fyrir togarana og télja Ólafsfjarðarhöfn hafa orðið útundan, ékki sist með tilliti til að hún er önnur stærsta höfnin norðanlands varðandi bolfisk. Hafnarmálin eru stöðugt á dagskrá hjá bæjarstjórn, sem hefur nú breytt fyrirhugaðri framkvæmdaröð hafnamála- stjórnar og vill fyrst af öllu fá lagfærðan lélegan grjót- Varnargarð og lægi fyrir tog- arana. Gert er ráð fyrir að settar verði 30—40 milljónir í Ólafsfjarðarhöfn. - Björn Þór. Dagheimilinu á Raufar- höfn hefur verið lokað Dagheimilinu á Raufarhöfn var lokað um síðustu mánaða mót vegna húsnæðisleysis og fjárskorts, en það hafði verið rekið síðan sl. vor og dvöldust þar um 22 börn. Hætt er við, að þetta eigi eftir að koma sér mjög illa í vetur fyrir börn þeirra for- eldra sem vinna úti, en lausn er ekki fyrirsjáanleg í bráð. Dagheimilið var rekið í skóla- húsinu frá því í vor og þar til hann tók til starfa í huast og síðan í félagsheimilinu, en þar stangaðist rekstur heimilisins á við aðra starfsemi hússins og reyndist hreppnum of dýr. Engin vinna Togarinn Rauðinúpur er í viðgerð sem stendur og er þvi engin vinna í frystihúsinu. En hann er væntanlegur um miðjan mánuð og verður þá trúlega næg atvinna framað jólum. Þessa dagana er hér norðaná-tt og töluvert frost. Nokkuð hefur snjóað. - Líney. Stofnfundur judodeildar Þórs verður í íþróttahúsinu við Sundlaugina kl. 3 á laugardaginn, 11. des. Þeir sem hafa áhuga á að kynnast júdó mæti stundvíslega. Upplýsingar í síma 2-18-80 ...............A ^ X x i 4 I I 1 * f x A f s f f f I I * I ? I i f f f f f f «$♦ ± x x ❖ 1 f f f f f X ? I X bækur Jólabókaútgáfan á Akureyri: Aldnir hafa áfram orð/ð Bókaútgáfan Skjaldborg hef ur sent frá sér þrjár bækur fyrir þessi jól og ber þar fyrst að nefna 5. bindi bóka- flokksins Aldnir hafa orðið, frásagnir, sem Erlingur Davíðsson ritstjóri hefur skráð eftir eldra fólki. Alls eru þeir nú orðnir 35, viðmælendur Erlings í bóka flokknum, þaraf sjö í þess- ari nýjustu bók: Guðjón Hallgrímsson frá Marðar- I. forstjóri SIS Bókaforlag Odds Björns- sonar sendir frá sér forvitni léga bók eftir Pál H. Jóns- son, Úr Djúpadal að Arnar- hóli, og er þar komin saga Hállgríms Kristinssonar, fyrsta forstjóra Sambands- ins, en nú er aldarafmæli hans og er bókin gefin út í samvinnu við SÍS. Frægðar- ferill Hallgríms frá því að hann var bóndi í Eyjafirði, síðan framkvæmdastj. KEA og loks forstjóri Sambands- ins og ótrúlega mikil störf hans í þágu samvinnuhreyf- iingarinnar og þáttur í stjórn málaþróun síns tíma, þar til hann lést fyrir aldur fram 46 ára gamall, hefur orðið mör’gum umræðuefni og þarf ekki að efa að ófáa mun fýsa að glugga í þá sögu, sem Páll H. Jónsson frá Laugum hef- ur hér fest á blað. Hann hef- ur unnið að þessu verki lengi og aflað gagna og heimilda úr öllum áttum. Bókina prýða margar myndir. Ingibjörg enn •x~x~x~x~:~x“x"x~:“x~x~x~x~x~x*»x“:~x»*x«*>' -x-x-x* t f f : f I * I x x x I I f f f f X * I f f ? f f X I 1 ! ? ? f f f I '4 4 4 I 4 f i f f f f f f f f f X X X f V V ♦•:—:—x—x—x—:—x—x—:—:* núpi í Vatnsdal, Helgi urs Jónssonar bónda þar. Símonarson fyrrum skóla- Þá eru komnar frá Skjald- stjóri og bóndi á Þverá í borg tvær barnabækur, Eld- Svarfaðardal, Jóhanna Gunn urinn í Útey, 9. bók Indriða laugsdóttir húsmóðir á Akur Úlfssonar s'kólastjóra, og 6. eyri, Óli Bjarnason sjómað- Kátu'bókin, Káta og fóst- ur og sigmaður í Grímsey, bræðralagið, eftir Hildegard Stefán HaTldórsson múr'ara- Diessel. Fyrri Kátu-bækurn meistairi Akureyri, Tryggvi ar hafa notið vinsælda og er Helgason fv. formaður Sjó- sú fyrsta uppseld. Sama má mannafélags Eyjafjarðar og segja um bækur Indriða, Þuríður Gísladóttir í Reyni- þrjár þeirra eru nú orðnar hlíð við Mývatn, ekkja Pét- ófáanlegar. Hoel einsog þær fyrri um ástir og örlög og gott og fallegt fólk. Þessi heitir Bergljót. Fræki- legt sjúkraflug heitir saga handa börnum og ungling- um eftir Ármann Kr. Ein- arsson, 2. útgáfa, sem nú kemur sem 9. bók í ritsafni höfundar hjá forlaginu. Að lokurn er komin frá Bókaforlagi Odds Björnsson ar Sikáldsaga norska rithöf- undarins Siigurd Hoels, Upp- gjörið, í þýðingu Gunnars Kristinssonar, en margir Þá gefur Bókaforlagið út telja þessa bók Hoels þá per 17. skáldsögu Ingibjargar sónulegustu og einlægustu Sigurðardóttur, sem fjallar frá hans hendi. Johann Snorrason sigurvegari á haustmóti Haustmóti Skákfélags Akur- eyrar lauk á miðvikudag 8. des. Þátttakendur voru 22. Tefldar voru 7 umferðir eftir Monradkerfi. Sigurvegari varð Jóhann Snorrason með 5V2 v. annar varð Jón Ingimarsson einnig með 5V2 v., stig ráða úrslitum. Röð efstu manna: 1. Jóhann Snorrason 5V2 2. Jón Ingimarsson 5V2 3. Haki Jóhannesson 5 4. Margeir Steingrímsson 5 5. Jón Björgvinsson 5 9 6. Stefán Ragnarsson 4V2 Deildarkeppnin Um síðustu helgi fór sveit frá Skákfél. Akureyrar til Reykja víkur og tefldi við sveit frá Taflfélagi Reykjavíkur og Tafl félagi Hafnarfjarðar. í sveit- inni voru: Halldór Jónsson, Hreinn Hrafnsson, Jón Björg- vinsson. Hólmgrímur Heiðreks son, Gylfi Þórhallsson, Haki Jóhannesson, Stefán Ragnars- son og Margeir Steingrímsson. Frammistaða Akureyringa var var ágæt, fengu 3 vinninga gegn 5 í keppni við Taflfélag Reykjavíkur. Jón vann Hilmar Karlsson, Gylfi vann Gylfa Magnússon, jafntefli varð hjá Hreini og Birni Þorsteinssyni og Stefáni og Þresti Bachman. Akureyringar fengu 4V2 gegn 3V2 í keppni við Hafnfirðinga. í 2. deild kepptu sveitir frá Vestmannaeyjum, Austfjörð- um, Breiðafirði og Vestfjörð- um. Vestfirðingar unnu með miklum yfirburðum og tefla í 1. deild að ári. Ungir skákmenn Gífurlegur skákáhugi hefur gripið um sig meðal barna og unglinga á Ólafsfirði og stunda td. um 90% barna, bæði strákar og stelpur, úr 4., 5. og 6. bekk barnaskólans ékákíþróttina af kappi og taka þátt í flökkakeppni. Er tekið eftir, að þar standa stelpurn- ar sig ekki síður en skóla- bræðurnir. Frank Herlufsen, sem var Norðurlandstmeistari í skák í fyrra, stjómar skákiðkun barnanna og kennir þeim, og eru sérstakir skáktímar á stundaskrá þeirra í skólanum. Hefur þetta gefið góða raun og reynst þroskandi. Bj. Þór. Aðalfundur Þingeyingafélagsins Aðalfundur Þingeyingafélags- ins á Akureyri var haldinn 13. nóv. síðastliðinn. Félagið var stofnað árið 1962, og eins og nafnið ber með sér er það átt- hagafélag, sem vinnur að lcynn ingu þingeyinga, sem hér eru búsettir, og hefur jafnframt reynt að stuðla að framfara- málefnum heima í héraði. Eft- irtaldir voru kosnir í stjórn félagsins: Sigurður Aðalgeirsson, for- maður. Aðrir í stjórn, Einar Kristjánsson, Svandís Hannes- dóttir, Hreiðar Arnórsson og Sigurveig Einarsdóttir. Fráfarandi formaður, Stef- án Þorláksson baðst undan endurkosningu, einnig aðrir fyrrverandi í stjórn, og var það tekið til greina, að öðru leyti en því að Einar Kristjánsson, sem verið hefir ritari frá stofn un félagsins, var endurkjörinn. Árshátíð félagsins er fyrirhug uð snemma á næsta ári. NORÐURLAND — 3

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.