Norðurland - 10.12.1976, Blaðsíða 6
Jólatré
og greinar
LANDGRÆÐSLUSJÓÐS verða til sölu í Hafnar-
stræti 105 frá og með 10. desember kl. 1 —6 e. h.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Kaupum rjúpur
Kaupfélag Svalbarðseyrar
símar 2-13-38 og 2-12-04
Nauta-
kjöt
í heilum og hálfum skrokkum
Tilbúið í frystikistuna
Kaupfélag Svalbarðseyrar
símar: 2-13-38 og 2-12-04
Jólavörurnar
fást hjá okkur
Á I. hæð:
Ein stærsta leikfangaverslun landsins.
Deild með íslenskar ullar og skinnavörur.
Keramik. Mokkajakkar í úrvali.
Á II. hæð:
Fatnaður á unga og aldna, og úrval af dúkum
og ýmsum gjafavörum.
Sængurverasett á hagstæðu verði.
Sendum gegn póstkröfu.
Leikfangamarkaðurinn
Klæðaverslun
Sig. Guðmundssonar
Hafnarstræti 96, sími 1-14-23, Akureyri
AFEIMGISBOLIÐ
Skóladagheimilið
Framhald af bls. 8.
fólks, flugliða og farmanna af
áfengi og tóbaki. Þá taldi það
fráleitt, að erlendir seljendur
áfengis hafi hér sérstaka um-
boðsmenn þrátt fyrir einka-
sölu ríkisins.
Vínlausar opinberar móttökur
Þingið skoraði á stjórnvöld að
afnema áfengisveitingar í veisl
um ríkis og sveitarfélaga, þakk
aði menntamálaráðherra fyrir
að afnema vínveitingar í skóla
húsnæði og taldi nauðsyn að
banna áfengisveitingar á sam
komum á vegum skóla.
Skorað var á fjármálaráð-
herra að láta gera fjárhags-
lega úttekt á efnahagstjóni af
völdum áfengisneyslu, tapi
vinnustunda, styttingu starfs-
aldurs, auknum sjúkra- og
sjúkrahúskostnaði og auknum
kostnaði við löggæslu og dóms
mál, eignatjóni osfrv. og birta
úttektina síðan opinberlega.
Stjórnvöld voru hvött til að
auka fjárframlög til æskulýðs
samtaka sem vinna fyrirbyggj
andi starf á sviði bindindis-
mála og að lokum var skorað
á stjórnvöld að framfylgja
banni við hverskonar auglýs-
ingum á áfengi og sérstaklega
varað við lævíslegri auglýsinga
starfsemi umboðsmanna utan
við lög og rétt td. með prentun
um á plastpoka, öskubakka
ofl.
Framhald af bls. 1.
heimili þessu ætlað að vera
þeim börnum til stuðnings í
nárni, sem þroska síns vegna
eða annarra aðstæðna standa
höllum fæti gagnvart kröfum
skólans.
Þarna er ráðgert, að fram
fari kennsla til aðstoðar þess-
um börnum. Einnig er gert
ráð fyrir, að máltíðir verði
framreiddar og að aðstaða
verði fyrir föndur, lei'ki og
afþreyingu. Húsnæðið býður
upp á góða möguleika í þess-
um efnum, þannig að hópar
geti samtímis fengizt við ýmis
viðfangsefni. Stærð hússins
leyfir, að þar dvelji samtímis
20 börn, en heildartala þeirra,
sem þarna nytu vistar og að-
hlynningar gæti þó verið
nokkru hærri, enda dveldu
þau ekki öll samtímis á staðn-
um. Þannig mætti gera ráð
fyrir 12—15 börnum í senn,
en heildartalan gæti verið á
bilinu frá 25—30 börn.
Það er augljóst mál, að
nokkur tilkostnaður er sam-
fara rekstri slíks heimilis, og
er því brýnt, að inntaka barna
sé markviss og að tekið sé mið
af því, að þau börn fái notið
vistar, sem þess þurfa með og
gagn mega hafa af. Eftirtaldir
aðilar munu fjálla um inn-
töku barna á skóladagheimil-
ið: Félagsmálastjóri, barna-
yfirlæknir, sérkennarar, skóla
stjórar Akureyrarskólanna,
forstöðumaður/kona heimilis-
ins.
Það er kunnara en frá þurfi
Framhald af opnu.
geima. Þó segjast þeir þakk-
látir ef fólk skrifar um önnur
efni en þau sem nefnd eru í
listanum.
Minnt er á ma. að íslendinga
sögur eru að miklu leyti ævi-
sögur venjulegs fólks og að
ævisagnaritun almennings hér
á landi hefur verið tíðari en
erlendis, þar sem það hafa
einkum verið forystumenn í
stjórnmálum sem skrifað hafa
ævisögur sínar.
Eitt svar þegar komið!
„Við sem að þessu stönd-
um,“ segir að lökum, „viljum
eindregið hvetja fólk til að
taka þátt í samkeppninni, ekki
síst þá, sem lítið hafa fengist
að segja, að skipan marg-
nefndra dagvistunarmála er
vægast sagt vanræktur mála-
flokkur. Hér í bæ er mikill
skortur á dagheimilisplássum
og langir biðlistar við dag-
vistunarstofnanir bæjarins,
Pálmholt, Árholt og Iðavelli.
Á þessum þrem stöðum er að-
eins rými fyrir 182 börn og
þar af aðeins hálfan daginn á
leikskólunum.
Þykir mörgum, sem bráð-
liggur á að koma börnum í
góða daggæzlu, að vonum hart
undir að búa slíku ástandi, og
er sízt láandi, þótt nokkurri
skuld sé skellt á yfirvöldin
hvort sem þau heita bæjar-
stjórn Akureyrar eða eitthvað
annað. Satt er það, að hlutur
bæjarstjórnar Akureyrar er
he'ldur óburðugur í þeim mál-
um, sem kalla mætti réttlætis
•mál yngstu samborgaranna.
Aðeins verður að geta þess
•samtímis, að hlutimir gerast
ekki sjálfkrafa og almenning-
ur verður að láta svo lítið að
nenna því að sýna vissum
málaflokkum áhuga, eigi þeir
að komast heilir í höfn.
Það nægir ekki bara að
skamma einhvem úti í blám-
anum og láta þar við sitja.
Fólk upp til hópa, hvort sem
því liggur á að koma barni í
gæzlu eða ekki, verður að ýta
á yfirvöldin og það duglega.
Öðruvísi gerast ekki þeir hlut
ir, sem heyra til almennings-
þjónustu og samneyzlu í okk-
ar þjóðfélagi.
við skriftir. Hina sem mikið
skrifa, þarf síður að hvetja.
Það er vissulega oft svo, að
þeir sem kallast vel lesnir geta
hæglega ruglað því saman,
sem þeir hafa lesið eða heyrt.
Þess vegna geta traustustu
svörin komið frá greindu
fólki, sem ekki er um of hald-
ið af bóklestri og lærdómi.“
Skilafrestur hefur verið sett
ur 1. nóv. 1977, en ekki þarf
það að vera endanleg ákvörð-
un. Þess má geta, að þegar
hefur borist eitt svar um hæl.
Nánari upplýsingar geta gef-
ið: Ólafur Hansson prófessor,
sími 25088 og 22514, Einar G.
Pétursson, sími 25541 og
11746, og Árni Björnsson,
sími 18050 og 20482.
SNIÐILL hf. ,1
SI
Óseyri 8, Akureyri.
Sími 2-22-55.
Hefur söiuumboð á
Norðurlandi fyrir:
SIMCA
1100, 1307/1508
Dodge
fólksbíla, jeppa
og flutnirigabíla
Plymouth
fólksbíla og jeppa
frá hinum frægu
CHRYSLER
bílasmiðjunum í Banda-
ríkjunum og
Frakklandi.
Hafið samband við
SNIÐIL hf. sem hefur
margra ára reynslu
í bílasölu og þjónustu og
kynnið yður úrvalið og
kjörin áður en þér leitið
annað.
Ilökull hf.
ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK Simi 84366
Dalvík
Framhald af bls. 1.
um. En úr því stæði nú til að
bæta hjá Fóstrufélaginu og
Fóstruskólanum, sem hugs-
uðu ti»l fræðslu fyrir starfs-
fólk dagheimila utan Reykja-
víkursvæðisins.
Á barnaheimilið á Dalvík
eru tekin börn 1—6 ára, sem
er yngra en víðast annars-
staðar og er heimilið því erf-
iðara og þyrfti í rauninni
fleira starfsfólk. Gjald fyrir
börnin er 14 þús. kr. allan
daginn og kr. 6000 hálfan dag
inn. Kostnaður er greiddur
niður af bænum, sem ætlar
rúmar 2 milljónir í rekstur-
inn sem áður sagði, en 100
þús. fóru á árinu í leikfanga-
kaup og viðgerðir á útileik-
föngum.
Fjárhagslega er orðið mjög
erfi-tt fyrir sveitarfélögin að
reka dagheimili síðan ríkið
hætti þátttöku sinni með nýj-
um lögum um síðustu áramót
og tekjur af söluskattstigum,
sem koma áttu í staðinn fara
ýfirleitt í annað, á Dalvík td.
í elliheimilið. — Óttar.
Jólakerti og
jólaserviettur
Mikið úrval í mörgum litum
Munið jólakonfektið
þar er úr mörgu að velja
S. G.
- IHIIMIMIIMGASKRIF
6 — NORÐURLAND