Norðurland - 10.12.1976, Blaðsíða 8

Norðurland - 10.12.1976, Blaðsíða 8
NORÐURIAND Föstudagur 10. des. 1976 MÁLGAGN SÓSÍALISTA í NORÐURLANDSKJÖR- DÆMI EYSTRA AUGLYSIÐ I NORÐURLANDI — Síminn er 2-18-75 — IMýtt fyrirtæki á Akur- eyri: Tölvuþjónustan hf. Hinn 5. des. sl. var stofnað hlutafélag, Tölvuþjónustan hf. á Akureyri, sem hefur það að markmiði að reka tölvu til al- mennrar þjónustu varðandi fjárhagsbókhald, viðskipta- mannabókhald, launaútreikn- ing o. fl. 18 einstaldingar og félög hafa þegar skráð sig fyr ir hlutum og er hlutafjársöfn- un langt komin. Þetta er fyrsta fyrirtæki sinnar tegundar á Akureyri, er vaxandi þörf fyrir þjónustu af þessu tagi, segir í fréttatil- kynningu þess. Pöntuð hefur verið IBM tölva S/32 og gert er ráð fyrir að rekstur hennar hefjist fyrri hluta árs 1977. Slík tölva auðveldar td. út- reikning á hverskonar bónus greiðslum og þykir tilvalin við gjaldendabókhald sveitarfé- laga. Gefinn verður kostur á sérstöku birgðabókhaldi eða í tengslum við viðskiptamanna bókhald. Þessi tækni er hag- kvæm við launaútreikninga og enn fremur gefur hún ótrúlega möguleika á hverskonar upp- lýsingum, sundurliðunum, af- stemmingum oþh. við hið lög boðna fjárhagsbókhald. Við tölvuna er hægt að hafa skrán ingarstöðvar ásamt prentara í símasambandi við hana. Þann ig geta stærri fyrirtæki og við skiptavinir í öðrum byggðar- lögum notfært sér þessa nýju tækni til hins ýtrasta án þess að leggja í verulega fjárfest- ingu. Dagheimilis bygging fyrirhuguð Skortur er á dagvistunarplássi fyrir börn í Ólafsfirði og að- stæður ófullnægj andi, en und anfarin ár hefur verið rekinn leikskóli í húsi karlakórsins í bænum. Þar dveljast nú 20— 25 börn og starfsfólk er ein fóstra og aðstoðarstúlka. Ráð- gert er að byggja barnaheimili í bænum bráðlega og hefur bæjarstjóm byrjað á að leggja 5—600 þúsund krónur til und irbúningsvinnu. í janúar nk. verður kynning arnámskeið fyrir forstöðu- menn fyrirtækja og stofnan og síðar í vetur starfsnámskeið, þar sem kennt verður að und- irbúa verkefni til tölvuvinnslu. Námskeiðin verða þátttakend um að kostnaðarlausu. í stjórn Tölvuþjónustunnar hf. eru: Hermann Árnason Goðabyggð 10, Þorsteinn Kjartansson Skarðshlíð 9D Sigurður H. Sigurðsson Goða byggð 15, Friðrik Þorvaldsson Mamarsstíg 18 og Guðjón B. Steinþórsson Eikarlundi 6. Framhaldsstofnfundur verð ur í byrjun janúar og er þeim sem vilja gerast hluthafar eða kynna sér þjónustuna, sem hér er í boði, bent á að hafa sam band við einhverja ofnaritaða. Hann verður dýr dropinn í þessum fyrir jólin. Y Erlingur Sigurðarson, Grænavatni: J FORIMSÖGIJR ÚR NÚTÍIMA X : Y i Y X x i X i I * i X X x X í i i ? y ! I ? y y X Grænavatni, Mývatnssveit 8/12. — Ungmennafélagið Mývetningur stóð sl. laugar dagskvöld fyrir sínum hefð- bundna skemmtifundi að gömlum sið með hálfs ann- ars tírna frumsaminni dag- skrá og harmonikuspili og mjög góðar undirtektir, en dansi á eftir. Dagskráin fékk hún var að þessu sinni tvennskonar kvöldvaka, ann arsvegar í gömlum stíl með kveðskap, fornsögum, rím- um og draugasögum, og hins vegar nútímakvöldvaka í sjónvarpi með auglýsingum og öðru tiliheyrandi. Viður- kennt skal, að heldur var þetta hallt undir gamla tím- ann, þótt allt væri það reynd ar nýtt og fjallaði um nú- tíma mývetninga og aðra samtímamenn, jafnvel forn- sagan. Rímurnar voru áf kölska og kröflungum. Mikið var kveðið af lausa vísum og til að gefa lesend- um aðeins nasasjón af fram- leiðslunni er best að láta eina fjúka hér: Gjósi hnjúkur, garðar svíki, geisi drottins hefnd. Sjálfskapar í djúpu dýki drukkni Kröflunefnd. Undirbúningur undir jóla fund er hafinn svoog fyrir barnaskemmtun, sem venja er að halda. Herstöðvaandstæðingar virkir Herstöðvaandstæðingar hafa verið virkir síðan í haust, að haldinn var góður fundur fyrir landsráðstefn- una og sóttu hann hátt í 60. Þangað komu þeir Ásmund- ur Ásmundsson og Andrés Kiristjánsson frá Samtökum herstöðvaandstæðinga. Nú hafa herstöðvaandstæðingar í starfshópum hér skrifað bréf til einstaklinga vítt um sýs'luna og á Húsavík og hvetja til dáða og er stefnt að fundi samtakanna í sýsl- unni og senniltega kvöldvöku eða einhverju álíka. íþróttaiðkanir Auk skólaíþrótta eru tals- vert stundaðar íþróttir af öðrum í íþróttahúsinu, aðal- ltega blak og badminton. Heldur er þó minna um þetta nú en í fyrra og er það mest vegna bul'landi atvinnu sem verið hefur, ma. við Kröflu. í félagsheimiiinu er viku- leg spilamennska og sauma- klúbbar amk. hálfsmánaðar lega. Færð er nú tekin að þyngj ast og hefur skólabíllinn ekki gengið síðan um helgi, en börnin verið flutt á jepp- um, þau sem efcki eru í heimavist. Annars er snjór ekki verulega mikill og ef veður stillist svo hægt verði að moka ætti þetta að geta lagast. — Erlingur. Y ♦♦. i i Y .♦. t ! Y X t '4 ! i i i T T T v i X 12. þing Landssambandsins gegn áfengisbölinu: 12% íbúanna flytjendur Vara við auglýsingum utan við lög og rétt Kór Raufarhafnarkirkju gekkst 28. nóvember fyrir vel heppnuðum tónleifcum í félags heimilinu Hnitbjörg. Þar sungu kirkjukórinn og kór Raufarhahfnarskóla. Margrét Bóasdóttir tónlistarkennari söng einsöng og Orthuls Purn er tónlistarkennari lék einleik á píanó.. Fjöldi flytjenda var alls 61, en íbúar staðarins eru um 500. — Líney. í samþykkt frá 12. þingi Lands sambandsins gegn áfengisböl- inu, sem haldið var í síðasta mánuði, er vakin athygli á því þjóðarböli sem af áfengis- neyslu stafar og landsmenn hvattir til að sameinast í að- gerðum til að draga úr áfengis neyslu og nýta hvert tækifæri til að vinna gegn áfengistísku og að aukinni bindindissemi. Margar ályktanir voru sam þykktar á þinginu, þám. er dómsmálaráðherra þakkað aukið eftirlit með vínveitinga húsum og því beint til hans að engar vínveitingar verði þar tvö kvöld í viku, þaraf annað um helgi og skiptist húsin þá á um að hafa vínlaust lcvöld. Lagt er til, að leyfisgjald til vínveitinga verði stórlega hækkað. Þingið vildi láta koma í veg fyrir að sala áfengis hafi áhrif á launakjör framleiðslufólks og afnema tollfríðindi ferða- Framhald á bls. 6. Jóla glaðn- ingurinn: 5,4-7% hækkun Landsmönnum hefur heldur betur verið sendur glaðning- urinn fyrir jólin — með kærri kveðju Villa, Matta og Geira: stórhækkun á mjólfc og mjólk urvörum! Nemur verðhækk- unin frá 5.4% til 7.9% miðað við smásöluverð og kostar nú mjólkurlítrinn 75 kr. og rjóma pelinn 172 kr. Skyrkílóið er á 163 kr. og kílóið af smjörinu 1092 kr. Hitalausir ■ 3 daga Hrísey 8/12. — Hríseyingar máttu kynda með rafmagns- ofnum, gastækjum og hverju öðru tiltæku í þrjá daga sam- fleytt þegar hitaveitan bilaði um daginn. Sumir hafa enn gamlar miðstöðvar sem þeir gátu kVnt, en hætt er við að allflestir hafi hækkað raf- magnsreikninginn sinn allveru lega meðan á þessu stóð. Engin vinna hefur verið hér að undanförnu þarsem Snæ- fellið bilaði og er nýfarið út aftur. Annars stóð til að vinna í frystihúsinu alveg framað jólum. Verkakonur þar, sem jafnframt eru húsmæður, all- flestar, eru þó svolítið fegnar þessu hléi svona rétt fyrir jól- in. — Guðjón. íþróffta- flokkurinn veðurtepptur á Akureyri íþróttaflokkur sem fór frá Ólafsfirði til keppni á Akur- eyri á föstudag í síðustu viku var ekki enn kominn heim nú um miðja viku þar sem Múl- inn var ófær. Þegar flökkurinn fór frá Ólafsfirði hafði verið ófært nokkuð lengi, en 3—4 bílar komust fyrir Múlann þennan dag. Síðan ekki söguna meir og vteður hefur verið þannig, að ekki hefur verið hægt að ryðja veginn. Það er núorðið ekki gert nema þegar útlit er sæmilegt. Áður var mokstur- inn bundinn við vissan dag vikunnar, en nú er viður- kennt, að ólafsfirðingar séu sjálfir dómbærastir á það hvenær heppilegast sé að ryðja. Ófært er líka veginn framí sveitina, en bændur hafa flutt mjólkina á snjósleðum. Mjólk ursamlag er á staðnum og þótt bændur séu ekki margir hafa þeir séð þorpsbúum fyrir þess um nauðsynjum, sem er mikil bót vegna ótryggra sam- gangna. — Björn Þór.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.