Norðurland


Norðurland - 30.06.1977, Blaðsíða 7

Norðurland - 30.06.1977, Blaðsíða 7
36 sóttu um kennara- stöður við Þær eru í Haslev kórnum. Haslev kórinn í heimsókn Syngur í Ólafsfirði og Akureyri Blandaður kór frá skólabæn- um Haslev í Danmörku hefur undanfarna daga verið á söng ferðalagi um landið, þám. á Norðausturlandi, og syngur á Ólafsfirði í kvöld á Akureyri annað kvöld. Kórfélagar eru 34 á aldrin- um 15—32 ára og stunda nám eða hafa þegar lokið námi við menntasfkólann í Haslev. Kór inn hefuir farið víða, m.a. hald ið tónleika í Austurríki, Pól- landi og Sovétrí'kjunum. Kór- inn tók þátt í alþjóðlegri kóra keppni í Vín á síðasta sumri, og hlaut þar mjög góða dóma. Danska sjónvarpið fékk kór- inn til að flytja nökkur lög í sjónvarpsdagskrá á síðasta gamJárSkvöldi vegna ágætrar frammistöðu í söngkeppninni. Söngskrá kórsins fyrir íslands ferðina eru þjóðlög, negra- söngvar, og lög eftir Bach, Bellman, Mozart, Nielsen, Gunnar R. Sveinsson o.fl. Kórinn söng í Reykjavík og Skálholti um síðustu helgi, á BÆKUR Slik var det da Ola fikk en bror og Slik var det da Ola flyttet Pax Forlag, báðar bækum- ar 28 síður Með nýjustu bamabókunum mánudag í Mývatnssveit og í gær á Húsavík, en í kvöld kl. 9 verða tónleikar í Tjamar- borg á Ólafsfirði og fimmtu- dagákvöldið 30. júní kl. 20.30 í Akureyrarkirlkju. Félagar úr Passíukómum og Tónlistar- skólanum á Akureyri annast móttöku og skipulagningu ferð arinnar á Norðurlandi. 36 kennarar hafa sótt um stöð ur við grunnskóla Akureyrar og hefur skólanefnd bæjar- ins mælt með ráðningu 28 þeirra og skipun þriggja að auki. Um endurráðningu er að ræða í margar af stöðunum. Enn vantar kennara í nokkr um greinum og var ákveðið að auglýsa stöður við grunn- skólann í tónmennt, mynd- mennt (teikningu), dönsku og stærðfræði. Umsóknarfrest ur er til 1. júlí. Þá er laus staða sérkennara við Barna- skóla Akureyrar og þrjár kennarastöður við Gagnfræða skóla Akureyrar, í íslensku, erlendum málum og samfé- lagsgreinum. Yfirkennari við Glerárskóla Þrír sóttu um stöðu yfir- kennara við Glerárskóla og mælti meiriihluti skólanefndar með Páli Bergssyni kennara við skólann. Reynt að gera skólann og námið skemmtilegra 25 skólastjórar og kennarar víðsvegar af Norðurlandi sátu nýlega í Varmahlíð námskeið í kennslufræði, sem nánast fjallaði um hvernig gera má skólann skemmtilegri og nám ið aðgengilegra eftir að ncm- endur eru farnir að eyða meirihluta dagsins í skólan- um. Námskeiðið var haldið á vegum Kennaraháskólans und ir urnsjón Guðbjarts Gunnars sonar, sem jafnframt var einn fyrirlesara þess Fjallað var um ma. fyrirbærið „opinn skóli“, sem Áslaug Brynjólfs- dóttir ’kennari við Fossvogs- skóla sagði frá, og hópefli, sem Guðrún Jónsdóttir stjórn aði. Edda Ós’karsdóttir hafði kynningu og sýningu á mynd- list og föndri í sambandi við kennslu annarra greina, Bryn dis Gunnarsdóttir kenndi dramik, leikbrúðugerð og leik ræna tjáningu og Þóra Krist- insdóttir fjallaði um samskip- an almennrar kennslu og stuðningskennslu og kynnti spil og leilei til notkunar við kennslu. Hjördís Guðbjörns- dóttir sagði frá reynslu í Öldu túnsskóla af vettvangsferðum frá Páx eru tvær bækur í bókaflokknum um Óla. Bækur þessar fjalla um atvik er vald ið geta áhyggjum og erfiðleik um í lífi barna. Atvikunum er lýst frá sjónarmiði barns- ins sjálfs. Markmiðið er það að auðvelda börnum skilning á vandanum. „Slik var det da Ola fikk en bror“ lýsir eftirvænting- unni eftir því, að eignast systkini, sem oft er óraunveru leg ósk um að eignast leikfé- laga. Fjallað er um afbrýði- semi og vonbrigðin sem brjót ast fram, þegar í Ijós kemur, að litli bróðir tekur mest allan tíma og eftirtekt foreldranna. „Slik var det da Ola flyttet“ segir frá flutnineum lítils drengs úr þekktu umhverfi og erfiðleikum hans með að sam lagast ókunnu umhverfi og nýjum leikfélögum. Óla-bæk- urnar eru skrifaðar fyrir börn á forskólaaldri og er reiknað með, að þær séu notaðar til upplestrar og geti verið góður grundvöllur til umræðna. — Bækurnar eru skemmtilega myndskreyttar og báðar 28 síð ur að stærð. Höfundar eru Gydal, And- ersson, Danielsson. Kvinne kjenn din kropp, handbók Pax Forlag 1976, 294 síður Þetta er handbók, sem skrifuð er af konum fyrir konur. Hún nær til kvenna á öllum aldri, sem áhuga hafa á að þekkja starfsemi likama síns. Fáfræði kvenna um sinn eigin líkama og starf hans hefur löngum Skapað hræðslu og óöryggi. Þessvegna hafa 40 danskar konur tekið sig saman um að skrifa þessa handbók í sam- vinnu við lækna, hópur norskra kvenna hefur stað- fært bókina. „Kvinne, kjenn din kropp“ fjallar um hina algengustu kvensjúkdóma og einnig hvað valdið getur þess um sjúkdómum, og sambandið á mil'li félagslegra, sálrænna og líkamlegra vandkvæða. En bókin fjallar ekki eingöngu Framhaldsdeildirnar Skólanefnd hefur ákveðið að starfræktar verði á Akur- eyri eftirtaldar framhalds- deildir skólaárið 1977—78 og sótt um staðfestingu mennta- málaráðuneytisins: Viðskiptasvið, 1. og 2. námsár. Uppeldissvið, 1. og 2. náms- ár. Heilsugæslusvið, 1. og 2. námsár og .fornám. og hvernig nota má þær. Mikill áhugi var ríkjandi meðal kennaranna á námskeið inu, sem þarna fengu ýmsar nýjar hugmyndir og höfðu tækifæri til nánari skoðana- skipta. Um þessar mundir stendur yfir í Varmahlíð námskeið fyrir íslenskukennara og nám skeið fyrir kennara í stærð- fræði verður haldið að Laug- um á næstunni. Þá verður fjórða kennaranámskeiðið á Norðurlandi í á'gúst að Þela- mörk og er það í samfélags- fræði. um sjúkdóma. Hún tekur til meðferðar líffræði kvenlíkam ans, fæðingu, kynlíf, kynvillu, breytingaraldurinn, nauðgun, sjálfShjálp, getnaðarvarnir og fóstureyðingu. Bókin er yel fram sett og skýr án flókins fagmáls. En bok om menn Pax Forlag 1976, 112 síður Hvert er markmið kvenrétt- indabaráttu? Eru það einung- is konurnar sem eiga að breyta sér. Hvaða áhrif hefur kvenréttindabaráttan á hlut- verk karlmannsins. Hin síð- ustu ár hefur barátta kvenna fyrir rétti sínum bæði opin- berlega og í einkalífi neytt margan karlmanninn til að taka hlutverk sitt til endur- sfcoðunar. Einnig er augljóst, áð hið kapitaliska karlasamfélag kemur hart niður á mönnun- um sjálfum, sem lýsir sér með aukinni stréitu, styttra lífi og fleiri karlasjúkdómum. Framhald á bls. 6. UR BLÓMA BEÐIIMU Tónlistarskrif hafa verið með líflegasta móti á þessu vori. Hér koma fáein dæmi um hugrenningar manna í því sambandi: „illgirni, ann arleg blinda, mifcillæti, fyr irlitning, lítur niður á, lítils virðing, þetta ómenntaða fólk, þvegið smánarblett af bæ ofckar“. Sr. Birgir Snæbjörnsson í Norðurlandi 2. júní. Um gagnrýni: „á að vera ctröng og réttlát, hafin yfir alla pólitík og persónulega góðvild eða óvild“; „að jaðri við mannvonzku að bjóða fólki á að hlýða, öfund, af- brýði, illvilji, hefnigirni, hættulegt eitur, drepa með þögninni“. (Latnesk spak- mæli til bragðbætis.) Sig. Dem. Franzson söng- kennari í Degi 9. júní. Tónlistargagnrýni, sem lét ljúflega í eyrum Geysis- manna: „var furðulegt að heyra kórinn syngja dabba- dabb texta við undirraddirn ar, og er erfitt að trúa því, að Sigursveinn eigi sök á slíkri smekkleysu“, og um lagið Sverri konung eftir Sv. Sv., „sem var í alla staði lítilfjörlegt í meðferð kórsins“. „fáliðaður kvenna kór, sem mátti sín lítils gegn heilum karlakór“. Lag eftir Karl O. Runólfsson „var heldur linlega flutt“, og tvö lög eftir Jón Leifs „voru með einhverjum hætti annarrar gerðar en undirritaður þekkir þau og ekki tónrétt að öllu leyti.“ ,,f heild voru tónleikarnir ánægjulegir, en efnisskráin var ekki sérlega vönduð." Jón Ásgeirsson tónskáld í Morgunblaðinu 7. júní. Starfsfólk vantar strax í dagvistunarstofnua. Félagsmálaatofmm Aknreyrar síml 2-10-00 NORÐURLAND — 7

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.