Norðurland


Norðurland - 09.06.1978, Side 2

Norðurland - 09.06.1978, Side 2
Rauður húmor Brandarasmíð er mikil og fjölskrúðug listgrein. Húmor getur verið af ýmsu tagi, grár, svartur - og rauður. Það er síðast- nefnda tegundin sem við ætlum að kynna hér að neðan en brandararnir eru fengnir úr safnbók sem tveir Bretar tóku saman og nefnist „Bfg Fed Joke Book“. I bókinni er ma. að finna mikið safn af bröndurum frá sósíalísku ríkjunum og voru nokkur sýnishorn af því kynnt í Þjóðviljanum í fyrra. Hér að neðan eru hins vegar sagðar sögur af vinnustöðum og samskiptum verkamanna og atvinnurekenda. Góða skemmt- un! Engir kommúnistar. Sendinefnd frá sovésku verkalýðshreyfingunni var í heimsókn í Bretlandi og var ma. farið með hana í stóra bílaverksmiðju. Eftir að sovétmennirnir höfðu fræðst um starfsemi fyrirtækisins spurði forstjórinn hvernig þeim litist á bresk iðnfyrir- tæki. - Þið eigið margt ólært, svaraði formaður sendi- nefndarinnar. Þið ættuð að taka okkur til fyrirmyndar. Hjá okkur leggja verkamenn hart að sér. Þar er ekki verið að tefja fyrir með öllum þessum kaffitímum og okkar verkamenn gera ekki verk- föll eða fara sér hægt. Kjaradeildur eru óþekkt fyr- irbæri því sérhver sovéskur verkamaður gerir sitt besta án þess að reyna að maka krókinn á kostnað ríkisins. - Það er auðheyrt, svaraði for.'tiórinn, að það eru engir kc nmúnistar, sem skapa vandamál hjá ykkur. ★ Laun heimsins Byggingameistarinn var á eftirlitsferð um byggingar- svæðið þegar kádiljákurinn hans varð bensínlaus. Nú voru góð ráð dýr, ekki minna en kílómetri í næstu bensín- stöð og allt á brattann. Hann kallaði þá til iðn- nema sem sat þar skammt frá og var að drekka kaffi úr brúsa: - Heyrðu, nennirðu ekki að skjótast eftir bensíndropa fyrir mig. Það er brúsi í skottinu. Iðnneminn sem var ungur og óreyndur hafði betri hugmynd: - Farðu inn í bílinn, ég skal ýta þér. Byggingameistarinn féllst á þetta. Hálftíma seinna komu þeir á bensínstöðina. Iðn- neminn var skiljanlega eld- rauður í framan og lafmóður eftir að hafa ýtt drekanum rúman kílómetra upp í móti. Hann reyndi þó að sýnast borubrattur og bjóst við því að sér yrði launaður greiðinn ríkulega. Meistarinn teygði sig út um gluggann og spurði: - Reykirðu? - Já, herra, það geri ég, svaraði iðnneminn og sá fyrir sér skrautlegan vindla- kassa. - Já, þetta hélt ég. Þú virðist ekki vera beint góður til heilsunnar. ★ Erfiðir samningar Eftir nokkurra mánaða harðar samningaviðræður kom formaður verkalýðsfél- agsins á fund þar sem mættir voru fjölmargir reiðir og herskáir verkamenn. - Staðan er ekki góð, hóf hann máls, atvinnurekendur segjast ekki fá nógu mikil verkefni, bankarnir eru tregir á að lána og skattarnir eru alveg að drepa þá. En ég held að okkur hafi gengið vel miðað við aðstæður. Okkur tókst að herja út 3% hækk- un. Eruð þið ekki ánægðir með það? - Nei! - En með fimm mínútna lengingu á kaffitímann? - NEI! - En hvað um tveggja daga viðbót við orlofið? - Nei, nei, og aftur nei! Formaðurinn yppti öxl- um í uppgjöf og spurði: - Nú, hvað viljið þið þá? - Við viljum byltingu, hrópaði einn fundarmanna. - Það held ég að við fáum atvinnurekendur aldrei til að samþykkja, því miður. ★ Eftir byltingu Nokkur mannfjöldi hafði safnast saman til að hlýða á ræðumann á Ráðhústorgi. - Eftir byltingu, sagði ræðumaður, munu allir aka um í stórum og fínum bílum. Efitr byltingu munu allir reykja stóra vindla. Eftir byltingu munu allir eignast ljóshærða þokkadís fyrir konu. Einn úr hópnum mót- mælti: - Mig langar ekkert í fínan bíl, vindla og fagra ljósklu. - Eftir byltingu, svaraði ræðumaður, heldur þú kjafti og gerir það sem þér er sagt! ★ Hárvöxtur Verkamaður einn var að reyna að laumast óséður inn á vinnustað sinn en verk- stjórinn kom auga á hann og spurði byrstur á svip: - Hvaða flakk er á þér? - Ég var að láta klippa mig. - Láta klippa þig? I vinnutímanum? - Nú, hárið óx í vinnu- tímanum. ★ Bölvun tóbaksins Atvinnurekandinn var á gangi um vinnusalinn til að sjá hvort allt gengi ekki sinn vanagang. Þá rekur hann augun í sígarettustubb undir stól og það þótt út um allt væru skilti sem tilkynntu að reykingar væru harðbann- aðar. Hann snéri sér að næsta verkamanni og spurði: - Átt þú þennan stubb? - Nei, félagi, þú sást hann fyrstur. Hinn vopnaði friður Heimspólitíkin er stundum nokkuð kaldhæðin. Svo vildi til nú á dögunum að svo til sam- tímis var haldin afvopnunarráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna og leiðtogafundur NATÓ þar sem ma. kom fram að bandalagið ætlar að stórauka vígbúnað sinn og leggur nú hart að aðildarríkjum sínum að verja meira fé til hermála. Hér hefur danski teiknarinn Herluf Bidstrup teiknað þá Jimmy Carter forseta Bandaríkjanna og Josep Luns frkvstj. NATÓ sem íslendingar þekkja fyrir allsérstæða aðstoð í landhelgismálum. Carter segir við vin sinn Luns: - Kæri Luns. Nú hefur NATÓ ákveðið að verja stjarnfræðilegum upphæðum til kaupa á nýjum vopnum, sprengjum oþh. Nú er um að gera að pakka frásögn af þeirri ákvörðun inn í fallegu ræðurnar sem við erum alltaf að halda um frið og afvopnun. Að krafla yfir botnlaus Sigöldulón Þeir einu sem enn bera virð- ingu fyrir Alþingi eru líklega þingmenn, en sjálfsvirðing er líka virðing, og það er furðu- legt að þingmönnum skuli ekki hafa þótt henni misboðið þegar orkumálastjóri sagðist, í Kastljósþættinum 28. apríl síðastliðinn, flokka í þá upp- lýsingar frá stofnuninni. Af hverju ætli skáldið hafi ekki sagt, ,,guð gaf mér dómgreind"? Ekki var það þingmaður sem gat látið em- bættismenn velja úr upplýs- ingum fyrir sig, það sem hollt væri fyrir það að sjá og heyra. Ef Alþingi er (væri) æðsta stofnun þjóðarinnar hvað eru IÐJA leggst í ferðalög Félagar í Iðju á Akureyri verða á faraldsfæti á næstunni því framundan er kvöldferð til Ólafsfjarðar næsta fimmtudag og fimm daga orlofsferð til Suðurlands um miðjan júlí. Er nú tekið á móti farpöntunum á skrifstofu Iðju. Lagt verður upp í kvöldferð- ina frá Varðborg kl. 19:30 á fimmtudagskvöldið 15. júní. Er ætlunin að reyna að fanga pokkra geisla miðnætursólar í þá þær stofnanir og þeir forstjórar sem flokka upplýs- ingar í hendur henni? Sælir eru fátækir í anda, því þeirra er himnaríki. Ætli þetta eigi við hér? Og svo eyðum við tíma og prentsvertu í að rífast um kvikmyndaeftirlit. Tæplega yrðu hér veruleg efnahags- skakkaföll þó ekki fengjust sýndar hér einhverjar kvik- myndir. Ætli þetta sé kannski bölvað klám sem stendur í skýrslum sérfræðinga Orku- stofnunar? Hugsum okkur ísmeygilega rödd segja „Jæja, hverjir segja já, suss suss, aðeins tveir, Ólafsfirði ef vel viðrar. Einnig verður boðið upp á kaffi. Verð þessarar ferðar er kr. 1.000 á mann og verður fólk að til- kynna þátttöku ekki síðar en á mánudag. Dagana 16. - 20. júlí verður svo farið í orlofsferð til Suður- lands. Verður gist í hótelinu á Laugarvatni en þaðan farið í 1 - 2 skoðunarferðir á dag, m.a. til Reykjavíkur, Selfoss og Stokks eyrar. Verð þessarar ferðar er kr. 25. þúsund en innifalið í því er gisting í 2ja manna herbergj- um, morgunverður, kvöldverð- ur og allar skoðunarferðir. Þátttaka er takmörkuð við 37 manns og er nauðsynlegt að tilkynna þátttöku til skrifstofu Iðju í síma 23621 í síðasta lagi 16. júní. nei það er ekki nógu gott, við segjum þá ekki hvað margir sögðu já og ekkert um nei-in.“ Og síðan: „Það er ég, sem stjórna, það er ég, sem ber ábyrgðina og sem kynni álit stofnunarinnar út á við, eða kynni það ekki.“ Ætli skattborgararnir hafi ekki orðið að sjá af peningum í álit sérfræðinganna og ætli þeim sé þá of gott að fá þau öll, eða ætli þeim sé ekki hollt að frétta af öllu sem í þeim stendur? En sem sagt, þingmennirnir allir með tölu, fóru heim án þess að kvarta undan því að Framhald á bls. 7. Söngfólk Passíukórinn á Akureyri er nú að hefja nýtt starfsár, með æfingum á Oratoríunni Árs- tíðunum eftir Haydn, sem er eitt af þekktustu verkum hans. Haydn lauk við Árstíðirnar 1801 og var verkið frumílutt í Vín sama ár. Kórinn þarf nú að auka lið sitt nokkuð, einkum í karlaröddum og er þeim sem áhuga hafa á að syngja með næsta vetur bent á auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. Kórinn óskar að koma á framfæri þakk læti til allra þeirra fjölmörgu, sem veittu kórnum stuðning við nýafstaðið tónleikahald. Fréttatilkynning. 2 -NORÐURLAND

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.