Norðurland


Norðurland - 09.06.1978, Blaðsíða 8

Norðurland - 09.06.1978, Blaðsíða 8
Föstudagur 9. júní 1978 MÁLGAGN SÓSÍALISTA f NORÐURLANDSKJÖR- DÆMI EYSTRA GERIST ÁSKRIFENDUR - Síminn er 2-18-75 - AUGLÝSIÐ í NORÐURLANDI - Síminn er 2-18-75 LAND tal af Ólafi Ásgeirssyni lögregluvarðstjóra og spurði hann álits. - Þetta kom mjög vel út og ég held að við lögreglumenn séum almennt ánægðir með þessa ráðstöfun, sagði Ólafur. Þó held ég að ekki ríki áhugi á því að loka götunni alveg fyrir bílaumferð. Fólkið virtist einnig vera ánægt með breyt- inguna enda eru forrdæmi fyrir þessu í lokun götunnar á Þorláksmessu og álíka dög- um. - Fylgdu engin vandkvæði annars staðar í miðbænum? - Auðvitað jókst umferðin við önnur götuhorn og vissir erfiðleikar sköpuðust við Torgið en þeir eru yfirstígan- legir. - Verður ekki skortur á bílastæðum? Hafnarstræti göngugata - þó aÖeins tvo daga í viku hverri Hver hefði trúað því að þessi mynd væri tekin um sexleytið á T'-tudegi í Hafnarstræti? Þa .r hún nú samt. En hvar eru allir bílarnir? Þeir hafa verið gerðir útlægir úr þess- ari fjölförnustu götu Akureyr- ar á fimmtudögum og föstu- dögum eftir kl. 13 og fram að lokunartíma verslana. Þessi lokun kom til fram- kvæmda á fimmtudaginn var. í fyrstu var eins og fótgang- andi bæjarbúar kynnu ekki að notfæra sér þetta aukna svig- rúm, þeir héldu sig samvisku- samlega á gangstéttunum og voguðu sér ekki út á götuna nema til að skjótast yfir á hina gangstéttina. En þetta kom smám saman eins og sést á myndinni. í tilefni af þessari umferð- arbreytingu hafði NORÐUR- - Þarna lokast um 20 bílastæði en þau eru til annars staðar ef menn leita að þeim. Það má t.d. benda á stæðin við Stefni, hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar og fleiri. Þau eru að vísu aðeins lengra frá en menn verða að láta sig hafa það, sagði Ólafur. Siglufjörður Allir nema Framsókn mynduðu meirihluta Á Siglufirði urðu úrslit bæjar- stjórnarkosninga þau að AI- þýðubandalagið vann einn mann af Sjálfstæðisflokknum og hefur það nú 3 fulltrúa en Alþýðu-, Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokkur 2 fulltrúa hver. Síðasta kjörtímabil ríkti á Siglu firði samstjórn allra flokka nema Alþýðubandalagsins en það hefur nú breyst. NORÐ- URLAND hafði tal af Gunnari Rafni Sigurbjörnssyni skóla- stjóra en hann er einn þriggja bæjarfulltrúa flokksins. Hér hefur náðst samstaða um meirihlutasamstarf Alþýðu- flokks, Sjálfstæðisflokks og okkar og gerum við ráð|fyrir að fyrsti bæjarstjórnarfundur verði á fimmtudag. Við höfum nú verið í minnihluta í bæjar- stjórn í uþb. 20 ár svo hér hefur orðið mikil breyting enda unn- um við mikinn sigur í kosning- unum. Samningar flokkanna eru á lokastigi og ekkert eftir sem ætti að breyta niðurstöðu þeirra. Hér er því að komast á nokkurs konar nýsköpunar- stjórn. Við nefndum það fyrir kosn- ingar að við teldum eðlilegt að Alþýðubandalag og Alþýðu- Hokkur ynnu saman að bæjar- málum og í viðræðum flokk- anna kom svo íljótlega í ljós áhugi á að taka Sjálfstæðis- flokkinn inn í dæmið. Við settum fram þá kröfu að bæjarfélagið féllist á tilboð Verkamannasambandsins og greiddi starfsmönnum sínum laun samkvæmt því og það olli engum erfiðleikum í samninga- viðræðunum. Á ég því von á að það verði samþykkt á fimmtu- daginn eða mjög fljótlega eftir það. - Hver verða helstu viðfangs- efni bæjarstjórnar á þessu ný- byrjaða •kjörtímabili? □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ □ □ □ □ □ □ OPIB HÚS □ □ □ □ □ □ n □ □ □ í Eiðsvallagötu 18 □ □ □ □ □ □ □ 17. júní □ □ □ □ □ □ n síðdegis, þegar hlé gefst frá öðrum hátíðarhöldum. □ □ n □ □ Skemmtidagskrá - Kaffiveitingar LJ □ □ □ □ □ □ Nánar auglýst í næsta blaði. □ □ □ □ □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ - Þar er fyrst til að taka þörf- nægjanlegs og góðs drykkjar- ina á varanlegu slitlagi á allar vatns en það er bæði af götur bæjarins. Einnig er það skornum skammti núna og brýnt verkefni að afla bænum Framhald á bls. 7, Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra er í Eiðsvallagötu 18 á Akureyri og er hún opin frá kl. 10-22 alla daga. Síminn er 21704. Kosningastjóri er Angantýr Einarsson. Á öðrum stöðum í kjördæminu eru umboðsmenn og skrifstofur sem hérsegir: Úlafsfjörður: Agnar Víglundsson, Kirkjuvegi 18, sími 62297. Dalvík: Úttar Proppé, Heimavist Gagnfræðaskólans, sími 61384. Hrísey: Guðjón Björnsson, Sólvallagötu 3, sími 61739. Húsavík: Kosningaskrifstofan, Snælandi, sími 41453. Starfsmaður er Benedikt Sigurðarson. Utan skrifstofutímæ Kristján Pálsson, Upp- salavegi 21, sími 41139. Mývatnssveit: Sigurður Rúnar Ragnarsson, Helluhrauni 21, sími 44136. Raufarhöfn: Þorsteinn Hallsson, Ásgötu 16, sími 51243. Þórshöfn: Henrý Már Ásgrímsson, Lækjarvegi 7, sími 81217. G-listann vantar bíla á kjördag! Skráið ykkur sem fyrst! öllum kostnaði við kosningabaráttuna verður í hóf stillt eins og mögulegt er en G-listinn þarf vægast sagt að njóta örlætis stuðningsmanna sinna þessa dag- ana. Litið inn og styrkið kosningasjóðinn. Trúlegt er að tiltölulega fleiri kjósendur G-listans en annarra lista verði ekki heima á kjördag. Tiikynnið skrifstofunni um þá sem kjósa þurfa utan kjörstaðar. Afsakið, kratar Vegna viðtals við Angantý Einarsson í NORÐUR- LANDI um kosningaúr- slitin 28. maí þar sem hann segir að Lárus Jónsson sé í fallhættu fyrir Soffíu Guð- mundsdóttur vill hann koma á framfæri afsökun- arbeiðni til Alþýðuflokks- ins. Undanfarin kjörtímabil hefur engin ástæða verið til að reikna með Alþýðu- flokk.num í skiptingu þing- sæta hér í kjördæminu. Þess vegna gleymdist þessi flokkur í stuttu símtali þeg- ar tölur voru ekki við hend- ina. Við nánari athugun kem- ur hins vegar í Ijós, ef gert er ráð fyrir svipuðum gangi mála í þingkosningunum og var í byggðakosningun- um, að Alþýðuflokkurinn tekur svo mikið fylgi frá Ihaldinu að Lárus Jónsson er kolfallinn fyrir Braga. Aðrar breytingar í kjör- dæminu eru ólíklegar en ef um þær yrði að ræða kemur aðeins eitt til greina: Stórkostleg fylgisaukn- ing Alþýðubandalagsins gæti komið Soffíu á þing sem uppbótarmanni og jafnvel sem kjörnum þing- manni, þá í stað Inga Tryggvasonar. Slíkt væri sannarlega verðug ráðning á ríkis- stjórnarflokkana. 52 atkvœði Samtök frjálslyndra og vinstri manna, Fylkingin og Marx-leninistar gera út lífbát fyrir Sjálfstæðisflokk inn í aiþingiskosningunum í Reykjavík. Hefðu þessir aðilar boð- ið fram í borgarstjórnar- kosningunum verður að ætla að þeir hefðu fengið samtals 52 atkvæði frá Al- þýðubandalaginu en ekkert frá íhaldinu. Með þessum atkvæðaijölda hefðu þessi undarlegu stjórnmálasam- tök tryggt Sjálfstæðis- flokknum 8 borgarfulltrúa og áframhaldandi meiri- hluta í Reykjavík. Hvert atkvæði greitt þessum framboðslistum jafngildir í raun stuðnings- yfirlýsingu við Geir Hall- grímsson og ríkisstjórn íhaldsins. Rauði boli Á sameiginlegum kosninga fundi stjórnmálaflokkanna s.l. föstudagskvöld bar það til tíðinda að einn af frambjóðendum Sjálfstæð- isflokksins fór að ræða föt eins mótframbjóðandans. Eftir fundinn barst miði með vísu þessari: Rökþrota um rauðar flíkur ræðir margt og þykist vitur. Halldór Blöndal bola líkur Báða ærir sami litur.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.