Norðurland - 09.06.1978, Síða 7
ftstltt VBftjncar
Að krafla
Framhald af bls. 2.
dómgreind þeirra væri ekki
treyst.
Hvað eru þá kjósendur að
kvarta yfir að þeirra dóm-
greind sé ekki virt, nema til að
velja menn í „æðstu“ stofnun
þjóðarinnar?
Liggur nú ekki beint við að
leggja til, til þess að virðing
Alþingis megi vaxa, að For-
stjórarnir sem hingað til hafa
flokkað upplýsingar í hend-
urnar á þingliðinu og þjóð-
inni, velji þingmenn sem þola
að fá yfir sig óflokkaðar
upplýsingar og þá væntanlega
treystandi til að dæma á
grundvelli þeirra, verst að
Forstjórarnir skuli ekki geta
valið sér þjóð, en kannski
finnst einhvern tíma lausn á
þeim vanda.
Hvað sagði nú ekki ísak við
Jakob er hann blessaði hann í
stað Esaú. „Þjóðir skulu
þjóna þér og lýðir lúta þér.“
Hrafn Baldursson, Rjóðri.
Húsavík
Framhald af baksíðu.
- Já, B-listinn er kominn út úr
myndinni. Framsóknarmenn
vildu ekki fallast á tillögu okk-
ar um að starf bæjarstjóra yrði
auglýst laust til umsóknar og
ekki heldur á tillögur okkar um
yfirstjórn verklegra fram-
kvæmda. Á því strönduðu við-
ræður svo nú er að sjá hvað
Sjálfstæðisflokkurinn gerir, um
það þori ég engu að spá, sagði
Kristján.
Siglufjörður
Framhald af baksíðu.
heldur ekki gott. Þá þarf að
tryggja fjárhag hitaveitu og
rafveitu en erfið lánakjör eru að
sliga þessar stofnanir. Það
verður reynt að breyta þeim
kjörum til hins betra svo
orkuverð verði ekki hærra hér
Sakleysið - síst má án þess vera
Landsmenn hafa fengið að kynnast stjórnmálabaráttu
af næsta sérkennilegri gerð undanfarna daga. Kjósend-
ur refsuðu sem kunnugt er stjórnarflokkunum fyrir
fruntalega framkomu við launafólk með því einu sem
skiljanlegt er. Þúsundum saman snéru þeir baki við
afturhaldinu í landinu í sveitarstjórnarkosningunum
með afleiðingum, sem í minnum verða hafðar um árabil.
En forystumenn Framsóknar og íhalds skilja ekki neitt í
þeim ósköpum sem hafa skeð. Þannig taldi fráfarandi
borgarstjóri í Reykjavík að fall íhaldsins í borginni yrði
ekki skýrt með öðru en því að kommunum hafi tekist að
læða þeim undarlega skilningi inn hjá fólki að engin
ástæða væri til að kjósa íhaldið, það myndi halda
meirihlutanum samt. Vist eru kommarnir klókir, ekki ber
að neita því. Samt sem áður má treysta því, að enginn i
þeim herbúðum gerir því skóna að stjórnmálaflokkur
haldi kjörfylgi sínu án þess að kjósendur kjósi við
komandi flokk. Annað mál er það, að kommunum þykir
yfir höfuð engin ástæða til þess að fólk kjósi íhaldið og
síst af öllu eftir þau ósköp sem gengið hafa á í samskipt-
um verkalýðshreyfingar og ríkisvalds undanfarið kjör-
tímabil.
Forsætisráðherrann var í kokkteilpartýi fyrir westan
þegar ósköpin dundu yfir og skyldi engan undra þó að
ráðherranum hafi svelgst á asnanum þegar honum
bárust tíðindin. Ekki skilur hann neitt í þessu heldur,
aumingja maðurinn. Helst var á honum að skilja að
fullkominn misskilningur launafólks á lífskjörum sínum
væri ástæðan fyrir falli íhaldsins. Fólk væri bara ekki
búið að átta sig á því hversu óskaplega góður flokkur
Sjálfstæðisflokkurinn væri, og hve dásamleg lífskjör
almennings væru. Þetta er auðvitað vel skiljanlegt þegar
þess er gætt að ráðherranum hefur tekist að draga fram
lífið á arði nokkurra stórfyrirtækja, sem sífellt eru rekin
með tapi auk þess að hafa ekki nema treikvart miljón á
mánuði í laun fyrir það eitt að segja þessari guðsvoluðu
þjóð að sitja þegjandi. Það er sosum ekki von að þjóðin
skilji umhyggjuna sem fram kemur í stjórnarathöfnun-
um þegar menn hafa það í huga að í verkalýð og bændur
er mokað peningum fyrir svo sem ekki neitt. Þegar
forsætisráðherrann verður að lifa af þeirri hungurlús
sem áður er nefnd geta verkamenn velt sér í trylltum
unaði og óhófslífi með heilar hundrað og tuttugu
þúsund krónur á mánuði og ekki er sællífið minna á
bændunum sem hafa hvorki meira né minna en sjö
tíundu af þessari feikna upphæð. Hvernig eiga slíkir
ofalningar að skilja lífskjör fátækrar þjóðar. Menn skulu
líka minnast þess að hinn vellauðugi verkalýður hefur
ekki bara hundrað og tuttugu þúsund krónur á mánuði
heldur miklu meira. Þetta fólk vinnur nefnilega oft og
iðulega fram á rauða nótt og þénar svo og svo mikið á
því. Forsætisráðherrann verður hins vegar að sætta sig
við að hafa tekjur af dagvinnu einni saman. Þetta er
hróplegt ranglæti eins og allir sjá.
Óli Jó. skilur ekki neitt í þessu heldur sem ekki er von
og segist munu nota tímann fram að kosningum til þess
að skýra út fyrir þjóðinni hvað hún hafi það afskaplega
gott, einkum þó og sér í lagi eftir nýjustu bráðabirgða-
lög ríkisstjórnarinnar. „Fólkið bara veit ekki enn hvað
við höfum gert“ sagði ráðherrann. „Við Framsóknar-
menn ætlum hins vegar að segja því það.“ Þeir ætla að
útskýra það, sagði hann, og þá verður vist allt gott og
blessað.
Allur er málatilbúnaður stjórnarflokkanna þessa
dagana til marks um ástand þess manns sem lemur
hausnum við steininn eða lifir í fullkominni forheimskan
og skilningsleysi á viðhorf annarra manna.
Það sem gerst hefur verður ekki skýrt með
ímynduðum veruleika eða orðaleikjum. Hin afturhalds-
sama ríkisstjórn hefur einfaldlega gengið of langt. Hún
hefur misboðið þolinmæði kjósenda. Hver stjórn-
málamaður sem ber ábyrgð á slíku ástandi og neitar að
viðurkenna mistök sín grefur sína eigin pólitísku gröf.
Það vill svo heppilega til að við stjórnvölinn í iandinu eru
núna menn, sem mundu halda áfram að grafa gröf sína
og engin hætta virðist á að þeir láti ekki hendur standa
fram úr ermum á næstu vikum, svo blásaklausir og
engilblíðir sem þeir reyna að vera þegar þeir tala við
háttvirt atkvæði. „Sakleysið, síst má án þess vera,“
segir einhversstaðar, „en of mikið af öllu má þó gera,“
segir einnig.
Hið yfirdrifna sakleysi er réttilega skilið af kjósendum
sem fláræði og allar athafnir stjórnmálaflokkanna núna
þessar vikurnar sýnast bera svip þess lánleysis að
ríkisstjórnin hafi efnað niður í hina huggulegustu útför.
N.b. sína eigin.
Klói.
Gj afir
Framhald af bls. 3.
kr. 3.100. Áheit frá A. G. kr.
Iðnskólanum slitið
en annars staðar á landinu.
Loks hljóta umhverfismálin
að verða í brennidepli á kjör-
tímabilinu. Hingað til hefur öll
orka bæjarstjórnar farið í að
halda bæjarfélaginu fljótandi í
fjárhagslegum efnum en nú er
kominn tími til að snúa sér að
umhverfismálunum. Þar verður
stærsta verkefnið að koma upp
sorpeyðingarstöð ákjörtímabil-
in.
Atvinnuástand á Siglufirði er
gott um þessar mundir og búum
við enn við áhrif vinstri stjórn-
arinnar á því sviði. Það ætti að
auðvelda bæjarfélaginu að auka
þjónustu sína við bæjarbúa
sagði Gunnar Rafn.
10.000. Til minningar um
Magnús Helga Sigurbjörnsson
frá foreldrum hans kr. 100.000.
Gjöf frá ónefndri konu kr.
5.000. Gjöf frá N. N. kr. 200.
Gjöf frá Jónínu, Friðriku og
Þóru kr. 2.000. Gjöf frá Ingi-
björgu Bjarnadóttur kr. 15.000.
Gjöf íVá Rósu Kristinsdóttur kr.
2.000. Áheit frá Önnu Ólafs-
dóttur kr. 5.000.
Bestu þakkir.
Torfi Guðlaugsson.
Sjúkrahótal RauAa kroaaina
aru á Akurayri
ogj Raykjavik.
RAUOIKROSSiSLANOS
Kosningaskrifstofa G-listans
er í Eiðsvallagötu 18.
Sími 21704.
Sími Norðurlands er 21875.
Aðsetur G-listans
á kjördag verður í
Alþýðuhúsinu.
Símar: 21704 og 23595.
Sími í Eiðsvallagötu 18: 21875.
I
I
I
I
I
I
I
I
1
Söngfólk
Passíukórinn á Akureyri óskar eftir söngfólki,
einkum í karlaraddir. Æft verður í sumar á mið-
vikudagskvöldum. Upplýsingar gefnar í síma
21399, 22995 og 22052.
Tvœr stúlkur
felldu vígi
karlmanna
Iðnskóianum á Akureyri var
slitið 30. maísl. ísal Iðnskólans.
f upphafi máls síns gerði Jón
Sigurgeirsson skólastjóri grein
fyrir vetrarstarfinu í fáum drátt-
um. Þar kom m.a. fram að
nemendur voru alls 253 í 15
bekkjardeildum, þar af voru 9
konur. f fyrsta sinn voru þær nú
meðal nema í tréiúðnadeild og
bifvélavirkjun.
Fastakennarar voru 12 auk
skólastjóra og 15 stundakenn-
arar. Kenntvarí 15 iðngreinum.
51 nemi var í húsasmíði. Næstir
og jafnfjölmennir voru bifvéla-
virkjar, ketil- og plötusmiðir og
rafvirkjar, 21 í hverri grein.
Fjórði bekkur var nú í
skólanum í síðasta sinn og
brautskráðust úr honum 58
nemendur og nokkrir eiga ólok-
ið einstöku námsgreinum.
Hæstu einkunn hlutu Vigfús
Sigurðsson húsasmiður, 9.12,
sem er ágætiseinkunn, og Skarp
héðinn Sigtryggsson bifvéla-
virki, 8.72. Einnig brautskráð-
ust nú í fyrsta sinn 34 nemendur
úr þriðja áfanga nýja kerfisins.
Hæstu einkunn þar hlutu Hring
ur Hreinsson húsasmiður og
Kristján Jóhannesson vélvirki,
báðir með 8.8. í vetur starfaði
rafiðnadeild í fyrsta sinn í
skólanum og eru því verknáms-
deildirnar orðnar þrjár. Aðsókn
að þeim fer stöðugt vaxandi en
vegna skorts á húsnæði og
tækjum til verklegrar kennslu
Svavar Gunnarsson kennir ungum rafiðnanemum en sú námsbraut var
kennd í fyrsta sinn við Iðnskólann á Akureyri sl. vetur.
er ekki unnt að sinna nema
hluta þeirra umsókna sem ber-
ast. Einkum er brýnt að bæta
slæma aðstöðu sem málmiðna-
deildin býr við og hlýtur stærsta
átakið á næstu árum að vera
smíði á nýju málmsmíðahúsi.
Einnig er nauðsyn að stofna
fljótlega framhaldsleild í tré-
iðnum.
Skólastjóri gat þess að hann
léti nú af störfum eftir 28 ára
veru við skólann, þar af sem
skólastjóri í 25 ár. Rakti hann í
stuttu máli þá þróun sem orðið
hefur í starfi skólans og minntist
í fáum orðum þeirra sem
stjórnað höfðu skólanum allt
frá stofnun hans.
Þá flutti Halldór Arason
formaður skólanefndar Iðn-
skólans stutt ávarp og þakkaði
Jóni Sigurgeirssyni skólastjóra
hans mikla starf í þágu skólans
og sagðist vonast til að fá
tækifæri til að minnast þess
betur síðar.
Einnig talaði Skúli Magnús-
son fyrir hönd kennara og
þakkaði skólastjóra ötula for-
ystu og ánægjulegt samstarf og
færði honum málverk að gjöf
frá þeim.
Að því loknu sleit skólastjóri
skólanum og bauð nemendum,
kennurum og gestum þeirra til
kvöldvöku í Skíðahótejinu.
(Fréttatilkynning.)
NORÐURLAND - 7